Þjóðviljinn - 07.08.1991, Page 1
Smj örvanum
laumað inn
Olafur Ragnar Grímsson mun krefjast svara á fundi utanríkis-
málanefndar við því hver það var sem tók ákvörðun um setja
hefðbundnar landbúnaðarvörur á fríverslunarlistann vegna
samninga um evrópskt efnahagssvæði án þess að hafa til þess
umboð. Hafi það verið aðalsamningamaður íslands, Hannes Hafstein,
telur Ólafur Ragnar rétt að hann segi af sér. Hafi hinsvegar Jón Baldvin
Hannibalsson tekið þessa ákvörðun telur Ólafur Ragnar rétt að Alþingi
verði kallað saman í ágúst til að fara yfir samningagerðina áður en
samningar hetjast að nýju í september. Fundurinn átti að vera í dag en
var frestað þar sem ekki náðist í alla nefndarmenn.
Olafúr Ragnar kynnti á blaða-
mannafúndi í gær tvær útgáfúr af frí-
verslunarlista EES- samkomulags.
Ólafúr Ragnar sagði það ótvírætt
samkvæmt gögnunum að utanríkis-
ráðuneytið hefði sagt þjóðþinginu
ósatt um hvað væri verið að semja í
EES.
Samkvæmt drögum að fríverls-
unarlista með unnar landbúnaðarvör-
ur frá 7. mars í vor eru Smjörvi, Létt
og laggott og ísgerðarefni ekki á list-
anum - að minnsta kosti ekki undir
sama tollnúmeri og þær eru sam-
kvæmt lista ffá 11. júli. Þar eru þess-
ar vörur komnar skýrt og greinilega
inn á listann og eru enn á listanum
endanlegum dagsettum 23. júlí, dag-
inn sem samningamir strönduðu. Ut-
anríkisráðuneytið hélt því fram í
Þjóðviljanum fyrir helgi að þessar
vöruflokkar hefðu verið á listanum í
a.m.k. ár. En í kynningarbréfi fyrir
fúnd í landbúnaðarráðuneytinu frá
21. maí kemur skýrt fram að ísland
hafi ekki tekið þátt i óformlegum
viðræðum um afléttingu tolla á land-
búnaðarvörum en hafi hinsvegar tal-
ið sig geta fallist á að fella niður
gjöld á landbúnaðarafúrðum Suður-
Ólafur Ragnar Grímsson kynnir tvær
mismunandi útgáfur af friverslunar-
lista vegna samnings um evrópskt
efnahagssvæöi. Mynd: Jim Smart.
Evrópulanda svo scm tómötum,
gúrkum og afskomum blómum - svo
framarlega sem ásættanleg niður-
staða fáist vegna sjávarútvegsins.
Hvergi er minnst á Smjörva eða aðr-
ar slíkar vörur.
Utanríkisráðherra sagði í samtali
við Þjóðviljann í gær að ráðuneytið
hefði engu leynt þar sem alls ekki
væri verið að semja um landbúnað-
arvömr í EES - sem séu utan samn-
ingssviðsins. Verið væri að semja
um ffíverslun með iðnaðarvörur. Jón
Baldvin sagði að Smjörvi og Létt og
laggott væm iðnaðarvömr. Ef svo
væri ekki ætti iðnrekandinn Davíð
Scheving Thorsteinsson að vera i
Stéttarsambandi bænda, sagði Jón
Baldvin. Af orðum utanrikisráðherra
er ljóst að hann telur sig hafa fullt
umboð til að semja um þessar vömr
þar sem þær séu iðnaðarvömr, auk
þess að það hafi alltaf verið inní
myndinni og hafi því farið rétta boð-
leið í kerfinu.
Ólafúr Ragnar lagði hinsvegar
fram formála að endanlega listanum
sem ber heitið Protocol 1 og kallast
vömmar sem þar era teknar fyrir
unnar landbúnaðarvömr eða „proc-
essed agricultural products“. Hann
taldi þar með sannað að um landbún-
aðarvömr væri að ræða en Jón Bald-
vin heldur því statt og stöðugt fram
að um iðnaðarvömr sé að ræða.
Hann bendir ennffemur á að Evrópu-
bandalagið eigi í tvíhliða viðræðum
um landbúnaðinn við allar aðrar
EFTA-þjóðir en ísland.
Ólafiir Ragnar sagði það ekki
annað en hártoganir að kalla þessar
mjólkurafúrðir iðnaðarvörur og þá
væm eigi að síður um vísvitandi
ósannindi af hálfú ráðuneytisins að
ræða.
Þá sagði Jón Baldvin að Smjörvi
og Létt og laggott hefðu verið á list-
anum sem var kynntur í vetur eða 7.
mars. Hann bendir á tollnúmerið
20.06 þar sem talað er um unnar
matvömr sem ekki em tilgreindar
annarsstaðar á listanum. Sem þýðir í
raun að 20.06 getur átt við nánast
hvað sem er.
Þetta tollnúmer er horfið í end-
anlegu útgáfunni en inn er komið
nýtt númer 15.07. Þar er talað um
smjörlíki og blandaða eða unna mat-
vöm með dýra- eða jurtafeiti og ol-
íum - það er að segja t.d. Smjörvi
sem er 80 prósent smjör og 20 pró-
sent jurtaolía. Jón Baldvin sagðist
ekki hafa hugmynd um af hveiju
20.06 væri farið út og 15.07 væri
komið inn.
Jón Baldvin viðurkenndi að
þessar vömr væm notaðar sem
skiptimynt í samningagerðinni enda
væri það aðalkappsmál Islendinga að
fá tollffelsi fyrir fisk og að aldrei
hefði komið til greina að láta samn-
inginn falla á viðbiti einu saman, en
Ólafúr Ragnar benti á að þannig
hefði verið gengið ffá listanum að
honum yrði ekki breytt nema fella
samkomulagið í heild sinni.
Stéttarsamband bænda hefur
óskað eftir því að fúlltrúi þess fái að
sitja fúnd utanríkismálanefndar Al-
þingis í dag.
-gpm
Þorsteinn veit ekki hvort leyfa eigi háhymingsveiðar
Stjórn Sambands dýraverndunarfélags íslands hefur haft fregnir af því
að fjölmargar fyrirspurnir um leyfi til að veiða lifandi háhyrninga til
sölu í erlenda dýragarða hafi borist sjávarútvegsráðuneytinu. Auk
þess liggi ein formleg beiðni þess efnis nú fyrir ráðuneytinu. 1 þeirri beiðni
er beðið um leyfi til að veiða fjóra háhyrninga.
fyrst og fremst spuming um hvort sjávarútvegsráðuneytið myndi meta
stofninn þyldi tökur á svona dýmm og þá hlið málsins umfram allt. -KMH
Herínn borgi brúsann
,J>etta mál er til skoðunar og við
höfum ekki gefið neitt ákveðið svar
enn sem komið er,“ sagði Þorsteinn
Pálsson, sjávarútvegsráðherra, er
blaðið innti hann effir upplýsingum
um þetta mál. ,,Ég veit nú ekki til þess
að okkur hafi borist fleiri en þessi eina
beiðni um þetta. Þeir aðilar sem sótt
hafa um leyfið em þeir aðilar sem séð
hafa um uppbyggingu Sædýrasafnsins
í Hafnarfirði," sagði Þorstemn.
Þess má geta að síðan bannað var
að veiða háhyminga í Bandaríkjunum
og Kanada hafa íslendingar verið einir
um að útvega hvali fyrir sædýragarða
í þessum heimshluta.
Þorsteinn sagði að tökur á háhym-
ingum hefðu verið leyfðar á undan-
fomum árum en þorði ekki að segja til
um hversu margir hefðu verið veiddir.
í yfirlýsingu,ffá Sambandi dýra-
vemdunarfélags íslands segir að það
sé íslendingum ekki samboðið að gefa
leyfi til þess aðilar geti grætt á þján-
ingu dýra eins og yrði ef leyft verður
að veiða háhyminga.
Stjóm Sambands dýravemdunar-
félags Islands lýsir nú eins og áður yf-
ir eindreginni andstöðu við að háhym-
ingar séu veiddir til þess að verða lífs-
tíðarfangar í sædýragörðum.
Reynslan af slíkum veiðum er
ekki góð. Sjálfar veiðamar fara mjög
illa með dýrin, sem verða skelfmgu
lostin og verða oft fyrir meiðslum.
I sædýragörðum býr dýrið ævi-
langt við aðstæður sem em algjörlega
í andstöðu við eðli þess, enda verður
meðalævi háhyminga þar ekki nema
u.þ.b. 10 ár á móti 80 árum í eðlilegu
umhverfi. Aðspurður um þessa hlið
málsins sagði Þorsteinn að þetta væri
Samtök herstöðvaandstæðinga á
Borgarfirði eystra lýsa yfir
stuðningi við kröfur landeig-
enda á Heiðarfjalli um að svæðið
verði rannsakað og hreinsað á
kostnað bandariska hersins.
Á fundi samtakanna á mánudag
var samþykkt ályktun til stuðnings
landeigendum. Þar segir m.a.: „Um
Icið og bandaríski herinn flæðir yfir
landið við heræfingar er afhjúpað
stórhneyksli í sambandi við mengun
af völdum bandarisku ratsjárstöðv-
anna á Heiðarí]alli...Fundurinn krefst
opinberrar rannsóknar á afsali ís-
lenskra stjómvalda á skaðabótarétti í
málinu.“ Um leið hvetur fundurinn til
eflingar baráttunnar gegn hersetunni
og mikillar þátttöku í Keflavíkur-
göngu 10. ágúst. -þóm
Króatar
|§ ' ♦ % '
að virða
vopna
/
"'ifft 'v>" "/Ay■ 5r&i.'