Þjóðviljinn - 25.04.1991, Síða 10
Söngnámskeið
Ágústa Ágústsdóttir sópran-
söngkona heldur söngnámskeið i
Reykjavík dagana 28. til 30. apríl.
Undirleikari á píanó verður Elfrún
Gabríel frá Leipzig. Nánari upplýs-
ingar í síma 94-7672 eða 91-
656617.
Arsafmæli
✓
Sigrúnar Astrósar
Á morgun er heilt ár liðið frá
því að leikritið um hana Sigrúnu
Ástrós var frumsýnt á litla sviði
Borgarleikhússins. Það er Margrét
Helga Jóhannsdóttir sem fer með
eina hlutverkið í sýningunni og
hefur fengið mikið hrós gagnrýn-
enda fyrir túlkun sína á hinni bráð-
skemmtilegu konu sem fer að at-
huga sinn gang í lífinu og hjóna-
bandinu.
Pels saknað
Hún Eyrún Jónsdóttir bað okk-
ur að birta eftirfarandi bréf: „Á
kosninganóttina fór ég á skemmti-
staðinn Berlín við Austurstræti.
Þar hvarf pelsinn minn úr fata-
henginu og hefur enn ekki komið
fram.
Pelsinn er auðþekkjanlegur;
hann er dökkbrúnn, stuttur og víð-
ur og nokkuð þungur þar sem hann
er úr ekta skinni. Framundan erm-
unum er breiður skinnkantur sem
farinn er að eyðast á jöðrunum og
sömu sögu er að segja um jaðrana
þar sem hann lokast að framan.
Hann var keyptur 1956 í Banda-
ríkjunum og er því líklega sá eini
sinnar tegundar á Islandi.
Hafi einhver tekið pelsinn í
misgripum eða orðið var við hann,
vil ég biðja viðkomandi að hafa
samband við mig í síma 620688
eða snúa sér til dyravarðanna á
Berlín. Eg vona að hann sé í hönd-
um heiðarlegrar manneskju þvi ég
sakna hans sárt. Eyrún Jónsdóttir"
Tango
á Borginni
Annað kvöld munu heitar
ástríður og ólgandi blóð ráða ríkj-
um á Hótel Borg. Þá mun borgin í
samstarfi við Kramhúsið gangast
íyrir Tangó kvöldi.
Húsið opnar fyrir matargesti kl.
20 og fá matargestir frítt á tang-
óballið sem hefst kl. 22. Hljóm-
sveit Reynis Jónssonar leikur fyrir
dansi og David Hohner, einn af
fremstu dönsurum i argentínskum
tango mun ásamt leikkonunni íris
Disser frá Argentínu sýna argent-
ínskan tangó.
N ey tendasamtökin
kanna
banka- og
tryggingamál
Sólrún Halldórsdóttir við-
skiptafræðingur hefúr verið ráðin
til Neytendasamtakanna og mun
sinna þar ýmsum verkefnum, með-
al annars á sviði banka- og trygg-
ingamála.
Sólrún er 26 ára gömul og út-
skrifaðist sem viðskiptafræðingur
frá Handelhögskolen í Kaup-
mannahöíh sl. vor.
Sólrún Halldórsdóttir.
Nemakeppni
í matreiðslu og
framreiðslu
Um helgina verður haldin í
fyrsta sinn á Islandi norræn nema-
keppni í matreiðslu og ffamreiðslu.
Islenskir nemar hafa fimm sinnum
tekið þátt í keppninni og jafnan
gengið vel og í fýrra vann íslenska
liðið í framreiðslu fyrstu verðlaun.
Keppnin fer fram í Hótel- og veit-
ingaskóla íslands.
VjaERPtfl/
Gerpla tvítug
íþróttafélagið Gerpla í Kópa-
vogi verður 20 ára í dag, 25. apríl.
I tilefni þess verður afmælishóf og
fimleikasýning í iþróttahúsi Gerplu
að Skemmuvegi 6 sem hefst kl.
13.30. Meðal annars verður afhent
vegleg gjöf ffá Kópavogsbæ.
Ljósmyndir af
uppákomum
Edda Hákonardóttir opnar sýn-
ingu á verkum sínum i gallerí B12,
Baldursgötu 12 (Nönnugötumegin)
á morgun, föstudaginn 26. apríl kl.
20. Sýningin ber yfirskriftina S og
á henni eru þrjár syrpur af ljós-
myndum af uppákomum (perfor-
mance) Eddu auk myndbands-
verka. Edda á langa sögu sem per-
form-listamaður þar sem hún notar
líkamann sem tjáningarmeðal í
huglægum og hlutlægum skilningi.
Sýningin stendur til 10. mai og er
opin virka daga frá kl. 12 til 16 og
um helgar frá kl. 14 til 18.
Ættarmótið enn
endurtekið
Vegna mikillar eftirspumar
hefúr verið ákveðið að bæta við
tveimur aukasýningum á Ættar-
mótinu eftir Böðvar Guðmundsson
hjá Leikfélagi Akureyrar. Nú hafa
8.364 áhorfendur séð Ættarmótið á
37 sýningum og er það næstmesta
aðsókn sem leiksýning hefur feng-
ið í Samkomuhúsinu á Akureyri,
en ennþá eiga söngleikimir My Fa-
ir Lady og Piaf sýningarmetið hjá
Leikfélagi Akureyrar ef sýningar á
Piaf í Reykjavík eru teknar með.
Um páska var bætt við þremur
aukasýningum á Ættarmótið, en
færri komust að en vildu. Nú hefur
verið ákveðið að hafa tvær auka-
sýningar einsog áður sagði, mið-
vikudaginn 8. maí og fostudaginn
10. maí.
Hátíð
harmoníkunnar
Hátíð harmoníkunnar verður
haldin í Tónabæ við Skaflahlíð
sunnudaginn 28. apríl kl. 15 til 18.
Stórhljómsveit Harmoníkufélags
Reykjavíkur leikur nokkur lög
undir stjóm Karls Jónatanssonar,
einleikarar eru þau Einar Bjöms-
son, Jóna Einarsdóttir og Sveinn
Rúnar Björnsson. Heiðursgestir
hátíðarinnar verða Eyþór Guð-
mundsson, Grétar Geirsson, Grettir
Bjömsson, Hörður Kristinsson og
Reynir Jónasson. Þeir Grétar og
Eyþór leika dúett en aðrir heiðurs-
gestir einleik. I kafilhléi koma
fram böm og unglingar með hljóð-
færaleik og söng. Allir eru vel-
komnir meðan húsrými leyfir.
Kaffiveitingar á staðnum.
Rikey Ingimundardóttir opnar í
dag myndlistarsýningu í Eden í
Hveragerði. Þetta er 17. einkasýn-
ing Ríkeyjar. Á sýningunni em
nýjar brenndar myndir, lágmyndir
úr postulíni, málverk og fleira.
Sýningin stendur til 6. maí.
REYKJAVÍK
GARÐABÆR
HAFNARFJÖRÐUR
- '' SORPA £
Móttöku- og flokkunai
Gufunesi
KÓPAVOGUR
'AHREPP
KJALARNESHREPPUR
MOSFELLSBÆR WREYKJAVIK O SELTJARNARNES
K0PAV0GUR BESSASTAÐAHREPPUR MGARÐABÆR iL HAFNARFJORÐUR
gl ámastöðvar
Gámastöövar gegna mikilvægu
hlutverki í nýrri meðhöndlun úrgangs. Þærtaka
á móti rusli endurgjaldslaust. í Gufunesi veröur
hins vegar tekiö á móti stærri förmum frá
atvinnurekstri samkvæmt gjaldskrá. Stöövarnar
veröa allar komnar í notkun í lok júlí
á átta stööum alls:
1 /Mosfellsbæ, nærri hesthúsabyggð
2 Viö Gylfaflöt
3 Á Ártúnshöföa, viö Sævarhöföa
4 í Seljahverfi, sunnan Breiöholtsbrautar
5 Viö Ánanaust, nálægt gatnamótum
Grandagarös og Mýrarvegar
6 Á Sléttuvegi, vestan Borgarspítala
7 í Fífuhvammslandi í Kópavogi
8 í Molduhrauni, á mótum Garðabæjar og
Hafnarfjarðar
Nýtt sumar
b& m
ú í sumar mörkum viö þáttaskil í umhverfismálum.
íbúar allra sveitarfélaganna á höfuöborgarsvæöinu
sameinast í stórátaki til bættrar meðhöndlunar úrgangs
og nýrra viðhorfa.
Opnir sorphaugar heyra nú sögunni til en fullkomin
móttöku- og flokkunarstöö úrgangs sniöin aö íslenskum
aöstæöum - SORPA tekur til starfa.
ið berum ábyrgð á úrgangi
sem við framleiðum
íbúar höfuöborgarsvæöisins framleiða 125 þúsund
tonn af úrgangi á ári - um 860 kg á hvern. Þessu
gífurlega magni ber okkur aö koma fyrir þannig aö
ekki skaði lífríkið - framtíöin er [ húfi.
Úrgangurinn er af misjafnri gerö og fær nú aðgreinda
meöhöndlun:
• Hluti úrgangsins verður endurnýttur
• Spilliefni veröa meðhöndluð þannig aö þau mengi
ekki lífríkið
• Húsasorp veröur pressað í aöeins 10% af upphaf-
legu rúmmáli, vírbundiö og urðað
Leiöbeiningarrit hafa veriö send á vinnustaöi
og heimili.
Þaö er áríöandi aö allir lesi þau vel og fylgist meö
auglýsingum um einstök atriöi.
Þeir sem ekki hafa fengiö leiöbeiningarnar eöa
óska frekari upplýsinga hafi samband viö
skrifstofu SORPU.
/ umhverfisvernd
ynntu þér hlutverk þitt
1 Úrgangur verður nú flokkaöur bæði í heima-
húsum og á vinnustöðum og meðhöndlaður á
viðeigandi hátt. Mikilvægt er aö allir kynni sér strax:
• Flokkun úrgangs og meöferö
• Sérstaka meðferð umhverfisspillandi efna
• Möguleika til endurnýtingar
» Ruslagámaþjónustu
etta fer ekki í sorptunnuna
eða holræsakerfið
Endurnytinaarefni:
Timbur - fer á gámastöðvar eöa beint til SORPU
Garöaúrgangur - nýttur í heimagarði eða afhentur
á gámastöö
Prentpappír - afhentur krossbundinn á gámastöö
Drykkjarumbúöir - skilaö eins og áöur
Málmar - fara til endurnýtingaraðila
Spilliefni:
Þaö er lífsnauðsyn aö allir skilji aö spilliefni eyöi-
leggja lífríkið og mega þess vegna alls ekki fara
út í holræsakerfið eða í sorptunnuna. Þeim ber
undantekningarlaust aö skila á rétta staði, gámastöö
eöa í efnamóttöku SORPU.
Algeng spilliefni eru t.d. rafhlöður, lyf, eitursýrur,
málning, lökk og leysiefni, olíuúrgangur, frostlögur,
hreinsiefni o.m.fl.
Önnur efni sem alls ekki mega fara meö heimilissorpi
eru t.d. múrbrot, steinefni, vírar og tæki.
SORPA
Uröunarstaöur
Álfsnesi
ELTJARNARNES
RPA
SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs.
Gufunesi, 112 Reykjavík, simi 676677
SORPA - er eitt mesta umhverfisátak á íslandi.
Petta geysistóra og mikilvæga verkefni kostar fé, vinnu
og skilning - nýjan skilning á þeirri ábyrgö okkar allra
aö skila hreinu landi ■ betra landi til næstu kynslóöa.
Sumardagurinn
fyrsti
I dag er sumardagurinn
fyrsti og þá eru ýmsar
skemmtanir í gangi fyrir
unga og geta aldnir ekki síð-
ur haft gaman af þeim.
Haf narfj örður
Ponsumót verður í íþrótta-
húsinu við Strandgötu og hefst
það kl. 10.30. Keppendur frá
Hafnarfirði, Keflavík, Reykja-
vík og Garðabæ.
Víðavangshlaup Hafnar-
fjarðar verður haldið í hjarta
bæjarins. Hlaupið verður frá
Ráðhúsi bæjarins á Strandgötu
og hefst það kl. 13. Veittir eru
bikarar í hlaupi kvenna 30 ára
og eldri og í hlaupi karla 40
ára og eldri og er vonast til að
eldra fólk fjölmenni í hlaupið.
Auk þess er keppt í yngri
flokkum - sá yngsti er fyrir 5
ára og yngri og eru veittir far-
andbikarar í öllum flokkum
sem Hafnarfjarðarkaupstaður
hefúr gefið.
Brúðuleikhús verður í Vit-
anum og verður ævintýraleik-
þátturinn Bangsi sýndur. Tvær
sýningar verða ætlaðar böm-
um 3-7 ára, kl. 14 og kl. 16.
Aðgangseyrir kr. 200 á bam
en ókeypis fyrir fullorðna.
Miðasala frá kl. 12 í Vitanum.
Faxaflóamótið í knatt-
spymu - þar mætast erkifénd-
umir FH og Haukar á Hval-
eyrarholtsvelli. Kl. 10.30
keppa lið í fjórða flokki og á
Kaplakrika kl. 8.30 sjötti
flokkur og kl. 10 fimmti
flokkur. Kl. 13.30 keppa lið úr
öðrum flokki.
Baltasar opnar sýningu á
30 olíumálverkum í Hafúar-
borg kl. 14.
Skátafélagið Hraunbúar
verða með skrúðgöngu frá
Skátaheimilinu kl. 10 og leik-
ur Lúðrasveit tónlistarskólans
í Hafnarfirði undir. Gengið
verður að Hafnarfjarðarkirkju
þar sem séra Gunnþór Ingason
þjónar fyrir altari.
Garðabær
I Garðabæ verður mikið
um að vera og mun Skátafé-
lagið Vífill sjá um hátíðardag-
skrá sem hefst með fánaathöfn
við Garðakirkju laust fyrir kl.
11 og því næst verður skáta-
messa í kirkjunni þar sem
Gunnar Eyjólfsson skátahöfð-
ingi flytur hugvekju. Kl. 14
hefst skrúðganga frá gatna-
mótum Hofstaðabrautar og
Karlabrautar og verður gengið
út að skátaheimilinu. Lúðra-
sveitin Svanur leikur undir.
Fánaathöfn verður við skáta-
heimilið og skemmtidagskrá.
Um kvöldið verður skáta- og
fjölskylduskemmtunin Sumar-
hátíð ‘91 í félagsmiðstöðinni
Garðalundi við Vífilsstaðaveg
og hefst hún kl. 20. Aðgangs-
eyrir 500 kr.
Ferðafélagið
Ferðafélagið verður með
ferð á Esju að sunnan kl.
10.30. Verð 1000 kr. Kl. 13
verður farið í Almannadal og
Úlfarsfell, heiða og fjallganga
í léttari kantinum. Verð kr. 800
en fritt fyrir böm í fylgd fúll-
orðinna.
Garðyrkj uskóli
ríkisins
Garðyrkjuskóli ríkisins
verður með opið hús á Reykj-
um í Ölfúsi og hafa nemendur
veg og vanda af undirbúningi
og annast móttöku gesta sem
hefst kl. 10 og stendur til kl.
18.
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 25. april 1991
Síða 10
Síða 11
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 25. aprfl 1991