Þjóðviljinn - 06.06.1991, Qupperneq 15
GATEÐ
Krataskortur
Það er ekki hlaupið að því að
manna nefndir Alþingis þegar
heimingur þingflokks vermir ráð-
herrastóla. Sem er raunin hvað
varðar Alþýðuflokkinn. Fimm af
tíu þingmönnum flokksins eru
ráðherrar, en hinir verða því að
taka að sér öll önnur störf í
þinginu. Til lukku fyrir flokkinn
hefur þingnefndum fækkað
mjög vegna þess að þingið
starfar nú í einni málstofu. Þrátt
fyrir það er til dæmis formaður
þingflokksins, Össur Skarphéð-
insson, formaður í einni nefnd
og varaformaður I tveimur
nefndum Alþingis. Sigbjörn
Gunnarsson er einnig formaður
í einni og varaformaður í tveim-
ur. Rannveig Guðmundsdóttir
slær þá þó báða út því hún er
formaður í tveimur nefndum og
varaformaður í öðrum tveimur
til. Nefndir Alþingis eru tólf.
Karvel
í Byggðastofnun
Svo virðist sem vandræði krata
með að manna nefndir nái út
fyrir þingið því Karvel Pálmason
fyrrverandi þingmaður er fulltrúi
flokksins í stjórn Byggðastofn-
unar. Allir aðrir flokkar skipa
þingmenn i þá stjórn nema krat-
ar. Og hefur verið svo um lang-
an tíma. Ragnar Arnalds, Matt-
hías Bjarnason, Pálmi Jónsson,
Egill Jónsson, Stefán Guð-
mundsson og Ólafur Þ. Þórðar-
son, allt alþingismenn, eiga sæti
í stjórninni með Karvel.
Mbl í stjórn Hús-
næðisstofnunar
Það er margt skrítið sem gerist í
litlu landi og margur hagsmuna-
áreksturinn vegna mannfæðar,
þó mannfæð sé ef til vill ekki
alltaf ástæðan. Dæmi um þetta
er að einn fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í stjórn Húsnæðis-
stofnunar ríkisins sem kosið var
í á dögunum á Alþingi er blaða-
maður á Morgunblaðinu. Þór-
hallur Jósepsson er jafnframt
sérfræðingur blaðsins í hús-
næðismálum. Spurningin er því
við hvern hann talar til að fá
fréttir af stjórnarfundum stofnun-
arinnar.
Hróp
í eyðimörkinni
Það getur verið mikill vandi að
semja góðar fyrirsagnir, það
þekkja allir sem einhvern tím-
ann hafa skrifað í blöð. Bænda-
blaðið segir í síðasta tölublaði
frá fundi bændakvenna um
stöðu kvenna innan búnaðar-
sambandanna og gerir málinu
greinargóð skil. Fyrirsögnin er
hinsvegar svolítið „út í Hróa“ og
mætti jafnvel skilja hana sem
eins konar ákall frá bændum:
„Kvenmannslaus byggð er
dæmd til að deyja“...
Tíund
eða 40 prósent
Fréttabréf ríkisskattstjóra heitir
ansi skemmtilegu nafni. Margir
myndu þó segja að nafnið væri
komið til ára sinna og rétt væri
að skíra ritið upp á nýtt. Það var
árið 1096 eða 1097 sem tíund
var tekin upp að frumkvæði
Gissurar biskups Isleifssonar.
Hann naut þar stuðnings höfð-
injga, enda rann helmingur tí-
undartil þeirra. En á þessum
tíma var tíund í raun eins pró-
sents eignaskattur, en víðast er-
lendis á sama tíma 10 prósent
tekjuskattur. Það er þess vegna
sem mörgum finnst að frétta-
bréf ríkisskattstjóra ætti að
heita eitthvað annað en „Tí-
und“. Því einsog launafólk veit
þá er tekjuskatturinn 39,79
prósent og virðisaukaskattur-
inn 24.5 prósent.
RÚSÍNAN
Stjórn Brunabótafélagsins ásamt heiðurslaunahöfunum. I neðri röð t.v. Lúðvlk Eiðsson, Bjami Bogason, Jóna Kristinsdóttir sem tók við heiðurslaununum
fyrir hönd Gunnars Guðbjömssonar, Margrét Guðmundsdóttir, Guöfriður Lilja Grétarsdóttir og þórður Pálsson sem tók við heiðurslaununum fyrir hönd
Rögnu Ragnarsdóttur.
Mynd: Kristinn.
Heiðurslaun veitt sex einstaklingum
Brunabótafélag íslands veitti
sín árlegu heiðurslaun fyrir
árið 1991 í gær og voru það
alls sex einstaklingar sem
hlutu hnossið.
I reglum Brunabótafélagsins
varðandi þessi heiðurslaun,
segir að megintilgangur þessa
stöðugildis sé sá að gefa einstakling-
um kost á að sinna sérstökum verk-
efnum, sem til hags og heilla horfa
fyrir íslenskt samfélag, hvort sem
það er á sviði lista, vísinda, menn-
ingar, íþrótta eða atvinnulífs.
Þeir aðilar sem fengu heiðurs-
launin að þessu sinni eru: Bjami
Bogason og Lúðvík Eiðsson, rann-
sóknarlögreglumenn. Þeir hlutu
heiðurslaun í þijá mánuði til að auð-
velda þeim að sækja námskeið er-
lendis í brunarannsóknum. Gunnar
Guðbjömsson, ópemsöngvari, hlaut
heiðurslaun í þrjá mánuði til að gera
honum kleift að undirbúa verkefni
sín samkvæmt samningum við óper-
una í Wiesbaden síðar á árinu. Guð-
fríður Lilja Grétarsdóttir, alþjóðleg-
ur skákmeistari kvenna, hlaut heið-
urslaun í tvo mánuði í því skyni að
gera henni kleift að taka þátt í al-
þjóðlegum skákmótum erlendis.
Margrét Guðmundsdóttir, sagnfæð-
ingur, hlaut heiðurslaun í tvo mán-
uði, i því skyni að auðvelda henni að
vinna dagbækur Elku Bjömsdóttur,
verkakonu í Reykjavík, til útgáfu.
Ragna Sigurlaug Ragnarsdóttir,
þroskaþjálft, hlaut heiðursverðlaun
til að auðvelda henni að læra til að-
stoðarstarfa við þroskahefta, sem
eiga við tilfinningavandamál að
striða. Stjóm BI velur þann einstak-
ling, sem heiðurslaun hlýtur, eftir
umsóknum samkvæmt auglýsingu.
Sá einstaklingur skuldbindur sig til
að gera stjóm BI grein fyrir starfi
sínu og hverju hann fékk áorkað
meðan launanna naut við.
Brunabótafélag Islands áskilur
sér rétt til að skýra opinberlega frá
árangri og niðurstöðum af starfi
þess, er heiðurslauna hefúr notið, en
gerir að sjálfsögðu ekki tilkall til
höfundarréttar eða annars framlags
af hálfú umsækjenda en að hann af
alúð og samviskusemi takist á við
það verkefni, sem sótt er út á.
Upphæð þessara heiðurslauna er
miðuð við laun konrektors við
menntaskóla í Reykjavík með
lengstan starfsaldur.
„Eg hef alltaf sett fram þá von
að önnur atvinnufyrirtæki í landinu
feti í fótspor okkar með þessi heið-
urslaun,“ sagði forstjóri Brunabóta-
félagsins, Ingi R. Helgason. „Eftir
Qölda umsóknanna að dæma sem
okkur bámst, er mikil þörf á þessu.“
QC
1
rpi H
Lo
111 1
<SC ö I M
inri lC3I»wli o
C3 O
<í rj
OLUFSf
SMASKf
K\., }
' O
>^\ ^
m ffi Bulls
il
Þetta er leyndó svo að
þú mátt ekki lesa mið-
ann.
Þú ert kálhaus Kalli. Ég
sagði að þú mættir ekki
lesa þetta.
Sússa.
‘#2
6-3
Síða 15
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 6. júní 1991