Þjóðviljinn - 04.05.1991, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 04.05.1991, Blaðsíða 3
Daníel í Svíaríki Daníel Magnússon myndlist- „Niðurstaða landkönnunar". Verkin armaður opnar sýningu í Gallery á sýningunni eru unnin í handteipað Westlund í Stokkhólmi þann 7. eldhúsfílabein, tré og akril með maí næstkomandi. blandaðri tækni. Öll verkin eru frá Sýning Daníels ber yfirskriftina þessu ári. Vímuvarnardagur í Firðinum Lionsessu- og Lionsklúbb- arnir í Hafnarfirði verða með ijölskyldudagskrá á flötinni við Víðistaðakirkju í dag í tilefni vímuvarnardagsins. Dagskráin hefst kl. 13 með boðhlaupi bama úr grunnskólum Hafnarfjarðar. Allir fá barmmerki t tilefni dagsins ásamt viðurkenn- ingarskjali fyrir þátttökuna. Kl. 14 hefst ratleikur og er til- valið að öll fjölskyldan fari saman út að ganga og taki þátt í skemmtilegum leik. Veitt verða vegleg verðlaun. Lúðrasveit Tínlistarskóla Hafnarfjarðar verður á svæðinu og leikur létt lög. Selt verður heitt kakó og vöfflur á aðeins 100 kr. Aðalfundur Amnesty Aðalfundur íslandsdeildar laugardaginn 4. maí, kl. 14. Fé- Amnesty Intemational verður lagar hvattir til að mæta, en að- haldinn í veitingahúsinu Litlu eins þeir sem hafa greitt árgjöld Brekku við Bankastræti í dag, ársins 1990 hafa atkvæðisrétt. VANDIÐ MEÐFERÐ HÚSBRÉFA Komið hefur í Ijós, að nokkur misbrestur er á því, að frágangur á húsbréfum sé nægilega góður hjá ýmsum þeim aðilum, sem hafa hann með höndum. Gildir það jafnt um einstaklinga sem fjármálastofnanir. Formsatriðum er í ýmsum tilvikum ekki fullnægt, t.d. vantar stundum heimilisfang framseljanda og/eða dagsetningu framsals. Þá hefur borið við, að formlegt umboð fylgi ekki húsbréfi þegar það erframselt af öðrum en eiganda. Af þessu tilefni skal það brýnt fyrir öllum þeim, sem annast meðferð húsbréfa, þ.á.m. framsal þeirra, að útfylla þau til fulls og hlíta í hvívetna ákvæðum 3. gr. reglugerðar um útgáfu á hlutaðeigandi húsbréfaflokki. Sé húsbréf framselt, samkvæmt umboði, verður formlegt umboð að fylgja húsbréfinu, framsali til sönnunar. Löggiltir verðbréfasalar geta þó framselt samkvæmt geymdu umboði, sbr. 5. gr. I. um verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóði, nr. 20/1989. Reykjavík, 2. maí 1991, HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SlMI 696900

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.