Þjóðviljinn - 04.05.1991, Page 16

Þjóðviljinn - 04.05.1991, Page 16
AtUvvvr -| y" • 4. Leikhópurinn Margrét H-7 í Fossvogsskóla. Keisarinn grætur. Sunna 3. EA í Víðistaðaskóla i Hafnarfirði. Keisarinn minn. Inga Valdís Heimisdóttir, Grunn- skólanum í Grindavík. Keisarinn, stelpan sem flautaði og næturgalinn. Svo eru krakkarnir á leikskólanum að horfa á. Helga Ingibjörg, leikskólanum Sólvöllum í Neskaupstað. Næturgalinn heiðraður Þið þekkið mörg ævintýrið um litla gráa fuglinn sem söng svo fal- lega að keisarinn í Kína táraðist af hrifningu. Leikhópur úr Þjóðleik- húsinu hefur í allan vetur ferðast með leiksýningu, sem er byggð á Næturgala H. C. Andersens í flesta grunnskóla landsins. Og sennilega hafið þið sem þetta les- ið, þegar séð sýninguna. En tókuð þið eftir því, að á sumardaginn fyrsta var hópurinn heiöraður fyrir sitt ágæta framlag til barnamenningarinnar í land- inu? Það var deild (slands í al- þjóðasamtökum áhugafólks um barnabókmenntir, IBBY, sem veitti listafólkinu þessa viðurkenningu. En sú viðurkenning sem kom frá ykkur, sem sáuð sýninguna og senduð leikhúsinu teikningar, hún er ekki síðri. Þaö er svo gaman að fá að sjá, hvað ykkur hefur fundist merkilegast. Hvað ykkur hefur langað til að teikna á eftir. Og á Listahátíð æskunnar, sem nú er nýlokið hér í Reykjavík, hafði Þjóðleikhúsið sýningu á teikning- um. Hænsnaprikið birtir nokkrar þeirra hér á síðunni. Listahátíð Æskunnar Það var margt um að vera í vik- unni sem leið. Listahátíð æskunn- ar lagði undir sig flest samkomu- hús og skóla höfuðborgarinnar. Það var ekki nokkur leið fyrir eina manneskju að fylgjast með öllum þeim sýningum og uppákomum sem í boði voru. Ég fór samt á myndlistarsýn- ingar og tónleika. Ég las Ijóðin ykkar og sá ykkur dansa og syngja og fremja tónlistar- og myndlistargjörning og ég verð að segja það: Mér finnst þið frábær. Mér finnt þið geta svo ótrúlega margt. Og mér finnst þið gera það vel. Ég veit líka að það er dálítið mismunandi, hvað þið fáið mikla uppörvun og hjálp frá kennurum ykkar og foreldrum. Sumir leið- beina ykkur af lífi og sál, aðrir gera að kannski með hangandi hendi. sumum skólum er oftast eitthvað skemmtilegt að gerast. [ öðrum er leiðinlegt. Flestir krakkar þurfa hvatningu og aðstoð, nokkrir bjarga sér bara sjálfir. Á rauðum gúmmígalla í Gerðubergi, menningarmið- stöðinni í Breiðholtinu, var Örn Ingi leiðbeinandi krakka í lista- smiðju. Hann var ýmist með þau í Uppsetning umhverfislistaverks við Gerðuberg. Mynd: Kristinn heimatilbúnu skógarrjóðri niðri í kjallara eða úti að reisa umhverf- islistaverk. Örn Ingi er eldsál. Það leyndi sér ekki, þegar ég mætti honum rennandi blautum í rauð- um gúmmígalla í rigningunni á laugardaginn var. Hann var að stjórna uppsetningu á heljarmikl- um staur og lét hífa krakkana upp í körfu til þess að festa ketti á staurinn. Og ég hugsaði: Mikið vildi ég að ég ætti rauðan gúmmí- galla og væri hífð upp í körfu til að festa ketti á staur. Mikið vildi ég, að ég kynni enn að leika mér eins og Örn Ingi og krakkarnir. Steinunn Ljóðabók barnanna Má ég óska ykkur til hamingju með Ijóðabókina ykkar, krakkar! Börn eru skáld. Á því er ekki nokkur vafi, þegar maður les Ijóðin í Ljóða- bók barnanna sem kom út á sumar- daginn fyrsta. Og af því að ASÍ er útgefandi bókarinnar og 1. maí er nýgenginn um garð með kröfu- göngum og lúðrablæstri, þá birtir Hænsnaprikið meðfylgjandi Ijóð eft- ir 5 ára skáld. Vinna í gúanó þegar ég er orðinn stór, eins og pabbi er á lyftara að lyfta pokum í skip. Hlynur Snær Guðjónsson, 5 ára.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.