Þjóðviljinn - 11.06.1991, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 11.06.1991, Qupperneq 3
Á DÖFIMNI A Gunnlaugur Júlíusson Garðyrkja á íslandi og EES Viðræðurnar um Evrópskt efnahagssvæði (EES) hafa staðið yfir um nokkurra ára skeið, og er stefnt að því að þeim Ijúki innan tíðar ef ekkert óvænt kemur upp á. Umræður um þessar viðræður og afleiðingar þeirra fyrir ísland og íslend- inga hafa verið heldur af skornum skammti. Það er jafnvel svo, að þeir sem hafa sett sig vel inn í hvað fram fer á þessum vettvangi og gagnrýnt atburðarásina og markmiðin, hafa verið úthrópaðir sem úrtölumenn og afturhaldsseggir sem vilji ekki framfarir. Aðaláhersla hefur verið lögð á að verið sé að semja um tollaívilnanir fyrir fisk, en minni athygli verið beint að því sem yrði að greiða í staðinn. Það er margt óljóst enn, en eitt er þó flestum ljóst: aðild að Evrópska efna- hagssvæðinu er fordyri að inngöngu í Evrópubandalagið með öllu sem því fylgir. ÍBAG 11. júní er þriðjudagur. Barnabasmessa. 162. dagur ársins. Sólarupprás í Reykjavík kl. 3.02 - sólarlag kl. 23.54. Viðburðir Verkalýðsfélagið Vöm á Bíldudal stofnað 1931. Þjóðviljinn fyrir 50 árum Þjóðviljinn bannaður. fyrir 25 árum Fundin kvikmynd af Leo Tolstoj. Picasso afhent friðarverðlaun Lenins. Heimsókn Nowich City: Akranes skorti úthald - tapaði 6:1. Árangurslaus fundur Verkamannasam- bandsins og Vinnuveit- enda. Slitnað upp úr samningum. Sá spaki Undirstaða stjórnmála- fræða: gaffallinn er til vinstri en hnífurinn til hægri. (Skaði) á skerðingu námslána ✓ Steinunn V. Oskars- dóttir oddviti Röskvu í Stúdentaráði Samkvæmt lögum um Lánasjóðinn segir að hann eigi að tryggja jafn- rétti til náms, þ.e. að allir hafi jöfn tækifæri til menntunnar án tillits til búsetu eða efhahags. Hingað til hafa menn séð mikilvægi og tilgang þessa sjóðs sem lánar mönnum til ffamfærslu meðan á námi stendur. Námsmenn greiða síðan að fullu lánin verðtryggð til baka. En jafn- rétti til náms kostar peninga og þar standa stjómmálamennimir ffammi fyrir vanda. Það hefur sýnt sig síð- ustu daga að þeir skilja ekki eða vilja ekki skilja tilgang lánasjóðs- ins. Þær tillögur sem menntamála- ráðherra hefur nýverið skrifað undir um breytingar á úthlutunarreglum sjóðsins era skref í þá átt að fækka lánþegum og gera þeim erfíðast um vik sem minnst mega sín. Er það jafnrétti til náms í augum Ólafs G. Einarssonar að skerða ffamfærslu námsmanna þannig að einstakling- ur í leiguhúsnæði skuli ffamfleyta sér á 46.000 kr. á mánuði? Mennta- málaráðherra hefiir með þessum til- lögum sagt námsmannahreyfmgun- um og Háskólanum strið á hendur. Stríð þetta stendur ekki bara um krónur og aura heldur í aðalatriðum um stefnu í menntamálum. Þessari aðför Ólafs G. Einarssonar geta námsmenn og fjölskyldur þeirra ekki tekið þegjandi. Hér er ekki mögulegt að fara yfir mikið af því sem þörf er á að ræða í þessum samhengi, en ein- ungis drepið á eitt atriði sem hefur verið í umræðunni að undanfömu. Enda þótt landbúnaðarmál hafi ekki verið formlega uppi á borðinu í þessum viðræðum þá hafa þau verið rædd ítarlega. Einn hluti þessara viðræðna tengist málefnum garðyrkjunnar og á hvem hátt verður staðið að innflutningi garð- yrkjuafurða í ffamtíðinni. Sam- kvæmt núgildandi lögum íslensk- um er innflutningur stöðvaður þeg- ar innlend ffamleiðsla fullnægir eftirspum á markaðnum. Sá tími sem innlendir garðyrkjubændur hafa getað fullnægt þörfum mark- aðarins hefúr sífellt verið að lengj- ast, bæði vegna þess að þróað hef- ur verið upp aukið geymsluþol ým- issa afúrða, t.d. káls, og einnig hafa tækniffamfarir eins og kol- sýmnotkun og lýsing yfir veturinn lengt framleiðslutímann vemlega, t.a.m. í blómum. Nú hafa verið lagðar fram til- lögur í EES-viðræðunum um að innflutningur á ýmsum gróður- húsaafurðum til landsins verði bundinn ákveðnum dagsetningum, óháð aðstæðum hérlendis, en ekki framleiðsluaðstæðum eins og verið hefur. Þetta hefði í for með sér að garðyrkjubændur yrðu að keppa við erlenda ffamleiðslu vemlegan hluta ársins. Garðyrkjubændur em hlynntir samkeppni á markaðnum ef hún er háð undir eðlilegum formerkjum. Það er hinsvegar forsenda fyrir því að hún skili árangri að hún sé háð á jafnréttisgmndvelli. Þegar litið er á aðstæður hér og innan EB varð- andi samkeppnisaðstæður garð- yrkjunnar kemur fljótt í ljós að þar skilur mikið á milli. Garðyrkja hef- ur hérlendis ekki haff mikið af op- inbem styrkjakerfi að segja eða fyrirgreiðslu af hálfu stjómvalda. Má t.d. minna á það að aðflutn- ingsgjöld á innflutt grænmeti vom stórlega lækkuð með einu penna- striki árið 1987 og síðan í fram- haldi af því var lagður söluskattur ofan á vömverðið i ársbyijun 1988 án nokkurrar niðurgreiðslu á hon- um um langan tíma. Nú er hins- vegar um það rætt að vissar blóma- tegundir og grænmeti verði flutt til landsins án nokkurra aðflutnings- gjalda eða innflutningsvemdar ákveðinn tíma ársins í beinni sam- keppni við innlenda framleiðslu. Þá er eðlilegt að spurt sé, við hvaða aðstæður þessar afurðir séu framleiddar. Innan Evrópubandalagsins er við lýði umfangsmikið niður- greiðslu- og styrkjakerfi innan landbúnaðarins. Þegar niður- greiðslur em reiknaðar niður á sama fólksfjölda og býr hérlendis, til að fá raunhæfan samanburð, þá kemur ýmislegt athyglisvert í ljós. Arið 1990 vom niðurgreiðslur inn- an EB, miðaðar við 250 þúsundir manna, um sex miljarðir króna, á sama tíma og niðurgreiðslur hér- lendis vom um 5 miljarðir. Niður- greiðslur til garðyrkjunnar innan EB vom um 900 miljónir. Þá ber að taka tillit til þess að hér er virð- isaukaskattur endurgreiddur af matvælum, en innan EB er víðast hvar lægra virðisaukaskattstig á þeim, svo að um endurgreiðslu er þar ekki að ræða. Svo kemur í ljós að þegar þessi samanburður er gerður fyrir árið 1987, þeas. fyrir daga virðisaukaskatts á matvæli, þá nema niðurgreiðslur innan EB miðað við 250 þús. manns 3.450 miljónum króna meðan niður- greiðslur em hérlendis á sama tíma samkv. ríkisreikningi um 1.350 milj. kr. Það er við þessar aðstæður sem rætt er um að viss garðyrkju- framleiðsla keppi við erlenda á ákveðnum tímum. Hér em þó ekki öll kurl komin til grafar. Það er staðreynd að blóm em flutt til Hollands, aðallega frá Suður-Ameríku, þeim umpakkað þar og þau seld undir hollenskum merkjum samkvæmt viðskiptaregl- um EB. Þetta á m.a. við um nellik- ur frá Kolumbíu, þar sem fram- leiðslan fer fram við aðstæður sem menn geta varla ímyndað sér hér- lendis. Þar er mannslífið lítils met- ið, enda er atvinnuleysi gífúrlegt. Notkun eiturefria við framleiðsluna er með þeim hætti, að ekkert tillit er tekið til heilbrigðis vinnufólks- ins, enda á það engra kosta völ. Þetta em meðal annras þær framleiðsluaðstæður sem islensk blómaframleiðsla getur lent í sam- keppni við ef þær umræður sem fara fram innan ramma viðræðna um EES ná fram að ganga án breytinga. Málefni garðyrkjunnar er borið fram sem sérstakt dæmi um að- stæður sem geta skapast ef EES viðræðunum lýkur á þeim nótum sem rætt er á í dag. En það er ljóst að garðyrkja er hér ekkert eins- dæmi. Fjórfrelsið, þeas. óheflur flutningur fjármagns, vinnuafls, vöra og þjónustu til og frá landinu, getur hafl ófyrirsjáanlegar afleið- ingar í för með sér í þróun okkar viðkvæma og að mörgu leyti van- þróaða samfélags. Það virðist ljóst að öllum þeim fyrirvömm sem hafðir vom með i viðræðunum í upphafi hefúr verið sópað út af borðinu nema þeim sem varða eignarhald á fiskimiðunum og veiðiheimildir. Sérstaða íslands sem lítillar eyþjóðar er þvi harla lítil miðað við það sem lagt var upp með. Það er því ekki seinna vænna að landsmenn fari að gera sér grein fyrir því, hvað fyrrgreindir Evr- ópusamningar hafa í for með sér í bráð og lengd, því eflir að búið er að skrifa undir getur það orðið of seint. Það er ekki seinna vænna en landsmenn geri sér grein fyrir því hvað Evrópusamn- ingarnir hafa í för með sér í bráð og lengd. Síða 3 ÞJÓÐVILJINN Þriðjurdagur 11. júní 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.