Þjóðviljinn - 01.03.1991, Qupperneq 5
T71 áT^k C* HT1T T¥\ A áT^ CT* T71TT ~Wp TmTTTI
JH JL U ÖAljof jLCJirf JL T lJtv
Faxaskiól
Megn óánægja með dælustöð
Ráðist í framkvæmdir án samráðs við íbúa. Óttast er að stöðin skyggi á útsýnið og leiði til verðfalls á fasteignum
egn óánægja er meða)
íbúa við Faxaskjól vegna
fyrirhugaðrar byggingar skolp-
dælustöðvar sem þar á að rísa í
haust. Telja margir að dælu-
stöðin muni skyggja á útsýni
þeirra út á Skerjafjörðinn og
Íeiða til verðfalls á fasteignum.
Ekkert samráð var hafi við
ibúana áður en byijað var síðast-
liðið sumar að sprengja íyrir rör-
um dælustöðvarinnar og fylgdi
því töluvert ónæði fyrir íbúana.
Sumir þeirra halda því fram að
þessar framkvæmdir hafi valdið
skemmdum á nærliggjandi hús-
um og meðal annars orsakað
ótímabærar sprungur í þeim. í
óveðrinu á dögunum urðu nokkrir
íbúðaeigendur varir við leka í
húsum sínum sem ekki hafði ver-
ið áður og vilja meina að það sé
vegna framkvæmdanna frá því í
sumar.
Norðurlandaráð
Norræn
menningar-
hátíð í
Reykjavík?
Garðar Guðjónsson,
Kaupmannahöfn:
Svavar Gestsson mennta-
málaráðherra viðraði þá hug-
mynd á fundi menntamálaráð-
herra Norðurlanda í gær að
norræn menningarhátíð verði
haldin í Reykjavík á næsta ári.
Hátíðinni hefur ekki verið val-
inn staður, en Svavar sagði við
Þjóðviljann í gær að hugmynd
hans hefði fengið góðar viðtökur
hjá menntamálaráðherrum hinna
Norðurlandanna. Fari svo að há-
tíðin verði haldin í Reykjavík, má
búast við að hún verði haldin i
tengslum við Listahátíð.
Að sögn Ólafs J. Briem skipa-
verkfræðings og ibúðareiganda
við Faxaskjól funduðu íbúamir í
vikunni um málið. Þar kom fram
að íbúamir áskilja sér skaðabóta-
rétt á hendur borginni ef frekari
framkvæmdir þama orsaka fleiri
skemmdir á húsum þeirra. Ólafur
sagði þó að erfitt væri að alhæfa
um það hvort sprengingamar frá
því í sumar hafi leitt til skemmda
á húsunum eða ekki. Hinsvegar
hefðu íbúamir farið þess á leit við
borgina hvort ekki væri hægt að
hafa dælustöðina neðanjarðar. Ól-
afur sagði að íbúamir kysu auð-
vitað helst að þurfa ekki að hafa
stöðina í næsta nágrenni við sig ef
þess væri nokkur kostur. A fyrir-
huguðum byggingarstað er grænt
svæði og leiksvæði krakka og
unglinga sem trúlega mun hverfa
þegar dælustöðin verður reist.
Eftir borgarafundinn var
ákveðið að fylgjast náið með
framvindu málsins í borgarkerf-
inu, en embætti borgarverkfræð-
ings hefur til skoðunar þær at-
hugasemdir sem íbúamir hafa
komið á ffamfæri.
-grh
Steinsteyptu rörin við Faxaskjól blða þess að framkvæmdir hefjist að nýju við byggingu
skolpdælustöðvarinnar, íbúum til sárrar armæðu. Eins og margir aðrir höfuðborgarbúar þekkja af eigin raun I
samskiptum við borgaryfirvöld, var byrjað að grafa og sprengja í fyrrasumar án þess að samráð væri haft við
íbúana. Mynd: Jim Smarf.
Grunnskólinn
Málsverðir á þremur árum
Ragnar Amalds: Fagnaðarefni flestra sem íjalla um skólamál að
nemendur eigi rétt á málsverði á skólatíma
agt er til í breytingatillög-
um meirihluta mennta-
málanefndar Neðri deildar við
frumvarp menntamálaráð-
herra til laga um grunnskóla að
nemendur í grunnskólum eigi
rétt á málsverði á skólatíma og
að því marki verði náð á þrem-
ur árum.
I nefndarliti sem formaður
nefndarinnar Ragnar Arnalds
mælti fyrir á þriðjudag segir að
flestum beri saman um nauðsyn
þess að böm og unglingar eigi
greiðan aðgang að hollri fæðu í
grunnskólum. Vegna breyttra að-
stæðna á heimilum og í atvinnu-
lífinu verða skólar að einhveiju
marki að taka á sig þennan hluta
umönnunar bama, segir í álitinu.
Ragnar sagði að þetta væru
talsverð tíðindi og fagnaðarefni
fyrir flesta þá sem fjallað hafa um
skólamál á liðnum árum. Hann
sagði að útfærslan á þessu yrði að
miðast við aðstæður á hveijum
stað íyrir sig. Hann sagði að
nefndin hefði ekki talið rétt að
Norðurlandaráð
Opnað fyrir áheyrnarfulltrúa
gera tillögur um þetta í smáatrið-
um, heldur er ætlast til þess að
samstarfsnefnd ríkis og sveitarfé-
laga útfæri þetta nánar. Vegna
mismunandi aðstæðna sagði
Ragnar að ekki hefði verið hægt
að gera kostnaðaráætlun vegna
þessa.
Tvö minnihlutaálit komu frá
nefndinni, en ekki var mælt fyrir
þeim, heldur umræðu frestað þar
sem minnihlutinn taldi óeðlilegt
að Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra væri ekki viðstaddur
umræðuna.
En í nefndarálitum kemur
fram að Sjálfstæðismenn í nefnd-
inni vilja vísa málinu til rikis-
stjómarinnar og hafa þeir margt
við frumvarpið að athuga, t.d telja
þeir að í frumvarpinu felist ekki
valddreifmg sem þó er yfirlýst
stefna þess. Kvennalistinn styður
hinsvegar frumvarpið þó flokkur-
inn vilji ganga lengra í breyting-
um en frumvarpið.
Helstu ákvæði frumvarpsins
kveða m.a. á um að á tiu árum
verði komið á einsetnum skóla
hér á landi. Að á næstu þremur ár-
um lengist skóladagur 1.-3.
bekkjar i 25 stundir á viku úr 22
og að sjö stunda heildstæður
skóladagur allra grunnskólanema
komi til framkvæmda á næstu tíu
árum.
í máli Ragnars kom fram að
kostnaðarauki vegna þessa og
ýmissa annarra atriða væri sam-
tals 210 miljónir króna sem
dreifðust á fimm ára tímabil.
-gpm
Garðar Guðjónsson.Kaupmannahöfn:
Fulltrúar þjóðþinga Norður-
Ianda geta í framtíðinni
fengið stöðu áheyrnarfulltrúa á
þingum Norðurlandaráðs. Það
þýðir að þeir geta fylgst með
fundum á þinginu, en það er
undir forsætisnefndinni komið
hverju sinni hvort gestirnir fá
málfrelsi. Þetta þýðir að til að
mynda fulltrúar þjóðþinga
Eystrasaltsríkjanna geta komið
til þingsins á næsta ári sem
áheyrnarfulltrúar, en ekki sem
gestir eins og nú.
Þetta er ein af breytingunum
sem ákveðið hefur verið að gera á
starfsháttum Norðurlandaráðs, en
þessar breytingar kalla á breyt-
ingar á Helsinki- samkomulaginu
og slíkar breytingar eru háðar
samþykki ríkisstjóma landanna.
A þinginu í Kaupmannahöfn
hafa verið skiptar skoðanir um
hvemig Norðurlandaráð eigi í
framtíðinni að haga sambandi
Askrifendur!
Zl skrifendur sem greiða
áskriftargjald sitt með
ávísunum eru að gefnu tilefni
vinsamlega beðnir um að stíla
þær á Þjóðviljann, en ekki
handhafa.
Þá er minnt á að hægt er að
greiða áskriftargjaldið með
greiðslukortum, VISA, EURO og
SAMKORTI. Þeir sem vilja fara
þá leið, vinsamlegast snúi sér til
afgreiðslu blaðsins.
sínu við Eystrasaltsríkin. Lagt var
til að ríkjunum þremur yrði veitt
full aðild að ráðinu, en þeirri hug-
mynd var hafnað. Aðrir voru
þeirrar skoðunar að veita ætti
Eistlandi, Lettlandi og Litháen
fasta stöðu áheymariúlltrúa, en
samþykkt þingsins felur það ekki
í sér. Þess í stað er gert ráð fyrir
að forsætisnefnd þingsins taki
ákvörðun um boð til utanaðkom-
andi hverju sinni.
Þingið hefur einnig samþykkt
að nú skuli vera mögulegt að
boða til þings oftar en einu sinni á
ári og jafnframt að fulltrúum
Norðurlandaráðs æskunnar verði
gert kleift að gera grein íyrir sjón-
armiðum sínum á þingum Norð-
urlandaráðs. Norðurlandaráð
æskunnar kemur saman dagana
fyrir þing Norðurlandaráðs og
sendir frá sér ályktun.
Föstudagur 1. mars 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SlÐA 5
þJÓÐVIUINN
Blaðamenn
Þjóðviljanii vantar blaðamenn.
Annars vegar er um að ræða fastar stöður, en
hins vegar sumarafleysingar.
Skriflegar umsóknir, með upplýsingum um
menntun og fyrri störf, sendist framkvæmda-
stjóra blaðsins fyrir 10. mars n.k.