Þjóðviljinn - 14.05.1991, Page 19
Ekki fyrir feita
Á Kjarvalsstöðum er hin gagn-
merkasta sýning á verkum fjöl-
listakonunnar Yoko Ono. Sjálft
anddyrið inn i sýningarsalinn er
listaverk, hálfgerð smámynd af
völundarhúsi, með rennibraut og
þröngum göngum, sem sumir
liggja i hring en aðrir inn í sýning-
arsalinn. Krakkamir kunna vita-
skuld vel að meta þetta listaverk,
sem fyrir þeim er einskonar leik-
grind og iðulega liflegt um að
vera. En sá galli er á gjöf Njarðar,
að feitt fólk lendir í bölvuðu basli
við að komast inn á sýninguna,
þvi salurinn er ekki opinn annars-
staðar. Sá sem þetta ritar heim-
sótti sýninguna um helgina og
varð vitni að þvl að eldri maður,
með myndariega vömb, spigspor-
aði vandræðalega fyrir framan
anddyrið, hristi að lokum kollinn
og snéri burt. Vissulega er hægt
að snúa sér að þeim sem sitja yfir
sýningunni og biðja um að neyð-
arútgangurinn verði opnaður, en
dulltið er það vandræðalegt. Þá
virðist ekki ætlast til þess að þeir
sem eru hreyfihamlaöir komist
inn á sýninguna heldur, nema (
gegnum neyðarútganginn. Varia
hefur friðarsinninn Yoko ætlað að
mismuna fólki með þessu verki
sínu og verður að ætla sem svo
að þarna hafi hugsunarieysi ráðið
gjörðum hennar, enda manneskj-
an smávaxin og nett og kæmist
hæglega i gegnum flest göt lista-
verksins. Hinsvegar gæti starfs-
fólk Kjarvalsstaða haft neyðarút-
ganginn opinn, svo þeir sem ekki
hafa áhuga á að troða sér I gegn-
um listaverkiö, eða geta það ekki,
þurfi ekki að niðurlægja sig með
þvf að hverfa á braut eða biðja
um sérstaka þjónustu.
Stígið ekki á verk
sem á að stíga á
Meira um sýningu Yoko. Eitt verk-
anna á sýningunni ber heitið
„málverk til að stiga á“ og liggur
það á gólfinu og þv( kjörið til þess
að stíga á það, hafi fólk áhuga á
því. Hinsvegar hefur verið sett
skilti á (slensku ofan á verkið.
„Bannað að stfga á verkið“ stend-
ur þar.
Stigi til að príla upp
sem ekki má príla upp
Eitt þekktasta verk Yoko Ono er
stigi, sem stendur á gólfi og fyrir
ofan hann er hvítt léreft og hangir
stækkunargler við strangann. Á
striganum er örsmátt orð. Lista-
verkið byggist þvl upp á því að
gestir prdi upp stigann og lesi
orðið í gegnum stækkunarglerið.
Þá blasir við þeim enska orðiö
„Yes“ eða já. Verkið er þekktast
fyrir það að John heitinn Lennon
prilaði upp stigann áður en hann
kynntist Yoko og hreifst af hinum
jákvæða boðskap stigans. Það
var upphafið á ástarsögunni sem
allir þekkja. En í stiganum á Kjar-
valsstöðum er miði sem á stend-
ur: „Bannaö að klifra ( stiganum".
Óþolandi þulur
Fjölmiðlaskrif DV eru oft hin
kostulegustu. (gær var m.a. fiall-
að um sýningu sjónvarpsins á
Gullæöi Chaplins. Þar stóð: „I
stað þess að vera með texta við
kvikmyndina sem er þögul fór
óþolandi þulur með textann og
auk þess var mikil ofnotkun á tón-
listinni. Lá við að það væri búið
að eyðileggja þetta meistaraverk
kvikmyndanna." Fjölmiðlaskríbent
DV skal bent á, að þessi „óþol-
andi þulur" var Charlie Chaplin -
og höfundur tónlistar var Chariie
Chaplin, sá hinn sami og bjó til
þetta meistaraverk kvikmynd-
anna.
RÚSÍNAN
Myntubitar, veiðipylsa,
léttreykt rauðvínslæri
og ávaxtaperlur
Matvælaiðnaður er mesta gróskugreinin í íslenskum iðn-
aði, sagði Olafur Davíðsson ffamkvæmdastjóri Félags ís-
lenskra iðnrekenda á kynningu á nýjungum í kjöt- og sælgæt-
isframleiðslu nýlega.
Framleiðendur, sælkerar og meistarakokkar voru mættir
til að kynna og kynnast þvi nýjasta sem sælgætis- og kjöt-
ffamleiðendur hafa upp á að bjóða. Síðastliðinn áratug hafa
innlendir sælgætisffamleiðendur átt í harðri samkeppni við
erlenda framleiðendur, en þrátt fyrir það hafa þeir haldið um
helmingi af markaðinum, enda eiga Islendingar heimsmet i
gotteríisáti. Kjötiðnaðurinn hefur ekki átt í samkeppni við er-
lenda kjötffamleiðendur, en hins vegar keppt við alls kyns
aðra matvöru, bæði innlenda og innflutta. Að sögn matvæla-
ffæðinga og - ffamleiðenda sem staddir voru á kynningunni
hafa orðið miklar breytingar á ffamleiðslu kjötvöru. T.d. var
fyrir nokkrum árum hætt að nota gervilitarefni í kjöt, og á ís-
landi eru í gildi mjög strangar reglur um þau efni sem notuð
eru i vinnslunni. Staðlar þeir sem stuðst er við í framleiðsl-
unni hér eru svipaðir þeim sem gilda á hinum Norðurlöndun-
um, að Danmörku undanskilinni, þar sem gilda EB staðlar
sem ekki eru jafnstrangir og hérlendis.
Greinilegt er að mikil áhersla hefur verið lögð á vöruþró-
un að undanfömu og er úrval miklu meira nú en fyrir nokkr-
um ámm, sagði Hilmar B. Jónsson matreiðslumaður. Sigmar
B. Hauksson sælkeri sagði þær nýju áleggspylsur sem nú
væm í boði hérlendis jafnast á við þær bestu erlendis, og
hreinn óþarfí væri orðinn að láta grípa sig í tollinum með
smyglaða spægipylsu. Hann sagði mikilvægt að kynna út-
lendingum það að hér færi ffam íjölbreytt ffamleiðsla á há-
gæðamatvöm.
Besti bakhjarl islenskrar matvælaframleiðslu em íslenskir
neytendur, sagði Olafúr Davíðsson. Matvælaframleiðendur
þekkja þarfir og smekk neytenda hér betur en erlendir ffam-
leiðendur. Sigmar B. Hauksson tók undir þetta, og sagði að
það hefði sýnt sig í Danmörku að þrátt íyrir mikinn innflutn-
ing af matvöm frá EB-löndum kysu danskir neytendur inn-
lenda vöm annarri fremur. Þá nefndi hann dæmið um ís-
lensku stúdentana erlendis sem biðja um að fá sendar Ora-
baunir í dós að heiman, því þeim em þeir vanir og likar best.
Aætlað er að endurtaka slíkar kynningar í framtíðinni, og
verða þá nýjungar annarra greina dregnar fram í dagsljósið.
BE
Sigmar B. Hauksson sælkeri bragðar á þv( nýjasta nýja ( pylsu-
gerð (slenskra kjötframleiöenda. Mynd: Kristinn.
Q
»81
■sac
c/>
in
Síða 19
ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 14. maí 1991