Þjóðviljinn - 14.06.1991, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 14.06.1991, Qupperneq 2
Islenskt tónlistarsumar , Jiæ, hó, jibbíjæ og jibbíjajei það er kominn sautjándi júní...“ kyrjar landinn frá og með morgundeginum því þá gengur íslenskt tónlistar- sumar í garð. Utgefendur, flytjendur og höfundar ætla að fylkja liði og snúa við þeirri þróun að plötur líti einungis dagsins Ijós á jólavertíðinni. I bígerð eru tuttugu hljómplötur með ellismellum og glænýju efni. Á plötunum verða samtals um þijúhundruð lög flutt af yfír sextíu hljómsveitum. Á þjóðhátíðardaginn verða íslenskar sveitir og söngvarar um að skemmta um land allt. Frést hefur að Rás 2 ætli að auka spilun á íslenskri tónlist til muna og auka hlut hennar í að minnsta kosti 50 prósent til að styðja við bakið á íslenskri plötuútgáfu í sumar. Þá verða ýmsar aðrar uppákomur fram á haust þar sem innlend tónlist verður í fyrirrúmi. Þessa kúnstugu lokka hannaði listakonan Sigríður Elfa , en þeir eru ásamt mörgum öðrum munum, sem konur hafa unnið, til sýnis og sölu í Hlaðvarpanum viðVesturgötu. Fyrrírsætan heitir Krístrún, en myndina tók Þorfinnur. Listmunirí Hiaðvarpanum HVE GLÖÐ ER VO/MNNANDI ÆSKA Myndina tók Krístinn Fínn mórall og frábær félagsskapur Félagsskapurinn er meiriháttar, það eru sum- arferðimar í Þórsmörk sem gera gæfumuninn. Lyktin skiptir ekki máli þvi hún hverfur í sturt- unni að loknu dagsverki. Það er engin lykt eftir fyrsta daginn. Þetta segja þær Elísabet Valsdóttir, 19 ára, og Þórdís Heiða Kristjánsdóttir, lóára, um vinnustaðinn Granda hf þar sem þær vinna í fiski. Hér er finn mórall, frábær félagsskapur og gott kaup fyrir skólafólk, sagði Elísabet. Þær skera úr, brjóta í pönnu, snyrta og pakka fiski og allt annað sem til fellur, sögðu þær. En nei, sögðu þær í kór þegar þær voru spurðar hvort þær gætu hugsað sér að vinna í físki alla ævi. Þetta er fínt á sumrin, sögðu þær. Þó gætu þær hugsað sér úti- vinnu meðan sólin skín. Þær stöllumar komast reyndar út í sólina - þá daga sem hún nú skín - einu sinni á hveijum • klukkutíma, því þá er sjö mínútna pása. Þá hlaupa þær ffá fiskinum og út til að sleikja sólina. Elisabet er búin að vinna í þessu í fimm sum- ur, en þetta er fyrsta sum- arið hennar Heiðu. Hún ætlar þó að koma aftur næsta sumar. Kaupið er gott segja þær, einfald- lega vegna þess að skatt- urinn hirðir ekkert af þeim einsog vinnufélög- unum sem þama vinna ár- ið um kring. En það er ekki tímakaupið sem er hátt, heldur bónusinn. Þær fá 244 krónur á tím- ann, en milli 240 og 260 krónur á tímann í bónus að auki. Svo er það líka vinnutíminn sem eykur tekjumar, þvi oft er unnið til átta á kvöldin eða tíu, og nóttina áður en Nýtt Helgarblað ræddi við þær stöllur höfðu þær unnið til klukkan eitt eftir mið- nætti. Við að bjarga verð- mætum, að sjálfsögðu. Það er þó aldrei unnið lengur en til fjögur á fÖstudögum, sögðu þær og líkaði sú tilhögun greinilega vel. Ekki sögðust þær mikið hugsa um pólitík, og launabarátta fer að mestu framhjá þeim. Það er aðallega heilsársfólkið sem stendur í baráttunni fyrir mannsæmandi launum. Enda kannski ekki nema von, segja þær, þar sem við fáum allt okkar kaup í iaunaum- slögin. Þær töldu að þær hugsuðu þó meira um umhverfismál heldur en pólitík. En sögðu að það væri ansi misjafht hvort yngra fólk hugsaði um slík málefni eða ekki. Innan um stígvélin þar sem Kristinn ljósmyndari smellti af þeim mynd í hádegispásunni þeirra var þó ljóst að áhuginn fyrir sumarferðinni í Þórsmörk sló út áhugann á pólitík og umhverfismálum. Og lái þeim hver sem vill. -gpm Bubbi og Rúnar Júl rokka saman í Lídó Með Eitumöðrunum, þá, að þeir Bubbi og Rúnar Kórdrengjunum og Eika ætli að hita upp fýrir Hauks treður upp Kaplakrikaveisluna í Lídó splunkuný íslensk í kvöld, hljómsveitarlausir rokksveit sem kailast að vísu. G.C.D. með Bubba og Þeir sem fylgst hafa Rúnari í broddi fylkingar. með þessum konungum Nýtt Helgarblað leit rokksins undanfama inn á sveitta æfingu hjá áratugi ættu að vita að þeim félögunum og frétti enginn verður svikinn af því sem þeir geta töfrað úr sínum tólum. Myndina tók Þorfinnur. GARÐINUM ÞAÐERALLT STÆRRA FYRIR NORDAN Fólkið sér tilgangsleysi efnis- hyggjunnar, segir Vörður Trausta- son, forstöðumaður hvítasunnu- safnaðarins, sem hefiir stækkað um helming á tveimur árum. DV SORPtÐ FLOKKAÐ Kettlingum hent á haugana. DV ÉG NÆ EKKI UPP I NEFIÐAMÉR Meira að segja dýrin eru laus- lát og vergjöm. Pressan HVAÐ SKYLDI SVARTSÝNIN KOSTA? 8 milljarða bjartsýniskast. Pressan ÚRKYNJUNIN Á SÉR ENGIN TAKMÖRK ísl. skjaldbökuböm áhyggju- efni. Tíminn FRIÐRIK LEYNIR ÁSÉR Sverrir Hermannsson: Tal Friðriks allt að því hlægilegt. Tíminn FYRST HVALRÉTTINDI, ÞÁ SVÍNRÉTTINDI; HVAÐNÆST? Taka skal tillit til þarfa og eðlis svína. DV SKYLDI FRÉTTARITARI CNN MÆTA Á STAÐINN? Pylsustríð í uppsiglingu. Tíminn FREKJAN ER OKKURí BLÓD BORIN Meginefni ritsins er rannsókn á þróun spumarsetninga tveggja ís- lenskra bama þegar þau em á aldr- inum tveggja til þriggja og hálfs árs. Niðurstöður em fjölþættar, en í þeim kemur m.a. ffam að fyrstu spumingar íslenskra bama byija á orðinu viltu, og að þær gegna flest- ar hlutverki beiðna. Þjóóviljinn 2 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 14. júní 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.