Þjóðviljinn - 18.12.1990, Blaðsíða 5
FRETTIR
Skattar
Einn miljarður í tekjutap
Með tilfærslum á tekjuhlið Jjárlagafrumvarpsins og öðrum skattbreytingum er boðað tekjutap
ríkissjóðs uppá einn miljarð kr. oggœtu verðlagsáhrifin orðið 0,10 prósent lœkkun
Fjármálaráðherra Ólafur tekjur ríkissjóðs næsta ár miðað
Ragnar Grímsson hefur lagt við árið í ár um 500 miljónir kr.
fram í Neðri deild Alþingis þrjú þar sem tryggingargjaldið leggst á
frumvörp er varða skattamál. breiðari hóp en gjöldin fimm sem
það leysir af hendi. Þannig verða
rauntekjur næsta árs einum mil-
jarði minna en í ár. I öðrum breyt-
ingum á íjárlagafrumvarpinu
Að þeim samþykktum, og
ásamt öðrum breytingum, yrðu
tekjur ríkissjóðs næsta ár ein-
um miljarði kr. minni í ár og
telur ráðuneytið að það gæti
lækkað verðlag í landinu um
0,10 prósent.
Tvö frumvarpanna lúta að
tryggingargjaldi sem koma á i
stað fimm mismunandi gjalda
sem fyrirtæki greiða nú. Sam-
kvæmt frumvarpinu fengi ríkis-
sjóður 500 miljónir kr. meira í
aðra hönd í stað 1660 miljóna
meira einsog gert er ráð fyrir í
fjárlagafrumvarpinu eins og það
er nú. Þriðja frumvarpið er lagt
fram til að skattbyrði einstaklinga
verði jöfn árið 1991 og fyrir árið í
ár. Þannig koma skattleysismörk-
in til með að hækka samkvæmt
ffumvarpinu úr 53.988 kr nú í
58.600 krónur að jafnaði á næsta
ári.
Miðað við tekjur ársins i ár
verða tekjur ríkissjóðs næsta ár
um 1500 miljónum minni vegna
niðurfellingar á virðisaukaskatti
af bókum og viðhaldi íbúða,
vegna lægra söluskattshlutfalls,
lækkunar jöfnunargjalds og vegna
afnáms leyfisgjalds af fjármagns-
hreyfmgum. Hinsvegar aukast
er
gert ráð fyrir að hætt verði við
fyrirhugað hafnarmálagjald, en
með því hefðu tekjur ríkisins auk-
ist um 560 miljónir. Húsaleigu-
bætur koma ekki til ffamkvæmda
á næsta ári, en skattframtöl verða
notuð til að afla upplýsinga um
húsaleigumarkaðinn. Umræða
verður um fjárlagafrumvarpið á
fimmtudaginn. en til að sam-
þykkja frumvörpin þijú þarf þing-
ið að hafa hraðar hendur því það
þarf sex umræður í vikunni áður
en jólaleyfi þingmanna hefst.
-gpm
Flestir höfundar, þýðendur og umsjónarmenn útgáfurita Hins (slenska bókmenntafélags á kynningarfundi (
gær. Mynd: Jim Smart.
Bókaútgáfa
Mestu umsvif Bókmenntafélagsins
Saga Islands, tímans, Skálholts og steinsteypunnar fylgja Freud, heimsku, lygi, hag-
fræði, bókfræði og upplýsingu á markaðinn
Hið íslenska bókmenntafélag
hefur ekki í annan tíma gef-
AB Norðurlandi vestra
Ragnar efstur
Fyrri umferð forvals Alþýðu-
bandalagsins á Norðurlandi
vestra fór fram um helgina og
fólst í tilnefningum og fékk
Ragnar Arnalds þingmaður
kjördæmisins yfir 90 prósent
kosningu.
Alls voru 54 tilnefhdir, en 20
þeirra verða i kjöri við seinni um-
ferð forvalsins sem fer fram 12.
janúar. Um atkvæðatölur annarra
var ekki getið, en átta næstu voru
Anna K. Gunnarsdóttir, Björgvin
Karlsson, Hafþór Rósmundsson,
Ingibjörg Hafstað, Rögnvaldur
Ólafsson, Sigurður Hlöðversson,
Unnur Kristjánsdóttir og Þorvald-
ur G. Jónsson. -gpm
ið út jafn mörg rit og í ár, tólf
alls, að sögn Sigurðar Líndals,
forseta félagsins.
Fimmta bindið af Sögu ís-
lands nær frá um 1400 framundir
miðja 16.öld. Meginkaflinn er
Enska öldin, eflir Bjöm Þor-
steinsson og Guðrúnu Asu Grims-
dóttur. Jónas Kristjánsson ritar
bókmenntasögu og Bjöm Th.
Bjömsson myndlistarsögu.
Hörður Agústsson er höfúnd-
ur ritsins Skálholt II, Kirkjur, sem
fjallar um allar kirkjubyggingar
þar til 1956. Ingi Sigurðsson er
ritstjóri ritgerðasafhsins Upplýs-
ingin á íslandi, en Lýður Bjöms-
son skrifar fimmta bindi iðnsög-
unnar: Steypa lögð og steinsmíð
ris. Einar G. Pétursson og Ólafiir
F. Hjartar sjá um 3. bindi af Is-
lenskri bókfræði, en Siguijón
Bjömsson hefur þýtt Undir oki
Siðmenningar, eitt aðalrit Sig-
mund Freuds. Þorvaldur Gylfason
prófessor sendir frá sér ritið Al-
mannahagur, 75 ritgerðir um hag-
fræði og efnahagsmál, og loks
hafa komið þijú lærdómsrita,
Manngerðir Þeófrastosar í þýð-
ingu Gottskálks Þórs Jenssonar,
Lof heimskunnar eftir Erasmus
frá Rotterdam í þýðingu Þrastar
Asmundssonar og Arthúrs Björg-
vins Bollasonar og metsölubókin
Saga tímans eflir Stephen W.
Hawking í þýðingu Guðmundar
Amlaugssonar. ÓHT
# r
Helgi Olafsson skrifar um skák
Bensín
Innflutningur
frjáls
Innflutningur á bflabensíni
verður gefínn frjáls frá og með
1. janúar n.k. að telja. Akvörð-
un þar að lútandi tók viðskipta-
ráðherra í kjölfar þess að sýnt
er að samningaviðræðum við
Sovétmenn um bensínkaup á
næsta ári er lokið án þess að
samkomulag hafi náðst.
Að sögn Bjama Bjamasonar,
markaðsstjóra Oliufélags íslands
hf., er ekki við því að búast að
breytingar verði á bensínverðinu í
kjölfar þess að innflutningurinn
verður gefinn fijáls. -Verð á bens-
íni verður eftir sem áður háð eftir-
liti og ákvörðun Verðlagsráðs - á
því verður tæpast nein breyting.
Islendingar hafa til þessa
fengið allt sitt bensín frá Sovét-
ríkjunum, og hefur verðið verið
miðað við Rotterdammarkað. -
Það er því mikill miskilningur
sem stundum hefur heyrst að
bensínið frá Sovétmönnum væri
dýrara en gerðist á Rotterdam-
markaði, sagði Bjami.
Aðspurður um það hvort olíu-
félögin myndu hér eftir sem hing-
að til hafa samastarf um olíuinn-
kaup, sagði Bjami að það ætti eft-
ir að koma í ljós.
-rk
AB Vesturlandi
Jðhann í fyrsta,
Skúli ísjöunda
Gengið hefúr verið frá lista
Alþýðubandalagsins á Vesturlandi
vegna þingkosninga í vor. í fyrsta
sæti er Jóhann Ársælsson, Akra-
nesi, en núverandi þingmaður,
Skúli Alexandersson, skipar sjö-
unda sæti Iistans.
í öðm sæti er Ragnar Elbergs-
son, Grundarfirði, í þvi þriðja
Bergþóra Gísladóttir Borgamesi,
þá Ami E. Albertsson Ólafsvík.
Fimmta sætið skipar Ríkharð
Brynjólfsson Hvanneyri og það
sjötta Bryndís Tryggvadóttir
Akranesi. Valdis Einarsdóttir
Lambeyram er í áttunda sæti og
Einar Karlsson Stykkishólmi er i
því níunda. í tíunda er svo Ingi-
björg Bergþórsdóttir Fljótstungu.
-gpm
Kasparov með tveggja vinninga forskot
Einhver fallegasta skák ársins
sá dagsins ljós er Garrij Kasparov
lagði Anatoly Karpov að velli í
tuttugustu skák
einvígisins um heimsmeist-
aratitilinn sem nú fer fram í Lyon
í Frakkalandi. Með vinnings for-
skot og aðeins fimm skákir eflir
virðist Garrij leggja allt að veði i
þessari skák: titilinn, sál sína og
heiður. Af hverju fómar maður í
þessari stöðu einvígisins? Það er
vegna þess að hann getur ekki fal-
ið sig. Hann verður að vera hann
sjálfúr. Og nú er stutt til loka ein-
vígisins. Ösigur Anatolys er fyrir-
sjáanlegur. Þar með lýkur tímbili
litla mannsins frá Uralfjöllum;
mannsins sem kom inn í skákina
með litlu leikina.
20. einvígisskák:
Garrij Kasparov - Anatoly
Karpov
Spænskur leikur
1. e4 e5
2. RO Rc6
3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6
5. 0-0 Be7
6. Hel b5
7. Bb3 d6
8. c3 0-0
9. h3 Bb7
(Tsjigorin-afbrigðið, 9... Rd7,
er lagt til hliðar í þessari skák, en
það hefúr verið helsta vopn Kar-
povs gegn kóngspeðinu i þessu
einvígi.)
10. d4 He8
11. Rbd2 Bf8
12. a4 h6
13. Bc2 exd4
14. cxd4 Rb4
15. Bbl c5
16. d5 Rd7
17. Ha3 f5
18. Hae3 Rf6
(Af hveiju ekki 18. .. f4? eins
og leikið var i síðustu einvígis-
skák Karpovs og Timmans í Ku-
ala Lumpur fyrr á þessu ári?)
19. Rh2 Kh8
(Þeir sem leita að blettum í
sólinni hljóta að hnjóta um þenn-
an leik. Það er ekki algilt að kóng-
urinn standi betur á h8. 19. .. Hc8
var betra.)
20. b3 bxa4
21. bxa4 c4
22. Bb2 fxe4
23. Rxe4 Rfxd5
24. Hg3 He6
25. Rg4 De8
a b c d e f g h
26. Rxh6!
(Fyrsta sprengjan fellur. Þessi
bráðskemmtilegi leikur kemur í
beinu framhaldi af hemaðarupp-
byggingu hvíts á kóngsvængn-
um.)
26... c3
(Millileikur sem Karpopv
hefúr áreiðanlega talið nægjan-
lega sterkt móteitur við 26. leikn-
um. Engu að síður kom til greina
að leika 26. .. Hxh6, en eftir 27.
Rxd6! Dxel+ (eftir 27... Dd7 28.
Dg4 er svartur glataður) 28. Dxe2
Hxdf6 29. Be5! Hh6 30. Dcl! er
svarta staðan afar erfið viðfangs.)
27. Rf5 cxb2
28. Dg4 Bc8
(Með hugmyndinni 29. Rxg7
Hxe4! og svartur nær hagstæðuin
uppskiptum.)
29. Dh4+ Hh6
(Eftir 29. .. Kg8 30.Kh2 á
svartur enga vöm gegn 30. Rg5
o.s.frv.)
30. Rhx6 gxh6
31. Kh2!
(Rétt eins og i hinni frægu 16.
skák einvígisins í London/Len-
íngrad 1986 reynist 31. leikur
heimsmeistarans sigurleikurinn.)
31... De5
32. Rg5 Df6
33. He8 B15
34. Dxh6+!!
(Leikur einvígisins.)
34.. . Dxh6
35. RÍ7+ Kh7
36. Bxf5+ Dg6
37. Bxg6+??
(Auðvitað vinnur þessi leikur,
en ég er handviss um að Kasparov
á eftir að naga sig í handarbökin
fyrir að hafa ekki leikið 37. Hxg6
með óveijandi máthótunum.)
37.. . Kg7
38. Hxa8 Be7
39. Hb8 a5
40. Be4+
(Auðveldasta leiðin út, en 40.
Rh6 var fljótvirkara.)
40.. . Kxf7
41. Bxd5+
- og Karpov gafst upp. Eftir
41. .. Rxd5 42. Hxb2 er öll mót-
staða fýrir bí.
Staðan:
Kasparov 11
Karpov 9
Þriðjudagur 18. desember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5