Þjóðviljinn - 25.04.1991, Blaðsíða 12
AFMÆLI
FLÓAMAjRKABUR Þióbyiltans
Ymislegt
Til sölu v/búferlaflutninga
Technics segulband M 240 X á kr
10.000.-, Marantz magnari PM
510 á kr. 10.000.-, 2 stk. JBL há-
talarar L 40 á kr 15.000.- og
þriggja ára B og O sjónvarp LX
2500 á kr. 90.000.- (kostar nýtt
170.000.-kr.). Einnig þrjár rúm-
dýnurá 1.000.- kr. stykkið. Uppl. í
síma 32228.
Óskast
óska eftir sófa sem hægt er að
nýta sem rúm. Einnig vantar lítinn
ísskáp, ódýrt eða gefins. Uppl. í
síma 23649 á kvöldin og 27022 á
daginn. Nanna.
Gamalt og gott pönk
Vantar eldri plötur með Tappa tí-
karrass, Kuklinu ofl. Sími
672463, Ingi, e. kl. 18.
Hjálp
Mig vantar sárlega bolla inn í
settiö mitt sem er frá Bing og
Gröndal og heitir „Saxneska
blómið". Er heima í síma 671190
e. kl. 18.
Sumarbústaðaeigendur
Til sölu gaseldavél og 12 volta
vindrafstöð fyrir sumarbústað
ásamt rafgeymi, Ijósum og raf-
lagnaefni. Allir hlutir nýyfirfarnir.
Uppl. í síma 42906 eftir kl. 20.00.
Lopapeysur og leðurfrakki
Nýjar lopapeysur til sölu. Einnig
nýr leðurjakki á 14-15 ára dreng.
Uppl. í síma 33518.
Húsnæði
Herbergi óskast
Fullorðinn einhleypur maður ósk-
ar eftir herbergi með aðgangi að
eldhúsi. Uppl. í síma 84180 á
dagjnn eða 622149 á kvöldin.
Finnur.
(búð óskast
Ungt par með barn óska eftir að
taka á leigu 3 herb. íbúð frá 1.
sept. I Reykjavík eða Kópavogi.
Góð fýrirframgreiösla og reglu-
semi heitið. Sími 96-23706
(búð óskast
Þriggja til fjögurra herbergja íbúð
óskast til leigu. Staðsetning helst
I Vesturbergi eða Hólahverfi.
Uppl. í síma 72490.
fbúð
Óska eftir aö taka á leigu litla
íbúð. Uppl. í síma 678689.
fbúð óskast
Óska eftir tveggja herbergja íbúð
til leigu frá og með 1. júní. Uppl. í
síma 16465. Inga.
fbúð í Vesturbæ
Óska eftir þriggja herbergja íbúð í
vesturbæ Reykjavíkur frá 1. ág-
úst n.k. Skilvísum greiöslum heit-
ið. Uppl. í síma 40591.
Ibúð til leigu
Til leigu er 100 fermetra íbúð í 5
íbúða húsi í nágrenni Borgarspít-
alans. íbúðin er þriggja herbergja
og er laus strax. Uppl. i símum
91-686519, 91-15016, 93-71780
og 93-71245, Magnús.
ioön
Hjónarúm
Óska eftir antik-hjónarúmi með
eða án dýnu. Sími 674506.
Hjónarúm til sölu
King size vatnsrúm úr furu til
sölu. Uppl. í síma 73623.
Heiitiilis-
og raftæki
Til sölu
Góð Zesowatt þvottavél til sölu
fyrir gott verð. Uppl. í síma
33586.
Kraftmagnari
Nýr Yamaha kraftmagnari fyrir
söngkerfi til sölu. Simi 689714,
Jón.
Commador 64
Til sölu Commador 64 leikjatölva.
Innifalið skjár, lyklaborð, segul-
band, fjarstýringar og 40 leikir.
Verð kr. 20.000. Uppl. gefur Jök-
ull í síma 14304.
fsskápur
Gef gamlan Ijótan ísskáp. Uppl. í
síma 20237.
BMX-reiðhjól
Til sölu BMX reiðhjól, 16“, rautt
og svart. Verð kr. 6000.- Sími
672143.
Loksins fæst það keypt
Nítján tommu, 18 gíra Muddy Fox
Courier í frábæru standi á góðu
verði. Alvöru fjallahjól. Einnig
fæst Fiat Panda '83. Þarfnast
smá lagfæringa og selst ódýrt.
Sími625201.
Til sölu
20 tommu BMX reiðhjól til sölu.
Verð kr. 5.000.- Uppl. í síma
84992.
Reiðhjól-fuglabúr
10 gira drengja- /karlmannshjól til
sölu. Einnig stórt tveggja hólfa
fuglabúr. Uppl. í síma 79840 til kl.
16.00 og 79464 eftir kl. 22.00.
Auöur.
DýrahaSd
Töpuð læða
Grá og svartbröndótt læða tapað-
ist í Hlíðunum. Finnandi vinsam-
legast hringi í síma 24456.
ALÞYÐUBANDALAGTÐ
Alþýðubandalagið i Reykjavik
Almennur félagsfundur
Almennur félagsfundur verður haldinn að
Hverfisgötu 105 mánudaginn 29. aprll kl.
20.30.
Dagskrá:
1. Kosning uppstillingarnefndar vegna
aðalfundar.
2. Stjórnmálaviðhorfið - almennar umræður.
Frummælandi Svavar Gestsson alþingis
maður.
3. Önnur mál.
Stjórn ABR
AB Kópavogi
Morgunkaffi
Morgunkaffi laugardaginn 27. aprll I Þinghól I
Kópavogi frá kl. 10 til 12.
Valþór Hlöðversson bæjarfulltrúi verður til við-
tals. Allir velkomnir. Bæjarmálaráð ABK
Svavar
Valþór
Kettlingur
Kassavanur, 12 vikna kettlingur
fæst gefins. Sími 22613.
Fyrir fiskabúr
Ljós og loftdæla fýrir fiskabúr ós-
kast til kaups. uppl. í síma 75209.
Fyrir bdrn
Barnakerra
SIMO barnakerra til sölu. Kerran
er vel með farin og með henni
fylgja skermir, svunta, innkaupa-
grind og poki. Verð 12.000,- kr.
Uppl. (síma 34868 eftir kl. 15.00.
Bilar
og varahlufðr
Citroen GSA
Til sölu er fólksbíll, Citroen GSA,
C-MATIC, árgerð 1982, ekinn
90.000 km. Nýskoðaður og vand-
aður bíll. Verð aðeins kr. 150.000.
Sími 28412 e. kl. 18.
Smájeppadekk
Fjögur óslitin 15 tommu jeppa-
dekk frá Nokia á nýjum Suzuki
felgum til sölu. Henta einnig undir
Lada sport. Uppl. í sima 42094.
Sparneytinn bíll
Litla MICFtAN mín ertil sölu. Hún
er í toppstandi, skoðuð 92, ekin
111 þús. km. Bílasalan seturá
hana 240.000,- kr. en þú getur
hringt og athugaö hvort við kom-
umst að samkomulagi um þá tölu
sem þér finnst henta. Síminn er
681333 á skrifstofutima, 98-
21873 á kvöldin, Svanheiður.
Þjóriusta
Garðeigendur
Nú er rétti tíminn til að klippa tré
og runna. Vönduð vinna. Guð-
laugur Þór Ásgeirsson, sími
28006.
Málningarþjónusta
Við erum tveir málaranemar og
tökum að okkur alhliða málning-
arvinnu. Uppl. i síma 75543.
Garðeigendur
Önnumst alla almenna garð-
vinnu, útvegum húsdýraáburð og
dreifum. Pantið sumarúðun tím-
anlega. Þórhallur Kárason bú-
fræðingur, sími 25732.
Viðgerðir
Tek að mér smáviðgerðir á hús-
munum. Hef rennibekk. Uppl. í
síma 32941.
Garðeigendur
Bjóðum húsdýraáburð, trjáklipp-
ingar, hellulagnir, garðúðun og
fleira. Uppl. í símum 13322 (Sig-
urjón) og 12203 (Sverrir)
Húseigendur
Trésmiður getur bætt við sig verk-
efnum strax. Uppl. í síma 24867.
Atvinna
óskast
Atvinna óskast
Ég er 17 ára menntaskólastúlka á
eðlisfræðibraut í MH. Mig bráð-
vantar sumarvinnu. Ef einhver
þarf áræðilegan og reglusaman
starfskraft þá er ég laus frá 20.
maí. Uppl. í síma 34937.
Atvinna óskast
Fjölskyldumaður, 22 ára, óskar
eftir vinnu. Allt kemur til greina.
Sími 689714, Jón.
Tvær leiðir
eru hentugar til þess
að verja ungbarn i bil
t •i'.Jvi bdmtð aníiaðtivoit luji)|d
i btGiol lyitt ungboi'i cðj
lidinavuijm 'so*n lostui cr
nu*ð ticltum
UUMFERDAR
RÁD
siða \2 ,,
Hörður Zóphaníasson
sextugur
Afmælisgreinar hafa gjaman
þann eiginleika að vera eins og
markaskrár langs lífsferils. Menn
fletta upp og lesa og sjá hvenær og
hvar ákveðinn einstaklingur fékk
tiltekið mark og hvort og þá hve-
nær hann skipti um mark.
Sumir hafa sitt mark allt lífíð
og merkja afurðir sínar og gerðir
því marla.
Yfírfært til nútímans verða
ákveðin mörk að vömmerki og
einkenni einstaklinga og félaga. Ef
markið er þekkt að góðu, þá er tek-
ið mark á manninum, ef ekki þá
öfugt.
Það er tekið mark á Herði Zóp-
haníassyni. Allt hans handbragð og
starf ber þess merki að þar fari
traustur og jákvæður persónuleiki
sem gott er að eiga að vini. Frá
unga aldri hefur Hörður vrið jafn-
aðarmaður og lengst af tilheyrt for-
ystusveit þeirra. Það er engin til-
viljunm að Alþýðuflokkurinn er
svo stór sem raun ber vitni í
heimabæ hans Hafharfirði. Það er
vegna þess að þar hafa hugsjónir
jafnaðarmanna haft á að skipa
hæfileikaríkum forystumönnum,
sem höfðu traust fólksins. Það var
tekið mark á forystumönnum hafn-
firskra jafnaðarmanna og Hörður
er einn þeirra.
Hörður valdi uppeldis- og
kennslumál að lífsstarfí og hefur
því alla sína ævi starfað með æsku
þessa lands. A tímum hinna hörðu
gilda, þegar lífshamingjan er mæld
í stereógræjum og tryllitækjum og
ekki tekið mark á neinni umræðu í
þjóðfélaginu, sem ekki er að uppi-
stöðu hagfræðilegt prósentustagl
um samdrátt og vöxt, þá eru þeir
menn dýrmætir sem helga æsku
landsins starf sitt. Kennslustarfið
er krefjandi starf og þeir menn sem
það stunda verða að vera í senn
uppalendur, fræðandi og fordæmi.
Þetta sameina bara hugsjónamenn,
menn sem hafa mannlega reisn og
félagslegt réttlæti að lífsskoðun, og
verum þess minnug að réttlæti
verður trauðla skilgreint, án við-
miðunar við jafnrétti. Hörður er
því um leið samvinnumaður, því
þótt pólitísk forysta samvinnu-
hreyfingarinnar hafi oft orðið við-
skila við jaíhaðarhugsjónina, þá
hafa jafnaðarmenn aldrei misst
sjónar af samvinnuhreyfmgunni og
hennar mikilvæga innleggi í lífs-
baráttu fátæks fólks fram yfir
miðja þessa öld. Hörður hefur
gegnt miklum trúnaðarstörfum í
neytendahreyfingu samvinnu-
manna hér á suðvesturhomi lands-
ins og átt sæti í stjóm Sambandsins
um árabil. Þar hafa mannkostir
hans sem einkennast af drengskap
og sáttíysi notið sín vel. Þar er tek-
ið mark á Herði Zóphaníassyni.
I stjómmálum skiptast á skin
og skúrir. Enginn flokkur siglir
stöðugan beitivind, allir verða þeir
fyrr en síðar fyrir áfollum og flestir
eiga sínar stóm stundir. En hvert
sem sviptivindar tímans vilja bera
flokka, þá er það fyrst og fremst
undir flokksfélögum og málefnum
komið hvert söguþróunin skilar
stjómmálahreyfingum.
Meðan Alþýðuflokkurinn hefur
mömium eins og Herði Zóphanías-
syni á að skipa vitum við að ræt-
umar em í lagi.
í nafni Alþýðuflokksins óska
ég Herði innilega til hamingju á
þessum merkisdegi og óska honum
alls góðs á ókomnum árum, og
þakka honum einstök störf í þágu
flokksins um langan aldur.
Jón Baldvin Hannibalsson
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar
borgarverkfræðings, óskar eftir tilboðum i dúkalagnir í ýms-
um fasteignum Reykjavíkurborgar. Um er að ræða annars
vegar ca. 3.000 fermm. fyrirfram skilgreind verk sem vinna
skal á þessu ári og ca. 4.000 fermm. vegna íbúaskipta sem
vinna skal á næstu 2 árum.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn kr. 20.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 2. maí
1991, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVlKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Slmi 25800
Ert þú grúskari?
Safnar þú heimildum um áhugamál þitt?
Hópur bókavarða vinnur nú að því að safna upplýs-
ingum um prentaðar íslenskar heimildir í þeirri von að
fleiri geti nýtt sér þetta efni í framtíðinni.
Ef þú safnar íslenskum heimildum um áhugamál þitt
og hefur skráð þessar heimildir hjá þér vill hópurinn
gjarnan fá upplýsingar um það.
Nánari upplýsingar gefa:
Anna Torfadóttir,
Borgarbókasafni.s. 91-27155
Ingibjörg Árnadóttir,
Háskólabókasafni, s. 91-694335
Ragna Steinarsdóttir,
Kennaraháskóla íslands, s. 91- 688700