Þjóðviljinn - 18.12.1990, Qupperneq 6
ERLENDAR FRETTIR
Þvskaland
De Maiziere segir af sér
Fullyrðingar um að hann hafi njósnað fyrir Stasi
urðu honum að falli
Lothar de Maiziere, síðasti
forsætisráðherra Austur-
Þýskaiands og leiðtogi kristi-
legra demókrata þar, áður en sá
flokkur sameinaðist bróður-
flokknum með sama nafni í
Vestur-Þýskalandi, lýsti því yflr
í gær að hann ætlaði að segja af
sér ráðherraembætti í stjórn
Þýskalands og stöðu varafor-
manns flokks kristilegra demó-
krata.
De Maiziere segist hafa
ákveðið þetta vegna ásakana um
að hann hafi um átta ára skeið
njósnað fyrir austurþýsku örygg-
isþjónustuna, Stasi, og einkum
verið henni innanhandar um upp-
lýsingar um starfsemi mótmæl-
endakirkna. Hafa tímaritið Spieg-
el o.fl. blöð birt frásagnir af þessu
og haft þær eftir fyrrverandi
Stasimönnum. Mál þetta hefur
vakið mikla athygli í Þýskalandi.
De Maiziere, sem var lög-
fræðingur og tónlistarmaður áður
en hann komst í fremstu röð í
stjómmálum, endurtók í gær fyrri
fullyrðingar sínar um að hann
væri saklaus af því sem á hann
væri borið, en kvaðst hafa ákveð-
ið að segja af sér til að koma í veg
fyrir að málið yrði ríkisstjóminni
og kristilegum demókrötum til
óþæginda.
Nú mun vera útséð um að de
Maiziere verði í næstu ríkisstjóm
Helmuts Kohl, leiðtoga kristi-
legra demókrata og sambands-
kanslara, sem búist er við að
Albanía
Viðræður
stjórnar og
stjórnar-
andstöðu
Talsmenn Lýðræðisflokksins,
fyrsta stjórnarandstöðuflokks
Albaníu eftir heimsstyrjöldina
síðari sem stofnaður var fyrir tæ-
pri viku, sögðust í gær vera von-
góðir um að samkomulag tækist
með þeirra flokki og kommún-
istaflokknum um að koma á
kyrrð í landinu.
Fulltrúar Lýðræðisflokksins
ræddu um helgina við Adil Carc-
ani, forsætisráðherra, og eru þetta
fyrstu viðræður stjómar og stjóm-
arandstöðu þarlendis frá því að
kommúnistar tóku þar völd í lok
heimsstyijaldarinnar síðari. I við-
ræðunum gaf Carcani í skyn, að
stjómin liti ekki svo á að Lýðræðis-
flokkurinn væri ábyrgur fyrir
óeirðum, sem urðu í nokkrum
borgum á fostudag og laugardag.
Genc Polo, einn talsmanna Lýð-
ræðisflokksins, sagði flokkinn ætla
að leggja fram i dag umsókrí um
Iöglega skráningu flokksins og
myndu viðbrögð stjómarinnar við
umsókninni sýna, hvort hún í al-
vöru vildi samstarf við flokkinn.
í umræddum óeirðum voru bíl-
ar brenndir, verslanir rændar og
ráðist á hús kommúnistaflokksins.
Stjómin bældi óeirðimar niður
með herliði og skriðdrekum og
vom um 160 manns handteknir.
Verða þeir bomir ákæmm um ólög-
leg fúndahöld, rán, árásir og morð-
tilraunir.
Reuter/-dþ.
mynduð verði í næsta mánuði.
Aður hafði de Maiziere komið til
greina í embætti dómsmálaráð-
herra. Hann er ráðherra án ráðu-
neytis í núverandi stjóm.
Tveir austurþýskir stjóm-
málamenn, sem hófúst til áhrifa
eftir að kommúnistar létu af völd-
um, hafa áður dregið sig i hlé af
sömu ástæðum. Nú er talið að að-
eins einn stjómmálamaður frá
austurhluta landsins, Gúnther
Krause að nafni, hafi einhveija
von um að verða tekinn í næstu
stjóm.
Reuter/-dþ.
De Maiziere
- sagður hafa njósnað um mót-
mælendakirkjur.
Gorbatsiov á þióðfulltrúaþingi
„Myrkraöfr
ógna ríkiseiningu
Búist er við að samþykktir þingsins verði forsetanum í vil,
en Eystrasaltslýðveldin og Georgía neita að undirrita
sambandslagasamning
Míkhafl Gorbatsjov, Sovét-
ríkiaforseti. flutti ræðu í
íkhafl Gorbatsjov, Sovét-
ríkjaforseti, flutti ræðu
gær á nýsamankomnu þjóðfull-
trúaþingi Sovétríkjanna. Sagði
hann m.a. að ef þingið veitti
honum þau auknu völd, sem
hann fer fram á, myndi hann
tryggja íbúum Sovétríkjanna
næg matvæli, gera róttækar
ráðstafanir gegn glæpum og
stöðva átök milli þjóða. Að öðr-
um kosti myndu „myrkraöfl“
sundra ríkinu.
Æðstaráð Sovétríkjanna hefur
þegar samþykkt að fela forsetan-
um aukin völd og til þess að hann
fái þau vantar nú aðeins staðfest-
ingu þjóðfulltrúaþingsins. Það sit-
ur að þessu sinni í tíu daga og er
búist við að það staðfesti sam-
þykkt æðsta ráðsins. Róttækir
þingmenn og margir íhaldsmanna
á þingi virðast sammála um það.
Eigi að síður bar einn íhalds-
samari þingmanna kommúnista-
flokksins, Sazhi Umalatova, þeg-
ar eftir að þingið var sett ffam til-
lögu um að Gorbatsjov segði áf
sér. Sakaði hún hann um að hafa
komið raski á þjóðfélagið og auð-
mýkt Sovétríkin með því að biðja
um matvælahjálp erlendis frá. Til-
lagan var felld með 1288 atkvæð-
um gegn 426. Þykir það bera vott
um að andstaðan við Gorbatsjov
sé allútbreidd meðal íhaldssamra
þingmanna.
Gert er einnig ráð fyrir að
þingið samþykki nýjan samning
um sambönd miðstjómar og lýð-
velda. Samkvæmt honum fá lýð-
veldin í sumu aukna sjálfstjóm,
en ákvarðanatökur um efnahags-
og öiyggismál verða áffam í
höndum miðstjómar.
Ljóst er að sum lýðveldanna
em mótfallin bæði auknum völd-
um til Gorbatsjovs og nýja sam-
bandslagasamningnum. Þing-
menn Litháens mættu ekki áþing-
ið í mótmælaskyni, armenska
stjómin lýsti því yfir að hún
myndi hundsa þingið algerlega og
fulltúar Eistlands og Lettlands
mættu aðeins til að hlusta á ræðu
Gorbatsjovs og segjast ekki ætla
að taka þátt í þingstörfúm að öðm
leyti. Eystrasaltsríkin þijú og Ge-
orgía hafa gefíð til kynna að þau
muni ekki undirrita sambands-
lagasamninginn.
Reuter/-dþ.
ANC setur úrslitakosti
Affíska þjóðarráðið (ANC) tók
herskáa afstöðu á þingi sínu í Jó-
hannesarborg um helgina. Gaf
þingið í skyn að samtökin myndu
slíta undirbúningsviðræðum við
Suður-Affíkustjóm ef stjómin
hefði ekki „mtt úr vegi hindmn-
um“ til að umræður gætu hafist um
valdaskiptingu blakkra manna og
hvítra fyrir lok n.k. aprílmánaðar.
Sleppum aldrei Kúvæt
íraksstjóm lýsti þvi yfir einu
sinni enn í gær að hún myndi aldrei
láta Kúvæt af hendi og neitaði að
taka á móti James Baker, utanrikis-
ráðherra Bandaríkjanna, til samn-
ingaviðræðna í Bagdað í síðasta
lagi 3. jan., eins og Bandaríkja-
stjóm vill. íraksstjóm vill að Baker
komi ekki fyrr en 12. jan., en því
hefúr Bandaríkjastjóm vísað á bug.
Fá að áfrýja
, Breskur dómstóll úrskurðaði í
gær að sex menn, sem dæmdir vom
til ævilangrar fangelsisvistar 1974
eftir að hafa verið úrskurðaðir sek-
ir um sprengjutilræði í Birming-
ham það ár, skyldu fá að áffýja
dómum sínum vegna nýrra upplýs-
inga í málinu, sem komið hefðu
ffam. 21 maður fórst af völdum
sprenginga þessara, sem talið er að
írski lýðveldisherinn (IRA) hafi
staðið að. Dómamir yfir „sex-
menningunum í Birmingham1',
eins og þeir dæmdu hafa verið kall-
aðir, hafa lengi verið umdeildir.
Morðingjar Mendesar
dæmdjr
Dómstóll í brasilíska fylkinu
Acre í Amasonskógum hefúr dæmt
búgarðseiganda nokkum og son
hans til 19 ára fangelsisvistar
hvom eftir að hafa fundið þá seka
um að hafa myrt Chico Mendes,
gúmsafnara og baráttumann fyrir
umhverfisvemd. Var hann myrtur í
des. 1988. Umhverfísvemdarsinn-
ar sem viðstaddir vora réttarhöldin
segjast gera sér vonir um að dóm-
urinn sé merki um aukinn vilja yf-
irvalda til að bjarga Amasonskóg-
um.
Enn ein minnihlutastjórn
p
Gorbatsjov - Eystrasaltslýðveldi
og Armenía hundsa þingið.
oul Schliiter, forsætisráð-
herra Danmerkur, tilkynnti
í gær að hann hefði ákveðið að
mynda stjórn með aðild tveggja
flokka aðeins, íhaldsflokksins
og Venstre.
Ekki spá menn stjóm þeirri
langlífi, enda kemur hún til með
að hafa á bakvið sig aðeins 61
þingmann af 179, eða færri en
nokkur þeirra fjögurra stjóma
sem Schluter hefúr verið í forsæti
fyrir frá því að hann varð forsæt-
isráðherra 1982. Hann mun gera
sér vonir um að hægri- og miðju-
flokkar þeir, sem ekki verða með í
stjóminni, veiji hana eigi að síður
falli.
Svíþióð
Jafnaðarmenn á undanhaldi
Samkvœmt niðurstöðum skoðanakönnunar um helgina er hægriflokkurinn kominn upp
fyrirþá ífylgi
iðurstöður skoðanakann-
ana um helgina benda til
þess að sænskir jafnaðarmenn
séu nú fylgisminni en nokkru
sinni fyrr frá því að kannanir á
fylgi stjórnmálaflokka hófust
þarlendis á sjöunda áratug.
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unar á vegum óháðrar stofnun-
ar, SIFO, hafa jafnaðarmenn
nú aðeins 27,5 af hundraði kjós-
enda á sínu bandi.
Hófsami sameiningarflokkur-
inn, hægriflokkur Svía, nýtur
samkvæmt niðurstöðum SIFO
fylgis 31,1 af hundraði kjósenda.
Utkoman fyrir hægri- og miðju-
flokka í könnuninni var um 60 af
hundraði en fyrir jafnaðarmenn
og Vinstriflokkinn 35 af hundr-
aði.
Niðurstöður könnunar á veg-
um annarrar stofnunar, sem einn-
ig var gerð um helgina, urðu m.a.
30 af hundraði fyrir jafnaðar-
menn, en hægrifokkurinn fylgdi
fast á hæla þeim með 29 af hundr-
aði.
Jafnaðarmenn hafa um nokk-
urt skeið verið á niðurleið í skoð-
anakönnunum og era nú famir að
óttast að þeir séu að missa forast-
una í stjómmálum Svíþjóðar, sem
þeir hafa haft í 58 ár.
Ein af ástæðunum til þess hve
mjög sígur nú á ógæfuhliðina fyr-
ir sænskum jafhaðarmönnum er
svæsin deila milli tveggja forastu-
manna þeirra, Allans Larsson
fjármálaráðherra og Stigs Malm,
leiðtoga sambands iðnaðar- og
verkamanna, sem til þessa hafa
verið tryggustu kjósendur flokks-
Allan Larsson, fjármálaráðherra
Svla - deila hans við Stig Malm,
einn áhrifamesta leiðtoga verka-
lýðshreyfingarinnar, er óheilla-
merki fyrir jafnaðarmenn.
ins. Malm sakaði Larsson á
fimmtudag um að hafa vitandi
vits gert of mikið úr versnandi
stöðu sænsku krónunnar til að
knýja fram spamaðarráðstafanir,
sem m.a. fela í sér að sjúkrabætur
verkamanna vora skertar. Daginn
eftir baðst Malm afsökunar á
þessum ummælum, að sumra
sögn til þess þvingaður af Larsson
og Ingvari Carlsson, formanni
flokksins og forsætisráðherra.
Jafnaðarmenn era nú famir að
horfa kvíðnir fram til næstu þing-
kosninga, sem fara eiga frarn í
sept. n.k. I síðustu þingkosning-
um, sem fóra fram 1988, fengu
jafnaðarmenn 43,2 af hundraði
greiddra atkvæða.
Reuter/-dþ.
Ö.SlÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 18. desemb^r 1990