Þjóðviljinn - 07.08.1991, Síða 4

Þjóðviljinn - 07.08.1991, Síða 4
Erlenðar V _______ _ FKETTIR Hiroshima og Kóreumenn ennan þriðjudag (6. ágúst) koma friöarsinnar hvaðan- æva úr Japan og annars- staðar frá saman í Hiro- shima í tilefni þess að kjarnorku- sprengju var varpað á þá borg þennan dag fyrir 46 árum og á Nagasaki þremur dögum síðar, 9. ágúst. Þetta fólk minnist þeirra sem þá fórust og heitir þvi að gera sitt til að öllum stríðum megi verða lokið. En þeir, sem leggja leið sína í Minningagarð Friðarins í Hiro- shima, þar sem stendur minnis- merki um þá, er kjarnasprengjan er á borgina féll varð að bana, munu með eigin augum sannreyna misrétti sem er slík viðurstyggð að flestum mun átakanlegt þykja. Beint þar undir sem sprengjan sprakk er minnismerki og eru á það letruð nöfn þeirra sem fórust. En þar eru ekki nöfh yfir 50.000 Kóreu- Frá safni I Hiroshima til minningar um þá sem þar fórust er sprengjan féll fyrir 46 árum - enn veröa Kóreu- menn aö minnast sinna látnu utan- garös. manna, sem urðu fómarlömb sprengjunnar. I ágúst 1945 bjuggu um 70.000 Kóreumenn í Hiroshima og um 30.000 í Nagasaki. Flestir þeirra voru þar í nauðungarvinnu, fluttir þangað til þess frá Kóreu, sem þá var undir grimmri nýlcndustjóm Japans. Kóreumenn, sem em fjölmenn- asti þjóðemisminnihlutinn í Japan, mótmæltu en til einskis. Kóreumenn i Hiroshima fóm fram á leyfi til þess að reisa í garðinum minnismerki um landa sína, sem dóu af völdum kjamasprengjunnar, en borgaryfir- völd synjuðu þeim þess. Þeir urðu að reisa minnismerkið utan garðs, hin- um megin árinnar. Flestir sem til borgarinnar koma sjá ekki þetta minnismerki, og ekki gera þeir sér heldur grein fyrir að yfir tíundi hluti þeirra sem urðu kjamasprengjunni að bráð í Hiroshima vom Kóreumenn. Borgarembættismenn neituðu um leyfi til að reisa kóreanska minnis- merkið í Minningargarði „af fagur- fræðilegum ástæðum." Þeir sögðu að þegar væm of mörg minnismerki í garðinum. En síðar fundu arkitektar þar stað fleiri minnismerkjum, þ.á m. einu um hesta sem atómsprengingin grandaði. Kóreumenn þeir í borginni, sem lifðu af sprenginguna, fengu ekki styrk frá ríkinu til læknishjálpar fyrr en 1978, þegar hæstiréttur Japans úr- skurðaði að allir, sem beðið höfðu heilsutjón af völdum sprengingarinn- ar hefðu rétt á hjálp frá því opinbera, sama hvert þjóðemi þeirra væri. Sem við syrgjum þá látnu og biðjum fyrir fnði á þessum degi minninga er það skylda Japans að hætta að loka augunum fyrir fordóm- um þeim er hér hafa sýnt sig. Fyrst þegar kóreanska minnismerkið er komið í garðinn og þar blasa við augum nöfn allra þeirra, sem vitað er að urðu fómarlömb sprengjunnar verður hægt að taka alvarlega orð þau um frið og réttlæti, sem látin em falla í garðinum við hátíðleg tæki- færi. K. Connie Kang, San Fransiskó. (Lesendabréf í Intemational Her- ald Tribune.) , PRESS UR HEIMSPRESSUHNI Kólera geisar í Afríku Um 4700 manns hafa látist af völdum kólerufaraldurs sem und- anfarið hefur gengið í Afríku og náð til 12 landa þar, að sögn Al- þjóðlegu heilbrigðismálastofnunar- innar (WHO). Yfir 52.000 manns i löndum þess- um em nú veikir af sjúkdómnum, sem einkum nær sér niðri þar sem ekki er kostur á hreinu drykkjarvatni og hreinlætisaðstaða er slæm. Flestir, um 980, hafa látist í Sam- bíu. Þar að auki hefúr faraldurinn náð til Búrkína Faso, Kenýu, Mósambiks, Nígeriu, Angólu, , Sjads, Senegals, Fílabeinsstrandar, Úganda, Benin og Sao Tome og Principe. WHO segir að kólera valdi meira manntjóni í Afriku en í Rómönsku Ameríku og Asíu, þar sem hún einnig er landlæg. Innilegar þakkir til alira, er sýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar Eiríks Þorsteinssonar Glitstöðum Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilis aldr- aðra, Borgarnesi, fyrir góða umönnun í veikindum hans. Katrín Jónsdóttir, dætur og fjölskyldur þeirra. Kaifu - heimsókn hans gaeti opnaö Japönum leið til mikilla efnahagslegra ítaka I landinu milli Klna og Sovétríkjanna. Japanir hugsa sér gott til glóðarinnar í Mongólíu Toshiki Kaifu, forsætisráð- herra Japans, fer í opin- bera heimsókn til Mongól- íu í næstu viku og er talið að það sé fyrirboði þess að Japan verði öllum öðrum ríkjum örlát- ara á efnahagshjálp við Mongóla. Land þeirra er auðugt af málm- um og því ekki ósennilegt að Japanir hugsi sér gott til glóðarinnar þar um fjárfestingar og viðskipti. Kaifu verður fyrstur forsætisráð- herra Japans til að sækja Mongóla heim. Fyrri skipti þeirra og Japana voru raunar ekki ýkja vinsamleg. Mongólar reyndu að hertaka Japan á 13. öld og rétt fyrir heimsstyrjöldina síðari reyndu Japanir það sama við Mongólíu. Báðar tilraunimar mis- tókust. Eignaðist fimmta bamið 92 ára Les Colley, 92 ára fyrrverandi hafnarverkamaður ástralsk- ur, cignaöist fyrir nokkrum dögum fimmta barn sitt, dreng er látinn var heita Oswald. Næstyngsta barn Colleys er 15 ára, það elsta 71 árs. Barnabörn o.s.frv. á hann fleiri en hann segist muna. Nokkra athygli hefur þctta vakið cn sjálfúr telur Colley, sem býr í bæ að nafni Ararat í Viktoríufylki, þetta ekki sæta neinum stórtíðindum. Seg- ist hann ekki vera síður sprækur en þegar hann var rúmlega tvítugur. Hann þakkar gott heilsufar sitt því að hann borði næringarríkan mat, en láti ekki ofan í sig neitt draslfóður eins og kók og kartöflu- flögur, eins og hann orðar það. Hann hvorki reykir né neytir áfengis. Núverandi eiginkona Colleys heitir Patty, 38 ára og frá Fidjieyj- um. „Hann er betri en sumir ungir menn,“ segir hún. Ekki er vitað hvort Colley hefúr slegið heimsmet með því að verða faðir svo gamall og enginn verður ÍTÓðari um það með því að líta í heimsmetabók Guinness. Þar eru að- eins taldar upp elstu mæðumar. 12 fórust í húsbruna Tólf manns fórust er gistiheimili 1 fylkinu Nýja Suður-Vels í Ástralíu, um 300 km norður af Sydney, brann fyrir helgina. Er þetta mesta mann- tjón í húsbruna sem orðið hefúr í fylkinu, sem er það fjölmennasta í Ástralíu, frá því er 19 manns fórust i hótelbruna í Sydney 1981. Á gistiheimilinu bjó einkum eldra fólk sem orðið hefúr fyrir heilaskemmdum, margt af völdum ofdrykkju. Polozkov látinn segja ar sér ívan Polozkov, leiðtogi Kommúnistaflokks Rússlands, sem talinn er öflugasta vígi íhaldsmanna meðal sovéskra kommúnista, sagði af sér á fundi miðstjórnar flokksins í gær. Er talið að hann hafi verið knúinn tii þess í von um að afsögn hans dragi úr harðlínusvip flokksins, sem fælt hefur frá honum marga féiaga. Jafnframt var vikið úr flokkn- um Aleksandr Rutskoj, varafor- seta Rússlands, sem er í forustu nýstofnaðs flokks er nefnist Lýð- ræðisflokkur rússneskra kommún- ista. Hann mun vera talinn til frjálslyndra eða miðjumanna. Tal- ið er að sá brottrekstur auki líkur á klofningi í kommúnistaflokkum Sovétrikjanna og Rússlands. IAEA §akar Irak um samnings- rof Stjórn íraks hefur veitt eftir- Iitsmönnum frá Sameinuðu þjóðunum nýjar upplýsingar um leynilegar tilraunir Iraka til að framleiða plútoníum, sem nauðsynlegt er ef gera skal kjarnasprengju. Alþjóðlega kjarnorkumála- stofnunin (1AEA) segir að sú stað- reynd að írak hafi ekki gefið þetta upp fyrr þýði enn eitt brot þess á samningi þess við stofnunina sam- kvæmt sáttmálanum gegn ,út- breiðslu kjamavopna, sem Irak hefur skrifað undir. Þýskir ferðamenn fangar skæruliða Tíu þýskir ferðamenn, þar af fjórar konur og þrjú börn, eru fangar kúrdneskra skæruliða einhversstaðar í íjöllunum vest- ur af Vanvatni í tyrkneska Kúrdistan. Rændu skæruliðamir fólkinu á fimmtudagskvöld í s.l. viku. Talsmaður kúrdneskra skæru- liðasamtaka á þessu svæði sagði í gær að skæruliðar þeir sem höfðu Þjóðveijana, er þama vom á ferða- lagi, á brott með sér, hefðu gert það án leyfís og vitneskju yfir- manna sinna. Lofaði talsmaðurinn að ferðafólkinu yrði skilað heilu á húfi innan nokkurra daga „nema tyrkneski herinn komi í veg íyrir það.“ Tyrkneskar herflokkar leita ferðafólksins ákaft á þessum slóð- um. ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 7. ágúst 1991 Slða 4

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.