Þjóðviljinn - 25.04.1991, Blaðsíða 7
FlÉTTIM
Myndun nýrrar vinstri
stj ómar höfuðverkefnið
Frá fyrsta fundi þingflokks Alþýðubandalagsins I Hlaðbúð I Alþingishúsinu I gær. Frá vinstri sitja Jóhann Ársælsson,
Margrét Frímannsdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson, Svavar Gestsson, Guðrún Helgadóttir, Steingrfmur J. Sigfússon og
Hjörleifur Guttormsson. Kristinn H. Gunnarsson var veðurtepptur og Ragnar Arnalds var staddur erlendis. Mynd: Jim
Smart.
ingflokkur Alþýðu-
bandaiagsins kom sam-
an í fyrsta sinn eftir
kosningar í gærdag og
fundaði um úrslit kosn-
inganna og stjórnar-
myndun. Þingflokkurinn sam-
þykkti á fundinum svohljóðandi
ályktun:
„í samræmi við úrslit alþingis-
kosninganna telur þingflokkur Al-
þýðubandalagsins höfuðverkefni
sitt að beita sér fyrir myndun
vinstri stjómar og telur fylgisaukn-
ingu flokksins skýr skilaboð frá
kjósendum í þá átt.
Þingflokkur Alþýðubandalags-
ins telur því mikilvægt að núver-
andi stjómarflokkar, Alþýðubanda-
lag, Alþýðuflokkur og Framsókn-
arflokkur kappkosti að halda áfram
því farsæla og árangursríka ríkis-
stjómarsamstarfi sem verið hefur
með þeim síðan haustið 1988.
Flokkunum hefur í samvinnu
við samtök launafólks tekist að
koma á stöðugleika í íslenskum
efnahagsmálum. Þessum flokkum
er best treystandi til að festa þann
árangur í sessi og stuðla að jöfríun
lífskjara.
Þingflokkur Alþýðubandalags-
ins er reiðubúinn til viðræðna um
nýjan máiefnagrundvöll vinstri
stjómar og einnig um breytta
verkaskiptingu milli flokkanna og
gæti sú nýskipan tekið til allra
ráðuneyta nýrrar ríkisstjómar.“
Ályktunin var samþykkt ein-
róma. Olafur Ragnar Grímsson
formaður flokksins tók ffam í gær
að sér þætti eðlilegt að þessir þrír
flokkar hæfu þessar viðræður. Það
fæli þó ekki í sér að stjómarsam-
starfi við Kvennalistann væri haírí-
að. Þá tók hann fram að þingflokk-
urinn teldi það koma til greina að
Jón Baldvin Hannibalsson formað-
ur Alþýðuflokksins leiddi stjóm-
ina, án þess að í því fælist gang-
rýni á störf Steingríms Hermanns-
sonar i núverandi stjóm.
Ekki gátu allir níu þingmenn
Alþýðubandalagsins mætt á þenn-
an fyrsta fund þingflokksins þar
sem Kristinn H. Gunnarsson þing-
maður Vestfirðinga var veðurteppt-
ur. Hinn nýliðinn í þingflokknum
Jóhann Ársælsson mætti hinsvegar
ánægður með árangur sinn og
flokksins á Vesturlandi sem kom
honum á óvart þó hann hefði átt
von á einhverri fylgisaukningu.
Ragnar Amalds var staddur erlend-
is í gær. -gpm
Atvinnumiðlun iðnnema
býður uppá námssamninga
Iðnnemasamband íslands
hefur sett á stofn atvinnumiðlun
iðnnema, AMIN. Atvinnumiðl-
unin er hugsuð til að auðvelda
iðnnemum að fá vinnu í sínu
fagi. Miðlunin verður starfrækt
allt árið að sögn Kristins H. Ein-
arssonar framkvæmdastjóra
Iðnnemasambandsins.
Hann sagði að um nýjung væri
að ræða þar sem að stofnunin hefði
einungis verið samþykkt í byijun
þessa mánaðar, en nú er unnið að
því að senda bréf til allra atvinnu-
rekenda sem hafa eða hafa haft
iðnnema í vinnu.
Atvinnumiðlunin er ekki ein-
ungis hugsuð sem sumarleyfis-
miðlun og verður starfrækt allt ár-
ið. Enda útskrifast iðnnemar tvisv-
ar á ári. Þá verður einnig boðið
Elín Sigurðardóttir formaður Iðnnemasambandsins og framkvæmdastjórinn
Kristinn H. Einarsson á skrifstoðu atvinnumiðlunar iðnnema í gær, en þau voru
að undirbúa að auglýsa miðlunina meðal atvinnurekenda. Mynd: Kristinn.
upp á námssamninga, en hingað til taldi Kristinn að þetta yrði til mik-
hafa iðnnemar leitað í símaskránni illa bóta.
eftir meistara til að vinna hjá, og -gpm
Gott ár hjá Búvörudeildinni
Á síðasta ári jókst velta Bú-
vörudeildar Sambandsins tals-
vert frá fyrra ári auk þess sem
markaðshlutdeild deildarinnar í
sölu kindakjöts jókst einnig um-
talsvert. í framhaldi _ af sam-
þykktum aðalfundar SIS í fyrra
var rekstri Búvörudeildarinnar
breytt um síðustu áramót og tók
þá hlutafélagið Goði við rekstri
hennar.
Á nýafstöðnum ársfundi Bú-
vörudeildarinnar kom fram að
velta hennar á árinu 1990 var
3.878 miljónir króna sem er 23%
aukning frá árinu 1989, eða um
16% raunveltuaukning á milli ára.
Þá varð ennfremur hagnaður af
rekstri deildarinnar eins og undan-
farin ár.
Kindakjötssala innanlands í
fyrra var 2.907 tonn og óx um 15%
frá fyrra ári, en heildarsala kinda-
kjöts innanlands stóð í stað. I heild
jókst kjötsala Búvörudeildarinnar
um 13% og hefur markaðshlut-
deild hennar aukist umtalsvert frá
árinu 1989. Búvörudeild Sam-
bandsins flutti út á síðasta ári
2.030 tonn af dilkakjöti sem er
meira en 1989 og umtalsvert meira
en gert er ráð fyrir á þessu og
næstu árum vegna ákvæða búvöru-
samnings. Flutt voru út 65 tonn af
hrossakjöti og fékkst gott verð fyr-
ir það á Japansmarkaði. Ennfremur
voru flutt út 130 tonn af sviðum til
Færeyja en sá markaður er talinn
sá mikilvægasti fyrir útflutning ís-
lendinga á kjötafurðum. Andvirði
útflutts æðardúns nam 100 miljón-
um króna árið 1990. Aðalmarkaður
fyrir æðardún hefur verið og er í
Þýskalandi og hefur þar fengist
mjög gott verð. -grh
Hársnyrting hækkar umfram þjóðarsátt
Samkvæmt verðkönnun
Verðlagsstofnunar hafa þjón-
ustuliðir hársnyrtistofanna á
höfuðborgarsvæðinu hækkað
um 10,6 prósent á tímabilinu
júní 1990 til mars 1991. Á sama
tíma hefur launavísitalan hækk-
að um 7,5 prósent en fram-
færsluvísitalan um 3,9 prósent,
segir í frétt frá stofnuninni.
Meðalhækkunin er þó mjög
mismunandi eftir stofum, allt frá
núlli uppí 28 prósent hækkun.
Þannig hafa sex stofur af 124 ekki
hækkað hjá sér síðan í júní í fyrra,
23 stofur hafa hækkað um 1 - 5
prósent en aðrar hafa hækkað
meira.
Mikill verðmunur er á einstakri
þjónustu eftir stofum. Lægsta verð
á einfaldri herraklippingu var 800
krónur hjá hárgreiðslustofunni Ellu
við Dunhaga en dýrust var herra-
klippingin hjá Jóa og félögum á
Rauðarárstíg en þar kostaði 1.980
krónur að klippa sig. Munurinn er
147,5 prósent. Kvennaklipping var
lægst 800 krónur hjá Lilju, Garða-
stræti og hæst hjá Salon VEH en
þar kostaði klipping kvenna 2.760
og munar 245 prósentum.
Á hársnyrtivörum munaði um
53 prósentum á hæsta og lægsta
verði. Hæsta verð á permanenti var
103 prósentum hærra en lægsta
verðið og það munaði 321 prósenti
á hæsta og lægsta verði á hárþvotti.
-gpm
Síða 7
Fiskeldi
á stall
með hátækni
rátt fyrir að á ýmsu
hafi gengið í flskeldi
hér á landi á undan-
förnum árum telja fisk-
eldismenn að atvinnu-
greinin eigi framtíðina
fyrir sér. Meðal annars er fullyrt
að fiskirækt nútimans tilheyri
þriðju iðnbyltingunni og hún er
jafnvel sett á stall með ýmis kon-
ar hátækni ss. geimtækni, upp-
lýsingamiðlun og sjálfvirkni, svo
eitthvað sé nefnt.
Þetta kemur fram í Eldisfrétt-
um, sérriti um fiskeldis- og haf-
beitarmál í grein sem heitir Fisk-
eldi er framtíð - þrátt fyrir allt. Þar
kemur fram að fram til næstu alda-
móta muni mannkyninu íjölga um
einn miljarð og neysla á fiski og
fiskafurðum muni aukast allnokk-
uð. Það mun hafa það í for með sér
að framboð á sjávarafurðum þarf
að aukast úr 65 miljónum tonna í
100 miljón tonn. Eins og ástand
fiskistofna er víðast hvar í heimin-
um er ekki talið að hefðbundnar
fiskveiðar geti mætt þessari um-
framþörf, heldur fiskeldið.
Áf heildarframboði sjávaraf-
urða í dag er um 20% sem kemur
úr fiskeldinu. Norðmenn spá því
að eftir 20 ár geti þetta hlutfall orð-
ið allt að 40%. Að mati fiskeldis-
manna er því brýnt að láta ekki
deigan síga, þrátt fyrir áfoll gær-
dagsins, á sama tíma og aðrar
þjóðir keppast við að þróa og auka
framleiðsluna í fiskeldi.
-grh
Tá'r, bros og takkaskór, sölu-
hæsta bama- og unglingabók síð-
ustu jólavertíðar, var valin besta
frumsamda bamabók síðastliðins
árs. Höfundur hennar er fótbolta-
kappinn fyrrverandi Þorgrímur
Þráinsson og tók Jim Smart þessa
mynd þegar Davíð Oddsson borg-
arstjóri afhenti honum verðlaunin í
Höfða í gær. Þorgrímur sagði þessi
verðlaun viðurkenningu á því að
ákvörðun sín um að geysast af fót-
boltavellinum og fram á ritvöllinn
hefði verið rétt. Þá hlaut Sigrún
Ámadóttir verðlaun fyrir þýðingar
á bamabókunum um Bömin í
Ólátagarði eftir Astrid Lindgren,
sem margar kynslóðir hafa lesið
sér til ánægju og yndisauka, og
fyrir þýðingamar á hinum vinsælu
bamabókum um prakkarann Einar
Áskel eftir Gunnillu Bergström.
Þessi bamabókaverðlaun skóla-
málaráðs Reykjavíkurborgar voru í
gær veitt í nítjánda sinn.
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur '25.' apríl iÖ9Í