Þjóðviljinn - 11.06.1991, Side 8

Þjóðviljinn - 11.06.1991, Side 8
íÞB®mm Chicago Bnlls með pálmann í höndunum Fátt virðist ætla að koma í veg fyrir að Chicago BuIIs verði bandarískur meist- ari í körfuknattleik, { fyrsta skipti í sögu félagsins. Eft- ir viðureignir helgarinnar gegn Los Angeles Lakers, sem Chic- ago vann 104:96 og 97:82 er staðan 3:1 þeim í vil, og þarf lið- ið aðeins einn sigur í viðbót til að tryggja sér titilinn. Það getur lið- ið gert í fimmta leiknum aðfara- nótt næstkomandi fimmtudags, en ella í næstu tveim leikjum sem leiknir verða í Chicago. Fyrstu tveir leikimir fóru ífam á heimavelli Chicago Bulls þar sem Lakers vann fyrri leikinn með eins stigs mun og var sigurkarfan skomð á síðustu sekúndu leiksins. En í þeim þeim síðari rúlluðu heimamenn yfir gestina sem sáu aldrei til sólar og töpuðu stórt, 107:86. Næstu tveir leikir fóm fram á heimavelli Lakers í Forum- höllinni um helgina og gátu áskrif- endur á Stöð 2 fylgst með þeim í beinni útsendingu sem og næstu leikjum. Það er Myllan sem kostar útsendingamar sem er algjör hval- reki á fjörur körfuknattleiksáhuga- manna og eiga fyrirtækin þakkir skilið fyrir þetta framtak. Sömu- leiðis Einar Bollason fyrir frábærar lýsingar. Enda eiga hér hlut að máli tvö sterkustu körfuknattleiks- lið Bandaríkjanna, ef ekki í heim- inum. Til að mynda hefúr Lakers nánast einokað bandaríska meist- aratitilinn á síðasta áratug og Mi- chael Jordan í Chicago-liðinu er sá einstaklingur sem talinn er sá besti í bandarísku NBA- deildinni. Þriðji leikur liðanna var leikinn aðfaranótt síðasta laugardags í For- umhöllinni í Los Angeles og þurfti að framlengja hann til að knýja fram úrslit. Eftir venjulegan leik- tíma var staðan 92:92, en í fimm mínútna framlengingu knúði Chicagoliðið fram sigur 104:96. En eins og kunnugt er gildir ekki jafntefli í körfubolta. í NBA-deild- inni er leikið í fjórum sinnum tólf mínútur og er hálfleikur eftir tvo leikhluta. Þá er skottíminn í aðeins 24 sekúndur, en hérlendis þurfa liðin að ljúka hverri sókn á 30 sek- úndum og auk þess sem spilað er í tvisvar sinnum tuttugu mínútur. í þessum þriðja leik liðanna var jafht á öllum tölum í fyrsta leik- hluta, en þó var Lakers ávallt skrefi á undan. Það var þó ekki fyrr en í þriðja leikhluta sem La- kers náði mest þrettán stiga mun, 67:54 og bjuggust þá margir við að bjöminn væri unninn. Þrátt fyrir stórleik Júgóslavans Divac hjá La- kers var Michael Jordan sýnu betri og kom það berlega í Ijós í fjórða leikhluta þegar kappinn náði að jafha leikinn 92:92 þegar aðeins 3,4 sekúndur vom eftir af venju- legum leiktíma. Gifurleg spenna ríkti í Forumhöllinni i framleng- ingunni, enda öll pressan á heima- liðnu sem mátti ekki við tapi í sín- um fyrsta heimaleik í úrslitakeppn- inni. En allt kom fyrir ekki og munaði þar mest um snillinginn Jordan sem að öðmm leikmönnum Chiacago ólöstuðum tryggði liði sínu sigurinn. í fjórðu viðureign Iiðanna, sem fram fór í fyrrinótt, var leikurinn ekki eins jafn og sá þriðji og má segja að Chicago hafi haft leikinn í höndum sér allan tímann ef undan- skildar em fyrstu mínútumar í fyrsta leikhluta. -grh Vinningstölur laugardaginn 8. júní 1991 Eyjamenn geta sjálfum sér um kennt aö hafa ekki unniö leikinn gegn FH I Kaplakrika á laugardaginn, en Hlynur Stefánsson misnotaöi þá klaufalega vítaspyrnu á 25. mínútu fyni hálf- leiks. Þá var staöan 1:0 fyrir FH. Fimm mínútum seinna jöfnuðu svo Eyjamenn meö marki Leifs Haf- steinssonar. Mikil barátta einkenndi leikinn sem var ekki mikið fyrir aug- að. Mynd: Þorfinnur. Þeir Ingólfur H. Hermansson og Hafsteinn Jónasson létu ekki Iþróttadaginn fara framhjá sér og æfðu körfubolta viö Foldaskóla undir leiðsögn Ara Gunn- arssonar. Mynd: Þorfinnur Iþróttadagurinn heppnaðist ekki sem skyldi þróttadagur Reykjavíkur sem Iþrótta- og tómstundaráð borgar- inimr stóð fyrir síðastliðinn laug- * ardag heppnaðist ekki sem Iskyldi og mættu mun færri en búist var við. Hins vegar var mjðg góð þátttaka í Heilsuhlaupi Krabbameins- félags íslands sem fram fór sama dag. Alls munu saratals um 1300 manns hafa tekið þátt í hlaupinu í Reykjavík, Akureyri og á Egils- stöðum. Jónas Kristinsson hjá Iþrótta- og tómstimdaráði Reykjavíkur segir að ýmislegt þurfi að laga í framkvæmd dagsins en þó sérstaklega það sem lýtur að auglýsingu hans. Jónas seg- ir að það þurfi að koma íþróttadeg- inum miklu betur á framfæri við borgarbúa en gert var og ennfremur sé nauðsynlegt að huga betur að framkvæmd hinna einstöku dag- skrárliða. Til að mynda sé sú spum- ing áleitin hvort nauðsyn sé á sér- stökum leiðbeinendum í sundlaug- um borgarinnar. Af einstökum sund- stöðum var góð þátttaka í Vestur- bænum en í öðrum laugum var íjöldi gesta svipaður og á venjulegum laugardegi. Þó var fullt hús í Keilu- salnum í Öskjuhlíð, en fáir mættu í golf og aðrar íþróttir þar sem boðið var upp á ókeypis leiðsögn. En alls var boðið uppá fjölbreytta mögu- leika til íþrótta og útivistar á yfir 20 stöðum í borginni og á flestum þeirra voru leiðbeinendur til aðstoð- ar. Með þessum árlega Iþróttadegi Reykjavíkur, sem nú var haldinn í þriðja sinn, er borgin að vekja at- hygli á fjölbreyttum íþrótta- og úti- vistarmöguleikum sem þar eru fyrir hendi og jafnframt að hvetja borgar- búa til hollra tómstundarstarfa. En eins og kunnugt er þá eru almenn- ingsíþróttir kjörinn vettvangur fyrir sameiginleg áhugamál íjölskyldunn- ar og auk þess mikilvæg leið til holl- ustu og heilbrigði fyrir alla. -grh VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 2 1.178.949 2.4 r5m 2 204.978 3. 4af 5 80 8.839 4. 3af 5 2.988 552 Valsmenn efstir Heildarvinningsupphæð þessa viku: 5.124.350 kr. f Ath. Vinningar undir 12.000 krónum eru greiddir út á Lottó sölustöðum. I gærkvöldi lauk þriðju umferð Islandsmótsins í knattspymu með viðureign Reykjavíkurrisanna Fram og Vals sem lauk með sigri Vals sem skoruðu eina mark leiksins, í síðari hálfleik. Samkvæmt því eru Valsmenn efstir í deildinni með 9 stig. En þeir eru eina liðið sem ekki hefur tapað stigi. Önnur úrslit um helgina urðu sem hér segir: Víðir-Breiðablik 1:2, FH-ÍBV 1:1, KA-Stjaman 1:0 og Víkingur- KR 1:4. Fjórða umferð hefst svo strax á morgun. miðvikudag 12. júní með leik IBV og Víkings í Eyjum. Áð- ur auglýstum leikjum Stjömunnar gegn Víði hefur verið frestað fram á fimmtudag og sömuleiðis leik FH og Breiðabliks til fostudags. Vegna landsleiks U-18 Iandsliðsins gegn Wales í kvöld, fóm Stjaman og Breiðablik fram á frestun sinna leikja þar sem bæði liðin eiga leik- menn í landsliðinu. Stórleikur umferðarinnar verð- ur án efa viðureign Vals og KR á Hlíðarenda, fimmtudaginn 13. júní, og daginn eftir leika Fram og KA á Laugardalsvellinum. ÍSLANDSMÓTIÐ í knattspyrnu 1 deild Lið L U J T M s Valur 3 3 0 0 5 :0 9 KR 3 2 1 0 8:17 UBK 3 2 1 0 7:4 7 ÍBV 3 2 1 0 6:3 7 Víkingur....3 1 0 2 5:7 3 KA 3 1 0 2 3:5 3 Stjaman 3 1 0 2 1 :4 3 FH 3 0 2 1 3:5 2 Fram 3 0 1 2 3 : 5 1 Víðir 3 0 0 2 1 : 8 0 Unglinga landsleikur í Mosfellsbæ í kvöld leikur íslenska ung- lingalandsliðið í knattspyrnu skipað leikmönnum 18 ára og yngri gegn jafnöldrum sínum frá Waies í Evrópukeppni landsiiða. Leikið verður á Varmárvelli í Mosfellsbæ og hefst leikurinn klukkan 20. Dómari og línuverðir koma frá Finnlandi, en eftirlitsdómari leiks- ins verður frá Skotlandi. Auk íslands og Wales leika í sama riðli unglingalandslið Eng- lendinga og Belga. íslenska liðið hefur þegar leikið tvo leiki, tapaði 2:3 gegn Englendingum hér heima, en gerði jafntefli 1:1 gegn Belgum á útivelli. -grh ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 11. júní 1991 Síða 8

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.