Þjóðviljinn - 18.12.1990, Qupperneq 9
mtmvnJl
Tómas R. Einarsson skrifar um jass
Sterkur gítarleikur
hjá Jóni Páli
Fyrir rúmum þremur áratug-
um kom fram ungur gítarleikari
sem vakti sérstaka athygli fyrir
það hve músíkalskt og gáfulega
hann spilaði. Hann spilaði engar
vitlausar nótur, það sluppu svo
sem ýmsir við sem höfðu sæmi-
lega heym, en hitt var fáheyrðara,
nótumar sem þessi gítarleikari
spilaði skiptu allar máli; þær vom
allar nauðsynlegar í línunum
góðu sem hann teygði yfir marg-
vislegan hljómaganginn. Þar réði
ekki ferð hið góðkunna hippsum-
happs viðhorf til spunagaldurs
djassins, heldur djúp tónhugsun.
Þau dæmi sem til em um leik Jóns
Páls Bjamasonar tvítugs að aldri
vitna um mjög bráðan þroska. Og
hann er sennilega eini bíboppar-
inn í islenskum djassi. Svíngtón-
listin átti rík tök í flestum, hinn
svali hvíti djass var einnig vin-
sæll, en Jón Páll var einn um að
aga tónhugsun sína að biboppsins
hljómskiptu grein.
Og nú er loksins kominn
geisladiskur, þar sem Jón Páll
stýrir for. Þótt fýrr hefði verið
myndu margir segja, og einhver
kunnasti djassskríbent aldarinnar,
Leonard Feather, spyr í baksíðu-
texta hvar þessi maður hafi eigin-
lega haldið sig. Skemmst er frá
þvi að segja að vel hefur hér til
tekist. Aferð tónlistarinnar er
mild og mjúk, laglínur flestar ofn-
ar saman af gítar og flautu, en
einnig bregður fyrir fagotti, sópr-
an- og tenórsaxi. Meðspilarar
Jóns em atvinnumenn í betri kant-
inum, kunnastur þeirra er trúlega
bassaleikarinn Andy Simpkins,
sem lengi lék með Söm Vaughan.
Hann og trommuleikarinn Lew
Malin leggja ljómandi gmnn fyrir
framlínuna, hlusta vel og trana sér
sist fram. Hinn fjölhæfi blásari
Ray Pizzi fer prýðilega með öll
sín hljóðfæri, verður þó ekki eftir-
minnilegur við hliðina á Jóni Páli
Bjamasyni. Sannleikurinn er
nefnilega sá að það er alltof lýð-
ræðislega staðið að skiptingu á
sólóum og lengd þeirra; ég hefði
viljað að Jón hefði spilað miklu
lengri sólóar í flestum lögum!
Lagaval er fjölbreytt, þama er að
finna ýmis ágæt djasslög, sem
ekki er alltaf verið að spila, eins
og Subconscious-Lee, Dam that
dream og Moose the Mooche, Jón
Múli á þama sinn Vikivaka og
síðast en ekki síst kom Jón Páll
vinum sínum á óvart með því að
semja á diskinn þijú lög, þau
fyrstu á ævinni, svo vitað sé.
í lokalaginu, Ice, sem einnig
Hallbjöm á
bók
Maria er nýstofnað bókaforlag á
ísafirði sem gcfið hefur út sína fyrstu
bók. Bókin heitir HALLBJÖRN og er
lífsreynslu- og baráttusaga Hallbjamar
Hjartarsonar, cn Hallbjöm hefur sem
kunnugt er verið manna ötulastur að
flytja og kynna dreifbýlistónlist eða
sléttusöngva af bandarískri ætt „en með
séríslenskum blæ“ eins og segir í frétta-
tilkynningu frá forlaginu. Þá segir: „í
bókinni er reynt að draga upp skýra og
afdráttarlausa mynd af listamanninum
með bamshjartað og hvcrgi vikist und-
an því að horfast í augu við sannleik-
ann, hversu óþægilegur sem hann kann
að vera.“
Höfundur bókarittnar er Páll As-
geir Asgeirsson blaðamaður á DV.
Byggir hann frásögnina á samtölum við
Hallbjöm og fjölda samtíðarmanna og
samstarfsmanna. Auk þess cr skyggnst í
blaðagreinar og skrif sem orðið hafa um
Hallbjöm í gcgn um árin. Bókin er
prýdd fjölda mynda.
er titillag plötunnar, töfrar Jón
hveija setninguna annarri flnni
undan fingrum sínum og hikstar
ekki þótt hraðinn sé ansi mikill,
reyndar svo mikill að Ray Pizzi
hljómar fumkenndur á sinn tenór
eftir hina glæstu ræðu Jóns Páls.
En það eru ekki allir sem hafa frá
einhveijum markverðum tíðind-
um að segja á slíku tempói. Hratt
eða hægt, Jón Páll Bjamason hef-
ur frásagnargáfu af því tagi að á
eftir honum verða flestir að blað-
urskjóðum.
JON PALL
BJARNASON
RAY PIZZI
WOOOWINDS
ANDY SIMPKINS
BASS
LEW MALIN
DRUMS
K -. , ‘- i!
D
9
9
9
Drfb — lán í óláni eftir Halla og Inga, Inga Hans Jónsson
og Harald Sigurðarson. Bráðskemmtileg myndasaga um köttinn Tjúlla.
Barnagælur eftir Jókönnu Á. Steingrímsdóttur. Hólmfríður Bjartmarsdóttir
myndskreytti. Hrossin í Skorradal eftir Ó1 av Mickelsen. Huglj úf lýsing
á örlögum folans Rauðs. Hundalíf Lukka eftir Marcus Pfister.
Kátkrosleg saga um ævintýri kundsins Lukka. Varenka eftir Bemadettu.
Hugljúft og spennandi ævintýri.
Rókinson Krúsó. Myndkreytt útgáfa kinnar sígildu sögu Daniels Defoe.
Kr I 40D
HundaW
UF.UNXPF.TU-,
Óvtv 'njOvdygMV.hi
*
Hrossin í Skorradal
m
ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9