Þjóðviljinn - 02.02.1991, Qupperneq 4
ÞJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
FRÉTTIR
OECD og GVÞ
Það rættist í gær á ráðherrafundi OECD, sem Þjóðvilj-
inn spáði hér í leiðara á síðasta ári, að ekki yrði lengur und-
an því vikist að taka upp hugtakið GVÞ, „græn verg þjóðar-
framleiðsla1', og skoða af opinberri hálfu í fullu samhengi
hagvöxt og umhverfismál þjóðanna. Með tímamótasam-
þykkt Efnahags- og framfarastofnunarinnar í París, þar
sem mættir voru fulltrúar helstu iðnríkjanna, var í fyrsta
sinn lýst yfir þeirri eindregnu ákvörðun að ríkisstjórnir
þeirra skuli í stefnumörkun sinni á síðasta áratugi aldarinn-
ar leitast við að samræma til fulls stefnu sína í umhverfis-
málum og hagstjóm.
( yfirlýsingu fundarins segir að hagvöxtur og umhverfi
séu órjúfanlegir þættir: „Hagvöxtur og umhverfi eru tengd í
grundvallaratriðum. Útilokað er að aðskilja framkvæmd
hagfræðilegrar og vistrænnar stefnu“.
Ályktunin er einkar forvitnileg fyrir (slendinga, því ráð-
herrar iðnríkjanna lögðu sérstaka áhersla á að aðgerða sé
tafarlaust þörf á sviðum sem snerta nýtingu hafsvæða og
orku, enn einnig skipulag landbúnaðar og flutninga. ( áætl-
un þeirra er svo mælt fyrir um að verðstýring á orku beinist
að því að auka nýtingu vistarvænna, endurnýjanlegra
orkugjafa og að í verðlagningu landbúnaðarafurða verði
tekið tillit þess kostnaðar sem af framleiðslu þeirra hlýst í
vistkerfinu.
Alþjóðaátak í þessum anda jafngildir mikilli gengis-
hækkun á vatns- og varmaorku íslands, sem hlýtur að
verða tekið tillit til í stóriðjusamningum augnabliksins eða
framtíðarinnar. Það leggur síðan enn meiri ábyrgð á herð-
ar íslendinga varðandi skynsamlega nýtingu fiskstofna. Og
loks breytir þessi ákvörðun dæminu verulega hvað varðar
landbúnaðinn. Sú tíð líður senn, að iðnríkin geti veifað
„ódýrum" matvælum í skjóli niðurgreiðslna, stríðeldis bú-
gripa með efnanotkun, afráns á auðlindum og skemmda á
jarðvegi og vatnabúskap. Um þetta efni sagði í þeim leið-
ara Þjóðviljans sem minnst var á að framan, að í löndum
þar sem afkastamikill landbúnaður hefur ríkt..verður
þess nú krafist að heildarreikningurinn verði lagður fyrir. Þá
kynni að koma í Ijós, að langtíma tilkostnaður ríkja vegna
matvælaframleiðslu sem styðst t.d. við mikla efnanotkun
og áníðslu á vatnabúskap, mundi sýna dæmið íslending-
um meira í hag en nú er oft haldið fram“.
Niðurstaðan á útreikningi raunverulegrar verðmæta-
sköpunar með nýjum aðferðum við gerð þjóðhagsreikn-
inga, þar sem tekið er tillit til umhverfisþátta, var í leiðara
þessum nefnd „Verg græn þjóðarframleiðsla“, í samræmi
við það sem tíðkast á þeim vettvangi sem hefur barist fyrir
breytingum í þessum efnum.
Islendingar geta verið ánægðir með það, að innan
Norðurlandaráðs var það Hjörleifur Guttormsson alþingis-
maðursem reyndist brautryðjandinn á þessu sviði. 19. apr-
íl á síðasta ári lagði hann fram tillögu á þingi Norðurlanda-
ráðs í Reykjavík, um „græna, verga þjóðarframleiðslu og
aukið norrænt samstarf um hagtölur umhverfismála". Sex
fulltrúar vinstri flokka á Norðurlöndum gerðust síðan með-
flutningsmenn að tillögu Hjörleifs. Þar er lögð áhersla á að
raunhæfar forsendur á grundvelli vistkerfisins verði metnar
við ákvarðanatöku í efnahagsmálum og í öðrum viðmiðun-
um milli landa, en ekki látið nægja að vísa til hrárra talna
um þjóðarframleiðslu. Skorað er á Norðurlandaþjóðir,
vegna ástandsins í umhverfismálum, að grípa þegar í stað
til rannsókna og aðgerða með þetta að leiðarljósi, en um
leið er hvatt til alþjóðlegs samstarfs um verkefnið.
Síðast en ekki síst lögðu sex þingfulltrúar Kvennalist-
ans fram þingsályktunartillögu sem samþykkt var í þessari
mynd á Alþingi 5. maí sl., svohljóðandi: „Alþingi ályktar að
fela ríkisstjórninni að láta kanna aðferðir við útreikning
þjóðhagsstærða þar sem tekið sé tillit til áhrifa framleiðslu-
starfsemi á umhverfi og náttúrlegar auðlindir. í þessu skyni
verði komið skipulagi á hagsýslugerð um umhverfismál og
nýtingu auðlinda og fylgst með því sem er að gerast á
þessu sviði erlendis".
í nefndaráliti frá félagsmálanefnd Alþingis var mælt
með samþykkt tillögunnar og m.a. vísað til þeirra álits-
gerða frá Hagstofu íslands og Þjóðhagsstofnun að „með ti-
lögunni sé hreyft þörfu máli“.
Samþykkt OECD getur verið risaskref í þessum efnum
og staðfestir mikilvægi þeirrar baráttu sem umhverfissinn-
ar hafa háð undanfarin ár. ÓHT
Litháen
Ottast borgarastyrjöld
Otti við borgarastyrjöld í Sovétríkjunum fyrir haustið. Islenska þing-
mannanefndin rœddi við Landsbergis í gær. Stuðningur íslenskra stjóm-
valda við sjálfstæðisbaráttuna í hávegum hafður meðal Litháa
aðstoða Litháa í sjálfstæðisbaráttu
sinni.
Formaður utanríkisnefndar
æðsta ráðsins sagði við blaða-
mann að atburðir síðustu daga
hefðu orðið til þess að kynda und-
ir öldu róttækni meðal þjóðarinn-
ar og sagðist hann óttast borgara-
styijöld í Sovétríkjunum fyrir
haustið ef ekki yrði róttæk breyt-
ing á stefnu sovésku stjómarinnar.
Aðeins sjálfstæði Litháens gæti
bjargað landinu frá slíkri borgara-
styijöld.
Islenska þingmannanefndin
mun eiga annan fund með Land-
bergis forseta og ríkisstjóm Lithá-
en á morgun og hún hefur þegar
boðið þingmannanefttd frá Lithá-
en að koma til íslands við tæki-
færi.
Það er greinilegt að Litháar
meta mikils þann skilning sem ís-
lensk stjómvöld hafa sýnt á sjálf-
stæðisbaráttu Litháa.
Sendinefhdin fer frá Vilníus
til Riga á sunnudag. -ólg
VILNÍUS/-ólg - Sendinefnd Al-
þingis átti í gær fund með Land-
bergis forseta Litháens og utanrík-
isnefhd æðsta ráðs Litháens í
þinghúsinu í Vilníus. Aðstæður
fundar þessa vom í hæsta máta
óvenjulegar þar sem þinghúsið er
víggirt á alla vegu með stein-
blokkum, sandpokum og gadda-
vír. Innan dyra em aðstæður ekki
síður óvenjulegar. Sandpokar víða
um bygginguna og fjöldi manna
innandyra sem heldur þar fyrir
reiðubúinn að verja þinghúsið
með vopnum dag og nótt og víða
em beddar eða rúm og sumstaðar
má sjá menn sofa með byssur sér
við hlið.
Utan við húsið er töluverður
mannfjöldi og hefúr fólk fengið
útrás fyrir hugmyndaflug sitt með
hverskyns myndskreytingum sem
prýða víggirðingamar og gádda-
vírinn umhverfis þinghúsið.
Um það leyti sem þetta er
skrifað er söngkór klæddur þjóð-
búningum að syngja þjóðlög í
Vörður ( þinghúsinu í Vilnius
anddyri hússins, en utandyra loga
eldar í skýlum þar sem fólk heldur
til og heldur á sér hita í 13 gráðu
frosti.
Viðræður þingnefndarinnar
við Landbergis forseta og utanrík-
isnefnd æðsta ráðsins snémst um
möguleika íslendinga til þess að
Rangfærslur deildarstjórans
Athugasemd frá fangelsismálastjóra
I" framhaldi af viðtali við mig í
Þjóðviljanum 26. janúar sl.
sendir Þorsteinn A. Jónsson,
deildarstjóri í dómsmálaráðu-
neytinu, mér kaldar kveðjur f
blaðinu í gær. Þar kýs hann að
segja mig fara vísvitandi með
rangfærslur þegar ég held því
fram að Fangelsismálastofnun
hafi tekist að grynnka á lista yf-
ir dómþola sem boðaðir eru til
afplánunar.
Þá lætur hann að þvi liggja að
ég, í áðumefhdu viðtali, hafi sakað
fangelsismáladeild dómsmála-
ráðuneytisins um „subbuskap" í
embættisfærslu hvað þetta áhrærir.
Ekki ætla ég að troða illsakir við
deildarstjórann á opinberum vett-
vangi. Slíkt á ekki að vera háttur
embættismanna. Hins vegar vísa
ég alvarlegum ásökunum hans í
minn garð heim til fóðurhúsanna.
Ég er þó neyddur til að benda á
nokkur atriði um þetta efhi.
Ég hef aldrei sett fram gagn-
rýni á störf fangelsismáladeildar
dómsmálaráðuneytisins í þessu
sambandi. Þar vom unnin ágæt
störf við erfiðar aðstæður. Um-
mæli mín gefa ekki tilefni til þess
skilnings sem deildarstjórinn kýs
að leggja í þau, hvað þá að hafa
uppi slík jgífuryrði sem raun ber
vitni. Setja verður upp sérstök
lestrargleraugu til að komast að
þannig niðurstöðu að gagnrýni sé
beint að ráðuneytinu.
Þegar athugaðir em boðunar-
listar áranna 1988, 1989 og 1990
kemur í ljós, að um áramótin
1988/1989 vom 187 óskilorðs-
bundnir dómar í boðun, um ára-
mótin 1989/1990 vomþeir 178 og
um áramótin 1990/1991 vom þeir
135. Á þessari staðreynd vom um-
mæli mín m.a. byggð. Að vísu
fjölgaði fangaplássum lítillega á
árinu 1989, en einnig ber á það að
líta að samanlögð lengd óskilorðs-
bundinna refsidóma var mun
meiri. Jafnframt byggðust um-
mælin á þeirri staðreynd, að með
tilkomu Fangelsismálastofnunar
um áramótin 1988/1989 hefur nýt-
ing fangarýmis aukist, eins og eft-
irfarandi tafla úr ársskýrslu stofh-
unarinnar fyrir árið 1989 sýnir.
Af ofangreindu má ljóst vera
að þegar fækkar á boðunarlista
styttist sá tími sem líður frá því að
dómþoli er boðaður í afplánun og
þar til afþlánun hefst.
Reykjavík, 1. febrúar 1991
Haraldur Johannessen
HEILDARAFPLÁNUN OG NÝTING FANGAPLÁSSA.
I985: 1986: 1987: 1988: 1989:
Fjöldi Fjöldi Fjöldi Fjöldi Fjöldi
í dögum % dögum % dögum % dögum % dögum %
Ucgningarhúsið . . 3526 42 5807 69.17 4944 58.91 6759 80.30 7585 90.35
I.itla-Hraun . . 17513 85.71 19260 92.86 18583 90.91 20133 98.23 19905 98.25
Kvíahryggja 3427 85.36 3720 92.64 3341 83.18 3886 96.55 3970 98.91
Akureyri 63.50 1829 83.50 1593 72.67 2015 91.83 2155 98.33
Bitra 120.50 1346 184.50 1235 169 485 66.50 0 0
Kópavogsbraut 17 Hcildarfjöldi afplánunardaga 0 0 0 0 0 0 0 0 I952 78.71
íöllum fangclsum . . 26738 3I962 29696 33278 35567
1985 I986: 1987: 1988: 1989:
Mcötiltalsfjöldi fanga á dag íöllum fangclsum 73.25 87.57 81.36 90.92 97.44
Mcðaltalsfjöldi fanga á dag í fancclsum pcr KKI.(K)t) íbúa 30.26 35.89 32.89 36.12 38.44
Nvting fangaplássa í % 74.74 89.36 83.02 92.78 96.00
ÞJÓÐVIUINN
Síðumúla 37 — 108 Reykjavík
Sími: 681333
Símfax: 681935
Útgefandi: Útgáfufélagið Bjarki h.f.
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Helgi Guðmundsson
Ólafur H. Torfason.
Fréttastjóri: Sigurður Á. Friöþjófsson.
Aðrir blaðamenn: Bergdís Ellertsdóttir, Dagur
Þorleifsson, Elías Mar (pr.), G. Pétur Matthíasson,
Garðar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson,
Heimir Már Pétursson, Hildur Finnsdóttir (pr.k Jim
Smart (Ijósm.), Kristinn Ingvarsson (Ijósm.), Ólafur
Gislason, Saevar Guðbjörsson.
Skrifstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Steinar Harðarson.
Auglýsingar: Sigrfður Sigurðardóttir, Svanheiður
Ingimundardóttir, Unnur Ágústsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Hrefna Magnúsdóttir:
Afgreiösla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir,
Þorgerður Sigurðardóttir, Þórunn Aradóttir.
Bilstjórí: Jóna Sigurdórsdóttir.
Skrífstofa, afgreiösla, ritstjóm, auglýsingar:
Siðumúla 37, Rvik.
Sími: 681333.
Símfax: 681935.
Auglýsingar: 681310, 681331.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Oddi hf.
Verð í lausasölu: 100 kr. Nýtt Helgarblað: 150 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 1100 kr.
4.SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. febrúar 1991