Þjóðviljinn - 18.12.1990, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 18.12.1990, Blaðsíða 7
Minningar Eyjólfs á Hvoli Eyjólfur Guðmundsson bóndi og rithöíundur á Hvoli í Mýrdal (1870-1954) varð þjóðkunnur maður er bók hans Afi og amma kom út 1941. Á eftir fylgdu minn- ingabækumar Pabbi og mamma, Vökunætur og eigin ævisaga, Lengi man til lítilla stunda. hin nýja bók, Minningar úr Mýrdal, tekur upp þráðinn þar sem henni sleppir. Það er Þórður Tómasson safnvörður í Slógum sem býr verkið til prentunar. Bókin hefst þar sem ungur kennari kemur til starfs í æskubyggð 1893 og er brátt einnig önnum kafinn í fé- lagsmálum, langferðum, verslun, bústörfum, fjölþættu lífi líðandi stunda. Hér er lýst sveit sem er að vakna af svefni til nýrrar aldar og framfara, sagt er ffá eftirminni- legu fólki og margvíslegum ör- lögum. Frásögnin einkennist af notalegri glettni, mannlegri hlýju og glöggri yfirsýn atburða. Þetta er hluti af þjóðarsögu, hugþekk og eflirminnileg heimild. knattspyrnu Sigmundur ö. bteinarsson íþróttafréttamaður hefur skrifað sögu heimsmeistarakeppninnar í knattspymu er nefnist Italía '90 - 60 ára saga HM i knattspymu. Bókin er fimmta bók höfundar, en Fróði h.f. gefur bókina út. í bókinni rekur Sigmundur sögu þessarar einstöku keppni frá upphafi, en fyrsta heimsmeistara- keppnin var haldin í Umguay árið 1930. ítarlegust er umfjöllunin um keppnina í Mexíkó 1986 og á Ítalíu, sem haldin var í sumar. Umfjöllun og framsetning er mjög skipuleg og ljósmyndir, skýringateikningar og töflur skipa stóran sess á síðum bókar- innar. Þá er fjallað um efitirminni- lega atburði úr keppninni og staldrað við litrikustu knatt- spymukappana. Sérstakir kaflar fjalla um þátt- töku og frammistöðu íslenska landsliðsins í heimsmeistara- keppninni. Stefán F. Hjartarson skrifar um bækur: „Hugmyndafræðin flæktist ekki fyrir þeim“ Þessir höfðu forystu ( málningarverkum: Lúðvik, Bjami, Jóhannes. Helgi Guðmundsson. Þeir máluðu bæinn rauðan. Saga vinstri hreyfingar á Norð- firði. Mál og menning 1990. Það hlýtur að vekja mikla for- vitni og eftirvæntingu að út er komin bók um sögu vinstrihreyf- ingar á Norðfirði (frá 1929 Nes- kaupstaður). Ekki síst vegna þess að saga vinstri manna er öðrum þræði saga stórkostlegrar upp- byggingar atvinnu- og félagslífs í einu byggðarlagi, þar sem í for- svari vom menn úr ysta væng stjómmála. í stjórmála- og sagn- fræði er Norðfjörður sérstakt fyr- irbæri sem kallar á ítarlega um- fjöllun. Hvemig stóð á því að veldi Alþýðuflokks hnignaði á ör- skömmum tíma og við tóku menn úr Kommúnistaflokki Islands sem öfluðu síðan Sósíalistaflokknum meirihlutafylgi í bæjarsamfélag- inu allar götur síðan 1946? Þessari spumingu um hvemig völdunum var náð og hvemig þeim var viðhaldið reynir Helgi Guðmundsson að svara i bókinni Þeir máluðu bceinn rauðan. Saga vinstrihreyfingar á Norðfirði, sem Mál og menning gefur út. Höfund- ur ólst upp sem bam á Norðfirði þar til faðir hans, Guðmundur Helgason sóknarprestur og sósíal- isti, lést árið 1952. Helgi fer ekki leynt með hvemig hann andaði að sér þessu sjálfgefna sósíalíska andrúmslofli og nær að bregða upp lýsandi mynd af bæjarlífinu, séð ffá sjónarhomi bamsins. Nöfn eins og Einar og Brynjólfur þörfn- uðust engra skýringa við hjá böm- um sem vissu hvað merking orðs- ins Flokkurinn var, það var að sjálfsögðu Sósíalistaflokkurinn. Eg las bókina bæði með aug- um sagnffæðings og með augum lesanda sem ekki vill þreytast á óþarfa stagli um smáatriði. Það skal strax upplýst að bókin er mjög auðveld aflestrar, textinn er vandaður, stöðugt upplýsandi og hún er fyndin á köflum. Höfundur segist ekki hafa samið vísindalegt verk en það þolir vel að vera sett undir mælistiku, þar sem athuguð em staðreyndaval og túlkunar- gæði. Bókin ber þess merki að baksvið atburðanna hefur verið vel kannað. Heimildimar em m.a. hefð- bundin fundargerðagögn ýmissa félaga, bréfaskriflir, bæjarblöð, síðustu rannsóknir í útgerðarsögu bæjarins og síðast en ekki síst, mörg viðtöl. Höfundur hefur varið löngum stundum með þeim Lúð- vík Jósepssyni og Jóhannesi Stef- ánssyni og fléttast viðtöl þeirra einkar haganlega inn í frásagnim- ar. Viðtölin em ekki notuð i stað skriflegra heimilda, sem stundum vill brenna við í hraðsoðnum við- talsbókum, heldur samhliða þeim. Þetta gefur þeim meira gildi, ágiskanir hverfa fyrir áreiðanlegri frásögn og túlkun þátttakendanna í atburðarásinni veitir innsýn í hugarheim manna sem vom ger- endur í orðsins fyllstu merkingu. Höfundur er nærgætinn í umsögn- um um menn og málefni án þess að ganga framhjá viðkvæmum at- riðum. Hvergi tel ég hann ósann- gjaman. Það má telja gildismat höfundar að þegar sjálfstæðis- flokksmaðurinn Karl Karlsson tók boði sósíalista 1938 um að gerast bæjarstjóri þá var það vegna þess „að Karl var laus við þá fordóma sem ofl koma í veg fyrir að skyn- samt fólk geti unnið saman“ (148). Höfundur geturþess að inn- an bæjarstjómar unnu nokkrir úr andstöðuflokkunum með í þeim málum sem horfðu til heilla. Þannig var háttað um Reyni Zo- ega, bæjarstjómarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins. Helgi lýsir kaupmannaveldinu sem við var að etja af hálfu braut- ryðjenda verkalýðshreyfingarinn- ar. Jónas Guðmundsson, forsp- rakki Alþýðuflokksmanna á Norðfirði, bar lengi vel ægishjálm yfir alla í félagsmálum og bæjar- pólitík. Jónas var með afbrigðum afkastamikill, ritpenni góður, sem sjá má af lestri blaðsins Jafnaðar- maðurinn, sem hann ritstýrði og enn má lesa sér til ánægju. Til marks um völd hans og yf- irburði þá fengu Alþýðuflokks- menn hreinan meirihluta í bæjar- stjómarkosningunum 1934, 222 atkvæði, en kommúnistar fengu aðeins 28 atkvæði. Jónas Guð- mundsson lét kjósendur vita að hann gæti einungis sætt sig við hreinan meirihluta Alþýðuflokks í bæjarstjóm. Jóhannes Stefánsson var 21 árs, Bjami Þórðarson og Lúðvík Jósepsson báðir 20 ára. Tilburðir hinna þriggja ungu manna (stráka), sem á endanum snem algerlega við öllu valdakerfi vinstri flokkanna, virðast í fyrstu hjákátlegir. Sósíalistaflokkurinn varð hinn stærri og Alþýðuflokk- urinn sá minni. Mikilvæg trúnaðarstörf og embætti hlóðust á Jónas, m.a. þingmennska, og það kom að því að gagnrýni hinna vökulu pilta hitti f mark. Jónas var fram- kvæmdastjóri Fóðurmjölsverk- smiðjunnar og jafhffamt formaður Verkalýðsfélagsins. Þegar til kom að greiða verkafólki dagvinnu- kaup fyrir eftirvinnu árið 1936, sáu kommúnistar einstakt tæki- færi til að koma höggi á Jónas. Þeir skipuðu verkfallsnefnd eflir að hafa boðað fund í Verklýðsfé- laginu, en stjóm þess kom hvergi þar nærri. Helgi skrifar: „Foringj- ar kommúnista vom orðnir svo sjóaðir og skólaðir í pólitísku starfi að þar kom enginn lengur að tómum kofunum. Þeir kunnu þá list, sem aðrir léku ekki eftir, að kalla fólk til fjöldafunda, ýmist í eigin nafni, Verklýðsfélagsins eða annarra. Rak hver fundurinn ann- an og samþykkti fundur um eitt málefni að stofna til fundar um annað.“ (bls. 120) Jónas Guð- mundsson réð ekki lengur at- burðarásinni. Helgi telur að þeir þrímenn- ingamir hafi gert áætlun um hvemig ætti að ná ítökum í bæjar- samfélaginu og að ffamtíðarsýn þeirra hafi í stómm dráttum ræst. Hún fólst í því að tengjast allri helstu félagsstarfsemi sem sköp- um skipti, hafa fmmkvæði í fram- faramálum og forðast áfengis- notkun. Innan tíðar vom sósíalist- ar komnir til áhrifa, í stúkunni, í íþróttafélaginu, í verkalýðsfélag- inu, í pöntunarfélaginu og í sam- vinnuútgerðarfélaginu. Það eina sem stóð óhreyft var Kaupfélagið Fram, en þar var látið staðar num- ið og samkomulag við ffamsókn- armenn um þá stöðu mála. Lykillinn að valdatökunni og löngum valdatíma var ffamúrskar- andi vel heppnuð verkaskipting manna í floklaium. Á bls. 110-111 kemur úr samtímaskjölum skýrt fram upphafið að rúmlega 40 ára samstarfi þrímenninganna frá ár- inu 1936.1 bókinni stendur: „Lúð- vík átti að skoða fjármálapólitík- ina í stærra samhengi, Bjami að huga að orðum og efhdum í sveit- arstjómarmálunum og Jóhannes að kanna atvinnureksturinn. Lúð- vik varð þingmaður, ráðherra og einn áhrifamesti foringi sósíalista, Bjami varð bæjarstjóri og helsti forystumaðurinn á vettvangi sveitarstjómarmála í Neskaupstað og Jóhannes veitti forstöðu mikil- vægustu samtökum og fyrirtækj- um í bænum um áratuga skeið.“ Helgi kemur beint og óbeint að orsökum sérstöðu Norðfjarðar i hinu pólitiska mynstri þjóðarinn- ar. Eiginlega verður „sérstaðan“ skiljanlegri og um leið og svarið gefst verður minna úr réttmæti þess að lýsa Norðfirði sem sér- dæmi. Valddreifingu forystumanna sósíalista hefur verið minnst á. Öll völd söfnuðust ekki á eina hönd þótt innan eins flokks væri. Sósi- alistar vom miklir gáfumenn, sem höfðu gæfu til að höndla vand- meðfarin völd til hagsældar fyrir bæjarsamfélagið. Þeir vom ekki kreddukenndir línumenn heldur létu stjómast af hinu pólitískt mögulega í samskiptum við aðra. Helgi hittir naglann á höfuðið þegar hann segir að „Hugmynda- fræðin flæktist ekki fyrir þeim“ (bls. 175). En þeir höfðu félags- legan áttavita sem beindi þeim inn á brautir atvinnuuppbyggingar þar sem persónuleg hagnaðarvon stjómunarmanna vék fyrir hags- munum stærri heildar. ítökin í fiskvinnslu staðarins veittu ómæld völd.'Stjóm hennar var í höndum „heimamanna“. Þeir öfluðu sér fylgismanna vegna framtaks og fómfysi sem vakti aðdáun margra. Þeir urðu að starfhæfum meiri- hluta í bæjarstjóm, og gátu bent á óstarfhæfan minnihluta. Lúðvík var hinn ákjósanlegi „sendiherra" Norðfirðinga í Reykjavík sem stækkaði landhelgi heima- og landsmanna! Alla tíð var það bæj- arpólitíkin sem málefni sósíalista snemst um, ekki atburðir heims- mála. Þetta stuðlaði að gerð nokk- urs konar brimgarðs sem hélt hol- skeflum utanrikismála frá. Höftmdur hefur afmarkað við- fangsefni sitt við vinstri hreyfing- una á Norðfirði og framkvæmir það sem hann ætlaði sér. Eg hefði kosið að hann hefði oftar lagt lykkju á leið sína og reynt að bera saman Norðfjörð við t.d. ísafjörð, þar sem Alþýðuflokkurinn til loka seinna striðs hafði meirihluta í bæjarstjóm og viðamikla atvinnu- starfsemi. Skýring Hannibals Valdimarssonar á óskoraðri valdastöðu Alþýðuflokks þar er sú að flokkurinn hafi verið það rót- tækur að ekkert pláss var fyrir neina til vinstri við þá. En sam- hent forysta gat áorkað miklu, eins og saga þessara staða sýnir. Við forystumönnum hinnar pólitísku verkalýðshreyfingar blasti vemleiki þar sem allt virtist vanta, skólabyggingar, sundlaug- ar, sjúkrahús, hafnaraðstöðu, raf- væðingu, heitt vatn, heilnæmt húsnæði, og fleira og fleira. Af- nám kaupmannaveldis og við- gangur verkalýðsfélaga hélst i hendur. Velferðarkerfið var ekki til staðar og margt sem okkur virð- ist lítilfjörlegt nú á dögum var mikið hitamál bæjarbúa. Úrlausn- ar var víða þörf og á sjónarsviðið birtust menn sem reyndust þess umkomnir að hrinda í framkvæmd hugsjónum sem áður virtust óhugsandi. Þegar komið er að því að starfa innan hins nýja kerfis, við hin daglegu verkefni, getur viðfangsefhið orðið leiðinlegra til frásagnar. Því er ekki til að dreifa í bók Helga. Hann rekur greinar- vel hvemig rauðliðum vegnaði í atvinnurekstri og hvemig almenn- ar hagsveiflur þjóðfélagsins birt- ust á Norðfirði. Þýðing sjúkrahúss og skóla með heimavist fyrir byggðarlagið er mikil. Tímabilið sem frá greinir er ffá aldamótum til loka síðasta áratugar. Verkfoll vom fátíðari eftir að vinstri menn náðu meirihluta í bæjarstjóm og í atvinnulífinu. Höfundur segir ffá þætti kvenna í félaglífinu og í framboðsmálum. Lífskjarabylt- ingunni upp úr seinna stríði er lýst. Bókin Þeir máluðu bœinn rauðan er um 300 blaðsíðna löng með fjölda mynda og nafnaskrá. Frágangur allur er góður og prent- villur nær engar. Engin eiginleg heimildaskrá fylgir en oftast kem- ur ffam hvaðan upplýsingamar koma. Þess vegna er bókin einnig nýtileg ffæðimönnum. Bókin er fyrst og ffemst stíluð til þeirra sem vilja víkka sjóndeildarhringinn, skilja gangverk í bæjarstjómar- pólitík og hina merku sögu þrí- menninganna í nánu samspili við bæjarbúa. Verkið er hvalreki á Qömr þeirra Dr. Stefán F. Hjartarson ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.