Þjóðviljinn - 11.06.1991, Page 4

Þjóðviljinn - 11.06.1991, Page 4
A Umsión: G. Pétur Matthíasson FRETTIR Stafar Bandaríkjunum mest hætta af skólakerfinu? Bandaríkin hafa aldrei áður verið jafn óhult fyrir utanaðkom- andi háska. Og aldrei fyrr hafa þau útskrifað úr skólum nemendur sem eru mun verr að sér en næsta kynslóð á und- an. Þessar staðreyndir benda til einnar niðurstöðu: banda- ríska skólakerfið er mesti háskinn sem yfir Bandaríkjunum vofir. Svo byrjar grein, ein af átján, sem nýlega birtist i bandaríska blaðinu Washington Post. Þar er, eins og í mörgum svipuðum grein- um sem undanfarin misseri hafa verið að birtast í bandarískum blöðum og tímaritum, mjög lagt út af því, að skólakerfið skili æ lakari árangri: Bandarísk böm og ung- lingar viti blátt áfram æ minna. Sá greinarhöfundur sem hér er til vitnað (George F. Will) tekur nokkur dæmi. 63% þeirra sem em á aldrinum 18 til 24 ára geta ekki fimdið Frakkland á ómerktu korti, færri en helmingur geta firndið New York. Bandarísk 13 ára böm standa sig mun verr en jafhaldrar þeirra i sex löndum öðmm í stærð- fræði. Ótrúlegur fjöldi (um 80%) mnsækjenda um störf (til dæmis hjá símanum) falla á hæftiisprófi sem byggir á enskukunnáttu í sjö- unda bekk og reikningskunnáttu í fimmta bekk. Sérhver sá sem þarf að ráða fólk í vinnu veit, að það er ekki aðeins mögulegt heldur og al- gengt að fólk sem á að heita að hafi lokið „high school“ sé í raun- inni ólæst og óskrifandi. Af þessu hafa menn miklar og vaxandi áhyggjur eins og geta má nærri. í íýrra töldu bandarískir kjósendur að staðan í skólamálum væri stærsta vandamál ríkisins. Og eflir því er mjög tekið, að 70% þeirra vilja endilega að komið verði á aukinni miðstjóm í skóla- kerfinu með samræmdu námsefni og samræmdum prófum. Um þetta hefur verið mikið fjallað og deilt í Bandaríkjunum upp á síðkastið. Rökin með aukinni samræmingu og prófum em þau, að með þeim fái menn að sjá ástand mála svart á hvítu og geti ekki breitt yfir óþol- andi fáfræði og slappleika. Sumir taka svo djúpt í árinni að aðeins með því að byrja á slíkum aðgerð- um í skólagerðum sem fylgt verði eftir með aukinni kröfugerð í námi geti Bandaríkjamenn snúið því dæmi við, að þeir hafa verið að dragast aftur úr ýmsum þeim þjóð- um sem þeir eiga helst í samkeppni við. Andstaðan gegn miðstýringu og samræmdum prófum er mikil. Hún kemur bæði frá mörgum þeirra sem hafa ráðið mestu um mótun skólastarfs (og eru yfirleitt taldir til fijálslyndari manna í land- inu) og frá erkiíhaldsmönnum. íhaídsmenn vilja ekki gefa upp á bátinn frelsi heimamanna á hveij- um stað til að ráða því, hvemig skóla þeir helst vilja hafa og eru því reyndar vanastir að líta á allt með mestu tortryggni sem kemur frá alríkinu. íhaldsmenn vilja einn- ig forðast þau ströngu próf, sem gætu leitt með ótvíræðum hætti fram ástand sem grefur undan sjálfsánægju Bandaríkjamanna: allt í lagi hjá okkur. (Til eru kannanir reyndar sem sýna, að bandarískir skólanemendur era einatt bæði verr að sér en jafnaldrar þeirra í Evrópu og Japan og um leið mun ánægðari með sjálfa sig og árangur sinn í skóla. „Góður filingur" er það sem gildir.) Sem fyrr segir: margir þeir sem ráða ferðinni i skólakerfinu era, þótt „ffjálslyndir“ teljist, einatt á sama báti og rammir íhaldsmenn þegar komið er að fyrirvöram um samræmdar og harðari kröfur í skólakerfinu. Þeir segja að próf séu „dómfellandi" og komi í veg fyrir þá hlýju og elskusemi sem þurfi að ríkja í kennslustofum, og eigi fyrst og síðast að næra, styrkja og efla sjálfstraustið. En, segir sá greinar- höfundur sem hér er til vísað, það er einmitt þessi afstaða sem gerir það að verkum að gerðar eru æ minni og minni kröfur í skólum og próf falla í gildi jaftit og þétt (vegna þess að það er minna og minna á bak við einkunnir og um- sagnir). áb tók saman. Þaö getur veriö dýrt að reka stóran her og ekki vilja skattleggja þegnana fyrir kostnaðinum. Niðurstaöan er skuldug þjóð. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma Erla Unnur Ólafsdóttir frá Strönd Vestmannaeyjum, Alftamýri 20 Reykjavík lést að morgni 9. júní í Vífilsstaðaspítala. Sigurður Elli Guðnason Guðmunda Kristinsdóttir Arndís Guðnadóttir Sigurður G. Sigurðsson Ólafur Guðnason Guðmunda Jónsdóttir barnabörn, barnabarnabarn og aðrir vandamenn. Móðir okkar Sigríður Ólafsdóttir Kársnesbraut 76 Kópavogi andaðist í Borgarspítalanum sunnudaginn 9. júní. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sverrir Garðarsson Pétur Garðarsson Þorgerður Árnadóttir Einfríður Árnadóttir Bandaríkin skulda enn landa mest Bandaríkin eru enn skuldugasta þjóð heims, en ástandið er ekki eins slæmt og menn héldu samkvæmt upplýsingum við- skiptaráðuneytisins bandaríska frá því á sunnudag. Sam- kvæmt tölunum skulda Bandaríkin frá 200 miljörðum doll- ara til 380 miljarða dollara eftir því hvernig dæmið er sett upp. í ís- lenskum krónum samsvarar þetta um 12- 23.000 miljörðum króna eða um 120- 230-foldum fjárlögum íslands. Tölumar eru frá 1989, en yngri tölur era ekki til. Dæmið liti þó mun verr út ef verðgildi eigna Bandaríkjamanna erlendis væru reiknað samkvæmt upphafiegu kaupverði, en ekki samkvæmt nú- virði. Hingað til hefur verið reikn- að með upphafiegu kaupverði eignanna, en hægrisinnaðir hag- fræðingar hafa mótmælt þeirri reikningsaðferð á þeirri forsendu að hún sýni um of dökka mynd af ástandinu. Væri gamla aðferðin notuð skulduðu Bandaríkjamenn rúmlega 663 miljarða dollara og urðu skuldarar árið 1984. Með mismunandi aðferðum má ná þessu niður í allt að 280 miljarða dollara, og þá yrðu Bandaríkin ekki skuldari fyrr en á árinu 1987. Sérfræðingar benda á að Bandarík- in eigi miklar eignir erlendis og að útlendingar séu einungis að reyna að keppa við Bandaríkjamenn í því sambandi þegar þeir kaupa verk- smiðjur og land í Bandaríkjunum. Japanir hafa ekki tæmar þar sem Bandarikjamenn hafa hælana í þeim efnum, en Japanir kaupa mikið í Bandaríkjunum þessi árin. Og hefur almenningur af því nokkrar áhyggjur. Vonir bundnar við nýja kynslóð alnæmislyfja Aðeins eitt lyf hefur verið viðurkennt í baráttunni gegn alnæmi í Banda- ríkjunum á þeim tíu ár- um sem liðin eru síðan sjúkdóm- urinn fór að herja á Vesturlönd. En tvö önnur lyf eru á lokastigi og ný kynslóð lyfja gefur vonir um betri árangur. Þau lyf eru þó aðeins til í tilraunaglösum og þeir sem hafa fengist við rann- sóknir á þessu sviði vara við of mikilli bjartsýni. Þeir hafa of oft orðið fyrir vonbrigðum. Það er hið rándýra AZT sem er eina lyfið sem hlotið hefur viður- kenningu. AZT takmarkar ensím sem HlV-vírasinn þrífst á. Það er HlV-vírasinn sem endanlega leiðir til alnæmis. Tvö nýju lyfin sem þegar er farið að reyna vinna á sama hátt og AZT, en eru ekki eins eitruð og AZT. Aukaverkanir AZT eru vandamál auk kostnaðarins, en framleiðslufyrirtækið lækkaði verðið 1989 um 20 prósent eftir að baráttufólk gegn alnæmi hlekkjaði sig við svalir verðbréfahallarinnar í New York í mótmælaskyni. Hin nýja kynslóð Iyfjanna ræðst að ensímum sem einungis finnast í vírusum einsog HIV og þau ensím gera ekkert gagn i mannslíkamanum. Þau eru þó ein- ungis á tilraunaglasastigi. Æðsta þjóðarráð Kambódíu mun koma saman í bænum Pattaya í Tælandi sem er þekkt- ur sólbaðsstrandarstaður, en ekki í einbýlishúsi Sihanúks prins einsog til stóð. Tælenski herinn gaf prinsinum nýlega hús í Surin í Austur-Tælandi. Ráðið samanstendur af fulltrú- um stjómarinnar í Kambódíu og fulltrúum skæruliða í samræmi við friðaráætlun Sameinuðu þjóðanna. Nú er talið að 77 rannsókna- verkefni séu í gangi þar sem rann- sökuð eru 62 lyf og bóluefni gegn alnæmi og skyldum sjúkdómum. Það era 40 rannsóknastofur um all- an heim sem standa að þessu. Ráðið hafði fyrirhugað að hittast þegar Sihanúk ákvað að einbýlis- húsið væri ekki rétti staðurinn. Enn er óútskýrt afhveiju Pattaya varð fyrir valinu, en staðurinn skartar fjölmörgum hóruhúsum, börum og nuddstofúm. Sihanúk prins sem hefur verið í útlegð um langan tíma hefúr ekki tekið þátt í ráðinu í marga mánuði. Búist er við að fúll- trúar stjómarinnar í Phom Penh og skæraliða hittist 24. júní. Friðarviðræður í gleðibæ ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 11. júní 1991 Síða 4

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.