Þjóðviljinn - 01.03.1991, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 01.03.1991, Blaðsíða 16
„Sólin er faðir minn“ Símasambandiö I vikunni, sem er að líða, var haldið þing Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn. Á þessu þingi hittast stjórnmálamenn af Norður- löndum og ræða mál sem eru sam- eiginleg fyrir okkur öll, sem þar bú- um. Og á hverju þingi eru afhent verðlaun fyrir bók sem talin er merkileg og góð og kannski besta bókin, sem hefur komið út á Norð- urlöndum það árið. [ ár gerðist það í fyrsta sinn að Sami hlaut þessi verðlaun. Hann heitir Nils-Aslak Valkeapáá, en bók- in sem hann hlaut verðlaunin fyrir ber nafnið Faðir minn sólin. Nils As- lak kom til íslands áður en hann fór til Kaupmannahafnar til að taka við verðlaununum og á laugardaginn var las hann Ijóð eftir sig í Norræna húsinu. Á eftir spurði ég hann, hvernig stæði á því, að hann kallaði sólina föður sinn, og fræddi hann á því að sólin væri kvenkyns hjá okk- ur. Nils-Aslak brosti, og svaraði eins og sjálfsagt var: - Sólin er faðir minn, af því jörð- in er móðir mín. Saman gefa þau okkur lífið. Nils-Aslak er fæddur 1943 í Palojoki lengst norður í þeim hluta Samalands sem tilheyrir Finnlandi. En Samar eiga einnig heima í Norður-Noregi og Norður- Svíþjóð, þar sem landið þeirra er oftast kall- að Lappland. Þar búa þeir með geysistórar hreindýrahjarðir sínar og flakka á eftir þeim um víðáttur fjallanna. Þeir tala samísku og syngja sérkennilega söngva, sem kallast jojk. Jojkið eru hjarðsöngvar þeirra og ástarsöngvar til manna og náttúru, en þeir geta líka verið eins og dægurlög og fjallað um daglegt líf. Nils-Aslak er frægur jojkari. Ef ykkur langar til þess að fræð- ast meira um Sama sem eiga heima svo langt í norðri, að þar er á veturna enginn morgunn, ekkert hádegi, ekkert kvöld - bara nótt. Og á sumrin enginn morgunn, ekkert hádegi, ekkert kvöld - bara dagur, þá eruð þið svo heppin, að fyrir nokkrum árum kom út óskaplega falleg bók, sem heitir Sampo Litli- lappi, eftir Zacharias Topelíus sem Þorsteinn frá Hamri íslenskaði. Og önnur eftir Einar Braga og hún heit- ir Hvísla að klettinum. Ljóðið sem birtist hér á síðunni er fengið úr þeirri bók. Nils-Aslak Valkeapáá jojkari og skáld Þannig líða dagarnir Þannig líða dagarnir, vikur skunda hjá, árin hverfa snjór þiðnar og regn fellur, vonir deyja og draumar ruglast í brjósti ber ég kalinn fugl sem kliðar, jojkar í hjarta nem ég ýlfur vindsins, andvörp kotanna í skammdegis myrkri jojkið hljóðnar, jojkarar þagna vindarnir sópa svellið í hjarta mér. Nils-Aslak Valkeapáá Einar Bragi þýddi Ijóðið - Eyja, þetta er Óli Helgi. - Sæll vinur. Er nokkuð títt? - Nei. Ég hringdi bara af því ég er einn heima. - Hefurðu ekkert að gera? - Jú, jú. Ég bara nenni því ekki. - Jæja, karlinn minn. En það er líka allt í lagi að leyfa sér að vera svo- lítið latur stundum. Stundum nenni ég heldur ekkert að gera. - Eyja. Kanntu að dansa? - Ertu að bjóða mér upp í dans? - Nehei. Ertu rugluð? Það er ekki hægt að dansa í síma. - Jú, jú. Þú dansar bín megin og ég dansa mín megin. Á ég að setja plötu á fóninn? - Nei, láttu ekki svona. Ég spurði bara af því við vorum að læra að dansa í leikfiminni í skólanum í dag. Við strákarnir áttum að dansa við stelpumar. Finnst þér það ekki asna- legt? - Nei, það finnst mér ekki. Það finnst mér alveg eins og það á að vera. - Við vorum látin ganga svona í hring. Strákarnir fyrir utan og stelp- urnarfýrir innan. Já, já, þið hafið farið í Kokkinn. - Svo áttum við að dansa við stelpuna sem við lentum á móti. .. - Og á móti hverri lentir þú? Öldu Sif? - Nei, Gummi lenti á móti henni. Ég lenti á móti Ronju. - Ronju ræningjadóttur? - Hún heitir sko Sigrún. En hún vill alltaf láta kalla sig Ronju, af því að hún er með hárið allt út í loftið. - Já, já, er þetta dálítil villistelpa? - Já. Og svo áttum við að taka í hendurnar hvort á öðru og svo tókum við svona spor til hliðar og svo aftur til baka. - Aha. Ég sé þetta alveg fyrir mér. Þið hafið verið að dansa vals eða polka eða eitthvað svoleiðis. - Og svo áttum við að fara svona í röð tvö og tvö saman og svo áttum Framhaldssagan [ dag birtist seinasti hluti fram- haldssögunnar um köttinn Snjólf, sem gaf Gunnjónu mús, sem hún kunni ekki að meta. Snjólfur strauk þá að heiman, en lenti í slagsmálum við annan kött og fann þá, hvað hann 0,-f' ý/e^/. Ihr)\n -6/7 Ílátsí/ð °£j hna-bmr. Har/ w* orSCL Qi &d Uh, við að bera stelpurnar á bakinu. - Ja, nú er ég hissa! Eruð þið orðnir nógu sterkir til þess? - Nei. Jú. En sumar stelpurnar eru svo stórar. Þær vildu ekki láta bera sig. Þær vildu bara bera okkur. Ronja bar mig. Og svo duttum við. Og þetta var alveg ógeðslega fyndið. - Svo þér hefur þá kannski ekki fundist mjög vitlaust að læra svolítið að dansa í leikfiminni? - Nei, nei. Bara asnalegt að halda í hendurnar á stelpu. Maður verður svo sveittur í lófunum. - Það er bara fyrst, Óli minn. Það fer af, þegar maður venst þessu. - Það er miklu betra á diskó. Þá þarf maður ekkert að halda í neinn. Maður getur bara dansað við sjálfan sig. - En fmnst þér það ekki pínulítið eins og að dansa í síma að dansa einn við sjálfan sig? Veistu það, ég held, að við höfum voða gott af því að dansa við annað fólk. Halda í hend- urnar á öðru fólki. halda utan um ein- hvern sem manni þykir vænt um. Ég held að það sé bara alveg jafn nauð- synlegt og að borða. - Heldurðu það? - Já. Ég held það. saknaði Gunnjónu. Hænsnaprikið þakkar henni Sif Hrafnsdóttur í Lundi í Svíþjóð kærlega fyrir birtingarréttinn og hvetur aðra krakka á öllum aldri að feta í fótspor hennar og senda okkur sögu. 16 S(ÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 1. mars 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.