Þjóðviljinn - 28.12.1990, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 28.12.1990, Blaðsíða 2
FRETTIR Sveitarstiórnarmenn Mótmæla túlkun ráðherra Stjórn Sambands sveitarfélaga: Ósammála ákvœðum reglugerðar um húsnœðisnefndir. Túlkanir félagsmálaráðherra eiga sér ekki stoð í lögum Stjórn Sambands sveitarfé- laga hefur í mörgum atrið- um lýst sig ósammála drögum að reglugerð þar sem meðal annars er kveðið á um skipan og verksvið húsnæðisnefnda Tíma- mót í rekstri Eins og iesendum Þjóðvilj- ans er kunnugt hafa undan- farna mánuði verið í undirbún- ingi ýmsar breytingar á rekstri blaðsins sem beinst hafa að því að létta á skuldabyrðinni með endurskipuiagningu á fjármál- um þess. Meðal aðgerða sem gripið hefur verið til er stofnun nýs hlutafélags til að sjá um daglegan rekstur Þjóðviljans í umboði Ut- gáfufélagsins. Hlutafélagið var stofnað þann 20. desember og hlaut nafnið Útgáfufélagið Bjarki h/f. Hlutafé þess var ákveðið 20.000.000,- og á Útgáfufélag Þjóðviljans 55%, eða 11.000.000,-. Allmargir hafa þegar skráð sig fyrir hlutum í nýja félaginu, en leitað verður til velunnara blaðsins um kaup á hlutabréfum á næstu vikum og mánuðum. Útgáfufélagið Bjarki tekur við rekstri blaðsins um áramótin samkvæmt samningi milli félag- anna. Útgáfufélag Þjóðviljans ræður ritstjóra blaðsins, en Bjarki framkvæmdastjóra þess. Fyrst um sinn verður engin breyting á Þjóðviljanum, en unn- ið er að breytingum sem sjá munu dagsins ljós snemma á ár- inu og nýtt átak til að fjölga áskrifendum verður hafið um leið. í bráðabirgðastjóm útgáfufé- lagsins Bjarka h/f eru: Ámi Þór Sigurðsson, Ástráður Haralds- son, Helgi Guðmundsson, Hrafn Magnússon og Olga Guðrún Amadóttir. hágé. sveitarfélaga. Stjórnin hefur áréttað þá skoðun að eingöngu sveitarstjórnarmenn eigi að sitja í húsnæðisnefndum, en nú á verkalýðshreyfingin þrjá full- trúa af sjö í þessum nefndum. Svo virðist sem áramóta- brennur verði færri í Reykjavík í ár en oft áður og sömuleiðis virðist sem þær séu sífellt að verða minni. í gær hafði lögreglan í borg- inni gefið leyfi fyrir áramóta- brennum í Ártúnsholti, á Gufú- nesi, á Fylkisvellinum, við Leiru- bakka og við Laugarásveg. Jón Bjartmars lögregluþjónn sagðist búast við fleiri umsóknir um brennuhald ættu eftir að ber- í umsögn stjómarinnar segir að ýmis ákvæði reglugerðarinnar orki tvímælis og að túlkun félags- málaráðherra skorti stoð í lögum. Samkvæmt lögum um Hús- næðisstofnun ríkisins hafa hús- ast inn á borð hjá Iögreglunni, sé miðað við þá bálkesti sem þegar er byijað að hlaða án þess að sótt hafi verið um sérstakt leyfi til að brenna þá. 1 því sambandi nefndi Jón köstinn við Faxaskjól- Ægi- síðu og á Skildinganesi. Hann sagði að á síðustu ámm hefði áramótabrennum fækkað í borginni auk þess sem þær væm minni um sig en oft áður. Það mun þó ekki vera vegna skorts á eldiviði, heldur miklu frekar næðisnefndir tekið við hlutverkj stjóma verkamannabústaða. I lögunum er þó margt óljóst um skipan og verksvið húsnæðis- neftida, enda hafa sums staðar ris- ið deilur vegna þessa. Mjög hefur vegna áhugaleysis hjá unga fólk- inu._ í fyrra var tekin upp sú ný- breytni hjá lögreglunni í Reykja- vík að heimila ekki sölu á flugeld- um og öðmm skyldum hlutum fyrr en þann 28. desember, til þess að fría almenning við ótímabæm ónæði sem oft vill verða við notk- un þeirra. Það gafst vel, og því er fyrsti söludagurinn í dag. -grh dregist á langinn að fylgja lögun- um eftir með reglugerð. Félagsmálaráðuneytið hefúr túlkað lögin þannig að heildar- samtök launafólks eigi að tilnefna fulltrúa í nefndimar. Sveitar- stjómir hafa ekki allar fallist á þá túlkun, og í umsögn stjómar Sam- bands sveitarfélaga segir að túlk- un ráðuneytisins eigi sér ekki stoð í Iögunum. í þessu sambandi má minna á að borgarstjóm Reykja- víkur óskaði eftir og fékk tilnefn- ingar frá Dagsbrún og VR. Full- trúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík átti fulltrúa í Stjóm verkamannabústaða, en var snið- gengin þegar skipað var í hús- næðisnefnd. Stjóm sambandsins telur að þrátt fyrir túlkun ráðuneytisins á lögunum verði skipan nefndanna á þessu kjörtímabili ekki breytt. Stjóm sambandsins visar til þess í umsögn sinni að i lögum um Húsnæðisstofnun sé stefnt að því að sveitarfélögin beri ótvi- ræða ábyrgð á framkvæmdum, uppgjöri og fjármagni sem fer til félagslegra íbúða. Með hliðsjón af þessu telur stjómin að farsælast verði að sveitarstjómir ákveði það sjálfar til hverra beri að leita um tilnefningu í húsnæðisnefndir. Auk þess leggur stjómin til að formenn húsnæðisnefnda verði kosnir beint af sveitarstjóm, en ekki af nefndunum sjálfum. Þess em dæmi nú að meirihluti i sveit- arstjóm hafi ekki náð ffam vilja sínum í formannskjöri í húsnæð- isnefnd. -gg Þióðviliinn Helgarblað jr a morgun Nýtt Helgarblað Þjóðvilj- ans kemur út á morgun, á laug- ardegi, en ekki á föstudegi eins- og venjulega. Sami háttur verður hafður á um næstu helgi. Ástæðan er hag- ræðing í vinnu. -Sáf Þióðviliinn Án efa mun loga glatt I þessum bálkesti við Ægislðuna þegar kveikt verður f honum á gamlárskvöld. Svo virð- ist sem áhuginn fyrir brennum fari minnkandi, og trúlega rekur einhvern minni til þess að hrúgan hafi verið staerri en þessi, hér á ámm áður. Mynd: Jim Smart. r Aramót Færri og minni brennur Sala á flugeldum hefst í dag Frá undirritun samstarfssamningsins. Samstarfssamningur við Sovátríkin Svavar Gestsson mennta- málaráðherra og Igor N. Krasavin undirrituðu nýlega nýja fram- kvæmdaáætlun um samstarf á sviði menningar og vísinda á milli íslands og Sovétríkjanna árin 1991 til 1995. Framkvæmdaáætl- unin nær yfir samskipti á sviði vísinda- og ffæðslumála, á sviði menningar og lista, á sviði fjöl- miðla, auk samskipta milli sam- taka sem óháð eru ríkisstjómum og önnur samkipti. Eimskip á Nýfundnalandi Eimskip hóf rekstur eigin skrifstofú í St. John’s á Ný- fúndnalandi skömmu fyrir jól. Skrifstofan mun annast markaðs- og sölumál vegna flutningaþjón- ustu félagsins á Nýfundnalandi, bæði hvað varðar flutninga milli Nýfúndnalands og Evrópu og Ný- fundnalands og Islands. Þetta er sjötta skrifstofa Eimskips erlend- is. Forstöðumaður er Eyjólfúr Sigurðsson. Flugeldasýning KR Árleg flugeldasýning KR- flugelda verður á KR-svæðinu við Frostaskjól á morgun, laugardag, kl. 17.30, ef veður leyfir. Best er að fylgjast með sýningunni úr stúkunni við KR-vöIlinn. Bannað er að fara inn á sjálfan völlinn. Gamlárshlaup ÍR Gamlárshlaup ÍR, sem nú er haldið í 15 skipti, hefst kl. 14 á gamlársdag við IR-húsið Tún- götu. Skráning hefst kl. 13. Vega- lengdin sem hlaupin verður er 9,5 kílómetrar. Allir sem ljúka hlaup- inu fá viðurkenningarskjal. Fyrstu í hveijum aldursflokki fá verð- Iaunapening. Þrír fyrstu í mark í karla- og kvennaflokki fá verð- launapening og sérverðlaun. Einnig verða nokkur úrdráttar- verðlaun. Þátttökugjald er 500 krónur. IR-húsið verður opnað kl. 13, en þar er búningsaðstaða og sturta. Símahappdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra Dregið var í símahappdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 24. desember Vinningar komu á eftirtalin númer: 1. vinningur, Ford Explorer kom á nr. 91- 32071, 2. vinningur, Saab 9000 CDI á nr. 91-688417, 3.-11. vinn- ingur, Ford Fiesta C1000 á nr. 91- 680493, 91- 626666, 91-670221, 91-685777, 91- 612484, 91- 50801, 93-66725, 97- 88827, 98- 75104. Fjórfaldur f Lottó í fýrsta skipti í sögu lottósins er fjórfaldur 1. vinningur, en 1. vinningur gekk ekki út sl. laugar- dag og færast því 14,3 miljónir yfir á 1. vinning þessa viku. Ljóst er að 1. vinningur fer vel yfir 20 miljónir og vinningar alls verða um eða yfir 30 miljónir. Þá verður getraunapotturinn einnig íjórfald- ur nk. laugardag. Það má því bú- ast við að mikið verði að gera á sölustöðum lottós og getrauna fyrir helgi. Happdrætti heyrnarlausra Dregið var í hausthappdrætti heymarlausra 18. desember sl og eru vinningsnúmer eftirfarandi: 15408, 270, 13829, 273, 18001, 12720, 3105, 16634, 7290, 17553. Vinninga má vitja á skrif- stofú Félags heymarlausra Klapp- arstíg 28 alla virka daga. Sími 13560. 2.SÍÐA— ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 28. desember 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.