Þjóðviljinn - 25.04.1991, Side 8
Ofantöku ísafjarð-
arkirkju frestað
Fyrirhugaðri ofantöku ísa-
fjarðarkirkju, sem fram-
kvæma átti í byrjun vik-
unnar hefur verið frestað
fram í byrjun næsta mán-
aðar. Þangað tii verður
tíminn notaður til að reyna á að
ná ásættanlegri lausn í málinu
með Húsfriðunarnefnd, auk þess
sem sóknarnefnd mun fara fram
á það við nefndina að hún til-
nefni eftiriitsmenn með ofantök-
unni.
Gunnlaugur Jónasson sóknar-
nefndarmaður segir að það skipti
ekki sköpum þó að ofantöku kirkj-
unnar sé frestað um nokkra daga á
meðan reynt verði að koma í veg
fyrir óþarfa ágreining um fram-
kvæmdina. Hinsvegar viðurkenni
sóknamefndin ekki lögsögu Hús-
friðunamefndar í málinu, sem
starfar eftir nýjum lögum frá því í
fyrra. Gunnlaugur segir að sóknar-
nefhdin þurfi ekki að sækja um
leyfi til Húsffiðunamefhdar til að
taka kirkjuna niður því ákvörðun
um það hafi verið tekin áður en
nýju lögin um starfsemi Húsffið-
unamefndar tóku gildi. Aftur á
móti vilji sóknamefndin ræða of-
antökuna við Húsffiðunamefnd og
njóta sérfræðiþekkingar hennar,
enda sé ábyrgð sóknamefndar mik-
il í þessu máli og því nauðsynlegt
að staðið verði fagmannlega að því
verki sem framundan er.
Eins og fram hefur komið er
ofantaka kirkjunnar afar viðkvæmt
mál innan Isafjarðarsafnaðar og
kemur við kvikuna í mörgum.
Framtíð ísafjarðarkirkju, staðsetn-
ing og bygging nýrrTar kirkju er
búin að vefjast fyrir Isfirðingum í
þijú og hálft ár, eða frá því kirkjan
skemmdist mikið í eldsvoða. -grh
Ef Pétur Guömundsson er oröinn nægilega góöur af meiöslum sínum mun
hann án efa verða íslenska landsliöinu mikill styrkur i þeirri keppni sem fram-
undan er. Hann er 218 sentimetrar á hæö en meöalhæö íslenska leikmanna-
hópsins er aðeins 191 sentimeter sem er sú lægsta af þeim liðum sem hingaö
em væntanleg. Hæstu meöalhæöina hefur hinsvegar danska landsliöið eöa
197,5 sentimetra.
Körfubolta
veisla í Höllinni
Dagana 1.-5. maí
næstkomandi verður
keppt í öðrum riðli
forkeppni 28. Evrópu-
meistaramótsins í
körfuknattleik í Laug-
ardalshöllinni. Þar
munu keppa auk heimamanna,
landslið Dana, Norðmanna,
Portúgala og Finna.
í hinum riðlinum keppa sjö lið
og fer sú keppni ffam í Sviss dag-
ana 6. - 12. maí næstkomandi. Tvö
lið úr hvorum riðli komast síðan í
aðalkeppnina en sextán lið komast
beint í aðalkeppnina án forkcppni.
Það verða því 20 lið sem keppa um
sjálfan Evrópumeistaratitilinn og
verður þá leikið í fjórum riðlum,
heima og heiman. Nái íslenska lið-
ið að verða í einu af tveimur efstu
sætunum I sínum riðli, mega
körfuboltaáhugamenn eiga von á
þvi að hingað til lands komi til
keppni einhver af sterkustu lands-
liðum í Evrópu.
íslenska landsliðið verður til-
kynnt annað kvöld, föstudag og
verða þá valdir tólf leikmenn af
þeim sautján sem verið hafa I
landsliðshópnum, sem að undan-
fömu hefur verið að spila æfinga-
leiki við Austurríkismenn og Skota
með góðum árangri. Af þeim sem
eru í hópnum er Valur Ingimund-
arsson leikjahæstur með 107 lands-
leiki að baki en hinsvegar hefur
þjálfari liðsins, Torfi Magnússon
leikið fiesta landsleikina eða 131.
Þá hefur Pétur Guðmundsson til-
kynnt forráðamönnum Körfuknatt-
lciksambandsins að hann sé tilbú-
inn í slaginn, en það mun svo ráð-
ast eftir fyrstu æfingamar hvort
hann sé orðinn nægilega góður af
þeim meiðslum sem hann hefur átt
við að stríða að undanfömu. Er
ekki að efa að hann yrði liðinu
mikill styrkur sökum hæðar sinnar.
Fyrsti leikur lslendinga verður
við lið Danmerkur, á alþjóðlegum
degi verkalýðsins 1. maí, en þessi
Iið hafa att kappi sín í milli í 31
skipti. íslendingar hafa unnið 19
sinnum en það danska 12 sinnum.
Því næsl verður keppt við Portú-
gala en á móti þeim hefur Iandinn
keppt 11 sinnum. Þar af hafa ís-
lendingar unnið sex leiki en Portú-
galar þá fimm síðustu. Á móti
Norðmönnum hafa Islendingar
unnið 14 af 25 leikjum þjóðanna,
þar af tíu af ellefu fyrstu leikjunum
en aðeins tvo af síðustu tíu. Áflur á
móti hefúr íslenska liðið ekki riðið
feitum hesti gegn Finnum en þá
hefur landinn aðeins unnið cinu
sinni af átján leikjum. -grh
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 25. apríl 1991
FlÉTTIE
Deildar meiningar eru innan Isafjaröarsafnaðar um þá ákvörðun sóknarnefndar aö taka kirkiuna niður og koma henni fyr-
ir I skemmu til geymslu. Ætlunin er síöan aö byggja nýja og stærri kirkju á lóð þeirrar gömíu sem hefur þjónaö Isfiröing-
um 1130 ár.
Líffræðinemar mótmæla
flutningi Mímis RE
Mikill meirihluti nenienda
við Líffræðiskor Háskóla íslands
hafa sent sjávarútvegsráðherra
undirskriftarlista þar sem þeirri
ákvörðun er harðlega mótmælt
að flytja heimahöfn rannsóknar-
skipsins Mímis RE frá Reykja-
vík til Akureyrar. Jafnframt
skora nemendurnir á ráðherra
að falla frá þessari ákvörðun
sinni og að fundin verði önnur
og raunhæfari lausn á þessu
máli.
Líffræðinemamir draga það þó
ekki í efa að not séu fyrir rann-
sóknarskipið norðan heiða en telja
engu að síður að það hafi sýnt sig
og sannað að brýn nauðsyn sé á að
hafa skipið áfram í Reykjavík.
Máli sínu til stuðnings benda nem-
endumir á að þrjár stofnanir, það er
Hafrannsóknastofnun, Líffræði-
stofnun og Líffræðiskor Háskóla
Islands nota skipið að staðaldri all-
an ársins hring. Meðal annars hef-
ur skipið verið notað til sýnatöku
og sem kennslutæki í mörgum
námskeiðum. Að mati nemend-
anna er ljóst að flutningur Mímis
RE til Akureyrar mun hafa vem-
lega röskun og óþægindi í för með
sér fyrir þeirra nám, til viðbótar
við það sem er nú þegar vegna
launadeilu stundakennara við ríkið.
I mótmælaorðsendingu sinni til
sjávarútvegsráðherra fullyrða nem-
endumir að njóti skipsins ekki við
mun mikið vanta á að kennsla í
sýnatökum, vinnubrögðum og öðr-
um þáttum námsins verði ekki sem
skyldi. Þeir telja að svo geti farið
að verðandi líffræðingar öðlist ekki
þá reynslu sem þeim er nauðsynleg
og verði jafnvel vanhæfir í sínu
starfi. -grh
Skógræktarfélagið hlýtur
norrænu umhverfisverðlaunin
Aðalnefnd Norræns
umhverfisárs hefur
ákveðið að _ Skóg-
ræktarfélag íslands
hljóti norrænu um-
hverfisverðlaunin
sem veitt eru nú í fyrsta sinn.
Hvert Norðurlandanna tilnefndi
umhverfisverkefni til að keppa
til verðlauna.
í fréttatilkynningu frá nefnd-
inni segir að Skógræktarfélagið sé
óháð félag sem hafi starfað frá
1930 og lagt áherslu á plöntun
tijáa og friðun birkiskóga til að
vinna gegn jarðvegseyðingu. Bent
er á að 7.000 manns séu í 45 félög-
um sem séu í Skógræktarfélaginu.
Félaginu er talið til tekna að
hafa í fyrra plantað 1,3 miljón trjáa
og virkjað til þess 8.000 manns en
átakið verður endurtekið í ár. Bent
er á að starfsemi félagsins ýti undir
skilning á jarðvegseyðingu. Ekki
veitir af þar sem tveir þriðju af
gróðurþekju landsins hefur tapast.
Nefndin telur að jarðvegseyðing sé
tvímælalaust stærsta umhverfis-
vandamál Islendinga. Óblíð veðr-
átta, eldvirkni og ofnýting lands
hafa hjálpast að í eyðingunni.
Danir tilnefndu „Grænar fjöl-
skyldur í Danmörku“ til verðlauna.
Framlag Svía var „Skrefi á undan“
Barnabætumar beint
inn á reikninga fólks
Um 22 þúsund mót-
takendur barnabóta
munu fá bæturnar
lagðar beint inn á
launareikninga sína
í bönkunum nú í
byrjun maí. Til að byrja með eru
það starfsmenn ríkisins og
Reykjavíkurborgar, bankamenn
og bótaþegar Tryggingastofnun-
ar sem munu fá barnabæturnar
greiddar á þennan hátt.
Stefnt er að því í framtíðinni að
sem fiestir móttakendur bamabóta
og húsnæðisbóta úr ríkissjóði fái
greitt inn á reikning í stað þess að
fá ávísanir I pósti, segir í fréttatil-
kynningu frá fjármálaráðuneytinu.
Aðrir en þeir ofannefndu geta
fengið bætumar greiddar inn á
reikning hjá sér með því að fylla út
til þess gert eyðublað sem liggur
frammi í bönkum og sparisjóðum.
Bamabætur eru áætlaðar í ár
tæpir fimm miljarðar króna og eru
greiddar út fjómm sinnum á ári en
vaxta- og húsnæðisbætur eru áætl-
aðar 2,8 miljarðar króna og eru
þær greiddar út einu sinni á ári í
ágúst. I fyrra voru sendar út
310.006 ávísanir vegna þessa.
Með þessari breytingu sparast
mikið fé þar sem kostnaður við
tölvufærslu inn á bankareikninga
er hverfandi miðað við tékkaút-
skrift, eftirlit og annað umstang. Þá
verður þjónustan með þessu móti
betri og allt öryggi eykst verulega
en nokkuð hefur verið um það á
undanfömum árum að ávísanir hafi
misfarist, segir í tilkynningunni.
-gpm
sem kynnti síðustu uppmnalegu
skógana í Norður-Svíþjóð. Finnar
tilnefndu „Endurvinnsluhreyfing-
una“ sem vann gegn sóunarhugar-
fari og Norðmenn tilnefndu „Sam-
tök Odda og nágrcnnis" vegna
starfs að vemdun staðbundins um-
hverfis í iðnaðarsamfélaginu Odda
en þar hefur komið til árekstra
milli umhverfisviðhorfa og vilja til
að halda í atvinnutækifæri.
Verðlaunin verða veitt í
Reykjavík 14. júní í sambandi við
umhverfismálaráðstefnuna Miljö
91.
-gpm
—r 1 ■ --------
Avöxtunarkrafa
Sonpubréfa
hækka
Fyrr í þessum mánuði hækk-
aði ávöxtunarkrafa á skulda-
bréfum Sorpeyðingar höfuð-
borgarsvæðisins bs úr 7,7 pró-
sentum í 8,1 prósent. Bréfín eru
til tíu ára og bera 7,5 prósent
nafnvexti. Bréfín höfða ekki
mjög til einstaklinga þar sem
þau eru gefín út í háum verðgild-
um, en þau keppa við önnur bréf
um hylli til dæmis lífeyrissjóð-
anna.
Ama Harðardóttir hjá Lands-
bréfúm hf. sagði að ástæða hækk-
unarinnar á þessum bréfúm væri að
vextir heföu hækkað frá áramótum
um hálft til eitt prósent. Hún sagði
að það væri ekkert óeðlilegt við
það að skuldabréf sveitarfélaga
bæru hærri vexti en ríkisbréf.
Gegnumgangandi er að ávöxtunar-
krafa slíkra bréfa er hærri.
-gpm
Síða 8