Þjóðviljinn - 02.02.1991, Síða 9

Þjóðviljinn - 02.02.1991, Síða 9
í Þeir vinna hiá Fiskeldi Eyjafjarðar og Hafrannsókn. Frá vinstri: Ámi Magnússon, Arnar Jónsson líffræð- ingur, Kristinn Guðmundsson sjávarlíffræðingur, starfsmaður Hafrannsóknastofnunar, Ólafur Hall- dórsson framkvæmdastjóri og Guðmundur Sigur- bjömsson stöðvarstjóri. Nýjustu tækni er beitt við að kyngreina hlýrann. Hér hafa menn komist að því með sneiðmynda- töku að þessi er kvenkyns. Þessi lúða sem við erum með er afskaplega hraust. Það kemur þó fyrir að lúða drepst hjá okkur en þá er það vegna þess að hún stekkur upp úr kerinu. Þannig að það eru engin affoll af þessum fiski. -Hvað er hún gðmul? -Hún var talin þriggja ára þegar við fengum hana 1987. Annars er ekki gott að aldurs- greina lúðuna, en við studdumst við töflur Haffannsóknastofhunar um lengd lúðu. -Hefurðu hugmynd um hvað hún getur orðið gömul? -Nei, en hún er eflaust orðin mjög gömul þegar hún er 200- 300 kíló. -Hvaðan fáið þið fóðrið? -Við búum til allt okkar fóður sjálfir. Uppistaðan í því er karfi sem við höfum fengið hjá togur- unum á Akureyri. Við hökkum karfann, blöndum í hann vítamín- um og bindiefnum. Stórlúðunni gefum við líka síld í heilu lagi. —Er lúðan matgráðug? -Já, en ekki á þessum árstíma. Á sumrin eru stundum ansi mikil læti í henni. -Hvað eruð þið með margar lúður? -Samtals erum við með um 500 lúður og 200 hlýra. -Hverjir eiga Fiskeldi Eyja- fjarðar? -Þetta er hlutafélag með 56 hluthöfum. Öll sveitarfélögin hér í firðinum, sem eiga land að.sjó, eru hluthafar. Starfsemin hefur fyrst og ffemst verið íjármögnuð með ffamlagi hluthafa. Hlutaféð hefur verið notað til fjárfestinga og rekstrar og eins höfum við fengið sfyrki ffá sjávarútvegs- ráðuneyti og Rannsóknaráði rík- isins ásamt Samstarfsnefnd Vest- ur-Norðurlanda (norrænt þróun- arfé sem veitt er til Færeyja, Is- lands og Grænlands innsk.). Fé- lagið á húsnæðið sem við erum í, það skuldar ekkert og tekur engin lán. -Hvenær má búast við að þið fáið afurðir til að selja? -Ef vel gengur í sumar, fáum við vonandi lúðuseiði í haust. Við getum gert hvort sem er að taka þau í eldi hjá okkur eða selja þau. Það hafa auðvitað ekki verið nein lúðuseiði á markaði en það verð sem Norðmenn tala um er mjög hátt. Það verður bara að koma í ljós hvað við fáum mikið af seið- um, við tökum engin risaskref í einu. -Vœri hœgt að nota aðstöð- una í gjaldþrota laxeldisstöðvum til að ala lúðu? -Eflaust væri það hægt en ég held að þessi stóru og djúpu ker í laxeldisstöðvunum, nýtist afar illa. Lúðueldiskerin þurfa ekki að vera nema um einn metri á dýpt en sjálfsagt er að skoða það mál þegar mikill fjöldi seiða hefiir fengist. -Þurfið þið að velgja sjóinn i kerjunum? -Sumt af fiskinum er bara í sjó jafnköldum og sjórinn er hér fyrir utan en við skerpum aðeins á sjónum sem fer á klakfiskinn þannig að hann fer aldrei neðar en í u.þ.b. fjórar gráður. Æðri lúður Við færum okkur úr því sem líklega er vogandi að kalla al- menning, yfir í þann hluta hússins sem geymir sjálfa dýrgripina, í fyrsta lagi lúður sem munu hrygna í vor og sumar og hins vegar Jakob og Halldór sem ég hika ekki við að nefha dýrustu fiska Islandssögunnar. Hér má ekki taka myndir, það er prinsipp segir Ólafiir. Ekki svo að skilja að ég geri ráð fyrir miklum árangri í myndatökunni enda átti eftir að koma í ljós að tilraunir til að festa hinar óæðri lúður á filmu fóru að miklu leyti út um þúfur. Allur búnaðurinn í stöðinni er hannaður af starfsmönnum henn- ar en þeir hafa heyjað sér þekk- ingu til þess fyrst og fremst frá Noregi. þessari gestakomu og leggst fyrir aflur eftir andartak. Hún mun eiga tiltölulega skammt eftir í got. ívöðlum og þurrbúningi Eg spyr Ólaf hvað þeir reikni með að fá fyrir kílóið af eldislúðu þegar þar að kemur. -Verðið er auðvitað dálítið mismunandi eins og títt er á fisk- markaði en það virðist ekki frá- leitt að reikna með 700 - 1000 krónum fyrir kílóið erlendis. Þegar kemur að því að kreista fiskinn fara tveir menn í kerið, í vöðlum og þurrbúningi, slakað er niður í kerið þar til gerðu borði, síðan er lúðunni, sem á að kreista, vikið með lagni upp á borðið. Þegar lúðan er komin í þessa prí- sund þá ólmast hún í skamman tíma því fiskar kunna yfirleitt heldur illa við sig sem strandagló- par eins og kunnugt er. Þegar mesti móðurinn er runninn af lúð- unni er hún kreist, og sleppt svo aftur í sama ker, en það þarf að taka hana nokkrum sinnum eins og áður er komið ffarn. Fyrir nú utan það að lúðan er ólík laxi í vaxtarlagi og hegðun eins og al- kunna er þá fer klak fram á annan hátt. Hrogn laxins eru botnlæg en lúðuhrogn svífa aftur á móti um í sjónum. Hreinn Eyjaf jarðarsjór í kerjunum þar sem hrognin ,eru búin undir klak er hægur und- um síur og útfjólublátt ljós til að fækka hugsanlegum bakteríum, en auk þess er gætt vandlega að hitastiginu. í þessum keijum eru hrognin þangað til daginn áður en þau klekjast út. í stöðinni eru ræktaðir þör- ungar og þegar við komum hitt- um við fyrir Kristin Guðmunds- son þörungafræðing ffá Haffann- sóknastofhun, en stöðin hefur samvinnu við Haffannsókn um ræktunina. Þörungamir em not- aðir til fóðrunar. Þegar hrognin hafa klakist út verða til kviðpoka- seiði sem lifa af því sem í kvið- pokanum er, en eftir það tekur við hættulegasta stigið þegar fóðra þarf seiðin. Þá verða mestu affoll- in. Skömmu eftir að kviðpoka- tímabilinu lauk 1989 drápust öll seiðin, en í einu keri em tvö merkileg vitni um að lúðuklak getur tekist; lúðuseiðin Halldór og Jakob. Er Halldór dauður? Þegar við komum að liggur Halldór grafkyrr og lætur fara vel um sig. Mér sýnist hann vera orð- inn fjögurra til fimm sentimetra langur. Hann liggur þama í svo fullkomnu kæmleysi að mér stendur ekki á sama og spyr Ólaf hvoit Dóri sé ekki bara dauður. En Ólafur segir að hann sé sprell- lifandi. Ég horfi enn dálitla stund á kauða sem lætur eins og honum komi það alls ekki við að hann er annar af tveimur dýmstu fiskum íslandssögunnar. Hann kostar á að giska 35 miljónir og Jakob fé- lagi hans annað eins. Tilraunin hefur sem sé kostað 70 miljónir til þessa og árangurinn blasir við augum. Og þó að einhveijum kunni að finnast það undarlegt er þetta góður árangur. Þegar Ólafur bankar í kerið og Halldór og Jak- ob taka á sprett sé ég að þeir fé- lagar em traustur vitnisburður um að það er hægt að klekja út lúðu ef vel er á haldið. Tilraunastarf Þegar ég spyr Ólaf hvað eig- endumir séu tilbúnir að halda til- rauninni lengi áffam segir hann ekkert ákveðið í því enn. Menn hafi alltaf gert sér grein fyrir að svona tilraunastarfsemi sé dýr og hafi ákveðið að reyna til hlítar. Það verði bara að koma í ljós hvað hún kostar að lokum. Þegar þess er gætt að fyrir kíló af lúðu má fá upp undir 1000 krónur, þá er ekki verið að tala um neina smáaura ef klakið tekst í vemlegum mæli. Ef miðað er við fimmtíu kílóa lúðu, sem þykir nú ekki nein ósköp, að minnsta kosti samanborið við þau ferlíki sem einatt koma upp úr sjónum, þá þarf ekki nema 1400 lúður til að fá sömu upphæð og stofh- kostnaðinn. Hefði hinum norska starfsbróður þeirra hjá Fiskeldi Eyjafjarðar h/f tekist að halda líf- inu í öllum 30.000 seiðunum sem áður em nefhd og þau náð 10-15 kílóa þyngd þá hefði hann að lík- indum geta fengið um 450 millj- ónir fyrir. Dálaglegur skildingur. hágé. Það er ekki hægt að segja að svipurinn á þessum hlýra sé sérstak- lega glaðlegur en hvað sem þvl Ilður var ekki . - \ annað að sjá en hann þrifist I vel. Hinar æðri lúður era í tveimur’ kerjum, um sjötíu sfykki samtals, sumar ferlega stórar. Hér er mjög skuggsýnt inni og greinilega hugsað um að allt fari fram með nauðsynlegri alúð og nákvæmni. Ólafur segir að hrygnumar verði eins og körfubolti í laginu þegar komið sé að hrygningu. Állt í einu kemur hrygna númer 12 upp úr djúpinu, sem er að vísu ekki nema um einn metri, eins og til að skoða hverjir séu þar á ferð. Hún hefur afar takmarkaðan áhuga á irstraumur. Sjónum, sem taka má af 10 eða 40 metra dýpi í Eyja- firðinum, er dælt upp um botninn á kerinu en fyrst fer hann í gegn Laugardagur 2. febrúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.