Þjóðviljinn - 01.03.1991, Qupperneq 23
Föstudagur 1. mars 1991 NÝTT HELGARBLAÐ
— SÍÐA 23
Bréf frá
Sylvíu
Þjóðleikhúsið frum-
sýnir verkið um Sylvíu
Plath á Litla sviðinu í
kvöld
[ kvöld hefjast á Litla
sviðinu við Lindargötu sýn-
ingar Þjóðleikhússins á
verkinu Bréf frá Sylvíu,
sem Rose Leiman Gold-
emberg hefur byggt á
fjölda sendibréfa frá skáld-
konunni Sylvíu Plath til fjöl-
skyldu sinnar.
Guðbjörg Thoroddsen
og Helga Bachmann fara
með hlutverk móður og
dóttur, Edda Þórarinsdóttir
leikstýrir, en Guðrún J.
Bachmann þýddi. Næsta
sýning er á sunnudaginn
kl. 17 og fimmtud. 7. mars
kl. 20:30.
ÓHT
Helga Bachmann i hlutverki
móðurinnar, Aurelíu Plath,
og Guðbjörg Thoroddsen
sem dóttirin Sylvía. Mynd:
Jakob
í Stöðlakoti
í Gallerí Stöðlakoti,
Bókhlöðustíg 6, opnar
Jakob Jónsson sýningu
á verkum sínum á laugar-
daginn kl. 12.
Á sýningunni verða 14
verk, unnin með oliupastel
og álímingum á pappír.
Þetta er sjötta einkasýning
Jakobs og verður opin
daglega frá kl. 12-18 og
lýkur sunnudaginn 17.
mars. ÓHT
Jakob Jónsson
Guðrún
í FÍM
Guðrún Matthíasdóttir
opnaði f gær málverkasýn-
ingu í FÍM-salnum, Garða-
stræti 6, og verður hún opin
alla daga kl. 14-18 til 18.
mars.
Guðrún stundaði nám við
MHl 1976- 78 og 1985-87 og
útskrifaðist þaðan úr málara-
deild. Hún hefur tekiö þátt I
nokkrum samsýningum, en
heldur nú sina fyrstu einka-
sýningu.
Margt á
prjonunum
Svolítið um áform g
hljómplötuútgefendanna / á'i
Jólaplötuflóðið hefur varla
fjarað út þegar hljómplötuút-
gefendur landsins eru sestir
aftur við skrifborðin og farnir
að áforma útgáfur ársins.
Risarnir í hljómplötubransan-
um hafa um alllangt skeið
verið fyrirtækin Steinar og
Skífan. Þessi fyrirtæki hafa
minnt á gráðuga hákarla í
stöðugri baráttu um stærstu
bitana á dægurlagasjónum.
Minni bita og jafnvel svif hafa
svo minni fyrirtæki, svo sem
Smekkleysa, hugsjónafyrir-
tæki Sykurmolanna, látið sér
nægja.
Upp á síðakastið hefur
orðið vart við nýjan hákarl
sem færist í aukana með
hverjum degi og gæti jafnvel
farið að velgja þeim eldri
undir uggum. Þar er á ferð-
inni poppgoðið gamla Pétur
Kristjánsson. Hann hafði um
langt skeið séð um útgáfu-
mál hjá stóru fyrirtækjunum,
fyrst hjá Steinum, en svo hjá
Skífunni. Á síðasta ári stofn-
aði Pétur eigið fyrirtæki, PS-
hljómplötur, og fyrsta afurð
fyrirtækisins verður breið-
skífa með tónlist úr „Rocky
Horror Picture Show“, í flutn-
ingi Leiklistarfélags M.H.
Uppfærsla söngleiksins í
Iðnó hefur notið mikilla vin-
sælda að undanförnu og á
söngvarinn Páll Hjálmtýsson
þar stórleik í aðalhlutverki.
Tónlistin í „Rocky Horror" er
eftir Richard O'Brien, en ís-
lenska þýðingu gerði Vetur-
liði Guðnason. Von er á Roc-
ky Horror plötunni í mars.
{ apríl mun önnur afurð
PS líta dagsins Ijós. Það er
plata með blúsbandi Krist-
jáns Kristjánssonar, K.K.
Band. Auk Kristjáns verða
jálkarnir Ásgeir Óskarsson
og Björgvin Gíslason á plöt-
unni ásamt bassaleikaranum
Þorleifi Gíslasyni sem fyrst
sást með Egó forðum. Megn-
ið af lögunum verður eftir
Kristján, en blússtandardar
fá að fljóta með.
PS-hljómplötur líta vonar-
augum til útlanda og eru að
byggja upp alþjóðlegt dreif-
ingarnet fyrir íslenska tónlist.
Norðurlandabúar verða fyrst-
ir til að njóta veiganna. PS í
samvinnu við Steinar munu
gefa út bráðlega, á disk og
snældu, safn vinsælla laga
sem Todmobile, Ný Dönsk,
Bubbi og önnur poppgoð
hafa spreytt sig á að snúa yf-
ir á íslensku. Einnig munu
PS hafa plötu með enskum
útgáfum af lögum Eyjólfs
Pétur Kristjánsson er hér með hljóðnema í hönd, en sést nú æ oftar með
síma.
Kristjánssonar tilbúna til út-
gáfu ef Eyva gengur vel í Jú-
róvisjón, og ákveðið hefur
verið að sólóplata með Eyj-
ólfi muni koma út á vegum
PS í haust, hvernig sem hon-
um gengur annars í söngva-
keppninni. Að lokum má geta
þess að PS-hljómplötur eiga
nú í samningaviðræðum við
Stjórnina.
Hljómplötuútgáfan Skífan
verður 15 ára á árinu og má
búast við ýmsu eyrnakonfekti
í því tilfelli. Fyrirhugað er að
gefa út safnplötu með því
besta sem fyrirtækið hefur
gefið út á 15 ára ferli. Einnig
færist í vöxt að eldra efni sé
gefið út endurhljóðblandað á
geisladisk, og hjá Skífunni
má búast við slíkum útgáfum
á plötum Björgvins Halldórs-
sonar og „Hananú“-plötu Vil-
hjálms heitins Vilhjálmsson-
ar. Af nýju efni er líka nóg að
taka. Sléttuúlfarnir og Síðan
Skein Sól verða með plötur,
Sumarsmella-platan verðurá
sínum stað, og upptökur eru
hafnar á sólóplötu frá Agli Ól-
afssyni.
Hjá Steinum verður það
Karl Örvarsson sem gefur út
fyrstu plötu ársins í apríl.
Karl, sem áður söng með
Stuðkompaníinu, nýtur að-
stoðar Þorvaldar úr Todmo-
bile á nýju plötunni. Þetta er
fyrsta sólóplata Karls og
hann á öll lögin nema eitt
sem bróðir hans Atli samdi
og annað sem Þorvaldur
samdi. Blúskompaníið er,
eins og áður hefur komið
fram hér á síðunni, í hljóðveri
og blúsplata þeirra er vænt-
anleg öðru hvoru megin við
páskana. Eftir páska er fyrir-
huguð vorsafnplata með er-
lendum lögum og íslenskum,
þar á meðal nokkrum úr síð-
ustu Júróvisjón-keppni. Að
sjálfsögðu mun Steinar gefa
út sumarsmellaplötu líka og
listamenn fyrirtækisins eru
um þessar mundir að vinna
efni fyrir þá plötu. Endurút-
gáfur á eldra efni eru Stein-
ars-mönnum líka hugleiknar.
Safndiskur með lögum Vil-
hjálms heitins Vilhjálmsson-
ar, sá fyrri af tveimur, kemur
upp úr miðjum mars, og sá
síðari á næsta ári.
Að lokum má geta að
Mezzoforte- plata fyrir
Bandaríkjamarkað er í
vinnslu. Þar verða gömul lög
og ný í bland, og sér enski
tæknimaðurinn Nigel Wright,
sem hefur átt heiðurinn af
mörgum metsölulögum uppá
síðkastið, um að koma eldri
Mezzoforte-lögum í nútíma-
legan búning.
Enginn hefur setið við
skrifborð Smekkleysu að
undanförnu, þar sem Sykur-
molarnir eru um þessar
mundir uppteknir í hljóðveri,
svo engar ákvarðanir hafa
verið teknar um útgáfu á ár-
inu. Þó hefur fyrirtækið tekið
að sér rekstur teiknimynda-
blaðsins „GISP!“, en annað
tölublað af því menningarriti
fór nýlega í hillur blaðaturna.
Hugmyndir eru uppi um að
gefa út nýja Risaeðluplötu í
haust og í sumar ætlar
Smekkleysa ekki að láta.sitt
eftir liggja í sumarsmellaút-
gáfunni, og gefa út slagara-
plötu, þar sem valinkunnir
barkar kyrja lummur.
Þessi upptalning á áform-
um hljómplötuútgefandanna
er engan veginn tæmandi,
svo búast má við mörgum
öðrum og spennandi titlum á
árinu.
VAGG-
TÍÐINDI
■ ■ ■ Morrissey greyið,
sem kom menntaskóla-
"nörd“isma í tísku, hefur gef-
ið út nýja breiðskifu, „Kill
Uncle“. Breska sjónvarpið
BBC hefur boðið Morrissey,
Nick Cave, Pet Shop Boys
og fleirum að semja fyrir sig
leikrit. Með þessu hyggst
BBC næla sér í meiri ung-
mennaáhorfun...
■ ■ ■ Ekkert hefur
heyrst frá Julian Cope í rúm
tvö ár. Nú er væntanleg frá
honum tvöföld 19 laga plata,
„Peggy Suicide". Julian, sem
áður söng með hljómsveit-
inni Teardrop Explodes, hef-
ur þjáðst af þunglyndi uppá
sfðkastið og notað vímugjafa
í óhófi. Nýja platan, sem er
83 mínútur að lengd, verður
seld á verði einnar, að ósk
Cope...
■ ■ ■ Sykurmolarnir eru
um þessar mundir í hljóðveri
að hefja upptökur á nýrri
breiðskífu. Platan verður full-
gerð erlendis í sumar og
kemur út í haust. Sykurmol-
arnir hafa ekki spilað opin-
berlega í langan tíma, en nú
geta áhugasamir molastrák-
ar og - stelpur fengið smjör-
þefinn af nýju plötunni, því
Sykurmolamir spiia á Tveim
vinum á sunnudagskvöldið...
■ ■ ■ Rauðhærða málm-
tröliið Eric Hawk, eða Eiríkur
Hauksson eins og við þekkj-
um hann, gerir það nú gott
með þungarokkssveitinni
norsku, Artch. Önnur plata
sveitarinnar er væntanleg og
ber nafnið „For the sake of
mankind...
■ ■ ■ Meira um vel-
gengni landans erlendis:
Skúli Sverrisson heitir bassa-
leikari sem áður lék m.a.
með Pax Vobis. Skúli stund-
aði tónlistarnám í Bandaríkj-
unum og lauk nýlega námi
með mjög háa einkunn.
Skúla var strax boðið sæti f
mjög þekktri djassbræðings-
sveit, Steps Ahead, en tók
boði annarrar sveitar, Full
Circle. Sú sveit er nú á stöð-
ugri uppleið og þriðja plata
sveitarinnar, „Secret Stones",
er nýkomin út hjá stórfyrir-
tækinu Sony-CBS. Tónlistín
er djasslatinsamba-bræðing-
ur, og farið var til Brasilíu til
að vinna plötuna og sá
sambaséníið Gilberto Gil um
upptökur. Full Circle er um
þessar mundir að leggja upp
í tónleikaför um Norðuriöndin
og munu stoppa í Reykjavík
á leiðinni og spila á Púlsinum
í kringum 20. mars...
■ ■ ■ Fyrsta erlenda
rokksending ársins er vænt-
anleg til Reykjavíkur um
næstu helgi. 22- Pistepirkko
heitir sveitin og kemur frá
bænum Utajárvi á Finnlandi.
Þetta er mögnuð rokksveit,
undir áhrifum frá gömlu, hráu
grundvallarrokki, Ramones
og The Stooges. Þetta er tríó
og ku vera magnað á sviði.
Hljómsveitin leikur á Tveim
vinum 8., 9. og 10. mars, og
f næsta Helgarvaggi verður
sagt betur frá þessum
finnsku rokkurum...
HELGARVAGG
Gunnar L.
Hjálmarsson