Þjóðviljinn - 14.05.1991, Síða 15
A Umsjón Sif Gunnarsdóttir
Riddarinn
rómantíski
Regnboginn
Cyrano de Bergerac
Leikstjóri: Jean-Paul Rappeneau
Framleiðendur: René Cleitman & Mich-
el Seydoux
Handrit: Jean-Paul Rappeneau & Jean-
Claude Carriere eftir Ieikriti Edmond
Rostand
Aðalleikarar: Gerard Depardicu, Anne
Brochet, Vrncent Perez, Jacques Weber
ofl.
Það er ekki auðvelt að skrifa um
eitthvað jafn stórkostlegt og mynd
Rappeneau um riddarann róman-
tíska Cyrano de Bergerac, og ég veit
ekki alveg hvar ég á að byija. Cyr-
ano var uppi á sautjándu öld. Hann
var hermaður, rithöfundur og heim-
spekingur. Hann var frjálslyndur
maður á sínum tíma, efaðist um
trúna og ögraði reglum samfélagsins
um kynlifshegðun. Hann hlýtur að
hafa verið óvenjulegur maður því að
strax í lifanda lifi voru sagðar marg-
ar sögur um sérstæðan lífstíl hans og
hugmyndir. Margar af þessum sög-
um eru uppistaðan í leikritinu sem
Edmond Rostand skrifaði um hann
seint á nitjándu öld. Kvikmyndin
byggir á leikritinu sem hefur verið
geysivinsælt í Frakklandi og víðar.
Cyrano er hetja, hann berst einn
við hundrað manns og hlýtur aðeins
eitt lítið sár í bardaganum. Undir-
menn hans í herliðinu dýrka hann.
Hann rekur leikara út af sviði fyrir
fullum sal af áhorfendum, af því
Cyrano finnst hann of feitur til að
leika. Cyrano skorar svo á hvera
þann sem er ósammála honum til
einvígis, og þegar einn loksins gefúr
sig fram þá leikur Cyrano ser að
honum og semur kvæði um bardag-
ann á meðan hann slæst. Því Cyrano
er ástríðumikið skáld og á jafn auð-
velt með að koma fyrir sig orði
hvort sem hann er að lýsa bardaga
eða að tjá fallegri konu ást sína. En
þrátt fynr alla þessa kosti er eitt sem
stendur í vegi fyrir hamingju hans,
hann er með of stórt nef. Hann þjáist
fyrir þetta lýti og til þess að nalda
sjálfsvirðingunni er nann bestur í
öllu öðru, enginn getur móðgað
hann nema hann sjálfur, enginn hef-
ur meiri orðaforða en hann til þess.
Til að lifa af óhamingju sína sveipar
hann sig orðum og elskar þau og
verður lika ástfangmn af konu sem
elskar orð.
Hann elskar frænku sína Rox-
ane, undurfagra stúlku sem þykir
vænt um ffænda sinn en er ástfangin
af hinum myndarlega Christian sem
er undirmaður í herdeild Cyranos.
En Christian kann ekki að koma fyr-
ir sig orði og ástarævintýrið virðist
dauðadæmt. Þá býður Cyrano
Christian að skrifa Roxane bréf i
hans nafni, segir að það sé góð æf-
ing fyrir öll skáld. Christian tekur
boðinu og Cyrano skrifar svo
ástriðufúll og falleg bréf að stúlkuna
svimar af ást. Hún elskar tvo menn í
einum en veit ekki af því og getu(
þvi aldrei höndlað hamingjuna. I
einu frægasta atriði þessa leikrits
standa Cyrano og Cnristian fyrir
neðan svalir hennar í skjóli nætur og
Cyrano talar til hennar sjálfur úr
myrkrinu en það er Christian sem
kliffar upp til nennar og fær kossinn
á meðan Cyrano stendur í skuggan-
um. Hann undirbjó ánægjuna en
Christian nýtur hennar. Þetta er
hjartaskerandi fallegt atriði og þann-
ig er myndin.
Rappeneau stýrir einvala liði
leikara af dirfsku. Gamall rímaður
textinn verður ungur á ný, bardaga-
senurnar eru ótrúlegar, sverðin
höggvast á með þvílíkum ofsa að
þegar þau draga blóð getur maður
svarið að það se ekta.
Depardieu er jafn sannfærandi
þegar nann þeytist ofsafenginn um
eins og ljón og þegar hann játar ást
sína af innri ástriðu sem er jafn of-
saleg og bardagi í einlægni sinni.
Anne Brochet leikur fínlega á móti
honum, og þau skapa ógleymanlegar
andstæður. Vincent Perez leikur
Christian og gerir það vel. Hann er
lengi sjálfúmglaður vegna yfirburða
útlits síns en bijóstumkennanlegur
þegar hann áttar sig á því að Roxane
er farin að elska hann aðeins vegna
orðanna sem hún heldur að hann
eigi og ekki vegna þess hvað hann
er sætur.
Stundum hafði ég grun um að
ffanski textinn kæmist ekki alveg til
skila í íslensku þýðingunni, enþað
hefúr lika eflaust verið þrekvirki að
koma honum fyrir á tjaldinu svo að
vel færi. Þetta er stórfengleg mynd
um ást, hetjudáðir, stolt og drauma.
Það væri grátlegt að missa af henni.
Sviðsframkoma Jim Morrison þótti mjög lifleg.
Konungur eðlanna
Stjömubíó
Doors
Leikstjóri: Oliver Stone
Handrit: Randall Johnson & Olivcr
Stone
Framleiðendur: Bill Graham & Sasha
Harari
Kvikmyndun: Robert Richardson
Aðalleikarar: Val Kilmer, Meg Ryan,
Úlfur
Bíóborgin
Eymd (Misery)
Leikstjóri: Rob Reiner
Handrit: William Goldman cftir skáld-
sögu Stephen King
Framlciðendur: Andrew Schcinman &
Rob Reiner
Aðalleikarar: James Caan, Kathy Bat-
es, Richard Famsworth
Það segja mér Stephen King
aðdáendur að yfirleitt séu myndir
sem eru gerðar eflir bókunum hans
hálfgert klúður. Þó voru margir
ánægðir með hvemig Rob Reiner
kom bókinni The Body yfir á hvíta
tjaldið sem þá hét Stand by me.
Kyle Maclachlan, Kcvin Dillon, Frank
Whaley, Kathleen Quinlan ofl.
Það hafa eflaust margir beðið
eftir þessari mynd með óþreyju, enda
er hún lengi búin að vera í btgerð og
margir leikstjórar og leikarar hafa
verið orðaðir við hana. Oliver Stone
hreppti réttinn að lokum sem er að
Reiner tekst nú aftur á við King
með myndinni Eymd með ágætum
árangri fannst mér, en ég viður-
kennt fúslega að ég hef litla sem
enga þekkingu á skáldsögum King.
James Caan leikur rithöfund
sem situr fastur í því að skrifa met-
sölubækur um konuna Misery sem
er uppi á 19. öld. Hann er orðinn
leiður á henni og lætur hana deyjaj
bók nr. 7 eða 12 eða eitthvað. Á
meðan sú bók er að koma út situr
hann í fjallakofa (um miðjan vetur)
og er að ljúka við „alvarlega skáld-
sögu“ sem á að koma gagnrýnend-
ura á óvart og lyfta honum á hærra
rithöfúndarplan. En á leið þaðan til
mörgu leyti við hæft vegna þess að
hann virðist vera að sérhæfa sig í
sjöunda áratugnum. Hann var líka
mikill Doors aðdáandi og Jim Morri-
son ku hafa verið að lesa handrit eft-
ir Stone þegar hann dó í París 1971.
Þegar Morrison var lítill strákur
var hann í bíl með foreldrum sínum
og þau óku framhjá bílslysi þar sem
borgarinnar lendir hann í stórhríð
og keyrir útaf. Þetta gerist alveg í
byrjun myndarinnar svo að honum
er náttúríega bjargað af einhverri
óþekktri persónu.
Þegar hann rankar við sér ligg-
ur hann í huggulegu herbergi hjá
fyrrverandi hjúkrunarkonu (Kathy
Bates). Hún bjargaði lífi hans og
gerði að beinbrotunum með mestu
anægju því hún er nefnilega heitur
aðdaanai hans og elskar Misery
bækumar. Hún segir að allir vegtr
séu lokaðir og síminn úr sambandi
svo að hann geti ekki haft samband
við neinn, en hún skuli sjá um
hann þar til hann komist á sjúkra-
í sauðargæru
margir indiánar höfðu farist. Morri-
son segir að sálir dauðu indíánanna
hafi lent í hans eigin sál. Stone notar
tiessa sögu óspart í myndinni, víga-
egir inaíánar birtast stundum við
hhð Morrison án nokkurrar sýnilegr-
ar ástæðu.
Myndin sýnir feril hljómsveitar-
innar Doors og aðalsöngvara hennar
frá því að hún tekur til starfa árið
1966 og þar til Morrison deyr 1971.
Hún lýsir drykkjunni, dópinu, part-
íunum, konunum, galdravafstrinu og
tónlistinni. Þegar myndin hefst er
Morrison að hætta í kvikmynda-
skóla, hann er undurfagur og verður
um leið og hljómsveitin kemst á
toppinn eitt af aðalkyntáknum rokks-
ins. Hann var heillaður af frægðinni,
en sjálfseyðingarhvötin var sterkari.
Að lokum var hann orðinn svo
drykkfelldur og dópaður að tónleikar
hljómsveitarinnar voru orðnir tómt
klúður. Morrison vissi ekki lengur
hvað áhorfendur vildu og því síður
hvað hann vildi sjálfur. Á tónleikum
í Miami 1969 var allt komið í óefni
og Morrison var ásakaður um að
hafa sýnt áhorfendum kynfærin á séj
og dæmdur til fangelsisvistar. Á
tveim árum hafði söngvari Doors
fallið frá því að vera klárasti, kyn-
þokkafyllsti og hættulegasti maður
rokksins og orðinn örvæntingarfullur
og drykkfelldur trúður. Hann hafði
lengi trúað því að dauðinn væri feg-
ursti hluti lífsins og hann dó með
bros á vör.
Væri Doors jafn vinsæl í dag ef
Morrison hefði lifað? Hann dó, og
með hjálp hljómsveitarinnar, vina og
ævisöguritara hefur hann lifað áfram
sem hetja. Hann getur ekki spillt að-
dáuninni með nýni tónlist eða von-
lausum yfirlýsingum sem sýna
stöðnun en ekki þroska. Dauður er
Jim Morrison að eilífú hetja, að ei-
lífu elskaður, að eilífu söluhæfur.
Hann var að mörgu leyti hinn full-
komni uppreisnarmaður, engar pólit-
ískar yftrlýsingar, aðeins andúð á yf-
irvaldi, foreldrum, lögreglu og rað-
andi kerfi.
Stqne kemur litlu af Morrison til
skila. I myndinni er óhófið og sjálfs-
eyðingarhvötin ráðandi. Hljómleika-
atriðin eru stórfengleg, enda tónlistin
engu lík og atriðin með hljómsveit-
inni oft sannfærandi. En atriðin sem
lýsa samskiptum Morrison við kær-
ustuna sína Pamelu og aðrar konur
eru flöt og segja fátt markvert.
Kvikmyndatakan er áhrifamikil
bæði á hljómleikunum og í vel
heppnuðum sýruatriðum i eyðimörk-
inni.
Val Kilmer tókst hið ómögulega:
að skila trúverðugum Morrison á
hvíta tjaldið. I byijun myndarinnar er
maður eftns, en svo er eins og hann
færist alltaf nær persónunni og í lok-
in eru þeir orðntr eitt. Aðrir hljóm-
sveitarmeðlimir (Kyle Maclachlan,
Frank Whaley, Kevin Dillon) skila
líka vel hálf einhliða hlutverkum
(þeir eru alltaf með áhyggjusvip).
Ekki er sömu sögu að segja um Meg
Ryan sem leikur Pamelu, annaðhvort
hefúr Stone alveg gleymt henni eða
þá að hún ræður ekki við hlutverkið.
En þrátt fyrir ýmsa vankanta eins
og yfirborðslega persónusköpun þá
er myndin vissulega þess virðt að sjá
hana. Allir þekkja seiðmagn tónlist-
arinnar og Val Kilmer engist ná-
kvæmlega eins og eðlukóngurinn.
hús. Otrúleg heppni? Nei. Þegar
þessi elskulega h)úkka kemst í síð-
ustu Misery bokina og les um
dauða hetjunnar sinnar breytist hún
úr miskunnsama Samverjanum í
óargadýr og rithöfundurinn á fót-
um (sem eru brotnir) fjör að launa.
Eymd er sumpart óvenjuleg
spennumynd, - hveraig kemst fót-
brotinn metsöluhöfundur undan
vi að lífga söguhetiu við fyrir
rjálaða hjúkku! En nún er samt
fyrirsjáanleg, enginn efast um
hveratg hún endar. Aðalskemmt-
unin (spennan) felst í geðsveiflum
hjúkkunar. Bates skilar hlutverki
sínu með prýði, þó mér finnist
kannski óþarfi að láta hana fá Ösk-
ar fyrir. James Caan er traustur
leikari, en það er Richard gamli
Farnswortn sem puntar upp á
myndina í hlutverki lögreglustjóra
í fjöllunum sem trúir ekki að rit-
höfúndurinn hafi farist í bílslysinu.
Reiner nær sér sérstaklega vel
á strik í atriðunum milli Caan og
Bates þegar þau eru ein saman í
huggulega húsinu og jólakortastíll-
inn á umhverfinu gerir óhugnaðinn
enn sterkari.
Sem sagt ágætis skemmtun, að
minnsta kosti fyrir þá sem ekki eru
forfallnir King aðdaendur.
síða 15 ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 14. maí 1991
. ... fJQí p .t1 i iiom .'i/íiLji
t‘ . I.OIO