Þjóðviljinn - 14.06.1991, Page 11
Litunum sveiflaö um Höllu, hún er sumar eins og Tóta. Sumarkonan er
pen og vill ekki mikið láta á sér bera, segir litgreinirinn.
Litgreiningarleikritið er svo fyndið að stelpumar veltast um af hlátri. Litir skipta okkur mun meira máli en við
gerum okkur grein fyrir, segir Heiðar, og eftir áratug eða svo verður jafn sjálfsagt að láta litgreina sig og blóð-
flokkagreina.
það sameiginlegt að fara sjaldan í
betri fötin, en vilji gera það með
„stæl“ þegar þeir klæða sig upp á
annað borð. Alltaf heyrir maður
eitthvað nýtt. Þegar hópurinn hef-
ur allur verið litgreindur fær
meistarinn stúlkunum varaliti og
sýnir okkur síðan svart á hvítu
hvaða árstíðum við tilheyrum.
Við skulum fá sumar í stólinn.
Sumarlitimir renna blíðlega um
vanga sumarsins og við trúum því
að engir litir fari konunni betur.
Réttu litimir fela undirhökur, yfir-
varaskegg og ójöíhur á húðinni.
Við horfum og sannfæmmst. Ein
af annarri setjast þær í stólinn og
við tökum andköf yfir breyting-
unni. Meira að segja myndasmið-
urinn andvarpar. Hann hefur
ákveðið að ganga aldrei aftur í
rauðu eftir að Heiðar sagði hon-
um að inn hefði ekki gengið mað-
ur heldur rauð úlpa þegar hann
mætti á staðinn.
Heiðar lét ekki staðar numið
við litgreininguna heldur fór létt
með að lesa í skrift okkar á ávís-
anablöðunum þegar borgað var
fyrir brúsann. Það er dýrt að fara í
litgreinginu, en konumar virtust
fusar að borga. Konur em ginn-
keyptar fyrir öllu sem þær vona
að geti bætt útlit þeirra og minni-
máttarkennd, sem langflestar
virðast haldnar.
Kók- og hrukkukremsauglýs-
ingamar ýta endalaust undir van-
líðanina. Auk þess er auðveldara
að fara í litgreinginu eina kvöld-
stund en að læra að vera sátt við
sjálfa sig.
Aldrei of seint
Heiðar segist ekki síður lit-
greina eldra fólk en yngra. Hann
hefur meira að segja haldið fyrir-
lestra á ellihcimilum. Það er
aldrei of seint, og gamalt fólk er
ekki síður fallegt en ungt fólk.
Hann segir þeim mjúku að varpa
megmninni fyrir róða og vera
hreyknar af línunum. Mestu
skiptir að vera sáttur við sjálfan
sig og ánægður með útlitið hvem-
ig sem það er. Yndislegt að heyra.
Af hvetju skyldu allar þessar kon-
ur fara á litgreiningu? Blaðamað-
ur spyr stelpumar daginn eftir.
Þær vildu allar fá staðfestingu á
því sem þær vissu svo sem fyrir,
Allar vom þær sammála um að
stundin með Heiðari hafði bætt
sjálfstraust þeirra. Þar stendur
kannski hnífurinn í kúnni. Is-
lenskir karlmenn gæti án efa verið
ósparari á hólið. Heiðar hrósaði
þeim og sagði þeim hvað þær
væm fallegar, hann lýsti inn í
augu þeirra með ljósi og greindi
kosti þeirra, galla líka - en öll
gagnrýnin var svo jákvæð og upp-
byggjandi, eins og ein þeirra benti
á. Leggja mætti til að Heiðar héldi
námskeið fyrir eiginmenn og
elskhuga í því að daðra og slá
gullhamra.
Eitt er víst að inn gengu
þreyttar konur eftir erfiðan vinnu-
dag - út gengu glæsilegar og
reistar árstíðir - snyrtirinn er
göldróttur.
BE
Hrefna er vetur, og silfur fer henni mun betur en gull. Þvl miður emm við
ekki svo múraðar að geta hent öllu gömlu fötunum I vitlausu litunum út
úr skápnum, en héðan I frá skal verslaö rétt.
Að lokum er öllum árstlðunum afhent sitt litaspjald, sem verður jafn-
nauðsynlegt í veskinu og plastkortið þegar farið verður að versla.
Fjölbreytt umhverfissýning
íslenskt rofabarð, „fmnskur"
(borgfirskur) skógur, ýmsar tijá-
tegundir, lækjarspræna, endur-
unninn pappír, norskt landslag
endurskapað, samanpressaðar
dósir. Allt þetta og miklu fleira er
almenningi til sýnis á umhverfis-
sýningu Miljö 91 sem stendur til
15. júní í Melaskóla og Haga-
skóla.
Alls eiga 70 aðilar hluti á sýn-
ingunni. Flestir em íslenskir, en
öll Norðurlöndin eiga sína full-
trúa. Hvert land hefur þijár skóla-
stofur til umráða og sýna þar m.a.
verk af norrænum skólasýning-
um. Finnar til dæmis hafa sett upp
skemmtilega eftirlíkingu af
finnskum skógi, reyndar með
tijám úr Borgarfirði.
Ýmsar stofnanir kynna starf-
semi sína sem tengist umhverfis-
málum á sýningunni, m.a. Sigl-
ingamálastofnun, Hollustuvemd,
Iðntæknistofhun, Skógrækt ríkis-
ins, Landmælingar og Náms-
gagnastofnun.
Fjöldi leikskóla leggur til sýn-
ingarhluti úr þemaverkefnum sem
unnin hafa verið síðustu mánuði.
Einkafýrirtækjum var einnig
boðin þátttaka en aðeins sex
þekktust boðið. Þar á meðal er
Endurvinnslan hf, Iskaup hf sem
flytur inn endurunninn pappír og
Tæknival hf.
Ýmis áhugafélög, svo sem
Ferðafélagið og Umhverfissam-
tökin Líf og land, kynna einnig
starfsemi sína.
Sigurlín Sveinbjamardóttir
verkefhisstjóri Miljö 91 segir að-
sókn ráðstefnugesta að sýning-
unni hafa verið góða, en almenn-
ingur mætti nýta sér þetta tæki-
færi betur, enda aðgangur ókeypis
og margt að sjá. Sýningunni lýkur
sem fyrr segir á laugardag. I dag
er opið kl. 12-18 og á morgun kl.
13-18. -vd.
Finnar hafa
m.a. sett upp
eftirllkingu af
finnsku skógar-
rjóðri, og eins
og sjá má hika
þeir ekki við að
halla sér upp
að barrtrjánum,
enda hraustir
menn.
Mynd:
Kristinn.
Föstudagur 14. júní 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11