Þjóðviljinn - 28.03.1991, Síða 23
Eitt og annað um R.E.M.
og nýju plötuna þeirra
Fjórmenningamir frá At-
hens, Georgia-fylki í Bandarikj-
unum hafa nú gefið út sína sjö-
undu hljóðversbreiðskífú, „Out
of Time“, eftir um tíu ára sam-
starf. R.E.M. hafa um alllangt
skeið verið ein vinsælasta rokk-
hljómsveit Bandaríkjanna — og
þá í þeirri deild rokksins þar sem
það skiptir ekki máli í hvemig
fötum flytjandinn er.
I Bandaríkjunum er fram-
sækin rokktónlist, svo teygjan-
leg skilgreining sem það nú ann-
ars er, oft sett undir einn hatt og
kölluð „ColIege-rock“ eftir þeim
stað þar sem slík rokktónlist
þrífst best - í háskólunum. Fjöl-
margar útvarpsstöðvar háskól-
anna gatspila plötur þessara
hljómsveita á meðan auglýs-
ingastöðvamar snerta ekki aðra
tónlist en þá sem sefar hlustand-
ann á milli auglýsinga.
R.E.M. hafa lengi verið
kóngar háskólarokksins en hafa
þó upp á síðkastið verið að fóta
sig á hálum ís markaðsrokksins.
Lag þeirra „The One I Love“ af
fimmtu plötunni „Document"
varð fyrst til að slá í gegn á
breiðum gmndvelli og af síðustu
plötu þeirra „Green“ slógu lögin
„Orange Cmsh“ og „Stand“ vel í
gegn - „Stand“ komst meira að
segja upp í íjórða sæti á banda-
ríska smáskífúlistanum og er nú
notað sem þema-lag í grínsáp-
unni „Get a Life“. R.E.M. em
því orðnir ráðsettir í bransanum,
komnir á samning hjá Wamer
Brothers og geta nokkum veginn
leyft sér hvað sem er. „Við höf-
um gefið út plötu á 14,3 mánaða
fresti og það var kominn tími til
að bijóta upp semja/ hljóðrita/
túra-hefðina,“ segir Bill tromm-
ari, „tími kominn til að taka okk-
ar tíma i að gera þá plötu sem
okkur hefúr langað til að gera
heillengi.“ Næstu R.E.M. plötu
hyggjast drengimir taka upp í
september og gefa út fyrir jól.
„Sú plata verður hreinræktaðri
R.E.M.-plata," heldur Bill
áfram. „Við ákváðum að fara
ekki á tónleika-túr eftir þessa
plötu, og því vissum við að við
þyrfitum ekki að geta endurskap-
að nýju plötuna á tónleikum. Við
gerðum því það sem við vild-
um.“ „Eg vildi kalla nýju plöt-
una „Fiction“ (Skáldskap),“ seg-
ir Stipe söngvari. „Mér fannst
það hæfa - allir textamir em í
raun skáldskapur, þeir eru allir
ástartextar. Þeir fjalla um ýmsar
tegundir af ást - nema kannski
ættjarðarást. Þemun em minn-
ingar, ást og tími og því enduð-
um við á því að nefúa plötuna
„Out of Time“.“
R.E.M. Stutthærður: Stipe; með gleraugu: Mike bassa- og orgelleikari; siðhærðun Peter gítarleikari; með húfu:
Bill.
Platan
„Out of Time“ er við fyrstu
hlustun ekki jafn grípandi og
síðasta platan „Green“. Það
vantar einhver lög sem ryðjast á
eyrun á manni og hreiðra um sig
í heilanum. En tíminn vinnur
með henni og eftir ítrekaðar
hlustanir hefúr tónlistin byggt
sér hreiður í undirmeðvitund-
inni. „Radio Song“ heitir fyrsta
lagið og þar baunar Stipe á
stöðnun markaðsstöðvanna.
Rapparinn KRS-1 á góðan leik í
því lagi, enda tónlistin nálægt
hans heygarðshomi, fönkað
danspopp. Fyrsta smáskífan
„Losing My Religion" kemur
næst, sígilt gítarpopp í R.E.M.-
stíl og reyndar em fleiri lög á
svipuðum slóðum; „Near Wild
Heaven“, „Shiny Happy People“
og „Texarkana“ poppa öll með
gítar í aðalhlutverki þótt hlaðið
hafi verið á lögin strengjum og
homum með góðum árangri. í
„Half a World away“ má heyra
mjög mikil folk-rokk áhrif en
„Endgame" og „Belong" em
hvorki fúgl né fiskur og renna
hálf ámátlega í vaskinn. Þó er
enn eftir að minnast á bestu lög
plötunnar, snilldarverkin „Low“
og „Honey in Me“. „Low“ er
seiðandi congo-bassaverk sem
jafnvel minnir á dmngalegustu
verk bresku sveitarinnar Wire á
köflum. „Honey in Me“ er hins-
vegar frábært poppstykki og nýt-
ur söngkonan Kate Pierson úr B-
52'S sín þar sérstaklega vel. Hún
syngur reyndar lika í „Shiny
Happy People“, en í „Honey in
Me“ geislar beinlínis af henni.
Frábært lag sem fer vonandi að
hljóma á öldum ljósvakans sem
fyrst.
„Out of Time“ er engin tíma-
skekkja eða fomeskja heldur enn
ein sönnunin á því að þótt marg-
ar hljómsveitir séu að spila svip-
aða tónlist þá em R.E.M. ein-
stakir í sinni röð og bera höfúð
og herðar yfir aðrar bandarískar
gítarpoppsveitir.
Minningar,
ást og tími
Tónleikatíðindi
í kvöld verður mikið um að
vera á Hótel Borg. Þar verða „al-
vöm rokktónleikar" eins og forsp-
rakkamir Bootlegs sögðu. Boot-
legs koma nú ffam í nýrri mynd
með nýjan gítarleikara og spila
væntanlega lög af tveim siðustu
plötum og ný lög. HAM spila
einnig með og verður eflaust heitt
í kolunum þegar þessir beljakar
stíga á svið. Þeir em um þessar
mundir ótrúlega þéttir og viðra
mörg ný og safarík lög. Þriðja
bandið er svo Leiksvið fáránleik-
ans sem á nokkur ár að baki þótt
lítið hafi borið á þeim. Söngvari
Leiksviðsins er Jói, gamli Von-
brigða-söngvarinn, og ku tónlistin
bera nokkur einkenni þeirrar
frómu sveitar. Það er skírdagur og
best að mæta snemma því tónleik-
amir em búnir á miðnætti.
Daginn fyrir páskadag, á
laugardagskvöldið, verður Bjart-
mar Guðlaugsson með tónleika á
Tveim vinum. Best er að mæta
snemma þá líka því allt lokar kl.
24.
Edda Borg og hljómsveit
skemmtir á Púlsinum sama kvöld
en á mánudaginn og ffam á
fimmtudagskvöld verður KK-
band á ferð með heldur betur góð-
an gest. Það er soul-söngvarinn
Bob Manning sem hefúr starfað
með mörgum þekktum tónlistar-
mönnum í gegnum tíðina. Ber þar
helst að nefna James Brown, Bo
Diddley og The Four Tops. í
seinni tíð hefúr Bob starfað með
eigin sveit, Bob Manning and the
soul enterprise, og ferðast um all-
an heim og haldið tónleika. Leiðir
KK-bands og Mannings lágu
saman þegar forsprakkar KK-
bands, þeir Kristján og Þorleifúr,
starfræktu hljómsveitina The
Grinders og spiluðu mikið á
Norðurlöndum. I einu tónleika-
ferðalaginu hittu þeir Manning og
tókst strax mikill kunningsskapur
á milli þeirra sem verður nú til
þess að íslenskum tónlistarunn-
endum gefst kostur á að hlýða á
hinn ffábæra soul-söng Bob
Mannings. Bob er kominn til
landsins og æfingar eru hafnar.
Það er skrítin samsetning á KK-
bandinu í þessu tilfelli. KK sjálfúr
og Þorleiftir eru á sínum stað en
Eyþór Gunnarsson píanóleikari
og Sigurður Flosason saxafón-
leikari hafa bæst við, að ógleymd-
um sjálfúm Sigtryggi Sykurmola-
trommara sem eflaust bætir nýj-
um víddum við tónlistina.
Að lokum er vert að minnast á
að seinna afmæliskvöld Vina
Dóra verður í Púlsinum í kvöld.
Margir góðir gestir kíkja við og
væntanlega verður boðið upp á
köku.
HELGARVAGG
Gunnar L
Hjálmarsson
Soul-maðurinn Bob Manning.
Fimmtudagur 28. mars 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 23