Þjóðviljinn - 07.08.1991, Qupperneq 5
Stjómarher
Sri Lanka
hrósar sigri
Her stjórnarinnar á Sri
Lanka segist hafa unnið
sinn mesta sigur til þessa í
stríðinu við tamílska uppreisnar-
menn í orrustu í Fílaskarði (EI-
ephant Pass), en um það liggur
eina færa landleiðin frá eynni út
á Jaffnaskaga sem gengur norð-
ur úr henni í áttina til Indlands.
Skaginn mun mestanpart vera á
valdi uppreisnarmanna.
Skæruliðar samtaka sem nefn-
ast Tamil Eelam-lrelsistígrar hafa
lagt allt kapp á að ná þessari leið á
vald sitt og settust 10. júlí um her-
stöð í skarðinu, þar sem voru um
800 stjómarhermenn. Þeim tókst
að hrinda öllum áhlaupum frelsi-
stígranna á stöðina og á laugardag
vom þeir leystir úr umsátrinu.
Stjómarherinn setti lið á Iand
um níu km frá herstöðinni, en tígr-
amir vörðu hvert ferfet lands af
hörku og tók það hjálparliðið þrjár
vikur að skjóta sér braut til stöðv-
arinnar. En eftir að því loks tókst
að rjúfa umsáturshringinn flýðu
uppreisnarmenn.
Stjóm Sri Lanka segir ormstu
þessa þá mestu hingað til í stríði
stjómvalda og tamílskra uppreisn-
armanna, sem staðið hefur í átta ár.
Að sögn stjómartalsmanna féllu í
orrustunni um 2100 frelsistígrar og
yfir 150 stjómarhermenn. Ekki
hafa tölur til samanburðar borist
frá uppreisnarmönnum.
SRI LANKA
Dökku svæöin eru héruö þau á eynni
sem að mestu eöa talsverðu leyti eru
byggö Tamílum. Frelsistígrar vilja
gera úr þeim sjálfstætt ríki, tamílskt.
Atvinnuleysis-
vofan herjar
á Þjóðverja
Um þessar mundir er áætl-
að að rúm 12 af hundraði
vinnufærra íbúa þess
hluta Þýskalands, sem áður var
Austur-Þýskaland, mæli göturn-
ar og láti sig dreyma um þá
„góðu gömlu“ daga þegar svo
hét þar í landi að allir hefðu eitt-
hvað við að vera.
Atvinnuleysisvofan hrellir
reyndar ekki aðeins íbúa austur
hluta Þýskalands, því í vestur hlut-
anum hefur atvinnuleysi vaxið
jafnt og þétt á síðustu vikum eftir
að efiirspum eftir vinnuafli hafði
aukist síðustu mánuðina.
Um þessar mundir er talið að
ríflega ein miljón manna mæli göt-
urnar í íýmim sæluríki sósílaism-
ans, eins og Austur-Þýskaland var
einhverju sinni nefnt af pólitískum
bókstafstrúarmönnum.
Að sögn forsvarsmanns vinnu-
málaskrifstofu Þýskalands tókst
lengi vel að skapa þeim ibúum
austur hlutans sem misstu atvinn-
una eftir hmn Austur-Þýskalands,
vinnu við endurreisnina þar austur
eftir sameininguna. En nú er sem
sagt annað uppi á teningnum. Fyr-
irtæki í austur hlutanum verða
gjaldþrota hvert á fætur öðm, enda
langt i frá samkeppnishæf hvað
varðar vöruframboð og gæði þeirra
vesturþýsku og heilum skara
manna sem störfuðu hjá því opin-
bera hefur verið sagt upp störfum.
Talsmaðurinn segir að aukning
atvinnuleysis síðustu vikumar í
vestur hluta Þýskalands sé að
miklu leyti árstíðabundin og von
væri til að úr myndi rætast innan
tíðar.
-Reuter/rk
Verður gíslum í
Líbanon sleppt?
IsIamska_Jihad, samtök í Líb-
anon hlynnt Iran sem halda nokkr-
um vesturlandamönnum í gíslingu,
segja að sendiboði frá þeim sé á
leiðinni til New York með „ákaf-
lega mikilvæga orðsendingu“ til
Javiers Perez de Cuellar, aðalritara
Sameinuðu þjóðanna. Gefa mann-
ræningjar þessir í skyn að þeir
hyggist nú láta einhveija af vest-
rænum fóngum sínum lausa. Þeir
hafa hingað til neitað að sleppa
föngunum nema því aðeins að Isra-
elar láti lausa hundmð líbanskra og
palestínskra fanga. Sá vestrænu
fanganna sem lengst hefúr verið á
valdi líbanskra mannræningja er
Terry Anderson, bandarískur
blaðamaður. Hann er nú 43 ára og
hefur verið fangi íslamska Jihad í
nokkuð á sjöunda ár.
FKETIIK
A Umsjón: Dagur Þorleifsson
Króatískur þjóðvaröarliöi - þeir félagar hafa farið mjög halloka fyrir serbneskum skæruliöum og beöið mikiö manntjón.
Júgóslavía: Stríðsaðilar
samþykkja vopnahlé
Forsætisráð Júgóslavíu lýsti í
gær yfir vopnahléi, sem átti
að taka gildi klukkan fjögur
í morgun að ísl. tíma. Áður
höfðu fulltrúar ráðsins tilkynnt
að bæði Serbar og Króatar
hefðu lofað að hætta bardögum.
í yfirlýsingu ráðsins er ekkert
tekið fram um hlutverk sambands-
hersins, sem ljóst er að öðm hvom
a.m.k. hefur veitt serbneskum
skæmliðum aðstoð gegn lögreglu
og þjóðvarðarliði Króatíu.
Serbnesku skæmliðamir hafa í
bardögunum undanfarið náð á vald
sitt stómm svæðum í Króatíu sem
byggð em serbnesku fólki. Tiltölu-
lega rólegt hefúr verið á vígstöðv-
unum síðan á laugardag, en eitt-
hvað hefur þó verið um skothríð
og sprengjukast.
Ekki kom mikið út úr ráðstefnu
utanríkisráðherra Evrópubanda-
lagsríkja í Hollandi í gær um
ástandið í Júgóslavíu. Til greina
hafði komið að samþykkt yrði þar
að Vestur-Evrópuríki sendu vopn-
að friðargæslulið til Júgóslavíu, og
hafði franska stjómin stungið upp
á því. Ekki var á ráðstefnunni tekin
nein ákvörðun um þetta og ekki
heldur um efnahagslegar refsiað-
gerðir gegn Júgóslavíu, en það
hafði einnig komið til greina.
Gagnrýni á hendur júgóslav-
nesku sambandsstjóminni vegna
aðgerða hers hennar hefur farið
vaxandi í EB-löndum síðustu daga
og þýska stjómin gaf nýverið í
skyn að EB kynni að viðurkenna
sjálfstæði Króatíu og Slóveníu.
Sovéska stjómin varaði í gær
vesturlandaríki við að takast á
hendur hemaðarlega íhlutun í
Júgóslavíu og sagði að ef svo færi
væri hætta á að átökin þar breidd-
ust út um alla Evrópu.
N ýbyggðastefna
Israels óbreytt
Yitzhak Shamir, forsætisráöherra
Israels - I augum hans er Vestur-
bakkinn Júdea og Samaria, héruö
sem Israelar eiga á fornhelgan rétt.
Dan Meridor, dómsmálaráð-
herra Israels, tók fram í gær að
stefna stjómar hans um að leyfa
gyðingum að setjast að í Gaza og á
Vesturbakka væri óbreytt. Var
stofnun nýrrar byggðar gyðinga á
síðamefnda svæðinu hafin á mánu-
dag. Ætla 15 'jölskyldur að setjast
þar að. Ekki er talið að þetta auki
líkumar á að fyrirhuguð friðarráð-
stefna Arabaríkja og ísraels verði
haldin.
Fyrrum skólastjóri á Seyðisfirði
Steinn Stefánsson
Laugarnesvegi37 Reykjavík
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 9. ágúst kl. 13.30.
Heimir Steinsson Kristln Steinsdóttir Stefán Steinsson Iðunn Steinsdóttir Ingólfur Steinsson Guömunda Gestsdóttir
og aðrir vandamenn
Síða 5
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 7. ágúst 1991