Þjóðviljinn - 25.04.1991, Síða 6
9
Hvernig leggst
sumarið í þig?
Bjami Óskarsson
sjómaður
Það leggst alveg ágætlega
I mig, enda verö ég sjálf-
sagt allt sumarið á sjó.
Magnús Árnason
Þetta verður sjálfsagt rysjótt
sumar núna.
Sigurður Bogi Sævarsson
blaðamaöur
Það leggst piýðilega í mig,
enda er ég bjartsýnn aö
eðlisfari.
Margrét Skúladóttir
nemi
Bara vel, þó það verði sjálf-
sagt ekkert sérstakt.
Heiða Tryggvadóttir
nemi
Vel, þetta verður örugglega
skemmtilegt og gott sumar.
Ll\STMátí{/
Æskan fagnar
sumrinu á
Listahátíð
Fjölmargir hlutir eru enn I bóöi fyrir börnin nú þegar Listahátlö æskunnar stendur sem hæst. Hér má sjá nokkur börn
sem mættu 1 tónsmiðju sem boöið var upp á ( Norræna húsinu. - Mynd: Jim Smart.
Dagskrá Listahátíðar
æskunnar heldur
áfram eins og und-
anfarna daga, í dag
er sumardagurinn
fyrsti og margt verð-
ur í boði bæði í dag og á morgun
á Listahátíðinni.
Hátíðardagskrá yngri barna
verður í Borgarleikhúsinu kl.14.00
í dag. Þama verða atriði frá öllum
listgreinum. Það verða böm úr
yngri deildum gmnnskóla og leik-
skólar sem halda munu dagskránni
uppi. Aðgangseyrir er 100 krónur.
- Kvikmyndahús borgarinnar
bjóða frítt inn á sýningar hjá sér í
tilefni dagsins kl. 15.00.
Fjöldi atriða verða á dagskrá út
um alla borg. Hér á eftir verður
stiklað á því sem í boði er bæði í
dag og á morgun föstudaginn 26.
apríl. Athugið að flestir dagskrár-
liðimir em báða dagana.
Myndlist:
- I Gerðubergi verður sýning
reykvískrar æsku frá kl. 10.00 til
22.00. - Listasafn ASÍ er með sýn-
ingu á verkum úr ljóðabók bam-
anna. - A Listasafni Islands verður
samsýning gmnnskóla Reykjavík-
ur, einnig er þar frammi mappa
með frásögn bama um myndlist. -
Spron í Breiðholti er með sýningu
innandyra sem stendur til 10. maí.
- Við Bókhlöðustíginn nánar til-
tekið í Stöðlakoti verður_ sýning
milli kl. 14.00 og 16.00. - Útvarps-
húsið við Efstaleiti er með sýn-
ingu, þar er einnig í boði að skoða
húsið alla virka daga kl. 10.00 til
11.00 og frá 14.00 til 15.00, skrán:
ing hópa er í síma 693000. - I
menntamálaráðneytinu stendur yfir
sýning til 18. maí, er hún opin
milli kl.9.00 og 17.00. - Niðri í
miðbæ, Hlaðvarpanum, verður
einnig sýning sem stendur út vik-
una, hún er opin milli kl. 12.00 til
18.00. - Einnig verða sýningar í
Bamadeild Landspítalans á 2. og
3. hæð. - Þjóðleikhúsið sýnir verk
bama sem unnin em eftir leikritinu
Næturgalinn, hún er opin milli kl.
13.00 og 16.00. - í Félagsmiðstöð-
inni Fjörgyn er uppi sýning á verk-
um sem unnin vom í mynd- og
handmennt í Foldaskóla. - Það em
fleiri félagsmiðstöðvar með sýn-
ingar, eins og Arsel sem er með
myndlistar- og ljósmyndasýningu.
- Og Laugamesskóli verður með
sýningu á verkum nemenda skól-
ans í andyri og göngum.
Dans:
- Listadanssýning frá ballett-
skólum Eddu Scheving, Guðbjarg-
ar Björgvinsdóttur og Sigríðar Ar-
manns verður kl. 16.15. - Á Hótel
Borg kl. 14.30 mun Jassballettskóli
Bám Magnúsdóttur sýna og einnig
verður þar ballettsýning. - Nem-
endasýning Dansskóla Hermanns
Ragnars verður á Hótel íslandi kl.
15.00. Einnig verður í Vesturbæj-
arskólanum söngur, hljóðfæraslátt-
ur og dans kl. 14.00 og aftur kl.
16.00. - Á föstudag verður dans-
sýning á Hótel Borg kl. 14.30, þar
mun Dansskóli Auðar Haralds
sýna og nemendur frá Dansstúdíói
Sóleyjar sýna þar einnig.
Tónleikar:
- í Gerðubergi verða tónleikar
Tónmenntaskóla Reykjavíkur
kl. 17.00. - Á sama tíma verður
Hljómsveitin Overdós frá
Hvammstanga með tónleika í Púls-
inum, á föstudaginn í Púlsinum
kemur hljómsveit Tónlistarskóla
FIH fram á sama tíma. - Listasafn
Islands verður opið og verða þar
gítartónleikar frá Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar. Tónlistar-
skóli Sigursveins verður einnig
með dagskrá í Fellaskóla kl. 14.00
þar sem forskólanemar skólans
sýna hæfileika sína.
Amsterdam verður
mikilvægur
viðkomustaður
Eftir að Arnarflug hætti
flugi til Amsterdam tóku
Flugleiðir við þeirri leið, og
áætlar félagið að borgin verði
einn af þremur megin við-
komustöðum Flugleiða í Evr-
ópufluginu. Aðeins Kaup-
mannahöfn og Lundúnir
verða mikilvægari.
Talsmenn Flugleiða gera ráð
fyrir að vélar þess muni fljúga
fimm sinnum í viku milli Kefla-
víkur og Schiphool, og flytja
þannig allt að 30 þúsund far-
þega til Amsterdam, sem er
steinsnar frá flugvellinum.
Þá gerir félagið ráð fyrir um
12 prósenta fjölgun farþega frá
því f fyrra. Það þýðir að vélar
Flugleiða munu flytja tæplega
660 þúsund farþega milli landa
á þessu ári. Flestir þeirra, eða
um helmingur, ferðast í sumar
frá júni og út september.
Auk Amsterdam hafa nú
borgimar Hamborg og Zurich
bæst í hóp viðkomustaða Flug-
leiða. Til þeirra tveggja síðar-
nefndu flýgur félagið hins vegar
einungis yfir sumarið, en nú
hefúr verið tekið upp flug allt
árið um kring til Stokkhólms og
Baltimore.
Að sögn Andra Hrólfssonar
auglýsingastjóra Flugleiða hefúr
farþegum fækkað á leiðunum til
Lúxemborgar og Stokkhólms.
Áður var megináhersla lögð á
að fá farþega í Atlantshafsflugið
frá mið-Evrópu en nú hefur fé-
lagið í æ ríkara mæli flutt Norð-
urlandabúa vestur um haf til
Bandaríkjanna. Sagði Andri að
Flugleiðir ættu von á fjölgun
farþega á leiðinum til Frankfurt-
ar, Parísar og Vínarborgar. Enda
verður mesta aukningin á sæta-
framboði í Evrópufluginu, eða
um 20 prósent, úr tæpum 15
þúsund sætum í rúm 18 þúsund.
Þess má geta að nýverið
kom út bæklingurinn Út í heim,
þar sem er að finna ítarlegar
upplýsingar um ferðalög austan
hafs og vestan. í fyrsta skipti
fylgir með bæklingnum verð-
skrá, þar sem miðað er við flug
og bíl og gefhar upplýsingar um
verð á gistingu á nokkrum hót-
elum á hveijum stað. Hefúr 30
þúsund bæklingum ásamt verð-
skrá verið dreift á ferðaskrif-
stofúr um landið. Andri sagði
stefnu Flugleiða að auka útgáfú
á bæklingum með gagnlegum
upplýsingum fyrir ferðalanga,
og hefúr t.d. verið farin sú leið
að hafa samráð við ferðamála-
samtök í nokkrum löndum við
gerð þeirra. Var nýverið gefinn
út upplýsingabæklingur um
Danmörku þar sem sá háttur var
hafður á. BE
Síða6