Þjóðviljinn - 01.03.1991, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 01.03.1991, Blaðsíða 10
I svitabaAi í fitubrennsluttma hjá Ásu. Lyfta hnjánum og bíta á jaxlinn; eftir á llður manni svo vel. Myndir: Kristinn. Lóð, sviti og tár Hoppað, pumpað, puð- að og skoppað í for- varna- og endurhæfing- arstöðinni Mætti Salurinn er troðfullur af sveittum líkömum í öllum mögulegum stærðum og gerðum. Blaðamaður mætir á nýjum íþróttaskóm, í níð- þröngum hnébuxum með svitaband um ennið, eins og dansarar í sjónvarpsþáttun- um Á framabraut, í von um nýjan og stórbættan kropp. Alls staðar eru karlar og konur að pumpa og puða. Eld- hress, ungur maður leiðir blaðamann í allan sannleikann um tækin og tólin sem auka eiga þrek og bæta geð. Klukkan er að nálgast kvöldmat og skrifstofublækumar, kennar- amir, sjoppustelpumar og Sóknarkonumar em mætt á staðinn í sama tilgangi og und- irrituð; öll viljum við öðlast ei- lífa æsku og létta ganginn upp á aðra hæð. Við sem erum nð byija elt- um sjúkraþjálfann um salina og reynum að leggja á minnið hvemig á að snúa á bekkjunum. Við þvælumst fyrir þeim gömlu ÍÞRÓTTIR Loðnir og spengilegir karlmenn pumpa af öllum lífs og sálarkröftum í Mætti. og blygðumst okkar fyrir kílóa- fjöldann á lóðunum. Þegar kynningunni um tækjasalinn er lokið, sem helst minnir á pyndingaklefa sem undirrituð sá á safhi í Lundún- um fyrir mörgum árum, er komið að hressu kvennaleik- fiminni. Hátt í fjörutíu konur standa í röð fyrir utan sal A. Þegar brennslutímanum á imdan lýk- ur streymir út svitastokinn hóp- ur og við hinar troðum okkur inn. Þær sem eru með allt á hreinu standa næst speglunum ffemst í salnum. Þær sem ekk- ert kunna, reyna að láta lítið á sér bera aftast. Skipanir þjálfarans heyrast illa aftan til í salnum fyrir sól- poppinu. Þann vanda má leysa með því að apa allt eftir þeirri sem stendur fyrir framan mann. Eftir klukkustundar teygjur og tog lýkur puðinu loks með því að við slökum á öllum vöðvum og rekum út úr okkur tunguna. I sturtu og gufu; sápur og sjampóbrúsar um aílt. Bleíkir rassar og brúnir, lítil bijóst og stór, slitnir magar og æðahnút- ar, spikaðar konur og þveng- mjóar; allar þvoum við af okk- Og upp, og niður til styrktar hand- leggjum og brjóstvöðvum. ur svitann. í búningsklefunum breytumst við aftur í af- greiðslukonur, bílasala, stúd- enta og blaðamenn. Tökum saman dótið og hlaupum út á eftir leið 7. Þegar blaðamaður gengur rösklega heim á leið finnur Á hlaupabrautinni er hitað upp fyrir átökin á bekkjunum. hann blóðið streyma um líkam- ann. Líðanin hefur stórbatnað, lærin strax orðin stinn og heim- urinn er bjartur og léttur. Til að halda upp á nýtt og betra líf rekur blaðamaður Nýs Helgar- blaðs nefið inn á krá, fær sér einn stóran og langþráða sígar- ettu. Á morgun verður bætt á lóðin. BE Ef guö lofar gefst lesendum Nýs Helgarblaös kostur á að fylgjast meö þeim stökk- breytingum sem vonast er tll aö verði á blaðamanni þess áöur en yfir lýkur. 10 SfÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 1. mars 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.