Þjóðviljinn - 30.01.1991, Qupperneq 7
ERLENDAR FRETTIR
Bandarísk sprengjuflugvél af gerðinni Stealth B-2. Frammistaða (raska
flughersins gegn loftsókn bandamanna hefur verið bágborin, en reynsl-
an úr íransk-íraska stríðinu bendir til að fraski landherinn geti verið út-
haldsgóður f vörn.
Persaflóastríð
Dugir loftsóknin?
Þess eru fá dæmi ef nokkur að tekist hafi að
vinna stríð með lofthernaði fyrst og fremst. Nú
er bollalagt um hvort baráttuhugur Irakshers
standist öflugustu loftsókn sögunnar
Nú eru horfur á að flugher
neyði landher til uppgjafar,
í fyrsta sinn í sögunni,“ segir
Trevor Dupuy, bandarískur og
höfundur um 90 bóka um stríð.
Hann og margir aðrir sagn- og
hernaðarfræðingar bollaleggja
nú um, hvort bandamönnum í
Persaflóastríði muni lánast að
sigra með lofthernaði einum
saman, eða svo til.
Skoðanir um þetta eru skiptar,
en þess eru fá dæmi, ef nokkur, að
strið hafi unnist með flugher ein-
um saman, eða því sem næst. Það
dæmi, sem ef til vill kemst næst
því, er úr sexdagastríði Israels við
Egyptaland, Sýrland og Jórdaniu
1967. ísraelar eyðilögðu egypska
flugflotann þegar í byijun stríðs-
ins og egypski landherinn, eftir
það vamarlítill gegn loftárásum
Israela, varð gripinn ofsahræðslu
og tvístraðist.
Dæmi fyrri stríða
I heimsstyijöldinni síðari
beittu Þjóðverjar flugher sínum
íyrst og fremst til aðstoðar land-
hemum og flýtti það að öllum lík-
indum verulega fyrir sigri þeirra á
Pólveijum haustið 1939 og á
Frökkum vorið 1940, svo og
fyrstu sigmm þeirra á Sovét-
mönnum. En flestra mat er þó að
biynfylkingar Þjóðverja hafi ráð-
ið úrslitum um mestu sigra þeirra
í því stríði. Yfirburðir Banda-
ríkjamanna og Breta í lofii
greiddu og mjög fyrir sigmm
þeirra í síðari hluta heimsstyijald-
arinnar síðari, en eigi að síður áttu
landherir þeirra og Sovétmanna
þar stærri þátt.
Dæmin um þaðan af minni ár-
angur lofthemaðar em einnig
mörg úr stríðum aldarinnar, t.d.
hafa Bandaríkjamenn ófá slík fyr-
ir sér úr stríðum sínum við Japani,
Norður-Kóreumenn, Kinveija og
Víetnama. ÞegarBandaríkjamenn
unnu smáeyna Iwo Jima af Japön-
um 1945 kostaði það þá 26.000
manns fallna og særða, og vom
þó flugher og floti búnir að ham-
ast á eynni með skothríð og
sprengjukasti látlaust í 74 daga
áður en landgönguliðar og land-
her hófust handa. í Víetnamstríð-
inu, þar sem ráð Bandaríkja-
manna í lofti vom svo til alger,
var árangur flughers þeirra gegn
heijum Norður-Víetnama og
Þjóðfrelsisfylkingarinnar suður-
víetnömsku yfirleitt takmarkaður
nema þegar lið þeirra síðamefndu
sótti fram þéttskipað á bersvæði.
Baráttukjarkur
mikið atríði
Baráttukjarkur og seigla her-
manna em auðvitað mikil atriði í
þessu sambandi, og ljóst er að áð-
umefndir óvinir Bandaríkja-
manna og Breta í striðum þessar-
ar aldar höfðu hvorttveggja í rík-
um mæli. Hinsvegar hefúr bar-
áttukjarki og úthaldi arabaheija í
stríðum við ísrael yfirleitt ekki
verið fyrir að fara. En ísraelar
hafa hingað til ekki haft mikið af
írökum að segja sem andstæðing-
um i striði. I hemaði íraksstjómar
gegn Kúrdum hefur baráttukjark-
ur hermanna hennaryfirleitt verið
lítill og fyrsta sókn Iraka gegn ír-
önum var hörmungin einber, ffá
sjónarhóli hermennskunnar séð. í
kyrrstöðuhemaði og vöm gegn ír-
önum sýndu Irakar hinsvegar
hörku og seiglu, að vísu gegn
andstæðingi sem illa var stjómað
og verr búinn vopnum en vamar-
herinn.
Frammistaða Iofthers íraka í
yfirstandandi stríði hefúr verið
harla bágborin, flugvélar þeirra
hafa ýmist orðið bandamönnum
auðveld bráð í loftbardögum eða
lagt á flótta bardagalaust. En í
lofti eiga Irakar að vísu við ofúr-
efli að etja.
Hart sótt að
lýðveldisvarðliði
Hemaðarfræðingar segja að
aldrei hafí nokkur landher fengið
á sig svo öfluga loftsókn sem
íraski herinn nú. Benda þeir á
sprengju- og eldflaugamagn það
fimamikið er á honum dynur, að
hittni árásarflugvélanna sé meiri
en í nokkm stríði fyrr og að til-
tölulega erfitt sé á eyðimörkinni
að leynast fyrir árásarflugvélum.
Síðustu dagana hafa banda-
menn beint árásum flughers síns
fyrst og ffemst að landher íraka í
Kúvæt og Suður-írak, og þá eink-
um að úrvalsliði Saddams, lýð-
veldisvarðliðinu svokallaða sem
er á bakvið fremstu vamarlínur. I
því em um 150.000 manns og því
mun vera ætlað að ráðast til at-
lögu við landher bandamanna,
þegar hann sé búinn að þreyta sig
á að ryðjast gegnum ffemstu lín-
umar. Helsta stríðslakmark
bandamanna eins og sakir standa
mun vera að sprengja kjarkinn úr
lýðveldisverðinum, tvístra honum
og einangra um leið herinn í
ffemstu vamarlínum, í von um að
hann verði þá auðveld bráð. Allt
er enn á huldu um hvað út úr því
kemur. dþ.
Olíubrákin á Persaflóa
„Hafmeyjar“ f bráðri hættu
Að sögn Hishams Nazer, olíu-
málaráðherra Saúdi-Arabíu,
veittu Irakar um 11 miijónum
tunna af hráolíu út í Persaflóa
frá Kúvæt og er komist svo að
orði að hér sé um að ræða
mesta hryðjuverkið gegn um-
hverfinu hingað til. Banda-
menn telja sig nú hafa stöðvað
olíustreymið út í flóann að
mestu með því að sprengja
sundur ieiðsiur.
Hinsvegar er enn óséð hversu
miklu tjóni olía þessi á eftir að
valda. Hætta er á að hún eyði
vissum fiskistofnum og svipti þar
með tugþúsundir íraskra og ír-
anskra fiskimanna atvinnunni.
Sjaldgæfar dýrategundir í flóan-
um em einnig í bráðri hættu,
þeirra á meðal dugong, hægfara
og friðsöm sækúategund sem
einn fréttamaður segir að líti út
eins og uppblásið sæljón og sum-
ir ætla að sagnimar um hafmeyjar
séu sprottnar af.
Aður hafði allmikil olía farið
í sjóinn þama úr geymum í
Khafji, saúdiarabískri smáborg
skammt ffá kúvætsku landamær-
unum sem hefúr verið yfirgefin.
Skaut stórskotalið íraka geymana
þar sundur í s.l. viku. Hætta var
talin á að sú olía ógnaði mann-
virkjum sem Saúdi-Arabar hafa á
Persaflóaströnd sinni til að vinna
neysluvatn úr sjó og em þeim
lífsnauðsynleg, en í gær var talið
að þeirri hættu hefði verið bægt
ffá.
Mesta olíuslysið til þessa
varð á Mexíkóflóa 1979, er þijár
miljónir tunna af hráolíu mnnu út
í sjóinn eftir sprengingu í bor-
palli.
Reuter/-dþ.
AUGLYSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00
1984-1 .fl. 1988-1 .fl. D 3 ár 01.02.91-01.08.91 01.02.91 kr. 49.963,38 kr. 20.109,82
*)lnnlausnarverö er höfuöstóll, vextir, vaxtavextir og veröbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóös fer fram í afgreiðslu
Seölabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, janúar 1991.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Leiðréttingar á
vaxtabótum vegna
skattframtals 1990
Alþingi hefur samþykkt lög sem heimila einstakl-
ingum aö sækja um leiðréttingu á stofni til útreikn- ±
ings vaxtabóta í skattframtali 1990 vegna lána á s
árinu 1989 þegar um er að ræða:
•Uppsafnaðar verðbætur af lánum sem fylgdu
íbúð við sölu.
•Greiddar, uppsafnaðar og áfallnar verðbætur á
lán umfram ákvæði skuldabréfa vegna lána til
kaupa eða byggingar á eigin húsnæði.
Sækja þarf um leiðréttingu til skattstjóra og fást
umsóknareyðublöðin þar. Umsókn verður að
berast skattstjóra eigi síðar en með skattframtali
1991.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Miðvikudagur 30. janúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7