Þjóðviljinn - 14.05.1991, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 14.05.1991, Blaðsíða 8
Saltfiskframleiðendur sjálfum sér verstir Hagnaður til ráðstöfunar hjá Sam- bandi íslenskra fiskframleiðenda, SÍF, eftir síðasta ár nam rúmum 600 miljónum króna, en á vegum þess voru seld 49 þúsund tonn af saltfiski fyrir 12,5 miljarða króna árið 1990. Þó þetta sé um 9% minna magn en árið 1989 nam verðmætaaukningin á milli ára tæpum 23% í krónum talið jafnframt því sem með- alverð á útfluttum saltfiski hækkaði um 35% í krónum á milli áranna 1989 og 1990. Þó árið í fyrra hafi að mörgu leyti verið mjög hagstætt fyrir íslenska saltfiskframleið- endur, hátt verð á mörkuðum, tíðar afskipanir, örari greiðslur, lítið birgðahald, hagstæð gengis- þróun, lág verðbólga innanlands og stöðugleiki í efnahagslífinu, bendir ýmislegt til þess að rekstur saltfiskvinnslustöðva verði erfiðari í ár. Til að mynda er atvinnugreinin þegar rekin með nokkru tapi á fyrstu mánuðum þessa árs, sam- kvæmt upplýsingum frá Samtökum fiskvinnslu- stöðva. Þar kemur margt til, en að mati fram- leiðenda sjálfra er það fyrst og fremst hár hrá- efniskostnaður og inngreiðslur í Verðjöfnunar- sjóð sem eru eitt helsta vandamál atvinnugrein- arinnar auk samkeppninnar við þann fisk sem fluttur er út ferskur og flattur og síðan saltaður ytra. I kapphlaupinu um hráefnið má segja að framleiðendur séu sjálfum sér verstir. Stjómar- formaður SÍF, Dagbjartur Einarsson, orðaði það svo á nýafstöðnum aðalfundi að nær væri að þeir létu spjaldið falla fyrr á fiskmörkuðunum. Baráttan um hráefhið, sem meðal annars er Forsendan fyrir heildstæðri sjáv- arútvegsstefnu er að samkomulag takist um ráðstöfun aflans vegna síminnkandi kvóta, hefur leitt til þess að hráefniskostnaðurinn er sá kostnaðarliður sem vegur langsamlega þyngst í rekstri saltfisk- vinnslustöðva. Hann er talinn vera að meðaltali um 65% af tekjum í stað 50% eins og áður var, en jafnframt er talið að einstök fyrirtæki veiji allt að 75% og jafnvel 80% af afurðaverðinu til hráefniskaupa. Af öðmm helstu málefnum saltfiskframleið- enda má nefna baráttuna gegn Verðjöfnunar- sjóði sjávarútvegsins sem þeir vilja að verði af- lagður. Þess í stað verði stofnaður sveiflujöfn- unarsjóður innan hvers fyrirtækis sem lúti skattalögum. Jafnframt er það mikið hagsmuna- mál fyrir saltfiskffamleiðendur að tollar verði felldir niður á afurðum þeirra til ríkja Evrópu- bandalagsins og að unnið verði markvisst að því að efla saltfiskneyslu í helstu markaðslönd- um SÍF. En síðast en ekki síst að mörkuð verði hérlendis heildstæð sjávarútvegsstefna, en for- sendan fyrir því er að samkomulag náist um ráðstöfun aflans. Þar sem það kann að verða erfiðara í ffamkvæmd en margan grunar er það ekki að ófyrirsynju að Magnús Gunnarsson framkvæmdastjóri SÍF spáir því að miklir um- brotatímar séu framundan í íslenskum sjávarút- vegi og því nauðsynlegt að SIF og framleiðend- ur sjálfir séu sjóklárir undir þau átök sem fram- undan séu, sem geti skipt sköpum fyrir framtíð SÍF. Af heildarbotnfiskafla síðasta árs fóru í sölt- un um 19% eða 128 þúsund tonn og hefur hlut- ur söltunar ekki verið minni síðan 1984. Þess ber þó að gæta að um 15 þúsund tonn af botn- fiski upp úr sjó voru flutt út á síðasta ári sem flattur, ferskur botnfiskur til söltunar erlendis. A síðasta ári var þorskurinn aðaluppistaðan í framleiðslunni eða um 80% sem er þó lægra hlutfail en verið hefúr undanfarin ár, en um 15% af heildinni var saltaður ufsi. Framleidd voru tæp 35 þúsund tonn af flöttum þorski eða rúmum sjö þúsund tonnum minna en árið 1989. Samdrátturinn, sem einkum átti sér stað á ver- tíðinni, nam tæpum 18% eða mun meira en samdrátturinn í þorskaflanum sem minnkaði um 22 þúsund tonn eða 6,2%. Hinsvegar jókst ufsa- afii um 16 þúsund tonn, úr 80 þúsund tonnum árið 1989 í 96 þúsund tonn í fyrra. Rúm 40% af flatta þorskinum fór í SPIG (flattur þorskur af Spánar-, Italíu- og Grikklandsgæðum, en tæp 60% af magninu var af Portúgalsgæðum. Árið áður voru þessi hlutfoll 35% í SPIG á móti 65% sem Portúgalsfiskur. Þá jókst framleiðsla þorsk- flaka um 15% og ufsaflaka um rúm 23%. Hins- vegar minnkaði framleiðsla á þurrfiski. Gæðasamsetning á blautverkuðum þorski í fyrra var á þann veg að 78,5% magnsins fóru í fyrsta o,g annan flokk og AB á móti 72,5% árið 1989. A sama hátt minnkaði hlutfall þriðja og fjórða flokks fisks og CD-fisks; úr 27,5% í 21,5%. Þessa gæðaaukningu má m.a. rekja til hraðari afskipana, aukins hluta tandursfisks sem fór í salt og aukinnar vöruvöndunar i greininni. Þá varð og veruleg breyting á stærðarsamsetn- ingu blautverkaðs þorsks. Hlutfall stórfisks fór úr 37,7% 1989 í 46,6% 1990, millifiskur var um 24% af framleiðslumagninu og smáfiskur 29% en var 39% árið 1989. Þessar breytingar skýra saltfiskframleiðendur á þann veg að mun meira af smærri fiskinum hafi farið til frysting- ar, eins og hann gerði á árunum fram til 1988. Þrátt fyrir góðærið í saltfisknum fækkaði ffamleiðendum úr 329 árið 1989 í 298. Dæmi eru um að gamalgrónir saltfiskframleiðendur hafi þess í stað snúið sér að útflutningi á fersk- um fiski í stað þess að saita hann sjálfir. Á dög- unum birtist einn þeirra á skjánum þar sem hann sagðist aldrei hafa haft það eins gott eins og þegar hann hætti að verka saltfisk og fór þess í stað að flytja út óunnið hráefni. Sem fyrr var stærsti einstaki framleiðandinn innan SÍF, fiskvinnslustöð KASK á Höfn í Homafirði, en alls framleiddu sjö fyrirtæki meira en 800 tonn og samanlagt framleiddu þessi sjö fyrirtæki um 20% af heildarframleiðsl- unni. Um 41% framleiðanda, eða 121 fram- leiddu minna en 25 tonn og samanlögð fram- leiðsla þeirra var 2,4% af heildarmagninu. Þrátt fyrir að vel hafi gengið í saltfiskbrans- anum í fyiTa þá tókst SIF engan veginn að sinna eflirspum eftir saltfiski á Spáni og í Portúgal og varð talsverður skortur í þessum tveimur lönd- um á haustmánuðum. En til Portúgals voru seld 15 þúsund tonn, en mest var selt þangað árið 1988 eða 37 þúsund tonn. Til Spánar voru seld tæplega 14 þúsund tonn miðað við 10 þúsund tonn árið 1989. Sömuleiðs hefði verið hægt að selja meira af fiski til Grikklands. En þar sem talsverður samdráttur varð í söltun smáfisks, enda verð á ferskum og frystum fiski hátt, varð salan til Grikklands aðeins 2.348 tonn, sem er hið minnsta sem þangað hefur verið selt um langt árabil. Þá hafa viðskipti við Holland auk- ist og þá ekki síst við Frakkland. Til þessara landa er ekki einungis seldur blautsaltaður þorskur, heldur einnig ufsi, langa og bútungur. Aukning varð á útflutningi saltflaka í fyrra og vom flutt út 7.030 tonn sem er um eitt þús- und tonnum meira en 1989. Mest varð aukning- in í útflutningi á söltuðum ufsaflökum eða um 750 tonn. Með breyttum þjóðfélagsháttum í Austur-Evrópu hefur myndast mikil eftirspum eflir sjólaxi, en þó einkum í eystri hluta Þýska- lands, en einnig í öðrum löndum A-Evrópu. Eflirspum eftir söltuðum ufsaflökum hefur því stóraukist, en þó svo að framleiðslan hafi líka aukist, vantar mikið uppá að SIF hafi getað sinnt öllum þeim óskum sem borist hafa um kaup og svo er um fleiri saltfiskafurðir. Þá hefúr Dæmi eru um að fyrrum saltfisk- verkendur hafi aldrei haft það eins gott og þegar þeir hófu út- flutning á óunnu hráefni eftirspum eftir keilu-, blálöngu-, en þó sérstak- lega lönguflökum verið talsverð og væri hægt að selja umtalsvert magn af þessum flökum ef nægjanlegt hráefni væri til staðar. Helstu mark- aðir fyrir þessar afúrðir em í Frakklandi og Spáni, en Ítalía er stærsti kaupandinn að keilu- flökum. Útflutningur á saltfiskafurðum í neyten- daumbúðum dróst nokkuð saman í fyrra, miðað við fyrra ár, eða úr 723 tonnum í 624 tonn. Að mati saltfiskffamleiðenda er þó afar mikilvægt að haldið verði áffam að vinna að því þróunar- og markaðsstarfi sem unnið hefúr verið á und- anfomum ámm í þessum efnum. Breyttar inn- kaupa- og neysluvenjur íbúa helstu markaðs- landanna kalla á það að saltfiskur sé á boðstól- um í stórmörkuðum á sama hátt og aðrar mat- vörur. Einkum er nauðsynlegt að leggja áherslu á þróun og vinnslu útvatnaðra og frystra salt- fiskafurða í neytendaumbúðum svo og í stærri einingum. Að öðrum kosti er hætta á að yngri neytendur tapist úr hópi saltfiskneytenda og hefðin fyrir saltfiskneyslu dvíni og jafnvel hverfi með þeirri kynslóð sem nú er á miðjum Verðbólgan 7,7% Síðastliðna tólf mánuði hefúr visitala framfærslukostnaðar hækkað um 5,8%. Undan- fama þijá mánuði hefúr vísi- talan nækkað um 1,9% og jafngildir sú hækkun 7,7% verðbólgu á heilu ári. Vísitala ffamfærslukostnaðar reyndist vera 1,2% hærri í maí en hún var í april, sam- kvæmt útreikningi Kauplags- nefndar. Að mati hennar er vísitalan 0,56% yfir viðmið- unarmörkum kjarasamninga. Af 1,2% hækkun vísitölunnar frá apríl til maí stafa um 0,5% af árshækkun iðgjalda bifreiðatrygginga. Verðhækk- un matvöm olli um 0,2% hækkun og verðhækkun ým- issa vöm- og þjónustuliða olli um 0,5% hældcun á vísitöl- unni. -grh Áhrif nudds á höfuðverk Öm Jónsson skól^stjóri Svæðanuddskóla Islands ræð- ir um nudd og áhrif þess á lækningu höfuðverkjar í Hlaðvarpanum við Vestur- götu í Reykjavík annað kvöld, miðvikudag, kl. 20.30. Það em Mígrensamtökin sem standa fyrir þessum fræðslu- fúndi. Aðalnindur samtak- anna var haldinn í mars. Stjóm þeirra skipa Guðný Guðmundsdóttir formaður, Hrafnhildur Þorgrímsdóttir ritari, Bima Bjamadóttir gjaldkeri og Regína Ingólfs- dóttir og Anna Sjöfn Sigurð- ardóttir meðstjómendur. Gestafundur Kvenfélags Kópavogs Kvenfélag Kópavogs verður með gestafúnd í Félagsheim- ilinu annaðkvöld, miðviku- dag, kl. 20.30. Boðið verður upp á tískusýningu, danssýn- ingu, happdrætti og kaffiveit- ingar. Allar konur í Kópavogi velkomnar. Heilagramanna- sögur frá síomiðöldum Marianne E. Kalinke prófess- or við Illinoisháskóla í Ur- bana í Bandaríkjunum flytur opinberan fyrirlestur um heil- agramannasögur ffá síðmið- öldum í boði Stofnunar Sig- urðar Nordals, á morgun, miðvikudag, kl. 17.15 í Veit- ingastofunni í Tæknigarði við Dunhaga. Marianne hefur skrifað mikið um riddarasög- ur, m.a. bókina Bridal-Quest Romance in Medieval Ice- land, og gefið út Möttuls sögu. Hún vinnur nú að rann- sóknum á heilagramannasög- um hér á landi. Fyrirlesturinn nefnist: „An Icelandic hagio- graphy on eve of the refor- mation“. Bragi Guð- brandsson í fé- lagsmálaráðu- neytið Bragi Guðbrandsson félags- málastjóri Kópavogs hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur fé- lagsmálaráðherTa. -saf ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 14. mal 1991 Síða 8

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.