Þjóðviljinn - 07.08.1991, Side 7
Karen
og Úlfar
meistarar
í golfi
Karen Sævarsdóttir, GS, og
Úlfar Jónsson, GK, sigruðu örugg-
lega á Islandsmótinu i golfi, sem
fram fór á Hellu um helgina. Þann-
ig vörðu þau bæði titla sína Ifá
fyrra ári og sýndu eina ferðina enn
hverjir eru fremstu golfleikarar
landsins.
Úlfar byijaði nokkuð illa á
mótinu og var aðeins í 10. sæti efl-
ir fyrsta dag. Hann náði siðan for-
ystunni á öðrum degi og hélt henni
nokkuð örugglega til loka. Samtals
lék Úlfar á 284 höggum. Næstur i
meistaraflokki karla kom Siguijón
Amarson, GR, á 289 höggum, en í
þriðja og fjórða sæti urðu Guð-
mundur Sveinbjömsson, GK, og
Ragnar Ólafsson, GR, á 290 högg-
um.
Karen Sævarsdóttir vann enn
auðveldari sigur í meistaraflokki
kvenna. Hún lék á 309 höggum, en
Ragnhildur Sigurðardóttir, GR,
varð önnur á 320 höggum og Þór-
dís Geirsdóttir, GK, þriðja á 322
höggum.
Mjög spennandi keppni var í 1.
flokki karla. Davíð Jónsson, GS,
sigraði á 300 höggum, rétt einsog
Friðþjófúr Helgason, NK, í öðru
sæti. Þá léku þrír keppendur á 301
höggi. Anna Sigurbergsdóttir, GK,
sigraði í 1. flokki kvenna. Hún lék
á 334 höggum, en Ólöf Jónsdóttir,
GK, varð í öðru sæti.
-þóm
Enn
vinnur
heimasætan
kur
M KenuR
bÁ ¥íS
Herstöðvaandstæðingar eru í óða önn við undirbúning Keflavíkurgöngu. Mynd: Jim Smart.
Fjölmenn Keflavíkur-
ganga framundan
■j^-rtlit er fyrir fjölmenna
I Keflavíkurgöngu á laugar-
V__J dag. Þetta er ellefta gangan
í röðinni, en sú fyrsta var farin
árið 1960.
Að sögn Ingibjargar Haralds-
dóttur, formanni Samtaka her-
stöðvaandstæðinga, hafa þegar
fleiri skráð sig í upphaf göngunnar
en gerðu fyrir síðustu göngu árið
1987. Þá hófu um 300 manns
gönguna, en margir bætast við
hana á ýmsum stöðum. „Við eigum
von á fleira fólki inní gönguna
núna. Umræða um mengunarslys
og heræfingar hefur skilað sér í
meiri andstöðu gegn hemum,“
sagði Ingibjörg í samtali við Þjóð-
viljann.
Ingibjörg vildi hvetja fólk til að
skrá sig í gönguna til að auðvelda
fyrir skipulagningu. Atta rútur
munu aka um hverfi borgarinnar
og safna saman fólki. Síðan munu
rútur leggja af stað frá BSÍ til
Keflavíkur. í göngunni ffá Kefla-
vík verður staldrað við á nokkrum
stöðum, s.s. i Vogum og i Straumi.
Þá verða baráttuhljómleikar í
Hafnarfirði um kl. 17.30, þar sem
Bubbi Morthens og hljómsveitin
Gildran munu leika. Komið verður
til Reykjavíkur um kl. 22.00.
Herstöðvaandstæðingar vilja
minna alla sem vettlingi geta vald-
ið á að hvers kyns þátttaka i göng-
unni er stuðningur. Best er auðvit-
að að sem flestir verði með ffá
upphafi til enda, en einnig er mikið
gagn af fólki sem kemur inn í
gönguna eftir að hún er hafin.
Þannig geta margir bæst í hópinn
við Straumsvík eða Hafnarfjörð og
fylkt liði til höfuðborgarinnar.
Nánari upplýsingar fást hjá her-
stöðvaandstæðingum, Þingholt-
stræti 6, í símum 620273 og
620293. -þóm
Landsmót jeppamanna var
haldið í Vík í Mýrdal um helgina
og vann Ámi Kópsson enn einn
sigurinn á heimasætu sinni. Gunn-
ar Pálmi Pétursson sigraði í flokki
götubíla.
Torfærukeppnir fara núorðið
aðallega fram á sérútbúnum bílum.
Ámi hefur um skeið verið í
ffemstu röð á slíkum tryllitækjum,
en að þessu sinni var Sigþór Hall-
dórsson ekki langt undan. Ámi
hlaut 1492 stig, Sigþór 1453 og
Reynir Sigurðsson varð þriðji með
1315 stig.
í flokki götubíla hlaut Gunnar
Pálmi 1275 stig, Davíð Sigurðsson
varð annar með 1140 stig og Þor-
steinn Einarsson þriðji með 1070
stig.
-þóm
Tveir
létust í
Borgamesi
Tveir menn létust í Borgamesi
snemma á laugardagsmorgun þeg-
ar ungur maður skaut annan mann
til bana með skammbyssu og fyrir-
fór sér á eftir. Þetta hræðilega atvik
gerðist heima hjá fyrrnm unnustu
árásarmannsins, en sá myrti var
gestur hennar i húsinu. Stúlkuna
sakaði ekki.
Rannsóknarlögregla ríkisins
kom á vettvang á laugardag og
lauk rannsókn málsins fljótlega.
Hinn myrti hét Svanur Hlifar
Ámason. Hann var fæddur árið
1969 og var til heimilis að Eyja-
völlum 13 í Keflavík. fcA_
Nauðganir um
verslunarmannahelgina
Ekki er vitað með vissu
hversu margar nauðganir
urðu um verslunarmanna-
relgina en Stígamótakonur ætla
ið koma saman í dag og bera
iaman bækur sínar.
Aðfaranótt sunnudagsins kærði
17 ára stúlka mann fyrir nauðgun í
Jestmannaeyjum og er hans nú
eitað.
Útvarpið skýrði frá því á laug-
irdaginn að þrjár nauðganir hefðu
itt sér stað í Húnaveri en þær upp-
lýsingar vom ekki réttar þegar allt
kom til alls. Eins og kunngert var í
fjölmiðlum stóðu Stígamót, en það
em samtök sem veita þolendum
kynferðislegs ofbeldis ráðgjöf og
stuðning, fyrir herferð, fyrir versl-
unarmannahelgina, til að koma í
veg fyrir kynferðislegt ofbeldi.
Ráðgjafar frá Stígamótum vom
í Húnaveri og í Vestmannaeyjum
og er ráðgert að halda þeirri þjón-
ustu áffam næstu verslunarmanna-
helgar. Blaðið ræddi við Ingibjörgu
Guðmundsdóttur, talsmann Stíga-
móta, og sagði hún að starf sam-
takanna hefði tekist mjög vel um
helgina og augljóst væri að slík
ráðgjöf er nauðsynleg þegar svona
stórar útihátíðir eiga sér stað. „Við
höfum fengið vitneskju um nauðg-
anir um helgina en við höfum eng-
ar áreiðanlegar tölur um það
hversu margar hafa verið kærðar,“
sagði Ingibjörg.
„Unglingar komu mikið til ráð-
gjafanna sem vom i Húnaveri og í
Vestmannaeyjum og tjáðu sig um
þessi mál.“
Ingibjörg sagði að margar
stelpur sögðust hafa farið eftir
þeim skilaboðum sem Stígamót
hefði tekið fram í herferðinni og
það bæri vott um þau áhrif sem
svona herferð hefði.
Herferð Stígamóta fólst meðal
annars í þvi að láta útbúa vegg-
spjald, sem dreift var víðsvegar um
landið, og var ætlað að vekja alla,
sérstaklega unglinga og foreldra
þeirra, til umhugsunar um þessi
mál.
-KMH
Danska rannsóknarskipiö Thetis,
er nú statt ( Sundahöfn en það leagur áleiðis til Grænlands I dag, þar sem
áhöfnin mun hefja fimm ára rannsoknir. Skipið, sem er sérstaklega útbúiö til
neðansjávar jarðskjálftamælinga, er hið fullkomnasta I alla staði og var bætt
viö danska flotann 1. júll s.l. Mynd: Jón Fjörnir.
Ekki þörf á lögum
um slcoðanakannanir
Niðurstaða nefndar, sem
skipuð var af mennta-
málaráðherra í fyrra til
að kanna hvort rétt væri að setja
lög eða reglur um skoðanakann-
anir, er í stuttu máli sú að ekkert
mæli með slíkri Iaga- eða reglu-
gerðarsetningu.
I álitsgerð nefndarinnar segir
m.a. að fjölmargt mæli gegn laga-
sctningu um skoðanakannanir,
„Slík lög eru ekki í gildi á Norður-
löndunum, í Bretlandi eða Banda-
ríkjunum. Framkvæmd spuminga-
kannanna virðist hafa tekist vel á
íslandi og engin vandkvæði komið
upp sem réttlættu lagasetningu,"
segir meðal annars í áliti nefndar-
innar.
Þá varar nefnin við því að fólki
verði bannaður aðgangur að upp-
lýsingum sem það kann að vilja
nýta sér, enda sé sýnt að þær upp-
lýsingar gangi ekki í berhögg við
almannahag.
í nefndarálitinu er bent á að
rannsóknir hafi ekki skorið úr um
hvort skoðanakannanir hafi áhrif á
það hvað fólk kýs og enn síður sé
Ijóst hver þau áhrif væru.
í stað reglugerðar- eða lagsetn-
ingar um skoðanakannanir mælist
nefndin til þess að þeir aðilar sem
hafa með að gera framkvæmd
skoðanakannanna hér á landi vinni
saman að mótun siðareglna og
framkvæmd þeirra. Sú vinna mun
reyndar þegar hafin. -rk
Síða 7
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 7. ágúst 1991