Þjóðviljinn - 14.06.1991, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 14.06.1991, Blaðsíða 4
Það þarf mikla útsjónarsemi og snögg viðbrögð til að bregðast rétt við ( motorcrosskeppni, ef ekki á illa að fara. Myndir: Kristinn. í algleymi eftir góðan sprett Um síðustu helgi fór fram fyrsta motorcrosskeppnin á nýju æfinga- og keppnissvæði vélhjólamanna uppi á Sandskeiði. Eftir nokkurra ára lægð í þessari íþrótt virðist margt benda til þess að hún sé á uppleið á ný með nýrri kynslóð. Meðalaldur motorcrossmanna er um tuttugu ár, en þó er það draumur vélhjólamanna að unglingar allt niður í 10 ára taki þátt í þessum keppnum eins og tíðkast víða erlendis. Það verður þó ekki fyrr en umferðarlögunum verður breytt þannig að akstur utan vega verði fyrir utan gildissviðs þeirra. Á keppnissvæðinu uppi á Sand- skeiði er fullkomin keppnisbraut með stórum stökkum, þvottabrettum, hengjum og beinum hröðum köflum þar sem hjólin ná yfir 100 kílómetra hraða á holóttri brautinni. En mo- torcross kallast það þegar keppt er á mótorhjólum í sand- og moldar- brautum. Þó var einnig keppt í akstri fjórhjóla á Sandskeiðinu um síðustu helgi. Hérlendis er keppt í 3 X 15 mínútur, en erlendis í 2 X 45 mínút- ur. Það reynir því töluvert á þrek vél- hjólakappans í brautum sem þessum og því nauðsynlegt að vera í góðri líkamsæfingu. Ef ekki, er hætt við því að lítill kraftur verði eftir til að halda í stýrið eftir tvo brautarhringi eða svo, samfara þverrandi athygli. Jón Kr. Jakobsson fyrrverandi formaður Vélíþróttaklúbbs Reykja- víkur segir að tii þess að ná árangri í þessari íþrótt þurfi að vera gott sam- spil á milli hjóls og tækni. Ennfrem- ur þarf að vera rétt uppstilling á hjól- inu I braut. Ef ökumaður vélhjóls er með þessa höfuðþætti á tæru getur hann sparað úthaldið, auk þess sem sigurlíkur hans eru mun meiri en ella. Jón Kr. segir að eftir góðan sprett á hjólinu sé líðanin engu lík og nánast eins og menn svífi. En það kostar sitt að stunda þessa íþrótt. Eitt motorcrosshjól get- ur kostað allt að 500 þúsund krónur, góður hjálmur 20 þúsund og galli allt að 60 þúsund krónur. Þar fyrir utan bætist svo að sjálfsögðu við elds- neytiskostnaður og annar kostnaður vegna viðhalds og ýmislegs fleira. Til að varast meiðsli vcrður hver keppandi að vera með sérstaka bijóstvöm, hné-, mjaðma- og oln- bogahlífar, hjálm og vel skóaður. Motorcrossið er þó ekki eingöngu bundið við höfúðborgarsvæðið því keppnisbraut er í Vestmannaeyjum, og cinnig er íþróttin stunduð í Land- eyjum. I keppni til íslandsmeistara eru haldin íjögur mót á sumri og get- ur keppandi valið þrjá bestu árangra sína. Vélíþróttamenn hafa I tvö ár reynt að fá inngöngu í íþróttasam- band Islands, en einhverra hluta vegna hefur íþróttaforystan ekki haft áhuga á að fá þá inn í hreyfinguna. Sömuleiðis kvarta þeir yfir því, að þeim sé mismunað innan heilbrigðis- kerfisins vegna meiðsla. Dæmi: Fót- boltamaður slítur krossbönd í hné. Hann fer svo til samstundis í aðgerð, en vélhjólamaðurinn verður að láta sér lynda að bíða í allt að tvo mán- uði. -grh Svifið I lausu lofti á fjórhjóli. Hart barist I keppni á fjórhjólum. Vélhjólamenn leggja mikið upp úr örygginu og eru þvl vel varöir, eins og sjá má á myndinni ef grannt er skoðað. 4 SÍÐA— NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 14. júní 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.