Þjóðviljinn - 01.03.1991, Side 7
'•áP' ----
Irakar gefast upp fyrir bandarískum landgönguliðum ( Kúvæt - „bardagi allra bardaga" varð að „uppgjöf allra uppgjafa".
Ekki lengur svæðisbundid stórveldi
r
E. t.v. um 200.000 menn af her Iraks eru fallnir, særðir eða teknir til fanga ogþeir sem eftir
standa eru skipulagslaus, vopnafár múgur
Lýðveldisvarðliðinu,
I
best
i þjálfaða og vopnaða og að
flestra dómi kjarkmesta hluta
íraska hersins, var sundrað í
fyrrakvöld og þar með var suð-
urher íraka, sem fyrir fimm
dögum taldi að líkindum nokk-
uð yfir hálfa miljón manna, bú-
inn að vera.
Her þessi skiptist í 42 her-
deildir og i gær héldu bandamenn
þvi fram að engin þeirra væri bar-
dagafær lengur.
Bandamenn segjast hafa eyði-
lagt og hertekið hátt á fjórða þús-
und íraska skriðdreka, af um 4200
sem Irakar höfðu í Kúvæt og Suð-
ur- Irak. A sömu lund hefúr farið
um annan þungavopnabúnað ír-
aka. Mestur hluti skriðdreka og
annarra þungavopna í eigu íraks
var í Kúvæt og Suður-írak.
Irakar hafa sjálfir engar tölur
gefið upp um manntjón hers síns.
Saúdiarabískir herforingjar giska
á að það sé 85.000-100.000 falln-
ir og særðir. Jean-Louis Dufour,
franskur sérfræðingur um hermál
og Austurlönd nær, telur að um
150.000 írakar hafi verið drepnirjí
stríðinu, en vera má að óbreyttjr
borgarar séu þar innifaldir.
Bandamenn segjast hafa tekið
yfir 80.000 stríðsfanga og hefúr
eitt af sérkennum stríðs þessa ver-
ið að þeir sigruðu hafa verið fús-
ari til að láta taka sig til fanga en
sigurvegaramir áð taka við þeim
sem föngum. Komið hefur fyrir
að íraskir herrrienn hafa reynt
með uppréttum höndum að gefast
upp fyrir flugmannslausum flug-
vélum fjarstýrðum.
Fleiri fanga hafa bandamenn
ekki hugsað sér að taka. Lið það
íraskt, sem enn er uppistandandi í
herkvínni, er nú hungraður múgur
á ringulreið. Hermenn þessir fá að
fara úr herkvínni og jafnvel taka
eitthvað af vopnum sínum með
sér, varla þó mikið.
I stríðsbyijun var talið að í Ir-
aksher væm um 900.000 manns,
auk fjölmenns alþýðuvarðliðs
sem hvorki mun hafa verið vel
þjálfað né vopnað. Sá hluti hers-
ins, sem ekki var sendur í stríðið,
mun hafa hafl heldur fátt þunga-
vppna. Að öllu þessu athuguðu
má gera ráð fyrir að írak muni
ekki á næstunni bera höfúð og
herðar yfir grannríki sín sem her-
veldi.
Bandamenn segjast hafa misst
fallna í stríðinu öllu tæplega 150
manns, þar af um 60 í bardögum á
landi, og er það samkvæmt síð-
ustu tölum frá þeim um þetta. Em
þess vart dæmi fyrr að einn her
hafi sloppið svo vel frá stríði,
miðað við umfang og timalengd
hemaðaraðgerða og stærð og
vopnabúnað andstæðings.
Bandamenn em að vonum
hressir yfir þessari útkomu og
hafa óspart í frammi háð og spott
um Saddam, segja að úr „bardaga
allra bardaga“, eins og írakar
kölluðu stríðið, hafi orðið „und-
anhald allra undanhalda" og
„uppgjöf allra uppgjafa“. Saddam
ber sig fúrðanlega, þannig sagði
Bagdaðútvarpið í gær að írak
hefði með frammistöðu sinni í
stríðinu orðið þriðja heiminum
„fyrirmynd um staðfestu" og vak-
ið athygii á Palestínumálinu og
„kröfúnni um réttláta skiptingu
auðs araba“.
Persaflóasvæði
Stríðið
á
enda
George Bush, Bandaríkja-
forseti, lýsti í fyrrinótt yfir
vopnahléi í Persaflóastríði fyrir
hönd Bandaríkjanna og banda-
manna þeirra og tók það gildi af
þeirra hálfu kl. fimm í gær-
morgun. Hafði Bandaríkja-
stjórn þá frétt að íraksstjórn
hefði gengist undir samþykktir
þær allar 12, sem Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna hefur gert
gegn írak frá innrásinni í Kú-
væt 2. ágúst.
Skömmu síðar tilkynnti íraks-
stjóm að hún féllist á vopnahlé
fyrir sitt leyti. Eftir er þó að gera
formlegan vopnahléssamning.
Bandamenn hafa ákveðið að láta
af öllum árásum á Iraka, nema því
aðeins að þeir ijúfi vopnahléð að
fyrra bragði.
Ástæður til þess að banda-
menn ákváðu að hætta stríðinu
munu vera að írak hefúr nú beygt
sig fyrir öllum áminnstum sam-
þykktum Öryggisráðs og enn
frekar að íraski suðurherinn,
550.000- 620.000 manns í stríðs-
byijun, er nú gersigraður og mest-
ur hluti þungavopna Iraks eyði-
lagður.
Hernámssaga Kúvæts
Frásagnir landsmanna: Irakar myrtu fólk og
fluttu nauðugt úr landi íþúsundatali, pynduðu,
rœndu, nauðguðu
I spyrnuhreyfingarinnar og
útlægir forustumenn þarlendir
segja að Irakar hafi á þeim sjö
mánuðum, sem þeir hersátu
Kúvæt, myrt og flutt íbúa em-
írsdæmisins nauðuga til íraks í
þúsundatali. Ættingjar fjölda
Kúvæta, sem handteknir hafa
verið, hafa síðan ekkert af þeim
frétt.
Af frásögnum Kúvæta, sem
þeir eru ósparir á við erlenda
fréttamenn, að dæma, hefur íraska
hemámið verið ógnaröld af versta
tagi fyrir þá. íraski herinn reynd-
ist duglítill til stríðs en hann var
þeim mun athafnasamari við ill-
virki á vamarlausum íbúum hins
hertekna lands. Var þar bæði um
að ræða manndráp og pyndingar
sem heryfirvöld fyrirskipuðu og
rán og nauðganir sem vom ein-
staklingsframtak hermanna. Er
ekki svo að heyra að írösk yfir-
völd hafi gert mikið til að stöðva
þá hegðun.
Seham al-Mutwaa, yfirhjúkr-
unarliði við Múbarak-sjúkahúsið
í Kúvætborg, sagði að hvem laug-
ardag og sunnudag hefðu íraskir
hermenn komið þangað með þetta
sjö til tíu drepna Kúvæta. Þeir
hefðu allir verið á aldrinum 18-35
ára og um einn af hverjum tíu
hefði verið ícona.
Hann segir íraka hafa hand-
tekið og skotið lækni við sjúkra-
húsið, af því að hann hefði veitt
læknishjálp mönnum í and-
spymuhreyfingunni. Dag einn
hefði verið komið með 24 ára
gamla konu á sjúkrahúsið. Hún
sagði að fjórir hermenn hefðu
nauðgað henni á meðan aðrir her-
menn misþyrmdu eiginmanni
hennar, bróður og sextugri
tengdamóður hennar.
„Þetta var víti, hryllingur,“
sagði al-Mutwaa. „Við vomm
eins og rottur, létum eins lítið fara
fyrir okkur og við gátum meðan
þeir stálu og drápu og nauðguðu."
Aþdul Jaber Hussein, kennari,
segir íraka hafa gert suma skólana
að pyndingastöðvum. Þar hafi
þeir, sem gmnaðir voru um að
vera í andspymuhreyfingunni eða
hafa samúð með henni, verið
brenndir með sígarettum og aug-
un stungin úr þeim „með fingmm
eða öðm.“
Breti, búsettur í Kúvæt og
kvæntur palestínskri konu, hefur
eftir slökkviliðsmanni, kunningja
sínum, að sá hafi séð íraska skrið-
dreka skjóta á íbúðarblokk, af því
að Iraka hafi gmnað að þar væm
andspymumenn. Eftir fyrstu skot-
in féll höfuðlaus líkami 10 ára
drengs af þaki blokkarinnar niður
á götuna.
Föstudagur 1. mars 1991 ÞJÓÐVILJINN —SÍÐA7
O
HIOiriL B0IP®
GLÆSILEIKI GAMLA TÍMANS
Föstudags- og
laugardagskvöld
SÖNOSIÆMWTUIWIN:
I5LAJI IU/fTUIIPINlN
Undir hattinum eru: Egill ólafsson, Edda Heiðrún Backman,
Jóhann Sigurðarson, Asa Hlín Svavarsdóttir og Jóhann G. Jóhannsson.
Haukur Morthens
og hljómsveit leika fyrir dansi
Matseðill:
Forréttur: Brefltir tímar; Sjávarréttasúpa fúll af fiskum hafsins
Aðalréttur: Baconfylltur lambainnanlærisvöðvi mcð rauðvinssósu
Eítirréttur: Borgardúett; tvær teg. af ís og ferskir ávextir í sykurkörfu
Matargestum boðið uppá fordiykk
Borðapantanir í síma 11440
Tökum að okkur: Arshátíðir, erftdrykkjur, 'SIPtZ', afmælisveislur og önnur mannamót.
= 0=0=0=I^^P=0=0=0i
o
o
o
o
o
o
o
II
a
ll
o