Þjóðviljinn - 21.03.1991, Síða 3
Vestræn samfélög skera sig ef til
vill úr að því leyti að það er bara
ættin sem tekur við barninu en
ekki allt samfélagið
Ung stúlka frá Zaire með hár-
kollu úr grasi og men úr maís-
stönglum; hið hefðbundna skart
sem stúlkur bera við meyjar-
vígsluna.
þess að strákar fá stundum fyrstu
rakvélina sína í fermingargjöf, en
þegar strákur byrjar að raka sig
þykir það til marks um að hann sé
að verða fullorðinn.
En þótt fermingin sé borin
saman við manndómsvígslur má
ekki gleyma því að í stað þess að
vígja bam inn í fullorðinsárin er
verið að vígja bam inn í eins konar
millistig. Líkamlegur þroski er oft
fyrir hendi en gerðar eru miklar
kröfur um andlegan þroska áður en
einstaklingur telst fullorðinn. Mér
virðist að í okkar samfélagi sé
fermingin vígsla inn í ákveðið
fijálsræðistímabil, inn í ungdóms-
árin. Það er ekki fyrr en með stúd-
entsprófi eða útskrift úr einhvers
konar réttindanámi að þessu fijáls-
ræðistímabili lýkur og fólk fer að
líta á sig sem fullorðna einstak-
linga. Stundum hvarflar að mér að
B.A. gráða eða sambærilegt há-
skólapróf sé orðin manndóms-
vígslan. Frjálsræðistimabilið er
jafnvel enn fyrir hendi eftir að fólk
hefiir gifst og eignast böm og það
virðist enn vera að lengjast. I
Bandaríkjunum er talað um að fólk
sé tíu ár í doktorsnámi svo það er
komið á fertugsaldurinn þegar það
lýkur formlega námi. Fyrir fólk
sem ekki fer í framhaldsnám má
segja að giftingin, fyrsta barnið
eða stofnun heimilis sé vigslusið-
urinn inn í fullorðins árin.
I þessu sambandi vil ég benda
á forvitnilegt rannsóknarefni. Sú
samkennd sem myndast stundum
milli samstúdenta á íslandi er mjög
lík samkenndinni sem myndast
gjarnan milii þeirra sem ganga
saman í gegnum manndómsvígslu.
Hjá Masaíum í Afriku tilheyra allir
sem vígðust saman ákveðnum ald-
urshóp og innan hans myndast
bönd sem eru jafnvel sterkari en
sifjaböndin. Samstúdentar stofna
oft til ævilangra vináttutengsla og
hjálpa hver öðrum alla tíð. Sér-
staklega á þetta við um bekkja-
kerfi.
I öllum samfélögum finnum
við einhvers konar vígslusiði.
Sumir eru mjög flóknir og fara eft-
ir föstum reglum en annars staðar
er þetta miklu minna mál. Hjá Inú-
itum verður einstaklingur til dæm-
is fullorðinn þegar hann veiðir sinn
fyrsta sel. Mér fínnst ólíklegt að
helgiathafnir eða vígslusiðir geti
horfíð. Þó ef til vill megi færa rök
fyrir því að trúarlegar helgiathafnir
hafí verið á undanhaldi virðist mér
að fólk leiti þá bara í annars konar
athafnir. Þótt þær séu ekki kirkju-
legar byggja þær samt á einhvers
konar trú. Fólk skapar sér slíkar
helgiathafnir, jafnvel í daglegu lífi
sínu, og þær virðast veita mikið ör-
yggi. Andspænis óvissu og erfíð-
um ákvörðunum er leitað til ritú-
alsins, farið í kirkju eða látið spá
fyrir sér. Rjtúalið eða helgiathöfhin
veitir mikið tilfinningarlegt öryggi.
Ef til vill má líta svo á að „borg-
aralegar fermingar“ séu til marks
um að krakkar sem ekki eru trúaðir
vilji samt ganga í gegnum ritúalið
eða þá félagslega mikilvægu at-
höfh sem fermingin er.
Þetta hljómar líkt og galdur.
Eru helgiathafnir, og þá einnig
kirkjuathafnir, eins konar galdur?
I kirkjuathöfninni er prestur-
inn fulltrúi kirkjunnar og býr yfir
þekkingu og menntun sem veldur
því að fólk hefur trú á honum. Ef
við tökum giftingu sem dæmi er
ljóst að hjónin verða að hafa trú á
prestinum. Ég man eftir að hafa
rætt giftingar í tíma í mannfræði í
Háskólanum. Þar var stúlka sem
sagði að trúarlega skipti sig engu
hvort athöfnin væri framkvæmd af
borgardómara eða presti. En þegar
ég spurði hvemig hún hefði gift
sig kom í Ijós að það var hjá presti
og ástæðan sem hún gaf upp var að
hún ætlaði bara að gifta sig einu
sinni á ævinni. Ég man þetta svo
vel því það kom berlega í ljós hvað
athöfnin sem slík skiptir alltaf
miklu máli. Gifting er mikilvægur
atburður í lífínu og framkvæmd
hennar í samræmi við hefð helgi-
siðanna eykur trúna á gildi hennar
og mátt. Jafnvel þó fólk sé ekki
trúað í hefðbundnum skilningi þá
skiptir athöfnin máli og upplifun
in hefur mikil áhrif. Allar athafnir
og þá ekki síst kirkjulegar byggja á
dramatík, þær eru áhrifamikill
leikur. Það er engin tilviljun hve
margir íslenskir leikarar em kaþ-
ólskir, í kaþólskunni er svo mikið
leikhús.
Hver er þá helsti mismunurinn
á fermingum og manndómsvígsl-
um?
Við manndómsvígslur em ein-
staklingamir vígðir inn í allt sam-
félagið og em fullgildir meðlimir.
Fermingamar vígja hins vegar inn
í ákveðna hópa samfélagsins og
einstaklingamir em ekki fullgildir
þátttakendur í þvi. En þrátt fyrir
þennan mun em ýmis sameiginleg
einkenni fyrir hendi.
fermingar...
Gefðu alvöru tæki í fermingargjöf!
• Pioneer S-111
Fjarstýrð fermingarsamstæða sem slegið hefur í gegn. 100 w.
hátalarar og 2x 50 w. magnari. Allt sem þarf fyrir aðeins kr.
49.572,- stgr. (án geislaspilara) U.þ.b. 20% verðlækkun frá í
fyrra.
• Sharp QT-CD 5
Ferðatæki með geislaspilara, útvarpi og kassettutæki.
Tengjanlegt við stereosamstæðu. Verð kr. 26.055,- stgr.
Sharp 14" sjónvarp
14tommu sjónvarp á hlægilegu verði. IMett og hentugt í
herbergið. Verð aðeins kr. 26.675.- stgr.
• Sharp, system-CD 65H
Eigum fyrirliggjandi í takmörkuðu magni þessa samstæðu á
mjög lágu verði, eða aðeins kr. 35.721.- stgr.
Greiðslukjör og ábyrgð. Komdu við og kynnstu tækjunum af eigin raun
flö PIOIXiEER
The Art of Entertainment
VERSLUNIN
I f/f/ ut
r»
Hverfisgötu 103, sími: 25999 • Umboðsmenn um land allt.
Síða 3
ÞJÓÐVILJINN - Fermingarblað