Þjóðviljinn - 24.01.1991, Page 6

Þjóðviljinn - 24.01.1991, Page 6
ERLENDAR FRETTIR lsraelar Hefna þeir sín nú? Eru að líkindum hikandi við það af tillitssemi við Bandaríkjamenn. Vinátta þessara þjóða hefur aukist við Persaflóastríð fsraelskur faðir og drengurinn hans eftir eldflaugaárás á Tel Aviv - Ibúð- arblokk var sprengd í rústir. Panafríkanska ráðið Dreptu Saddam, Margir bjuggust við því í gærkvöldi að ísraelar myndu ekki láta dragast lengi úr þessu að svara eldflauga- árásum íraka á íbúðarhverfi sín með gagnárásum. I þriðju írösku eldflaugaárásinni á Isra- el, sem gerð var í fyrrakvöld, fórust þrjár manneskjur og 96 særðust, nokkrar alvarlega. Að líkindum var hér um að ræða eina eldflaug aðeins, en hún hæfði íbúðarblokk í Tel Aviv sem mun hafa sprungið í rústir að mestu, og olli miklum skemmd- um á mörgum húsum þar í grennd. Samkvæmt einni frétt voru þeir þrír sem biðu bana gamlar manneskjur, er létust af hjartaáfalli. OIli þessi árás íraka Tútsarí framsókn Stríð Hútúa og Tútsa, tveggja þjóða sem byggja Mið-Afríkurík- in Rúanda og Búrúndi, heldur áfram i fyrrnefnda landinu þar sem það hófst í október. Þessa dagana eru Tútsar í sókn og hafa náð á vald sitt svæðum þeim þar- lendis er Iiggja að landamærum Uganda. Hútúar eru í meirihluta í Rú- anda og stjóma þar, en því una ekki Tútsar, sem um langan aldur vom yflrmenn hinna. Vegna heimsathyglinnar sem beinst hefur að Persaflóadeilu og síðan Persaflóastriði hefúr Rúanda- stríðið að mestu gleymst fjölmiðl- um, sem og önnur strið allmörg sem háð era víðsvegar í þriðja heimi, þau sem ekki voru gleymd hvort eð var. Reuter/-dþ. stóram meira tjóni en hinar fyrri, sem þeir hafa gert á Israel. Reynt var í fyrrakvöld að stöðva írösku flaugina, sem mun eins og hinar fyrri hafa verið íraskt afbrigði af sovésku gerð- inni Scud, með bandariskri gagn- flaug af Patriot-gerð, en annað- hvort hitti sú flaug ekki hina eða náði ekki að sprengja hana. Er þetta gagnstætt reynslunni af Patriot- flaugum í Saúdi-Arabíu, en þær hafa sprengt í lofti flestar íraskar flaugar er skotið hefur verið á það land. Ástæðan til þess að það tókst ekki í Israel kann að hafa verið styttra skotfæri. Bandarískir hermenn annast Patriot-flaugamar í Israel, því að langan tíma tekur að læra á þær og Israelum hefur ekki unnist tóm til þess enn. Helstu ráðamenn í stjóm og her ísraels sátu á fundi í gær og var ekkert gefið upp um hvað þar hefði verið til umfjöllunar. En telja má víst að það hafi verið hugsanlegar gagnaðgerðir. Moshe Arens, vamarmálaráð- herra Israels, var nokkuð tvíræður í svöram við fréttamenn eftir fundinn og þóttust sumir skilja á honum að vera kynni að Israelar drægju eitthvað að endurgjalda árásimar eða stilltu hefndinni í hóf, af tillitssemi við Bandaríkja- menn. Stjómir Bandaríkjanna og annarra vesturlandaríkja leggja sem fyrn fast að ísraelum að hefna sín ekki, af ótta við að það yrði til þess að snúa enn fleiri aröbum til fylgis við írak en orðið er. Persaflóastríð hefur og orðið til þess að samskipti Bandaríkj- anna og Israels hafa allmjög hlýn- að, sökum þess að stríðið hefur dregið athygli heimsins að miklu leyti frá intifödu Palestínumanna. Sú breyting er Israelum til efling- ar á alþjóðavettvangi og þeir vilja ekkert það gera er því geti spillt. Reuter/-dþ. Um 150 fylgismenn Panafrík- anska ráðsins (PAC) komu saman fyrir framan bandarísku ræðismannsskrifstofuna í Jó- hannesarborg, Suður-Afríku, í gær, fordæmdu „heimsvaida- stríð“ Bandaríkjanna gegn írak og lýstu yfir eindregnum stuðn- ingi við forseta þess lands, Saddam Hussein. „Dreptu þá Saddam, dreptu þá,“ stóð á borðum sem mót- mælafólk þetta hélt uppi. Á einum borða stóð: „Einn Bush, ein kúla.“ PAC, sem nýtur talsverðs stuðnings meðal suðurafrískra blökkumanna, er mjög fjandsam- legt hvítum mönnum yfírleitt og hefur oft verið sakað um kyn- þáttahatur, af Afríska þjóðarráð- inu (ANC) m.a. Þekkt vígorð Hvíta húsið Handtökur fyrir bænahald Um 50 kaþólikkar, þ. á m. nokkrar nunnur og prestar og einn erkibiskup, voru handteknir í fyrradag við Hvíta húsið í Washing- ton, bústað Bandaríkjaforseta. Hafði fólkið knéfallið á gangstétt, kveikt á kertum og hafið bænahald og sálmasöng til að láta í ljós and- stöðu við Persaflóastríð. Fólkið er í pennsylvönskum frið- arsamtökum sem heita Pax Christi USA og eru tengd kaþólsku kirkjunni. Það hafði fengið leyfi yfirvalda til að ganga til Hvíta hússins til að láta í ljós andúð á stríðinu, en ekki til að biðjast fyrir þar. Lögregla aðvaraði fólkið þrívegis áður en hún handtók það. Erkibiskupinn sem var í hópnum heit- ir Eric Sullivan og er yfir kaþólsku kirkjunni í Virginíu. írökum vísað úr landi Bresk yfirvöld vísuðu í gær úr landi 20 Irökum og segir í yfirlýsingu um það að þetta sé gert til að draga úr hættu á hryðjuverkum, sem Saddam íraksforseti og stuðningsmenn hans í arabaheiminum hafa hótað andstæð- ingum sínum í Persaflóastríði. Mörg ríki, vestræn og önnur, hafa síðan Persaflóastríð hófst vísað úr landi írökum, sendiráðsmönnum og öðrum, eða aukið eftirlit með þeim og mönnum frá fleiri arabalöndum. I s.l. viku vísuðu Bretar þannig úr landi 28 íröskum sendiráðsmönnum og eftir innrásina í Kúvæt í ágústbyrjun voru 72 Irakar, búandi í Bretlandi, hnepptir í varðhald. Reuter/dþ. dreptu PAC er: „Einn landnemi, ein kúla.“ Með „landnemum“ er átt við hvita Suður-Afríkumenn, sem PAC lítur á sem innflytjendur er ekki hafi sem slíkir rétt til að búa í landinu á við bantúmenn. Þeir síðamefndu voru raunar upphaflega „landnemar“ einnig, fyrstu íbúar svæðis þessa sem kunnugt er um voru khoisanar (búskmenn og hottintottar). -dþ. T0NLEI1 -rauð tónleikaiSöð- Háskólabíói firnmtudaginn kl. horn -FNISSKR/ Tsjaftfo\ Mc tmai "IkíuMt EINlEÍKARAR: TRermann Baumar Joseph Ogniber Þorkell Jódssdn og uísson HUÓMSVEITAFTS^jÓRI: riSakari SinfóníuhljórWveit íslands ^ Háskólabíói v/Hagatorg. Sími 622255. Persaflóastríðið Ferðamannabransinn í vanda Dregið hefur stórum úr ferðamannastraumi viðsvegar um heiminn af ótta við hermdarverk Iraka. Bandaríkjamenn að vonum mest uggandi um sinn hag Talsmenn feröamannaþjón- ustu víðsvegar um veröldina barma sér hástöfum um þessar mundir. Mikill samdráttur hef- ur orðið í ferðalögum af ótta við að írakar og fylgismenn þeirra geri alvöru úr þeirri hótun sinni að láta til skarar skríða víðsveg- ar um heiminn í hefndarskyni fyrir stríðsrekstur Bandaríkj- anna og bandamanna þeirra við Persaflóa. Einkum virðast það þó vera Bandaríkjamenn sem kjósa að sitja heima í stað þess að ana út í óvissuna á þessum allra síðustu og verstu tímum. Harðast hafa orðið úti í þess- um samdrætti löndin fyrir þotni Miðjarðarhafs, sem og þau lönd önnur sem liggja skammt frá Persaflóa. Fjölmargar ferðaskrifstofur sem bjóða upp á ferðir til Túnis, Marokkó, Kýpur og Egyptalands hafa aflýst öllum ferðum þangað næstu fjórar vikumar til að byija með, meðan óvíst er á hvem veg hemaðarátökin við Persaflóa koma til með að æxlast. Frönsk ferðaskrifstofa sem hefur alla jafha mikið umleikis í Miðjarðar- hafslöndum, afréð strax þann sjötta þessa mánaðar að Ioka sum- arleyfishúsum sínum í ísrael. Þá hefur einnig dregið stórlega úr ferðamannastraumi á vegum fyr- irtækisins til annarra landa við sunnanvert Miðjarðarhafið. Um 90% fækkun ferðamanna miðað við sama tíma fyrir ári hefúr orðið til Egyptalands og einnig er um að ræða umtalsverða fækkun ferðamanna til Marokkó og Tún- is. Vegna lítillar aðsóknar hefur svissnesk ferðaskrifstofa, sú stærsta þar í landi, þurft að grípa til þess ráðs að aflýsa öllum ferð- um til Egyptalands, Óman, Sam- einuðu arabísku fúrstadæmanna og ísraels. Það eru ekki aðeins almennir ferðamenn sem hafa hætt við öll áform um ferðalög í námunda við óróasvæðin. Bandarísku skemmtikraftamir og tónlistar- mennimir Ray Charles og Quincy Jones hafa afsagt með öllu að taka þátt í fyrirhugaðri tónlistarhátíð í Cannes í Frakklandi og ballett Mörthu Graham hefúr aflýst fyrir- huguðum sýningum við Parísar- óperuna af ótta við hermdarverk Iraka. Áhrifa Persaflóastríðsins á ferðamannaþjónustu gætir einnig á fjarlægari slóðum. Ferðaskrif- stofa ein í Singapúr hefúr tilkynnt um 70% prósenta samdrátt í fjölda evrópskra og bandarískra ferðamanna á sínum snærum og þeir fáu sem halda enn sínu striki hafa breytt farmiðapöntunum sín- um og fljúga með flugfélagi Sin- gapúr í stað bandarískra flugfé- laga sem þeir áttu bókað far með áður. Þá hafa ríflega 1300 manns afpantað hótelgistingu á Okura- hótelinu í Tókíó og munar þar mest um bandaríska kaupsýslu- menn sem augljóslega taka enga áhættu, jafnvel þótt Japan sé Reuter/-rk ===z=~ p íslandl er aðalstyrktaraðlll Slnfónluhljómsveltar é:=~élh Islands starfsárlð 1990 - 1991 6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. janúar 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.