Þjóðviljinn - 04.05.1991, Side 23
Tilraunirnar takast
Níundu Músiktilraunir Tóna-
bæjar og Stjömunnar runnu sitt
skeið á enda í síðustu viku.
Fimmtudaginn 25. apn'l var þriðja
og síðasta undanúrslitakvöldið og
þá vildi svo skemmtilega til að allar
hljómsveitimar vom utan af lands-
byggðinni. ÞÖRUNGARNIR, létt
fönkuð poppsveit ífá Djúpavogi
bytjuðu. Tónlist hljómsveitarinnar
er leiðinlega tilgerðarleg og soðin
uppúr úreltum ffösum. Textamir
vom i „Þú varst bara 16“-stilnum.
Annað lag Þömnganna var samt
ágætt, rólegt númer sem minnti á
rólegustu verk Hljóma í denn. Suð-
umesjasveitin JONATHAN kom
næst og státaði af ungri söngkonu,
Ingu Rós Þórðardóttur, sem þrátt
fyrir greinilegan sviðskrekk skilaði
sínu vel. Efnileg popprödd. Tónlist
Jónathans var metnaðarfullt popp
og komst hæst á flug í fyrsta laginu.
Eftir það fór mann að syfja. Akur-
eyrarsveitin MASKINAN birtist
næst og flutti gott gítarpopp.
Trommuleikarinn Valur Halldórs-
son sá einnig um söng, og eins og
jafnan þegar ffamlínan syngur ekki
Vaggtíðindi
I byrjun júní er von á endurút-
gáfu af meistaraverki Trúbrots „Lif-
un“. Verkið þykir hápunktur hippa-
rokkskeiðsins ásamt „Magic key“
með Náttúru. Nú eru liðin tuttugu
ár síðan Lifun kom fyrst út og því
þótti aðstandendum plötunnar rétt
að gefa nýjum kynsióðum tækifæri
á að njóta veiganna. Lifun kemur
út á geisladisk og snældu og hafa
hljómgæðin verið bætt með nýj-
ustu tækjum, en þó er ekkert
hrært upp í upprunalegum fílingn-
um. Það er Geimsteinn sem gefur
Lifun út í annað sinn...
Hljómplötuútgáfan Steinar hef-
ur ekki fyrr gefið út safnplötuna
Bandalög 3, að undirbúningur er
hafinn að Bandalögum 4. Sú skífa
á að koma út um miðjan júní og
eru þar hinir hefðbundnu Steinars-
listamenn á ferð með tvö lög hver.
Sálin, Todmobile, Mannakorn, Ríó
trfó, Sú Ellen og Upplyfting verða
öll á sínum stað, en Ný dönsk
verður líklega ekki með, því áætl-
að er að gefa út svokallaða mini-
Lp plötu með sveitinni í sumar. Á
þeirri skífu verða nokkur frumsam-
in lög og svo tónleikaupptökur.
Hljómsveitin Deep Jimi and
The Zep Creams frá Keflavík er
komin í bæinn og leikur í Púlsin-
um í kvöld og á Tveim vinum ann-
að kvöld. Eins og nafnið bendir til
leikur sveitin lög Deep Purple,
Jimi Hendrix, Led Zeppelin og
Cream og klæðir sig í viðeigandi
fatnað. Hljómsveitarmeðlimirnir
hafa m.a. gert garðinn frægan áð-
ur í suðurnesjarokkbandinu Pan-
dóru.
Annað í boði af lifandi tónlist:
Sniglabandið rokkar á Tveim vin-
um ( kvöld. Sálarháski djassa á
Púlsinum á morgun og eru þetta
síöustu tónleikar þeirra í tónleika-
röðinni „Háskaleg Tónleikaröð“.
Sérstakur gestur verður saxafón-
leikarinn sérstaki Rúnar Georgs-
son. Á miðvikudaginn leikur Meg-
as ásamt Björk og hættulegri
hljómsveit á Púlsinum, og daginn
eftir verður Kakbarett 2007 á ferð
með „fríkað og skemmtilegt" pró-
gramm. Kabarettinn skipa m.a.
gítargoösögnin Björgvin Gíslason
og Ijóðskáldið Kristján Frímann.
verður sviðsframkoman tómleg.
Síðasta lag Maskínunnar var besta
lag þeirra, kraftmikið rokk. Aðrir
Akureyringar, fjórmenningamir í
EXIT spiluðu næst sinn hraða
pönkþungarokkshrærigraut. Kraft-
urinn var mikill, en melódíuna
vantaði sárlega. Söngvarinn Jóhann
Elvar Tryggvason var skemmtilega
svalur og minnti á Einar Öm á yngri
ámm. Eftir stutt hlé steig unglinga-
hljómsveitin MÖMMUSTRAKAR
frá Vestmannaeyjum á svið og flutti
skemmtilegt bítlagmnnskólapopp.
Samsöngur Óskars Haraldssonar og
Gísla Elíassonar, sem einnig lék á
trommur, var góður. Hjómsveitin
leyndi ekki uppruna sínum og verða
verðugir fulltrúar Vestmannaeyja-
fjörsins í framtíðinni. FUNK-
HOUSE frá Borgamesi spilaði
næst. Hér var Guðveig Anna úr The
Evil Pizza Delivery boys sem spil-
aði á fyrsta kvöldinu mætt í annað
sinn. Hún söng ágætlega hið popp-
aða fonk sem Funkhouse spilar.
Hljómsveitin er ennþá nokkuð stirð
og langt í sannan fonkfíling, en með
æfmgunni kemur þetta allt. Siðasta
hljómsveit kvöldsins, TRASS-
ARNIR, hafa verið viðloðandi
Eiðaskóla og vom hér mættir á
þriðju Músiktilraunimar í röð.
Hljómsveitin sýnir vaxandi gæði á
hvetju ári og ef svona heldur áffam
fáum við Wembley-færa sveit eftir
nokkur ár. Trassamir flytja vel spil-
að og kraftmikið þungarokk með
góðum söng Elvars Sigurðssonar.
Lagið „Natas og færilús" var þeirra
lang besta lag, með texta sem
hæddist að þeim guðhrædda hópi
fólks sem sér rokkið sem verkfæri
Kölska til að afvegaleiða ungdóm-
inn. Á meðan stig áhorfenda vom
talin spilaði Risaeðlan sitt skemmti-
lega gleðirokk. Léttara rokk virðist
ekki eiga upp á pallborð Músiktil-
raunagesta, og úrslit kvöldsins urðu
þau að tvær þyngstu hljómsveitim-
ar komust áffarn, Trassamir urðu í
fyrsta sæti og Exit í því öðm.
Daginn eftir, á fostudagskvöld-
ið, var keppt til úrslita. Um 600
manns komu til að horfa á og sá góð
skipulagning og varðsla um að allt
færi samkvæmt áætlun. Þyngstu
hljómsveitir undanúrslitanna höfðu
valist til keppni og því tilvalið að
láta HAM sjá um upphitun. Það var
greinilegt að allar hljómsveitimar
komu vel æfðar og sterkar til leiks.
Eina popp kvöldsins flutti hljóm-
sveitin Durkheim frá Akranesi. Þeir
nutu aðstoðar söngkonu og básúnu-
leikara og er hér komin mjög
skemmtileg sveit sem fær vonandi
að blómstra í framtíðinni. En það
var þungarokkið, sem átti hug og
hjörtu áhorfenda. Strigaskór Nr. 42,
Trassamir hrepptu annað sæti. Mynd: Björg.
Mortuary og Infusoria fluttu þungt
dauðarokk, aðeins léttara rokk og
með lengri sólóum fluttu Trassamir,
Möbelfacta og Nirvana fluttu létt
melódískt rokk, en því miður með
engum textum, og Exit spilaði hratt
raslatunnurokk. Þegar atkvæði
gesta vora talin spilaði HAM aftur,
og fimm manna dómnefnd, sem
hafði 50% vægi á við gesti, bar
saman bækur sínar. Urslitin í ár
urðu þau að Infusoria bar sigur úr
býtum og Trassamir urðu í öðra
sæti. Sveitimar fá báðar hljóðverst-
íma að launum. Mortuary urðu í
þriðja sæti og fá gjafakort ffá Skíf-
unni. Ólafur Þór Olafsson úr Jónat-
han var kosinn efnilegasti gítarleik-
ari keppninnar af útsenduram Nýja
Gítarskólans og fær að launum gít-
artíma hjá skólanum og Tónlistar-
skóli Eddu Borg valdi Hlyn Aðils
besta hljómborðsleikarann. Hlynur
spilar á hljómborð með dauðadisk-
ósveitinni No Comment, auk þess
að syngja og spila á gítar með
Strigaskóm Nr. 42. Að Músíktil-
raunum loknum er ljóst að þungt
rokk er vinsælasta tónlistin hjá ung-
mennum landsins. Staðreynd sem
ýmsir, þ.á m. útvarpsstöðvar, eiga
erfitt með að kyngja. Gæði hljóm-
sveita á þessum níundu tilraunum
vora mikil og vonandi verða
Músiktilraunir Tónabæjar fastur
liður lengi áffam.
-Gunni
Einfrumungar með bifhár
Infusoria, hinir nýbökuðu sig-
urvegarar Músiktilrauna, æfa í rusl-
aralegum kjallara í Réttarholts-
skóla. Þar vora Gaui og Gísli einu
sinni nemendur. „Við eram undir
raslatunnunum,“ sagði Gísli mér til
leiðbeiningar, „annars rennur þú
bara á hljóðið." Þegar inn var kom-
ið leyndi hávaðinn í einni komp-
unni ekki innihaldinu; Infusoria
vora að æfa sitt ffábæra dauðarokk.
Tvær táningsstúlkur sátu hugfangn-
ar í einu hominu og rótarinn, ávallt
viðbúinn, tíndi upp kjuða sem Kalli
trommari missti í allar áttir í æs-
ingnum. Ég hlustaði á nokkur lög
og svo fórum við upp á gang og
spjöliuðum með langar bunur af
innrömmuðum útskriffamemend-
um í bakgranni. Hljómsveitin var
undir áhrifúm adrenalín-flóðsins
sem myndast þegar rokkað er stíft
og göntuðust og gripu ffam í hver
fyrir öðrum.
- Nú var þungt rokk áberandi
vinsælt á síðustu Músiktilraunum,
hvað er að gerast?
- Já, það er greinileg þunga-
rokksuppsveifla I gangi, samþykja
drengimir, fólk er búið að fá leiða á
gleðipoppinu, eða ógleðipoppinu
eins og við köllum það. Þungarokk-
ið er alltaf að þróast, það kemur
alltaf eitthvað nýtt. Auðarokkið er
nýjasta afbrigðið, og nú er meira að
segja eitthvert fonkþungarokk í
deiglunni. Auk allra þungarokks-
hljómsveitanna sem vora á Músik-
tilraunum má nefna bönd hér í bæn-
um, Gor, Insectary, Morte Morium
og fleiri sem era að fást við svipaða
hluti og við.
- Hvenær byrjuðuð þið að
spila?
- Hljómsveitin hét fyrst Soror-
icide og var stofnuð fyrir rúmu ári.
Gaui Kavaleró og Kóngurinn
(Gísli) ákváðu að stofna hljómsveit.
Þeir keyptu sér skömmu síðar
hljóðfæri og byijuðu að spila. Þetta
var rétt fyrir Músiktilraunimar í
fyrra. Við hefðum getað verið með
og látið hlæja að okkur en ákváðum
að bíða með það í ár. Við höfum æft
Visnuð jörð
Infusoria, sigurvegarar Músiktilrauna '91. - Mynd: Kristinn.
ógeðslega mikið, minnst fjóram
sinnum á viku og á hveijum degi
fyrir tónleika. Fróði kom snemma
inn í myndina frá unglingahljóm-
sveitinni Torture, og þegar fyrsti
trommarinn hætti i nóvember, einni
viku fyrir tónleika, fengum við
Kalla í staðinn. Honum var kennt
prógrammið á þremur dögum og
náði að klúðra því glæsilega á
næstu tónleikum. Um þetta leyti
höfðum við breytt nafninu í Infu-
soria.
- Sem þýðir hvað?
- Skólpskordýr, einffumungur
með bifhár. Utskýringamar era jafn
margar og orðabækumar sem við
flettum upp í.
Kölski fer noröur og niöur
- Nú fylgir oft ægileg karl-
mennskudýrkun þungarokkinu.
Hvar stendur Infusoria?
- Einn okkar þyrffi hárkollu,
samþykkja drengimir glottandi og
benda á Fróða. Kalli á líka hundaól
og ætlaði einu sinni að spila ber að
ofan. En annars eram við langt í frá
karlmennskan uppmáluð. Kalli var
að vísu dálítið karlmannlegur einu
sinni, segir Gaui, hann var að
prjóna á 50 cc skellinöðra en datt á
rassinn... Hláturinn bergmálar á
ganginum, en Kalli mótmælir: Nei,
ég datt ekkert, ég missti bara hjólið
undan mér þegar ég rakst á gang-
stétt.
- Þungarokkið er líka oft tengt
HELGARVAGG
Umsjón:
Gunnar L.
Hjálmarsson
við djöfladýrkun. Er Satan á æfmg-
um hjá ykkur?
- Kölski má fara norður og nið-
ur. Hann er ekki á okkar bandi.
Hann er jafn ótrúlegt fyrirbæri og
Guð og allt kjaftæðið í Biblíunni.
Við trúum ekki á neitt. Þessu trúar-
ofstækisfólki hlýtur að leiðast
voðalega mikið. Það er samt ljóst
að mjög auðvelt er að slá í gegn
með einhveijum öfgafulum Satans-
boðskap. Við yrðum miklu þekktari
hér á Iandid ef við Iétum taka
myndir af okkur með dauðar kindur
og öftiga krossa. Þama er djöfla-
hljómsveitin sem heldur blóðugar
tónleikaorgíur til heiðurs Satan,
myndi fólk segja. En við höfum
ekki áhuga. Djöflatrúarvitlcysan
getur samt oft orðið dálitið hlægi-
leg.t.d. þora meðlimir Decide ekki
að fljúga vegna nálægðar við Guð!
- Segið þið mér frá vinnu-
brögðum hljómsveitarinnar.
— Gítarleikaramir, Gaui og
Fróði, semja flest lögin, en Gísli
kemur stundum með lög líka. Allt
sem við spilum er þríritskoðað af
okkur, og ef eitthvað hljómar kunn-
uglega fer það beint I raslatunnuna.
Við breytum allavega einni nótu í
hverju riffi sem við stelum! (Hlát-
ur). Við eram mjög afkastamiklir
og ný lög hrannast upp. Við eram
að vinna að því að útsetja lögin
okkar meira. Lélegar útsetningar
hafa oft háð íslenskum þungarokk-
sveitum. Textamir koma frá Gísla
og fjalla um ýmis mál. Á Músiktil-
raununum pössuðum við upp á að
hafa allt á íslensku. Textamir era
um hluti eins og vímuefni, Persa-
flóastriðið og eitt, „Visnuð jörð“, er
mjög umhverfisvænt lag. Þú getur
birt það ef þú vilt.
Móðurjörð okkar er að deyja
hvers skyldi ábyrgðin vera
mannkyns, alls í heild,
þar á meðal þín lika.
Eiturefnaúrgangur
er grajinn i jörðu
mengun er berst frá borgum
er að eyða okkar skógum.
Við skiljum hér eftir okkur
eyðileggingu stórra svœða
afkomendur okkar
þurfa við þetta að lifa.
Óhugnanleg framtiðarsýn
jörðin orðin að eyðimörk
af okkar eigin völdum
jörðin hefúr nú visnað.
Næstu kynslóðir mannkyns
munu þurfa að horfa uppá
skaðann sem við höfum valdið
þau sjá jörðina deyja.
Visnuð jörð!
Visnuð jörð!
Allir á fötum!
- Nú fékk hljómsveitin 30 stúd-
íótíma I verðlaun á Músiktilraun-
um. Hvað á að gera?
- Við ætlum að taka upp eins
mikið og við getum. Við náum varla
að taka upp heila plötu, fbram alla-
vega ekki mikið á klósettið á með-
an. Við getum auðvitað setið á fot-
um, segir Gaui og hinir hlæja. Skíf-
an mun gefa út eitt lag með okkur á
safnplötu I sumar, og svo verðum
við bara að sjá til með framhaldið.
- Hvað verðið þið að gera eftir
tíu ár?
- Það er enginn vafi að við
verðum að spila. Músikin á svo
stóran sess í okkur. Ég verð vonandi
kominn á knattspymusamning er-
lendis, segir Kalli dreyminn, en hin-
ir púa.
- Við erum oft búnir að segja
þér að hætta í þessu íþróttakjaftæði,
segir ftamlínan, en Kalli svarar:
Fótbolti er góð æfing fyrir tvöfalda
bassatrommu-bítið!
- Gunni
Laugardagur 4. maí 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 23
iLfel iSfl’