Þjóðviljinn - 14.05.1991, Qupperneq 7
IFirktttir
Davíð vildi tilkynningu en
stjómarandstaðan stefnuna
Alþingi var sett í gær. Að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkj-
unni gengu forseti íslands Vigdís Finnbogadóttir og þing-
menn yfir í Alþingishúsið þar sem forseti setti 114. löggjaf-
arþing íslands. Við athöfnina sagði Vigdís að þingsetningin
markaði tímamót þar sem þingið kæmi nú saman fljótlega að af-
loknum kosningum auk þess sem tíi starfa kæmu nú fleiri nýir þing-
menn en nokkru sinni fyrr. Aldursforsetí þingsins, Matthías Bjarna-
son, stýrði fyrsta fundi en honum var frestað til klukkan tvö í dag en
þá verða kosnir forsetar og kosið í nefndir þingsins.
Á þessu sumarþingi stendur til
að afgreiða frumvarp til stjómskip-
unarlaga, sem meðal annars felur í
sér afhám deildaskiptingar þings-
ins, sem og ný þingskaparlög sem
er nauðsynlegt í kjölfar breytingar-
innar.
Til stóð að stefnuræða forsæt-
isráðherra yrði flutt i kvöld en
stjómarandstaðan benti forsætis-
ráðherra á að samkvæmt lögum
ætti að afhenda þingmönnum
stefnuræðuna viku áður en hún er
flutt. Hana verður að flytja áður en
þing hefur setið í tvær vikur. I gær
vildu bæði Olafur Ragnar Gríms-
son, formaður Alþýðubandalags-
ins, og Steingrímur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokksins,
mótmæla þeirri yfirlýsingu Davíðs
Oddssonar að stjómarandstaðan
hefði beðið um frest. Báðir sögðu
að forsætisráðherra hefði einungis
verið bent á að fara ætti að lögum.
Stjómarandstaðan samþykkti að
stytta tímann frá því ræðan verður
lögð fram og þar til hún verður
flutt og fær hana í hendur nú á
fostudag.
Davíð vildi í gærmorgun enn
halda sig við að flytja tilkynningu
sem síðan yrðu umræður um en
stjómarandstaðan hélt fast við að
flytja ætti stefnuræðu. Davíð sagði
í gær að það væri á mörkunum
hvort rétt væri að flytja stefnuræðu
nú þar sem þingið kæmi einungis
saman til að taka á ákveðnum af-
mörkuðum málum en ekki til að
sitja áfram.
„Forsætisráðherra var bent á
það að samkvæmt lögum ætti hann
að flytja stefnuræðu, enda þyrfti
þingið að fá að vita eitthvað um
stefnu ríkisstjómarinnar," sagði
Ólafúr Ragnar.
Líklegt er að um margt fleira
verði rætt á þessu þingi en stjóm-
lagabreytingar. Ólafur Ragnar
sagðist til dæmis halda að stór mál
einsog vaxtahækkanir, samningar
um evrópskt efnahagssvæði og
viðskiptakjarabatinn yrðu rædd áð-
ur en vikan væri á enda.
n
Sigurður Rúnar Magnússon afhendir Þórarni Tyrfingssyni miljón króna ávlsun
frá Verkamannafélaginu Daasbrún. Fyrir myndinni miðri er svo litli álfurinn sem
ertákn fjáröflunarátaks SÁA sem hefst I vikulok. Mynd: Kristinn
Dagsbrún gefur
SÁÁ eina miljón
S gær afhentí Sigurður Rúnar
IMagnússon frá Verka-
mannafélaginu Dagsbrún,
Samtökum áhugafólks um
áfengisvandamálið; SÁÁ
eina miljón króna í byggingar-
sjóð hinnar nýju endurhæfing-
arstöðvar, Víkur á Kjalarnesi.
Það var formaður samtakanna,
Þórarinn Tyrfingsson læknir sem
tók við gjöfinni fyrir hönd SÁÁ.
Bygging endurhæfmgarstöðvar-
innar er nýhafin og er stefiit að því
að flutt verði í nýju stöðina í nóv-
ember næstkomandi. Þar verður
pláss fyrír 30 manns, sem er sami
fjöldi og er nú á Sogni í Ölfusi.
Þar hefur SAA leigt húsnæði af
Náttúrulækningafélaginu undir
endurhæfingarstöð í hátt á annan
áratug. Þeim leigusamningi hefúr
verið sagt upp og verður SÁÁ að
rýma húsnæðið fyrir áramót.
Byggingarverktaki hinnar nýju
stöðvar er verktakafyrirtækið
Álflarós sem bauð lægst í bygg-
inguna, eða um 61 miljón króna.
Með landakaupum, lögnum, vega-
lagningu og fleiru er þó gert ráð
fyrir að heildardæmið hljóði uppá
75 - 80 miljónir króna.
1 vikulok, á fostudag og laug-
ardag hefst sala á ljtla álfmum
svonefnda þar sem SÁÁ safnar fé
til áðumefndra byggingarfram-
kvæmda. Auk álfsins fylgir með í
kaupunum birki- og Iúpínufræ og á
þann hátt getur fólk lagt sitt af
mörkum bæði til mann- og land-
ræktar. -grh
Líkfundur á Steingrímsfjarðarheiði
Björgunarmenn frá Hólmavík
fundu um helgina lík mannsins
sem varð útí á Steingrímsfjarðar-
heiði í vetur ásamt félaga sínum
þegar þeir hugðust fara akandi
frá ísafirði til Reykjavíkur.
Líkið fannst i Lágadal tæpa
Qóra kílómetra frá þeim stað sem
félagamir yfirgáfú bíl sinn. Lík
hins mannsins fannst í vet-
ur.skömmu eftir að leit hófst.
-grh
„Menn munu taka upp önnur
mál hér í þinginu einsog þörf verð-
ur á. Það eru að gerast atburðir hér
í þjóðfélaginu sem þarf að fá svör
við; t.d. hvort hverfa eigi frá stöð-
ugleikastefnunni og fara inn á þá
braut að skila bönkum og fyrir-
tækjum ávöxtunum af þessum
stöðugleika en láta fólkið í landinu
sitja eftir,“ sagði Ólafúr Ragnar.
Þingflokkamir hafa nú allir
kosið sér formenn og er Margrét
Frímannsdóttir formaður þing-
flokks Alþýðubandalagsins sem
áður. Páll Pétursson stýrir þing-
flokki Framsóknarmanna. Ánna
Ólafsdóttir Bjömsson er nýr þing-
flokksformaður Kvennalistans og
Geir H. Haarde er nýr formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins.
Óssur Skarphéðinsson var kosinn
þingflokksformaður Alþýðuflokks-
ins en hann er einn af 26 nýjum
þingmönnum sem taka sæti á þingi
nú.
-gpm
Alþingi var sett ( gær við hátíðlega athöfn. Aö lokinni guðsþjónustu I Dómkirkjunni gengu forseti Islands og þingmenn til
Alþingishússins. Mynd: Jim Smart.
Ur sér gengnir kjamorku-
kafbátar í hafinu milli
Islands og Skotlands
Polaris-kjarnorkukafbátar
hers Bretadrottningar
eru löngu orðnir úr sér
gengnir og lífríki í hafinu
stafar stöðug ógn af úthaldi
þeirra, segir m.a. í rannsóknar-
skýrslu sem samtök Grænfrið-
unga hafa sent frá sér um ásig-
komulag þessara djúpbáta sem
helst eru á sveimi í hafinu milli
íslands og Skotlands.
I skýrslunni, sem nefnist
„Bindum Polaris-bátana við land-
festar“ er því haldið ffam að bresk
stjómvöld tefli á tæpasta vað með
útgerð Polaris-bátanna í þeirri við-
leitni sinni að geta státað af því að
tolla í kjamokukafbátaklúbbi stór-
veldanna. Eðlilegu viðhaldi sé lítt
eða illa sinnt og notkun bátanna sé
mun meiri en ásigkomulag þeirra
bjóði uppá. Bent er á að trekk í
trekk hafi bátamir ekki verið færð-
ir til hafnar til reglubundins við-
halds. Þannig hafi úthald HMS
Resolution verið 10 mánuðir sl. 16
mánuði og þar af hafi hann lengst
verið 16 vikur samfellt í hafi án
þess að koma inn til hafnar.
Annar bátur, HMS Repulse,
hefúr ekki verið gerður sjóklár ffá
því um mitt ár í fyrfa og sá þriðji
HMS Renown hefiir verið til við-
gerðar átján mánuðum lengur en
upphaflega var ætlað.
Polaris - kafbátamir vom smíð-
aðir um 1960. Upphaflega var ráð
fyrir því gert að þeir úreltust á 20
árum, en þar sem bið hefúr orðið á
að ný kýnslóð kjamorkuknúinna
kafbáta, Trident, hafi verið tekin í
gagnið, hafa bresk hermálayfirvöld
affáðið að Polaris-bátamir verði í
notkun ffam á miðjan þennan ára-
tug.
Að sögn Janet Convey, tals-
manns Grænfriðunga í Bretlandi,
býður áframhaldandi notkun Pola-
ris- bátanna upp á stóraukna hættu
á kjamorkuóhappi á höfum úti með
ófyrirsjánalegum afleiðingum fyrir
lífríki sjávar, en talið er að bátamir
séu helst á sveimi í hafinu milli
Skotlands og íslands. -rk
Kj amorkuúrgangur
undir sjávarbotn
Bresk stjórnvöld hafa uppi
áform um að sniðganga al-
þjóðasamþykktir um losun
geislavirkra úrgangsefna með
því að koma þeim fyrir í neðan-
jarðargeymslum undir sjávar-
botni við Dounreay eða Shellafi-
eld.
Þetta segir i tilkynningu frá
starfshópi sem kallar sig Northem
European Nuclear Information
Group eða Kjamorkuupplýsinga-
miðstöð N-Evrópu og hefur aðal-
stöðvar í Leirvík á Shetlandseyj-
um.
Segir í fréttatilkynningunni að
fyrirhugað sé að hafa geymslumar
djúpt undir sjávarbotni og verði
innangengt i þær frá landi.
Fulltrúar Upplýsingamiðstöðv-
arinnar segja að slík geymsluað-
ferð undir sjávarbotni sé ekki
neínd í Parísarsamkomulaginu um
mengun sjávar, sem ísland og
Bretjand eru aðilar að.
Á fundi aðildarríkja Parisar-
samkomulagsins í fyrra bar Ísland
fram tillögu um að reglur yrðu
einnig settar um þessa geymsluað-
ferð, en þær náðu ekki fram að
ganga.
Síðustu forvöð til að skila til-
lögum fyrir fúndinn í ár er 18. maí
næstkomandi, og segir upplýsinga-
miðstöðin það kunni jafnffamt að
vera síðustu forvöð til að tefja
áformin, þar sem þau kunni þegar
að verða ffamkvæmd fyrir fúndinn
1992.
Upplýsingamiðstöðin á Shet-
landseyjum skorar á íslensk stjóm-
völd að taka málið upp á fúndinum
í þessum mánuði og krefjast þess
að öll slík áform verði stöðvuð
þangað til tryggt verði að geisla-
virk úrgangsefni muni ekki leka út
í Norðursjóinn og N-Atlantshafið.
Ráðuneytisstjóra umhverfis-
ráðuneytisins var ekki kunnugt um
það í gær, hvort ísland myndi taka
frumkvæði í þessu máli nú. -ólg.
Síða 7
ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 14. maí 1991