Þjóðviljinn - 14.06.1991, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 14.06.1991, Qupperneq 15
stendur nær bókmenntum en blaða- mennsku; persónur hans kvikna til lífs, ef hægt er að tala um „líf‘ í því sambandi. Eirðarleysið, tortryggnin og sljó grimmdin ráða rikjum hjá eiturlyfjaneytendunum. Við finnum líka ákveðna samhygð hópsins, það erum „við“ gegn „þeim“. Hraíh horfir ekki á þennan heim utan frá, hann gengur alveg inn í hann - og tekur okkur með sér að svo miklu leyti sem það er hægt. í næsta hefti Mannlífs fylgir Styrmir Guðlaugsson eftir upplýs- ingum úr grein Hrafns og skrifar um kynþáttahatur íslendinga eins og það birtist í ffamkomu þeirra við grænlenska sjómenn. Þetta eru fyrir- myndarvinnubrögð. Eg saknaði hins vegar sömu vinnubragða í grein Styrmis um Rótarýklúbb Reykja- víkur í 4. tbl. Mannlífs. Þar var engra óþægilegra spuminga spurt. Viðtöl tímaritsins eru yfirleitt vel unnin eins og viðtölin við Krist- ínu Jóhannsdóttur og Ásdísi Thor- oddsen sem gera hvort tveggja að draga upp skýra mynd af persónun- um, en ekki síður viðhorfiim þeirra til listgreinar sinnar. Mamtlif er metnaðarfúllt tímarit og þar er talað við margar, gagn- merkar konur af virðingu og áhuga. Því fyrr nefnda er hins vegar ekki fyrir að fara í tískuljósmyndaþætti einum sem á trúlega að vera „sexy“, en verður óttalega klámfenginn; ung stúlka starir undarlega á okkur með slappt andlit og sljó, hálflokuð augu, en í árdaga hefur einhver talið ein- hveijum trú um að þetta væri andlit hinnar ástríðufullu konu. Yfirskrift- in á þessari hörmung er: „Munúð vorsins“. Heimsmynd Mér finnst Heimsmynd bera af þeim glanstímaritum sem hér hafa verið til umræðu. Ekki (bara) vegna þess að ritstjórinn skrifar fima góð- an og reiðilegan kvenffelsisleiðara að júníheftinu, heldur vegna þess að mér finnst tímaritið gera miklar kröfur til sjálfs sín og standa undir þeim. NIXELEGLANS Heimsmynd tekur fyrir mál sem eru á dagskrá í menningu og stjóm- málum: Þar er til dæmis viðtal við Þórunni Sigurðardóttur og Stefán Baldursson og grein um borgar- stjórakreppuna. Tímaritið fer sjálft og tekur viðtöl við raunvemlega heims-ffægt fólk eins og Mick Jag- ger (eitthvað hefur það nú kostað!), og þó að ekki séu þar allar fféttir jafh merkilegar er þetta skemmtilegt viðtal við greindan gaur. 1 sama tölublaði af Heimsmynd er líka langt viðtal við gamla konu - en það er ekki alvanalegt á hinum glans- andi síðum. Gagnrýnin hér að ofan um tískuheiminn á líka við um Heims- mynd og á ég nú fátt ósagt um glanstímaritin. Nema eitt. Stíll Það er stíll yfir fólkinu í mynd- um glanstímaritanna, en það er líka stíll á textunum sem skrifaðir em þar. Af einhveijum orsökum þykir það við hæfi að skrifa upphaf og endi metnaðarfullra viðtala í skelfi- legum ,yjómatertustíl“ eins og í þessum aðfararorðum (Ur Heims- mynd): „Þórunn þýðir sterk kona sem styrkir þann sem hún elskar. Og það er sá sem ber nafn fyrsta píslar- vottarins.“ Eða þessum lokaorðum (úr Mannlífi): ,jig dreypi úr (sic!) síð- asta kaffibollanum og þakka fyrir spjallið. Úti fyrir gnæfir Óshyma snæviþakin og tignarleg yfir þæn- um. Kaldir vindar blása af Djúpinu og sumarið virðist aðeins fjarlægur draumur í huga Bolvíkinga. Tíma- mót em þó í nánd og vetur konung- ur lýtur að lokum í lægra haldi fyrir nýrri tíð.“ Svo mörg vom þau orð. Dagný Kristjánsdóttir Þórarinn Eldjám: Þá hugsa ég að ég myndi reiðast. Mynd: Kristinn. Margt fær sá er skapa kann í upphafl viðtalsins fékk Þórarinn tækifæri til að gera athugasemd- ir við gagnrýni í síðasta Helgarblaði. Hann sagðist í grundvallaratriðum sáttur við ritdóminn um bók sína vegna þess að viðhorfið hefði verið vin- samlegt en þótti nokkuð skorta á upplýsingar. Þar var gefið í skyn, sagði Þórarinn, að sum ljóðanna væru vond og illa ort en önnur harla góð og til fyrirmyndar. Ég fékk hins vegar ekki að vita hvaða Ijóð töldust góð og hver ekki, sagði Þórarinn. Þar fannst mér skorta á upplýsingar. Hins vegar sagðist Þórarinn að sumu leyti vera sáttur við þá aðferð sem beitt var i þessari tilteknu um- fjöllun þar sem eitt atriði var tekið út úr bókinni og fjallað vítt og breitt um það. Ritdómar verða oft óhugn- anlega staðlaðir sagði hann og leik- dómar em þó enn verri að því leyt- inu. Þórarinn minnti á það i þessu sambandi að Sigurður Pálsson hefði á sínum tima brotið upp á nýjungum í ritun leikdóma með því að taka ein- stök atriði úr sýningum og vinna ít- arlega úr þeim en hirða ekki um þessar stöðluðu remsur sem verða svo áleitnar þegar leikdómar em skrifaðir. Þegar hér var komið í máli Þór- arins þótti blaðamanni rétt að snúa sér að aðalatriðum og spurði: Hvers vegna ertu að skrifa allar þessar bœkur Þórarinn? Það er spennandi starf. Ég vinn við þetta og ætla mér að gera það áfram. Dreymir þig aldrei um að gera eitthvað annað? t.d. að kenna mönnum að aka bíl eða eitthvað þess háttar sem er gjörólikt starfi rithöfundar? Mig dreymir nú kannski ekki um það. Stundum læðist að mér sú hugmynd að gaman væri að gera eitthvað allt annað en þær stundir koma ekki mjög oft. Mig langar sér- staklega lítið til að fást við það sem ég væri sennilega að gera ef ég væri ekki í þcssu. Þá væri ég sjálfsagt ein- hvers konar kennslukraftur á ein- hveiju sviði. Hins vegar hugsa ég að ég hefði mjög gaman af að vinna á skurðgröfu eða vera lögga eða strætóstjóri um tfma. Hvemig líst þér á íslenskar bók- menntir um þessar mundir? Ég held að skoðanir mínar á þvi hvað er að gerast geti varla kallast mjög mótaðar. Hins vegar hef ég það á tilfinningunni að það sé mjög margt að gerast, bæði i ljóðlist og prósa. Ég treysti mér hins vegar ekki til að styðja á það fingri og segja þetta er að gerast þama og hitt hér o.s.frv. Er mikið að gerast hjá sjálfum þér? Ertu að undirbúa ný verk? Já, ég hef upp á síðkastið fengist meira við ljóðagerð en ég hef gert á undanfomum ámm en skrifa þó smásögur nokkuð jafnt og þétt. Það má segja að þar sé ég að safha í saip- inn. I haust er von á bók handa böm- um. Hún verður með teikningum eftir Sigrúnu systur mína. Síðan kemur enn ein ljóðabók handa fúll- orðnum. Hún verður með rimuðum ljóðum. Þú hefur þá ekki snúið baki við ríminu? Nei, það gerir maður aldrei. Ég hef ekki gefið út rímuð ljóð síðan ég gaf út Disneyrímur 1978 og Erindi, 1979 en nú er semsé von á nýrri, rimaðri ljóðabók. Lestu mikið? Hvað lestu helst? Ég les nokkuð mikið en það er skrykkjótt. Ég hef gaman af að rek- ast inn í bókabúð og taka þar ein- hveija bók sem lendir í höndunum á mér. Ég les líka mikið af því sem kalla mætti lélegar, þjóðlegar bók- menntir. Það em skrýtnar ævisögur, alls konar þættir og þess háttar. Ég hef alltaf haft veikleika fyrir því. I þess háttar bókum er það svo magn- að hvað maður fær að vita margt óvart. Það læðist með alls konar þjóðlegur fióðleikur. Það þarf ekki að vera meira en ffásögn af því hvemig menn komast á klósettið. Það eru alls konar sjálfsagðir hlutir sem hafa gleymst. Ég hef gaman af þess háttar ffæðurn. Það varð vart við þetta i skáld- sögunni Kyrr kjör. Það var afskap- lega góð skáldsaga en fékk slœmar undirtektir. Kanntu nokkrar skýr- ingar á þvi? Það lá auðvitað beint við þar vegna þess að það var eins konar söguleg skáldsaga,- byggð á manni sem var til, Guðmundi Bergþórssyni rimnaskáldi. Það var meðal annars mikið af þjóðsögum í henni. Þó að ég hefði ekki metnað til þess að fara að setja öll smáatriði niður í réttan tíma þá varð náttúrlega að búa til umgerð og fróðleikur af þessu tagi nýttist mér í að finna hana. Nú erþað auðvitað svo að það getur enginn endurskapað vísindalega rétt, dag- legt mál frá þessum tíma þó ekki væri nema af þeirri ástæðu að eng- inn veit hvemig það var. Það hlýtur að verða að reyna að búa til blæ. Síð- an gerðist það í þessari bók að farið var út úr þessu stöku sinnum og það fór I taugamar á fólki. Það var til- dæmis einhvers staðar minnst á ffík og það fannst einhveijum stráks- skapur. Ég lét það gossa vegna þess að í ffæðunum í kringum Guðmund Bergþórsson rímnaskáld urðu mikl- ar umræður um orðið ffak sem eng- inn veit hvað þýðir. Er eitthvað i „Hinni háfleygu moldvörpu “ sem þér þykir sérlega vœnt um að hafa komið saman? Það er mjög erfitt að taka eitt- hvert ljóð út og segja að það sé sér- stakt uppáhaldsljóð. Ég veit ekki hvort ég treysti mér til þess. Ég var að vísu mjög sáttur við þetta (hann bendir á kvæði sem heitir „Bamið og baðvatnið"). Svo er nú eins og það sé oft þannig að þetta snýst um myndir. Það er alltaf verið að stúss- ast við myndir í þessu. í sambandi við það mætti kannski minna á ör- stutt kvæði sem heitir: Stytt upp. Þar em myndir sem maður kemur allt i einu auga á og virðast ótrúlega sjálf- sagðar þegar þær era komnar í ljóð. Þú ert stundum sakaður um að hafa ekki áhuga á neinu nema orða- leikjum sem stundum eru jafnvel kallaðir aulajýndni. Hvert er þitt viðhorf til þeirrar gagnrýni? Ég hef náttúrlega margsagt það sem ætti að vera augljóst mál að ég er alltaf að reyna að vera fyndinn. Mér kemur ekkert á óvart að menn sjái það. Ef mönnum líkar það illa þá held ég í raun og vera, án þess að ég sé að reyna að vera hrokafullur, að ráðlegt sé að lesa eitthvað annað. Það er nóg lesefni til fyrir þá sem skilja ekki húmor til dæmis. Hins vegar má stundum segja að viðhorf af þessu tagi breytist í klisjur sem hver étur upp eftir öðrum. Það getur auðvitað verið skaðlegt fyrir rithöf- unda sem þróast i sínu starfi og breytast. Það er algengt að bókum manna sé alltaf svarað með sömu viðbrögð- unum ár eftir ár þó að þeir breytist og bæti við sig og bækumar hafi máski gjörbreyst. Hvað heldurðu til dæmis að oft sé búið að afgreiða Þorstein ffá Hamri með því að hann sé þjóðlegur höfundur? Ljóðagerð hans hefúr gerbreyst, en það er eins og ekkert fái komið í veg fyrir að farið sé af stað með eitthvert þjóð- háttaröfl um leið og hann sendir ffá sér bók. Það hefur orðið samkomu- lag um þá klisju að hann sé eitthvað sem kallast þjóðlegur höfúndur. Önnur klisja sem ég óttast er sú að ég verði einhvem tíma kallaður vandvirkur. Ég er ekki að mæla bót subbuskap og óvandvirkni, en þegar einhver fær listaverk í hendumar og hefúr ekkert annað um það að segja en að vandvirknislega sé unnið, þá segir það mér ekki annað en að um algerlega dauðan texta sé að ræða. Ef gagnrýnendur segðu um mig að ég væri vandvirkur þá hugsa ég að ég myndi reiðast. Hins vegar veit ég vel af þessari gagnrýni sem þú minntist á og hún gerir mér ekkert til. I þessu sam- bandi má þó minna á að til er leið sem má nota til þess að skipta höf- undum í tvo hópa. Sumir rithöfúndar eru krítikerahöfundar og aðrir era lesendahöfundar. Ég hef aldrei verið krítikerahöfúndur. Ég hef reyndar oft fengið góða kritík, líka vonda, en aldrei þetta gegnumgangandi við- horf sem fylgir krítikerahöfúndum. Fólk kemur hins vegar iðulega til mín og er eitthvað að minnast á það sem ég hef verið að gera, án þess að því beri nokkur skylda til þess og mér finnst þeir gagnrýnendur alveg jafn merkilegir og hinir sem hafa at- vinnu af því að segja skoðun slna á bókum. Ertu i raun og veru að segja að þér sé það mikils virði áð leika þér að orðunum? Já, þetta er aðferð og afstaða sem ég hef alltaf haft mikinn áhuga á. Viltu ekki kasta fram einni stöku að lokum Þórarinn? Ég setti reyndar saman eina, tveimur vikum eftir að bókin kom út. Þá fæddist fimmti sonur minn. Hann heitir Halldór. Ég var svo ánægður með hvort tveggja, bókina og soninn að ég bjó til þessa vfsu: Ut eru komin hún og hann, heldur betur gleðja mann, Halldór minn og Moldvarpan, margt fcer sá er skapa kann. -kj Föstudagur 14. júní 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA15

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.