Þjóðviljinn - 24.01.1991, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 24.01.1991, Blaðsíða 3
FRETTIR R íkisendurskoðun Þormóður á hálfvirði Ríkisendurskoðun: Hlutabréf Þormóðs ramma hf. 250-300 miljóna kr. virði á söludegi en seld á 150 miljónir. Olafur Ragnar Grímsson: Léttum 500 miljónum kr. af ríkinu með sölunni Ríkisendurskoðun hefur komist að þeirri niðurstöðu að verðmæti hlutabréfa í Þor- móði ramma hf. hafí á söludegi verið 250 til 300 miljónir króna. Fjármálaráðuneytið seldi hins- vegar bréfin á 150 miljónir króna í desember s.l. Ríkisend- urskoðun gagnrýnir einnig virðismat á Dröfn hf. og Egils- sild hf. en þessi fyrirtæki sam- einuðust Þormóði ramma hf. við söluna. Dröfn hf. og Egilssild hf. eignuðust 40 prósent í hinu sam- einaða fyrirtæki en Rikisendur- Islagviðrinu nýlega lak vatn inn um fjölmarga glugga á austurhlið Þjóðminjasafnsins og glerveggi. Vatnið lak niður í gegnum loft í neðri sali safnsins. Starfsmenn safnsins segja raka vera í útveggjum hússins og tæringu í öllum leiðslum sem gætu sprungið með hræðilegum skoðun telur þau ekki nema 30 prósenta virði. Rikisendurskoðun ámælir einnig að hvorki sala hlutabréfanna né skilmálar og skilyrði íyrir sölunni hafi verið auglýst opinberlega. RJkisendurskoðun telur fulla þörf á því að reglur um sölu á eignum ríkisins verði samræmdar með formiegum hætti á svipaðan hátt og settar hafa verið reglur um opinber innkaup. Ólafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra telur ekki að Þor- móður rammi hf. hafi verið seldur á hálfvirði. Hann fékk Endur- afleiðingum. Kynding í húsinu er í járnlögnum í gólfum og veggjum. Menn geta ímyndað sér þann skaða sem af hlytist ef þær spryngju og heitt vatn læki inn í sali safnsins. Svavar Gestsson mennta- málaráðherra lagði málið fyrir ríkisstjómarfund. Hann sagði Þjó- minjasafhið fá 40 miljónir á þessu ári til að gera nauðsynlegar lag- færingar og endurbætur. Fjár- magn til þess yrði tekið af ráðstöf- unarfé ríkisstjómarinnar, úr menntamálaráðuneyti, og til þeirra fengist aukafjárveiting á fjáraukalögum síðar á árinu. Reynt yrði að veita safninu 20 miljónir sem fyrst til að koma í veg fyrir leka af því tæi sem varð fyrir stuttu. Fyrir liggur frumáætlun bygg- ingamefndar Þjóðminjasafnsins frá því í júlí í fyrra um endurbæt- ur á húsinu. Þar er gert ráð fyrir töluvert hærri upphæð fyrir kostn- aði við nauðsynlegar lagfæringar en þeirri sem veitt verður á þessu ári. Menntamálaráðherra sagði ffamkvæmdir við Þjóðleikhúsið ganga fyrir nú. Ekki yrði hægt að veita meira fé til lagfæringa á Þjóðminjasafninu fyrr en að þeim loknum. BE skoðun hf. til að reikna út virði hlutabréfa Þormóðs ramma hf. og segir að Ríkisendurskoðun hafi beitt öðrum aðferðum en Ólafúr Nilsson endurskoðandi og því fengið aðra niðurstöðu. Ólafur Ragnar sagði að hann hefði fengið óháð verðbréfafyrir- tæki til að reikna dæmið á sama hátt og Rikisendurskoðun gerði og sagði að fyrirtækið hefði kom- ist að þeirri niðurstöðu að hluta- bréfin væm óseljanleg vegna skuldastöðu fyrirtækisins. Hann sagði að Þormóður rammi hf. skuldaði 800 miljónir króna og að með sölunni hefði ríkið velt af sér 500 miljóna króna skuld. Ástæður þess að heima- menn sem keyptu fyrirtækið væm viljugir til að taka á sig þessa skuld alla taldi Ólafúr Ragnar vera áhuga þeirra á því að halda fyrirtækinu í byggðarlaginu og trú þeirra á því að sameinuð gætu fyrirtækin staðið undir sér og skuldunum. Að lokum benti Ólafúr Ragn- ar á að ekkert þeirra tilboða sem bámst i hlutabréfin hefði verið hærTa en 150 miljónir króna. -gpm Sorpevðing Sorpskattur á Egilsstöðum Bæjaryfirvöld á Egilsstöðum hafa ákveðið að leggja á 3.900 króna gjald vegna sorphirðu og sorpeyðingar. Þetta er gert vegna þess að fyrirsjáanlegur er nokkur kostnaður vegna breyttra aðferða við eyðingu sorps i bænum. - Það má kannski segja að þetta samrýmist ekki „þjóðarsátt- inni“, en það hefúr verið dregið undanfarin ár að leggja þetta á þangað til ákveðið hefur verið að ráðast í framkvæmdir. Svo hittist þannig á að við leggjum þetta gjald á nú einmitt á tímum „þjóðarsátt- ar“, segir Stefán Bjamason, bæjar- ritari á Egilsstöðum. Sorpi frá Egilsstöðum og Fella- hreppi hefúr verið brennt i nánd við byggðina og að sögn Stefáns leggur reyk yfir hana við verstu skilyrði. Ekki hefúr verið ákveðið i hveiju hin nýja tilhögun á að felast, en til greina kemur að urða sorpið. Þess er skemmst að minnast að sveitarfélög á höfuðborgarsvæð- inu, nema Reykjavík, hafa ýmist lagt á ný gjöld eða hækkað þau sem fyrir vom vegna aukins kostn- aðar við sorpeyðingu á árinu. -gg Fasteignagiöld Verslunarráð ber sig illa Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Verslunarráðs ís- lands, hefúr sent borgarstjóra bréf þar sem hann kvartar undan álagn- ingu fasteignagjalda á atvinnuhús- næði og fer fram á að þau verði lækkuð. Ákvörðun um álagningu fasteignagjalda fyrir þetta ár hefur þó þegar verið tekin. í bréfi sínu segir Vilhjálmur að verslunarráði hafi að undanfömu borist umkvartanir frá fyrirtækjum vegna hárra fasteignagjalda á at- vinnuhúsnæði í borginni. Hann minnir borgarstjóra á það loforð Sjálfstæðisflokksins að taka til baka allar hækkanir á gjöldum frá tið vinstri meirihlutans í borgar- stjóm, en fasteignagjaldið var hækkað í tíð hans. Fasteignagjald á atvinnuhús- næði var 1,25 prósent á síðasta ári, sem er það hæsta sem lög um tekjustofna sveitarfélaga leyfa. Gjaldið hefúr nú verið lækkað nið- ur í 1,19 prósent og kemur lækkun- in til mótvægis við gjald fyrir eyð- ingu sorps. -gg \ \ Þjóðminjasafnið Ómetanleg verðmæti í mígleku húsi Sprungur f veggjum ( Þjóðminjasafninu. V(ða má sjá merki um raka I loftum og veggjum. Töluvert vatn lak inn I bygginguna fyrir skömmu. Mynd: Jim Smart. Ríkisstiórnin Stjórnmálasamband við Litháen Ríkisstjórn Islands samþykkir sex leiðir til að styðja Eystrasaltslöndin í sjálfstœðisbaráttu þeirra. Ein gengur í þá átt að teknar verði upp viðrœður um frekara stjórnmálasamband Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í gærmorgun aðgerð- ir vegna ástandsins í Eystra- saltslöndunum. Mikill einhugur ríkir um þessar aðgerðir, sem eru í sex liðum, í ríkistjórninni og voru það formenn allra stjórnarflokkanna sem kynntu aðgerðirnar í gær. Telja þeir að nú sem fyrr hafí íslendingar gengið lengra en nokkur önnur þjóð í mótmælaaðgerðum vegna yfirgangs Sovétríkjanna í löndunum fyrir botni Eystra- salts. Aðgerðimar fela í sér að í fyrsta lagi verður sendiherra Is- lands í Moskvu falið að krefjast upplýsinga um og skýringa á at- hæfi sovéskra hersveita gegn lýð- ræðislega kjömum ríkisstjómum og þegnum Eystrasaltsríkjanna. Hér er vísað til lokaskjals Vinar- fúndar RÖSE þar sem þátttöku- ríkin skuldbinda sig til að svara skriflegum beiðnum, innan fjög- urra vikna, um upplýsingar er varða hinn mannlega þátt atburða sem þessara. Sovétríkin em þátt- tökuland í RÖSE. I öðm lagi að nota tiltækar leiðir til að fá málið tekið upp á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og á vettvangi Öryggisráðsins verði um frekari ofbeldisaðgerðir að ræða. I þriðja lagi að taka mál- ið upp á vettvangi stjómmála- | nefndar Nató. Einnig, í fjórða lagi, að beina þeim tilmælum til Alþingis að fúlltrúar þess í Evr- ópuráðinu beiti sér fyrir málinu á þeim vettvangi. í fimmta lagi að fúlltrúi Islands i forsætisnefnd Norðurlandaráðs beiti sér fyrir því að málið verði tekið fyrir á fundi nefndarinnar í Stokkhólmi um helgina. I sjötta lagi ákvað ríkisstjóm- in að beina þeim tilmælum til Al- þingis að sendinefnd þingmanna fari nú þegar til Eystrasaltsland- anna og að gengið verði frá gagn- kvæmum samningum milli þjóð- þinganna um skipti á fastafulltrú- um. Ríkisstjómin staðfesti einnig þann skilning að með opinberri heimsókn Jóns Baldvins Hanni- balssonar utanríkisráðherra til allra Eystrasaltslandanna í síðustu viku hafi framkvæmd stjómmála- sambands við Litháen verið stað- fest. Ákveðið var að verða við ósk Litháens um að taka upp viðræður milli ríkjanna um frekara stjðom- málasamband. Jón Baldvin sagði að öllu þessu yrði hrint í framkvæmd nú á næstu dögum. Hann benti á erfið- leika við að koma á stjómmála- sambandi við Litháen en taldi að fyrsta skrefið væri að skipst yrði á nauðsynlegum upplýsingum, síð- an að tekin yrðu upp svo kölluð nótuskipti ríkisstjóma, sem tíðk- ast meðal annars í skiptum við fjarlæg ríki, og síðasta skrefið væri að skiptast á sendifúlltrúum, sem reyndar væri ekki hægt eins- og á stæði. Vilji væri til þess nú að taka upp formlegra stjómmála- samband þar sem yfirgangur sov- éskra hersveita í löndunum hefði að engu gert þá ffiðsamlegu lausn sem löndin hvöttu til í upphafi að fúndin yrði á málinu. Fyrir at- burðina vildi rikisstjómin ekki standa að tilefnislausum ögmnum gagnvart Sovétrikjunum, sagði Jón Baldvin. Nú hefur það sem sagt breyst og því tilefni til frek- ara formlegs stjómmálasambands við Litháen, en Litháar leggja á þetta mikla áherslu og vilja form- legt samband strax. -gpm Fimmtudagur 24. janúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.