Þjóðviljinn - 11.06.1991, Side 7

Þjóðviljinn - 11.06.1991, Side 7
Ostarfhæfur meirihluti á Ólafsfirði Svo virðist sem meirihluti sjálfstæðismanna í bæj- arstjórn Ólafsfjarðar sé óstarfhæfur vegna deilna innan hans um framtíð Bjarna Grímssonar bæjarstjóra. Þrír af fjórum bæjarfufltrúum sjálf- stæðismanna vilja bæjarstjór- ann burt en ekki varamaður for- seta bæjarstjórnar. Sá hinn sami hefur óskað eftir því að boðaður fundur í bæjar- stjóm, sem á að vera í dag, þriðju- dag, verði ífestað um viku. En á þeim fúndi átti meðal annars að taka af skarið um ffamtíð Bjama Grímssonar bæjarstjóra. Sam- kvæmt heimildum Þjóðviljans virðist sem meirihluti sjálfstæðis- manna vilji bæjarstjórann úr emb- ættinu meðal annars vegna þess að þeir telja hann hafa verið of yfir- lýsingaglaðan um málefni Fisk- mars hf. og ekki síður þar sem Bjami mun hafa alveg tekið fyrir það að Sigurður Bjömsson, bæjar- fulltrúi sjálfstæðismanna og einn af þremenningunum, geti nú sem endranær skammtað sér verkefhi hjá bænum en hann er trésmiður að mennt. Opinberlega er því hinsvegar haldið ffam af þremenningunum að Bjami hafi ekki viljað ganga að tilboði þeirra um breytt starfssvið og bera við samstarfserfiðleikum við bæjarstjórann. Bjöm Valur Gíslason oddviti minnihlutans í bæjarstjóm Olafs- fjarðar segir að með því að fara fram á ffestun boðaðs bæjarstjóm- arfundar séu sjálfstæðismenn að leita allra leiða til að losna úr sjálf- skapaðri tilvistarkreppu, þegar þeim varð ljóst að ekki er meiri- hluti innan bæjarstjómar fyrir að segja bæjarstjóranum upp störfum. Einnig em þeir hræddir um að ef til atkvæðagreiðslu kemur um bæj- arstjórann, verði til nýr meirihluti innan bæjarstjómar. Til stuðnings Bjama hefur verið hrundið af stað undirskriflarsöfnun j bænum en Bjami er innfæddur Ólafsfirðingur. Um helgina var mikið um funda- höld meðal sjálfstæðismanna á Ól- afsfirði þar sem Halldór Blöndai samgöngu- og landbúnaðarráð- herra og Tómas Ingi alþingmaður mættu til skrafs og ráðagerða. Bjöm Valur segir að þetta ástand innan bæjarstjómarmeiri- hlutans sé mjög til baga fyrir stjóm bæjarins. A íundinum í dag átti meðal annars að taka fyrir reikn- inga bæjarins og verklegar ffam- kvæmdir á vegum hans. -grh Námsmenn boða til útifundar Námsmenn boða til útifund- ar á Lækjartorgi á fímmtudag kl. 17.00 um skerðinguna á lán- um Lánasjóðs íslenskra náms- manna. Ólafi G. Einarssyni menntamálaráðherra hefur ver- ið boðið að ávarpa fundinn, en hann hefur ekki svarað boðinu ennþá. Skúli Helgason stúdentaráðs- fulltrúi kveðst búast við góðri mætingu á fundinn. Fundarboð hafa verið hringd út um helgina og viðbrögð námsmanna em góð. Meðal annarra mun Pétur Þ. Ösk- arsson, lánasjóðsfulltrúi náms- manna næsta vetur, halda ræðu á fundinum og Bubbi Morthens mun flytja baráttulög. Sem kunnugt er neitaði menntamálaráðherra að ræða við námsmenn um breytingamar á út- hlutunarreglunum sem samþykktar vom af meirihluta stjómar LIN á fimmtudag. Tveir liðir breytinga- tillagnanna vom þó „settir í nefhd“, þ.e. saltaðir til frekari um- íjöllunar í sumar. I öðrum var lagt til að námsmenn yrðu að skila fullri námsframvindu til að fá lán, en til þessa hefur nægt að full- nægja kröfum viðkomandi skóla um námsframvindu. I hinum liðn- um var lagt til að lán til einstak- linga sem búa í leiguhúsnæði en eiga foreldra á námsstað verði reiknað á sama hátt og til þeirra sem búa hjá foreldmm á meðan á námi stendur. -vd. FlÉTTIR Sex milljónir söfnuðust fyrir krabbameinssjúk böm Hópur barna frá dagheim- ilinu Sólbakka gróður- setti tré í gær á lóð Landsspítaians til að sýna stuðn- ing sinn við krabbameinssjúk börn og fjölskyldur þeirra. Aðstandendur krabbameins- sjúkra bama vom einnig mættir á staðinn og var tilefnið að þessu öllu saman að kynna hversu mikið safnaðist föstudaginn 31. maí s.l. er gengist var fyrir fjársöfnun til styrktar krabbameinssjúkum böm- um og fjölskyldum þeirra. Einnig var tilefnið að lýsa yfir stuðningi við byggingu bamaspítala á lóð Landsspítalans eins fljótt og auðið er. Alls söfnuðust um 6 milljónir króna í söfnuninni. Þeim pening- um verður varið til þess að koma upp neyðarsjóði fyrir þá foreldra krabbameinssjúkra bama sem lent hafa í vemlegum fjárhagsörðug- leikum vegna veikinda barna sinna. Félagið vill þakka þann mikla fjárstuðning er almenningur og fyrirtæki sýndu til styrktar málefn- inu. Þá vill félagið þakka öllum þeim er studdu félagið, bæði ein- staklingum og fjölmiðlum er áttu stóran þátt í að kynna fjársöfnun- ina og það ástand sem ríkir meðal fjölskyldna krabbameinssjúkra bama. I yfirlýsingu frá Styrktarfélagi krabbameinssjúkra bama segir að þó svo að málefni krabbameins- Túnamót hjá Miljónustu bifreiðinni verður senn ekið um borð i Akraborgina, sem daglega fer íjórar ferðir á milli höfuðstaðarins og Akraness. Af því tilefni ætla forráðamenn feij- unnar að heiðra viðkomandi öku- mann og færa honum gjafir. A þjóðhátíðardaginn 1974 tók sjúkra bama hafi verið í brenni- depli vegna söfhunarinnar 31. maí, þá megi ekki loka augunum fyrir hinu alvarlega ástandi sem ríki í málefhum sjúkra bama almennt. A Islandi er enginn spítali sem byggður hefur verið með þarfir bama sérstaklega í huga. Húsnæði það sem Bamaspítalinn fékk á sín- um tíma til umráða var aldrei hugsað og hannað með rekstur bamadeildar fyrir augum. -KMH Akraborginni Skallagrímur hf. í notkun fyrsta ís- lenska ekjuskipið, þar sem bílum var ekið um borð. Þetta skip sigldi á milli Akraness og Reykjavíkur allt til ársins 1982, er nýtt skip var tekið í notkun, og hefur það verið í þessum ferðum síðan. -sþ Sterka samstöðu gegn hægri stjóminni Miðstjórn Alþýðubandalagsins fagnar fylgisaukningu fíokksins í alþingiskosningunum og þakkar þeim fjöl- mörgu sem lögðu sitt af mörkum með margvíslegu stafí og stuðningi við flokkinn og stefnumál hans. Sig- ur Alþýðubandalagsins var mikilvæg viðurkenning á árangri flokksins í síðustu ríkisstjórn og ótvíræð traustsyfirlýsing kjósenda um að halda ætti áfram á sömu braut. Ríkisstjóm Alþýðubandalags- ins, Framsóknarflokksins og Al- þýðuflokksins hélt meirihluta sín- um á Alþingi og Sjálfstæðisflokk- urinn hlaut einhverja verstu út- komu sem hann hefur fengið í stjómarandstöðu. Þúsundir félags- hyggjufólks og jafnaðarmanna tóku þessum úrslitum fagnandi. I fyrsta skipti í áratugi buðust ís- lenskri vinstrihreyfingu nýir land- vinningar og möguleikar á varan- legri umsköpun þjóðfélagsins á grundvelli jafnaðar, réttlætis og ffamfara. Miðstjóm Alþýðbandalagsins lýsir furðu sinni á því að á slíkum timamótum skyldi forystusveit Al- þýðuflokksins hafa bmgðist mál- stað íslenskra jafnaðarmanna og gengið gegn úrslitum kosninganna og vilja stærsta hluta kjósenda Al- þýðuflokksins. Með myndun nýrr- ar hægristjómar hefur forystusveit Alþýðuflokksins glatað trúnaði ís- lenskra vinstrimanna og bmgðist málstað jafnaðarmanna. Hagsmunagæsla fyrir fjár- magnseigendur, stórfyrirtæki og forréttindastéttir er aflur orðin leið- arvísir í anda öngþveitisáranna 1986-1988. Hávaxtaskrúfan hefur sett verðbólguna í gang á ný. í stað jafnvægis og stöðugleika em kom- in óvissa og spenna á vinnumark- aði og í atvinnulífi. Forystumenn launafólks saka nýja ríkisstjóm um brigð við þjóðarsátt. Atlaga er gerð að gmndvallarþættinum um jafn- rétti til náms og boðaðar em tillög- ur um að sjúklingar skuli bera kostnað í hlutfalli við kostnað vegna veikinda. Kyrrstaða og varð- gæsla um óbreytta skipan hafa komið í stað hugmynda um ný- skipan í atvinnulífi. Rutt hefur ver- ið burt bjartsýni og framfarahug. I rúmlega eitt og hálft ár ríkti jafnvægi í efhahagslífi og friður í sambúð launafólks, atvinnulífs og stjómvalda. Verðbólgan fyrstu mánuði ársins var undir 5%. Nú stefnir hún í yfir 10% á næstu þremur mánuðum. Hægristjómin er að fóma árangri síðustu ára á altari kennisetninga frjálshyggj- unnar. Launafólkið í landinu var ekki að gera þjóðarsátt um að bankar og fjarmagnseigendur tækju ávinningana til sín. I kosningunum lagði Alþýðu- bandalagið fram skýra stefnu um lífskjarajöfnun og nýtt_ framfara- skeið í atvinnumálum Islendinga. Su stefna hefði tryggt að jafnvægi og friður héldust á vettvangi efna- hagslífsins, verðbólgan yrði áfram í lágri einsstafstölu, kaupmáttur launafólks, sérstaklega þeirra sem hafa lægri og miðlungs tekjur, yk- ist stig af stigi og fyrirtækin í land- inu gætu snúið sér alfarið að end- urskipulagningu, uppstokkun og aukinni verðmætasköpun. Það er athyglisvert að á síðustu vikum hafa þing og sambandsstjómir ým- issa helstu samtaka Iaunafólks lýst stuðningi við þessa stefnu. Alþýðubandalagið mun á næstu mánuðum vinna að víðtækri samstöðu um framkvæmd þessara stefnumála og að því að vinna gegn þeirri hægrihyggju sem ríkis- stjómin sýnir í verki. Árin 1986-1988 sýndu að hin harða fijálshyggja í hagstjóminni leiðir aðeins til öngþveitis, óða- verðbólgu og gjaldþrots gmndvall- aratvinnuveganna. framfarir Þegar forysta Alþýðufiokksins hefur nú á ný kosið braut hægri- hyggju og þjónustu við hagsmuna- kerfi Sjálfstæðisfiokksins, hafa skapast breyttar aðstæður i málefn- um íslenskra vinstrimanna og þró- un jafnaðarmannahreyfingarinnar. Miðstjóm Alþyðubandalagsins lýsir eindregnum vilja til að skapa víðtæka samvinnu allra þeirra sem vilja mynda sterka samstöðu gegn hægristjóminni. I því skyni ber að leggja ríka áherslu á samvinnu nú- verandi stjómarandstöðuflokka á Alþingi, svo að þeir geti hvenær sem er tekið þátt í myndun nýrrar ríkisstjómar. Alþýðubandalagið mun á næstu mánuðum efna til heim- sókna í öll byggðarlög landsins og ræða við hópa og einstaklinga í röðum félagshyggjufólks og jafn- aðarsinna, launafólk á vinnustöð- um og ábyrgðarmenn í atvinnulífi °g byggðaþróun. Markmið slíkra heimsókna og viðræðna verður að mynda víðtæka samstöðu gegn hægri stefnu ríkisstjórnarinnar, samstöðu allra jafnaðarsinna, fé- lagshyggjufólks, vinstri manna og annarra stuðningsmanna réttlætis og framfara. Slík samstaða er brýnasta verkefni næstu mánaða. Alþýðubandalagið mun beita sér fyrir viðræðum við alla þá sem heilshugar vilja taka þátt í því verki. Arin 1989-1991 sýndu að Ályktun miðstjórnar Alpýðubandalagins 8. júní 1991 stefna Alþýðubandalagsins skilar ótvíræðum árangri, stöðugleika og forsendum fyrir aukinn jöfnuð og Síða 7 ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 11. júní 1991

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.