Þjóðviljinn - 28.12.1990, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 28.12.1990, Blaðsíða 1
Föstudagur 28. desember 1990 — 244. tölublað 55. árgangur Hlutabréf Seld fyrir um fimm miljarða Skattaafsláttur sem veittur er vegna hlutabréfakaupa er aðalhvati. Ríflega helmings söluaukning á árinu. Verð bréfa á þessum unga markaði hefur hækkað að jafnaði um 80 prósent á einu ári Líklegt er að seld verði í ár hlutabréf fyrir um 5 mil- jarða króna. Þetta er ríflega helmings aukning frá því í fyrra, en þá voru hiutabréf seld fyrir 2 miljarða. Þá er taiið að um 15.000 manns muni nýta sér skattaafslátt vegna hlutabréfa- kaupa, en það eru þrefalt fleiri en í fyrra. Þetta sagði Agnar Jón Agústs- son hagfræðingur hjá Fjárfesting- arfélagi íslands, en hans fyrirtæki líkt og önnur selja mun meira af hlutabréfúm fyrir áramótin en á öðrum árstímum. Hlutabréfamarkaður er ungur á íslandi, en það var árið 1984 sem fyrst var veittur skattafsláttur vegna keyptra hlutabréfa á skatt- árinu. Hjón sem í dag kaupa Mannfíöldi Meiri fjölgun en í fyrra r r Hagstofa Islands: Is- lendingar 255.855 talsins 1. desember síðastliðinn Iw slendingum fjölgaði um 2.355 manns s.l. ár og hafa jafnmargir ekki fæðst síðan á árunum 1959, 1960 og 1963. Hinn 1. desember voru lands- menn 255.855 og þar af voru karlar 128.381 og konur 127.474. íslendingum hefur fjölgað um helming síðan á ár- inu 1944. Þetta kernur fram í fréttatilkynningu frá Hagstofu Islands. Fjölgunin í ár er meiri en árið 1989 eða 0,93 prósent í stað 0,72 prósenta. A árinu 1990 er útlit fyrir að lifandi fædd böm verði um 4.800 og er það um 100-200 hærri tala en árin 1988-89. Þá em horfur á að fæðingartalan 1990 verði svo há að ekki hafi fleiri fæst síðan á ámnum í kringum 1960. Hafa ber þó í huga að kon- ur á bamsburðaraldri em miklu fleiri nú en þá. Útlit er fyrir að 700 fleiri flytji frá landinu en til þess. I fyrra vom það 1.100 manns, en á ámnum 1987 og 1988 fluttust til landsins 2.800 fleiri en fluttu burt. Fæðingartíðnin 1990 er hærri en hún var 1983-89 og miðað við það yrðu ófæddar kynslóðir um 12 prósent fjölmennari en kyn- slóð foreldranna. En sé miðað við fimm síðustu ár yrðu ófæddar kynslóðir ekki nema 2 prósent fjölmennari en kynslóð foreldr- anna. -gpm hlutabréf fyrir hámark 251.850 krónur fá þá upphæð dregna ffá tgekjuskattsstofninum. Það þýðir að 1. ágúst á næsta ári ættu þessi hjón von á um 100.000 krónum til baka frá skattinum. Afslátturinn er því umtalsverður, sérstaklega ef hlutabréfm em seld strax eftir áramótin og útlagði kostnaðurinn endurheimtur. Þeir aðilar sem Þjóðviljinn ræddi við vom sam- mála um að ekki væri mikið um þetta þar sem fólk í ríkari mæli verði sparifé sínu í hlutabréf. Menn vom þó sammála um að að- alhvati hlutabréfakaupa væri skattafslátturinn. í fyrra mynduðust biðraðir fólks sem vildi kaupa hlutabréf síðustu daga ársins, sagði Elvar Guðjónsson sölustjóri verðbréfa- deildar Kaupþings. „Salan er mjög lífleg, en það er miklu ró- legra yfir þessu en í fyrra þar sem salan hefúr dreifst meira yfir ár- ið,“ sagði Elvar, en hann sagði að hjá sínu fyrirtæki hefði salan í ár fimm- til sexfaldast. Agnar Jón tók undir þetta og sagði að salan jan-okt ár hvert væri öðm marki brennd en þessa síðustu mánuði ársins þar sem fyrr á árinu væri fólk að horfa á ávöxtunarmögu- leika hlutabréfa. En bréfin hafa að jafnaði í ár hækkað um 80 pró- sent, sagði Albert Jónsson hjá fyr- irtækjasviði Landsbréfa. Hann sagði að í flestum tilvikum væri um að ræða langtímaspamað, þar sem fólk ætti bréfin að jafnaði í 3- 5 ár._ A íslenskum hlutabréfamark- aði er eftirspumin nú meiri en framboðið og er það ásamt skatta- afslættinum skýringin á 80 pró- sent hækkun bréfa. Astæðan er ekki svona mikið betri hagur fyr- irtækjanna, taldi Agnar Jón, en hann sagði, og hinir vom honum sammála, að niðursveifla á mark- aðnum væri óhjákvæmuleg. Það er ekki óvenjulegt að þegar um nýja markaði er að ræða þá hækki verð bréfa þangað til jafnvægi er náð, en þá má líka búast við sveiflum. Sérffæðingamir sem rætt var við vildu þó engu um það spá hvenær niðursveiflan hæfist, það gæti gerst á næsta ári eða eftir 2-3 ár. Þeir töldu ómögulegt að spá um það. Við þessu bregst fólk með því að kaupa hlutabréf í svo kölluð- um hlutabréfasjóðum, en það em sjóðir sem kaupa hlutabréf í fé- lögum og ávaxta þannig fé þeirra sem kaupa hlutabréf í sjóðnum. Með því móti dreifist áhættan; ávöxtunin verður ömggari, en hugsanlega minni. -gpm ff/' Æmm&ÉÉkM - ■ Ví" ^ Meiri snjór. - Starfsmenn snjóruöningstækja hafa haft nóg að gera við að ryðja snjó af götum borgarinnar sem og starfsbræður þeirra víðast annars staðar á landinu. Að öllum líkindum mun hann halda áfram að snjóa hér sunnanlands I dag, en úrkomulaust verður fyrir norðan. Spáð ersuðlægum áttum með lítilsháttar frosti. Mynd: Jim Smart. Alþýðubandalagið Revkjavík Svavar og Guðrún gefa kost á sér ÆFR œtlar að skipa fulltrúa í kjörnefnd. Félagsfundi Birtingar frestað Þingmenn Alþýðubandalags- ins í Reykjavík, þau Svavar Gestsson menntamálaráðherra og Guðrún Helgadóttir forseti sameinaðs þings, hafa ákveðið að gefa kost á sér í forvali Al- þýðubandalagsins í Reykjavík, að sögn Hails Páls Jónssonar formanns kjörnefndar. Stjóm Æskulýðsfylkingarinn- ar í Reykjavík ákvað á fúndi sín- um 21. desember að skipa fulltrúa í kjömefnd ABR og hefúr ákveð- ið að boða til félagsfundar fljót- lega til að skipa fulltrúana. Þá samþykkti stjóm ÆFR ályktun þar sem segir m.a.: „Það að öllum Alþýðubandalagsfélög- um í Reykjavík, hvort sem þeir em í ABR, Birtingu eða ÆFR, er nú gert kleift að taka þátt f forval- inu teljum við farsæla lausn á for- valsmálum í Reykjavík.“ Kjartan Valgarðsson formað- ur Birtingar sagði í gær að ákveð- ið hefði verið að ffesta félags- fundi Birtingar sem halda átti laugardaginn 29. desember, en enn væri óráðið hvenær íúndurinn yrði. „Þetta hefúr ekkert með pólit- ík að gera. Við sáum einfaldlega að menn væm pakksaddir eflir jólin og famir að huga að áramót- um, þannig að pólitík kæmist varla að,“ sagði Kjartan. Frestur til að tilnefna þátttak- endur i forvalið rennur út kl. 17 föstudaginn 4. janúar 1991. Kjör- skrá verður lokað miðvikudaginn 9.janúar 1991. -Sáf Tilkynningaskyldan Togarar tínastút Aðeins fjórir togarar voru á veiðum yfír jólahátíðina, en strax í gær voru þeir farnir að tínast út hver á fætur öðrum og lætur nærri að 25-30 hafi þá ver- ið á leið á miðin. Samkvæmt upplýsingum ffá Tilkynningaskyldunni vom hátt í 60 skip stór og smá á sjó í gær. Þau smáu vom á Faxaflóasvæðinu „að kíkja til veðurs“ eins og sagt er, en einnig einhveijir að reýna að grynnka á kvótanum og sumir að- eins til að ná sér í góða soðningu eftir stórsteikumar síðustu daga. -grh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.