Þjóðviljinn - 06.06.1991, Qupperneq 2
Þegar hemaðarbandalag
skreppur saman
Heimur samtímans er fullur með þverstæður. Flestar
fréttir eru slæmar, einkum þær sem varða umhverfi
mannsins og ástandið í svonefndum þriðja heimi. En
sem betur fer eru ekki allar fréttir ískyggilegar. Sumar
geta boðað margt gott. Ein er sú að hemaðarbandalög
þau sem skiptu heiminum í tvennt eru orðin verkefnalaus
ef svo mætti segja.
Varsjárbandalag með öllu úr leik. Og Nató í tilvistar-
kreppu. Vegna þess að óvinurinn er týndur: Sovétríkin
em ekki lengur það „heimsveldi hins illa“ sem getur hald-
ið bandalaginu saman, tiyggt því fé og réttlætt vígbúnað-
arkapphlaupið. Sovétríkin reyndust hvorki það iðnaðar-
veldi né herveldi sem gert var ráð fyrir í opinberri stefnu
Nató. Margskonar afvopnunarsamningar hafa snúið við
þeirri þróun sem var megineinkenni eftirstríðsáranna:
fleiri vopn og skelfilegri í dag en í gær.
Þetta þýðir svo um leið, að Nató vantar tilverugrund-
völl. Um þetta voru vamarmálaráðherrar Natóríkja að
ræða í Brussel ekki alls fyrir löngu. Þeir tóku fróðlegar
ákvarðanir, eins og síðar verður vikið að, en ofmælt væri
samt að segja að þeir hefðu leyst tilvistarhnútinn. Eins og
bandaríska vikuritið Newsweek kemst að orði um fund-
inn: sem fýrr er Nató feiknarieg stríðsmaskína sem veit
ekki hvert hún á að snúa sér. Nató miðast sem fýrr við
hemaðaraðgerðir í Evrópu og á Norður-Atlantshafi - að-
gerðir sem eru orðnar næsta ólíklegar. Sum aðildam'ki,
ekki síst Frakkland, hafa áhuga á að Evrópuríkin verði
meira út af fyrir sig um vígbúnað. Önnur (eins og t.d.
Bretland) vilja halda bandarískum her áfram I Evrópu.
Bandaríkin vildu helst að Natóríkin kæmu sér upp sér-
stökum herafla sem hægt væri að senda til einhverskon-
ar alþjóölegra lögreglustarfa, til dæmis við Persaflóa.
Ráðherrafundurinn sem fýrr var nefndur, hann tók
ákvarðanir sem lúta að því að herafli Nató í Evrópu skuli
skorinn niður um þriðjung, eða niður í um miljón manns.
Mestur verði niðurskurðurinn á bandarískum herafla í álf-
unni - úr 320 þúsund manns í um það bil 100 þúsund.
Þessu fylgja og stórfelldar breytingar á öllum hemaðar-
áætlunum sem byggðust ekki síst á miklum vígbúnaði á
landamærum þýsku ríkjanna sem voru.
Helsta nýmælið hjá Nató verður það að komið verður
á fót 70-100 þúsund manna sveitum til „skjótra við-
bragða“, sem eiga að geta látið að sér kveða „hvar sem
er á Natósvæðinu" innan 72 klukkustunda frá því að
háskamerki eru gefin. Og hér er komið að vísu deiluefni:
hvað er „Natósvæði" á okkar tíma? Sem fyrr segir hafa
Bandaríkjamenn tilhneigingu til að fá Nató með í „lög-
regluaðgerðir" hér og þar um heiminn. En það er engin
samstaða um það meðal Evrópuríkja Nató að skuld-
binda blandaðan herafla frá bandalaginu til aðgerða „ut-
an svæðis". Sem ekki er heldur von: það er ólíklegt að
Bandaríkjamenn og Vestur-Evrópuríki muni um alla
framtíð meta eins „hættuástand" hér og þar í þriðja
heimi, eða hafa sömu hagsmuna að gæta í hverju efni.
Svo er annað: slík „alþjóðalögregla" við hlið bandarísks
herafla, hún staðfesti illan grun margra um að einn meg-
instraumur (megatrend) næstu ára verði vaxandi fjand-
skapur og árekstrar milli „suðurs“ og „norðurs“, milli iðn-
ríkja og þróunarríkja, sem illa una sínum hag í efnahags-
kerfi heimsins.
Enn er margt að ugga í vígbúnaðarmálum. En þess
ber að geta sem gert er: hnignun hemaðarbandalag-
anna sparar fé, sem vonandi er hægt að nýta til þess að
bæta úr neyð og styðja fátæk lönd til sjálfsbjargar. Og á
meðan við bíðum eftir slíkum árangri: við skulum ekki
gleyma að neyðin ber að dyrum á degi hverjum. Nú síð-
ast er ærin ástæða til að sem flestir taki vel undir áskor-
un Hjálparstofnunar kirkjunnar um að landsmenn sleppi
máltíð og gefi andvirðið til aðstoðar við sveltandi fólk í
ÞjÓfíVILJINN
Málgagn sóslalisma þjóöfrelsis og verkalýðshreyfingar
Síðumúla 37 — 108 Reykjavík
Sími: 681333
Símfax: 681935
Útgefandi: Útgáfufélagið Bjarki h.f..
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Ritstjórar: Ámi Bergmann, Helgi Guðmundsson
Ólafur H. Torfason.
Fréttastjórl: SigurðurÁ. Friðþjófsson.
Rftstjóm, skrifstofa, afgrelðsla, augiýsingar: Slðumúla 37, Rvlk.
Augtýsingar: 681310, 681331.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Oddi hf.
Verð f lausasöiu: 100 kr. Nýtt Helgarblað: 150 kr.
Askriftarverð á mánuði: 1100 kr.
%
LIPPT & SKOKIB
Dagblað iðrast synda
Eins og menn vita er það trúar-
atriði hjá mörgu fjölmiðtafólki að
það sé óháð stjómmálum og hags-
munasamtökum. Það sé „bara“ að
miðla upplýsingum. Vald fjölmiðla
sé svosem ekki annað en það
óbeina vald sem þeir hafa með
slíkri miðlun. Og ekki meira um
það að segja.
,,En við vitum öll að þetta er
ekki satt,“ segir sænska borgara-
blaðið Svenska dagbladet í nýleg-
um leiðara. Leiðarinn er skrifaður í
einskonar samviskubiti: blaðið
hefur bersýnilega verulegar
áhyggjur af því að nýr flokkur er
kominn til sögunnar í Svíþjóð.
Einn af þessum svonefndu
„óánægjuflokkum" sem menn
þekkja frá Danmörku (Glistrup) og
Noregi: einhverjir menn ryðjast
fram sem eru sniðugir að spila á
fjölmiðla og hamra á því að þeir
séu hið nýja afl og þeir vilji lækka
skatta og fyrr en varir eru þeir
komnir með svosem tíu prósent af
kjósendum í vasann. Ef ekki meir.
Þessi flokkur heitir „Nýtt lýð-
ræði“. Og Svenska dagbladet, sem
er, sem fyrr segir virðulegt og
borgaralegt, það hefur áhyggjur af
því að þessi flokkur verði full fyr-
írferðarmikill, Og er, beint og
óbeint, að ásaka sænska fjölmiðla
fyrir að beina lil hans fylgi - blátt
áfram með þeirri athygli sem
flokkurinn fær.
Er nýtt sama og
merkilegt?
Blaðið segir á þessa leið: Fjöl-
miðlaheimurinn á sér sína eigin
rökfræði sem pólitíkin er sveigð
undir. Fjölmiðlarnir eru fréttamiðl-
ar og keppa ekki bara um tekjur
heldur og um forystu á fréttamark-
aðinum. Og þá gerist það, segir
Ieiðarahöfundur Svenska dagblad-
et, að „það sem nýtt er verður allt-
af mikilvægara en það sem skiptir
máli“.
Það er af þessum sökum, segir
blaðið, að „Nýja lýðræðið" er svo
mjög í sviðsljósinu. Þar spókar það
sig barasta af því að það er nýtt og
eitthvað öðruvísi en aðrir flokkar:
„Með þessum hætti verður
flokkurinn mikilvægur. Því í speg-
ilmynd íjölmiðla af veruleikanum
kemur Nýja lýðræðið fram sem
hið stóra og ríkjandi fyrirbæri,
meðan gömlu flokkamir sýnast
vera litlir, útúrborulegir, ófróðlegir
og léttvægir.“
Svo sýnist vera
Og fjölmiðlanotendum sýnist
að það sé heilmikið um að vera
þegar oddvitar Nýs lýðræðis og
stuðningsmenn þeirra ganga um og
segja „Við viljum kerfisbreyt-
ingu“.
Loksins er eitthvað að gerast,
segja menn. Gömlu flokkamir em
svo dayfír eitthvað og þreytulegir.
(Hafa Islendingar ekxi heyrt eitt-
hvað svipað við ýmis tækifæri á
liðnum ámm hjá nveijum og ein-
um sem reyndi að hnfsa til sín í
fjölmiðlaleiknum það tromp að
vera ,,nýr“?)
Já, menn halda að eitthvað sé
að gerast, og þó kæra oddvitar Nýs
lýðræðis (segir Svenska dagbladet)
sig hreint ekki um að kafa í pólit-
ískum vandamálum og enn síður
kæra þeir sig um að ^tuðnings-
menn þeirra geri það. I mörgum
veigamiklum greinum heyrist lítið
annað ffá hinum „nýja“ flokki en
nokkrar einfaldar lýðskmmsform-
úlur sem geta kannski þýtt hvað
sem vera skal. Og svo gerist það
að enginn heyrir lengur hvemig
Ingvar Carlsson, forsætisráðherra
og formaður sósíaldemókrata, ger-
ir grein fyrir stórmáli eins og for-
sendum þess að Svjar gangi í Evr-
ópubanaalagið. I fjölmiðlum
hverfur það tal fyrir dálítið glæfra-
legri formúlu Berts Karlsons, eins
helsta höfðingja „Nýs lýðræðis“,
sem hefur líkt pólitíkinni við
krókódíl: „Stór kjaftur og engin
eym“.
Étum skrímslið
að kvöldi
Semsagt: það trausta borgara-
blað Svenska dagbladet er með
samviskubit fyrir hönd fjölmiðla:
þeir hafa sleppt skrímsli lausu.
Eina vonin er svo sú, segir blaðið,
að bráðum hættir Nýtt lýðræði að
vera „nýtt“ og hverfur fyrir ein-
hverju öðm. Leiðarinn segir:
„I fjölmiðlum emm við vön að
éta í kvöldmat þau skrím^li sem
við bjuggum til í dögun. A þessu
lifúm við góðu lífi. Og oklrnr er
skemmt. En það getur verið að
þetta sé ekki eins gott fyrir þann
samnefnara sem við köllum bióð-
félag.“
Verðið á bjórnum
Vendum þá okkar kvæði í
kross, eða kannski er réttara að
segja að við viljum hella því í glas.
Því nú er að segja frá verðkönnun
á áfengi og bjór á veitingahúsum.
Það var verið að segja frá henni í
blöðum í gær.
I stuttu máli sagt: Verðlags-
stoftiun hefúr skoðað hækkun sem
orðið hefúr á áfengi og bjór á veit-
ingastöðum frá því í mars i fyrra.
Niðurstaðan er skýr: hækkunin er
yfirleitt mun meiri en sú sem orðið
hefúr hjá ATVR. Svo dæmi séu
nefúd: meðalhækkun á tvöfoldum
vodk,a er til dæmis 11,5% meiri en
hjá ATVR og meðalhækkun á Eg-
ifs gullbjór í flösku er 17,7%
mein. Af þessy tilefni er það hafl
eflir Georg Olafssyni verðlags-
stjóra að „hækkunin sé mikil mið-
að við aðrar verðlagshækkanir á
iessu tímabili og könnun bendi til
iess að ekki sé um mikla verðsam-
ceppni veitingahúsanna að ræða
varðandi sölu áfengra drykkja“.
Því er og bætt við að verð á
drykkjarfongum á veitingahúsum
hafi verið að hækka jaftit og þétt
frá því álagning á áfengi var gefin
frjáls þann fyrsta október 1989.
Samkeppnin
sem hvarf
Klippari ætlar sér svosem ekki
að hneykslast á þessari verðlags-
pólitík. Ekki reka upp gól eins og
voru víst í Tímanum: Island er
eina landið í heiminum þar sem
bjórglasið kostar fimm nundruð
kall! Borgi þeir sem borga vilja,
stendur þar. En dæmið af veitinga-
húsunum er engu að síður fróðlegt.
Það minnir á einn merkan þátt í
okkar rekstrarlífi: nefnilega þann,
að samkeppnin virkar ekki. Sam-
keppnin sem allir þeir sem velta
kronum og vörum keppast við að
játa ást sína, von og trú um góða
siði og batnandi verðlag, hún á gl-
veg lygilega erfitt uppdráttar á Isa
köldu landi.
Fræg eru dæmin af olíufélög-
unum sem eru að sögn í merkilegri
samkeppni - um eiginlega allt
nema verð. Eða svo hefur lengstaf
verið. En það er kannski ekki við
þvi að búast að samkeppni á sviði
vöru eins og bensíns sé neytendum
holl. Aftur a móti hefði maður ætl-
að að gífurleg samkeppni um veit-
ingahúsagesti, sem kostar víst
fleiri gjaldþrot en dæmi eru um í
öðrum búgreinum, að hún hefði
einhver áhrif niður á við í verð-
lagningu öldurhúsa. En því er sem-
sagt ekki að heilsa. Þegar kúnna
vantar, þá bregðast menn ekki við
með þvi að lækka verðið á bjóm-
ym. Þeir hækka það. Hver sagði að
Island væri ekki fúrðuland?
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 6. júnl 1991
Síða 2