Þjóðviljinn - 14.08.1991, Qupperneq 7
Alafoss mun ekki
flytja starfsemi
sína til útlanda
lafur Ólafsson fram-
f ^Vkvæmdastjóri rekstrar-
I Ifélagsins um Álafoss
sagði á fundi með starfs-
mönnum þess á Akureyri í gær
að fyrirtækið muni ekki flytja
starfsemi sína til útlanda né að
það muni láta framleiða fyrir sig
erlendis.
En eins og kunnugt er þá hafa
komið fram hugmyndir um að
flytja starfsemi fyrirtækisins til út-
landa og þá jafnvel til Litháen
vegna minni framleiðslukostnaðar
þar en hér heima.
Starfsemi verksmiðjanna hófst
að nýju í byijun mánaðarins eftir
sumarfrí. Eirihver fækkun hefur
orðið í fjölda starfsmanna eftir
sumarleyfi, og svo virðist sem
nokkrir hafi útvegað sér vinnu ann-
arsstaðar vegna þeirrar óvissu sem
ríkir um ffamtíð ullariðnaðarins. Á
fundi forráðamanna fyrirtækisins
með stjóm Iðju, félags verksmiðju-
fólks þar nyrðra í gær var skriflega
gengið ffá yfirtöku rekstrarfélags-
ins á aðalkjarasamningi Iðju. Ar-
mann Helgason varaformaður
verkalýðsfélagsins segir að hins-
vegar sé eftir að ganga frá bónus-
samningum við hið nýja rekstrarfé-
lag effir að það tók yfir rekstur
verksmiðja Álafoss. En eins og
kunnugt er þá er tilgangur rekstrar-
félagsins um Álafoss tvíþættur:
Annarsvegar_ að lágmarka tjón
Landsbanka Islands og hinsvegar
að halda starfseminni gangandi.
Varðandi ffamtíð ullariðnaðar-
ins á Akureyri sagði Ármann að
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar væri
að vinna að tiliögum þar að lútandi
og hefði þegar lagt hugmyndir sín-
ar fyrir atvinnumálanefhd bæjar-
ins. Þær yrðu síðan ræddar frekar á
fundi bæjarráðs á morgun, fimmtu-
dag._
Ármann sagði að sumar deildir
fyrirtækisins eins og vefdeildin
yrðu starffæktar ffam til 1. nóvem-
ber og sauma- og pijónadeildin til
15. desember.
-grh
Kvennaráðstefnan
ekki haldin hér á landi
Alþjóðlega kvennaráð-
stefnan sem áætlað var
að halda hér á landi í
júní 1992 hefur verið
felld niður. Konur í íslensku undir-
búningsnefndinni sáu sér ekki fært
að halda ráðstefnuna hér á landi
þar sem fjárhagslegur grundvöllur
fýrir henni hafði enn ekki verið
tryggður.
Islenskar konur úr Kvenrétt-
indafélagi Islands og stjómmála-
flokkum og -samtökum sem sæti
áttu á Alþingi á síðasta kjörtíma-
bili hafa undanfarið unnið að und-
irbúningi alþjóðlegu kvennaráð-
stefnunar hér á landi. Hugmyndin
að ráðstefnunni kviknaði þegar
bandaríska kvenfrelsiskonan Betty
Friedan kom til Islands í boði
Kvenréttindafélagsins í júní 1990
ásamt hópi bandarískra kvenna
sem unnið hafa lengi í kvennabar-
áttu. Undirbúningur ráðstefnunnar
hefur verið samvinnuverkefni ís-
lenskra og bandarískra kvenna, en
fjármögnun hennar var verkefni
bandarísku kvennanna. Ráðstefnan
átti upphaflega að verða í júní
1991, en var ffestað til júní 1992.
Sú frestun varð bæði vegna tíma-
skorts, en einnig vegna þess að
fjáröflun gekk hægar en búist var
við._
I fféttatilkynningu frá undir-
búningsnefnd ráðstefnunnar segir
að íslenskar og bandarískar konur
telji þó enn mjög brýnt að halda al-
þjóðlega ráðstefnu kvenna þar sem
áhersla verði lögð á nýja sýn, sýn
kvenna í aðþrengdum heimi. Þörf
er á nýju gildismati við nauðsyn-
lega uppstokkun og endurbyggingu
samfélagsins. Réttindabarátta
kvenna á enn langt í land, og þar
sem réttindi kvenna hafa þegar
verið tryggð, jafnvel með lögum,
reynast þau hverful og hafa verið
skert þegar minnst varir.
Hugmyndin um alþjóðlega
kvennaráðstefhu á enn fylgi að
fagna meðal þeirra reyndu baráttu-
kvenna sem sóttu undirbúnings-
fundinn í Bandaríkjunum og verð-
ur áfram unnið að því að hún verði
að veruleika.
-KMH
Framkvæmdum frestað
við Fljótsdalslínu, en
málið er í athugun
Náttúrvemdarráð sendi
Landsvirkjun í vikunni
bréf þar sem þess var
farið á leit við fyrirtækið
að það frestaði öllum rannsóknum
vegna Jínulagningar Fljótsdalslínu
1 yfir Ódáðahraun - um er að ræða
syðstu leiðina svokölluðu. Náttúm-
vemdarráð vill að Landsvirkjun
kanni á sambærilegan hátt mögu-
leikana á línulagningu meðffam
byggðalínunni sem nú er, auk þess
sem kannað yrði hvort leggja
mætti hluta línunnar um jarðstreng
í Mývatnssveit áður en því er sleg-
ið fostu hvaða kostur er vænlegast-
ur.
Ráðið hafði á fimmtudag í síð-
ustu viku veitt leyfi til rannsókna í
Ódáðahrauni, en það var dregið til
baka á fostudagsmorgun - sama
dag og landverðir Náttúruvemdar-
ráðs funduðu um málið og mót-
mæltu leyfísveitingunni.
„Við þurfum að athuga hvaða
rannsóknir og mælingar þurfa hér
frekar til að koma á byggðalínu-
leiðinni til að gera þetta fyllilega
sambærilegt," sagði Halldór Jónat-
ansson forstjóri Landsvirkjunar í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Hann bætti við að það þyrfti einnig
að kanna hvað þetta væri tímafrekt
og hvað það myndi kosta. Meta
þyrfti umfang rannsóknanna í sam-
ráði við Náttúruvemdarráð áður en
tekin yrði afstaða til hvað yrði gert.
Á meðan liggja allar rannsóknir á
línustæðunum niðri.
Landsvirkjun hefúr að undan-
fomu verið að rannsaka línustæðið
yfir Ódáðahraun, án þess að það
hafi verið auglýst af Skipulagi rík-
isins. Skipulagið hélt að sér hönd-
um meðan verið var að vinna um-
hverfislegt frummat á línustæðum
á svæðinu, einsog skýrt var frá í
Þjóðviljanum í síðustu viku. Nið-
urstaða frummatsins var ekki af-
gerandi fyrir neitt eitt línustæði, þó
það varpi sínu ljósi á stöðu mála,
sagði Halldór.
Hann sagði að ekki væri hægt
að áætla á stundinni hvað það tæki
langan tima að meta umfang rann-
sóknanna þannig að það yrði að
koma í ljós næstu daga.
„Það var meiningin að ljúka
mælingunum yfir Ódáðahraun í
ágúst og september, þannig að það
getur orðið mjög bagalegt ef ekki
tekst að ljúka öllum mælingum áð-
ur en vetur gengur í garð,“ sagði
Halldór.
Hann vonast til þess að menn
nái áttum í málinu og sagði að
Landsvirkjun léti þetta mál allt
saman ekki kosta vinslit milli fyrir-
tækisins, Náttúrvemdarráðs og
Skipulags ríkisins. Hann sagði að
samvinna þessara aðila hefði verið
mjög góð hingað til. -gpm
Eiöur Guönason umhverfisráöherra Arnþór Garðarsson formaöur
Náttúruverndarráðs og Þóroddur Þóroddsson framkvæmdastjórí þess kynna
Náttúruverndarmerkiö ( gær. - Mynd: Jim Smart.
Húsendur afla fjár
í Friðlýsingarsjóð
Náttúruverndarráð hef-
ur gefíð út sérstakt
Náttúruverndarmerki í
samvinnu við banda-
rískt útgáfufyrirtæki í því skyni
að efla Friðlýsingarsjóð, sem
ætlaður er til sérstakra verkefna
í náttúruvernd.
Merkið prýðir mynd af þremur
húsöndum á flugi yfir Laxá í Mý-
vatnssveit. Myndina málaði banda-
ríski listamaðurinn David Maass,
sem getið hefur sér gott orð í
heiminum fyrir náttúrulífsmyndir
sínar. Númeraðar eftirprentanir af
myndinni verða einnig seldar, og
þarf fólk að snúa sér til Náttúr-
vemdarráðs fyrir lok þessa mánað-
ar hafi það hug á að panta merki
eða eftirprentun.
Að sögn Amþórs Garðarssonar
formanns Náttúmvemdarráðs er
vel við hæfi að fyrsta merkið af
þessu tæi á íslandi prýði mynd af
Mývatnssveit því ætlunin er að
nota fyrsta ágóðann af sölu þess til
að opna fræðslustofú á Mývatns-
svæðinu, þar sem ferðafólk getur
fengið hvers konar upplýsingar um
Mývatn og nágrenni þess. En til-
gangur Friðlýsingarsjóðs er sá að
efla fræðslu á friðlýstum svæðum
og til landakaupa vegna friðlýs-
inga.
Frú Vigdís Finnbogadóttir er
stuðningsmaður þessa verkefnis og
áritar hún hluta af útgáfúnni, alls
um 250 eintök. Fjöldi eflirprentana
áletraðra af David Maass fer eftir
Qölda pantana. Alls verða gefin út
tvöhundmð þúsund eintök af
merkinu sem frímerki, sem er þó
ekki póstburðarmerki, að sögn Þór-
odds Þóroddssonar framkvæmdar-
stjóra Náttúmvemdarráðs. Vonast
er til að selja merkið bæði hér
heima og erlendis, en bæði í Bret-
landi og Bandaríkjunum em nátt-
úmlífsmyndir mjög vinsælar. Þór-
oddur sagði Náttúmvemdarráð
vonist til að samanlagður gróði af
eftirprentunum og merkjum gæti
orðið á milli þrjátíu og fjörtíu milj-
ónir.
Merkið var í gær kynnt blaða-
mönnum á sérstökum fúndi. Eiður
Guðnason umhverfisráðherra sagði
af því tilefni að framtak Náttúm-
vemdarráðs væri lofsvert, og að
hann væri þess fullviss að það gæfi
jafn góða raun hérlendis og víðast
hvar erlendis þar sem þessi leið
hefúr verið farin í fjáröflunarskyni.
Náttúrvemdarráð stefnir að því að
gefa út slík aukamerki árlega og
hefur þegar gert samning við
bandaríska útgáfufyrirtækið Gris-
ham’s Art um útgáíú merkja 1992
og 1993.
Merki af þessu tæi em nýlunda
í Evrópu, en fyrirmynd þeirra em
svonefhd „Duck Stamps" sem giltu
sem veiðiréttindi. Þegar öndum
fækkaði tóku náttúrvemdarsinnaðir
menn upp á því að kaupa slík
merki til þess eins að nota þau
ekki.
BE
Húsendur fljúga yfir Laxá f Mývatnssveit að voriagi, myndinni er ætlaö að efla
Friölýsingarsjóö.
Ný viöskiptabókun
Viðskiptabókun milli ís-
lands og Sovétríkjanna
um gagnkvæmar vöru-
afgreiðslur á árunum
1991-92 var undirrituð í Moskvu
8. ágúst síðastliðinn. Hún er
byggð á vjðskipta- og greiðslu-
samningi íslands og Sovétríkj-
anna frá 1953.
Bókunin miðast við viðskipti
sem beinast að hefðbundnum
vömtegundum í viðskiptum land-
anna. Þannig er áfram gert ráð fyrir
útflutningi freðfisks, saltsíldar,
niðursoðins og niðurlagðs fiskmet-
is, ullarvara, rálningar, véla og
tækja til fiskvinnslu og fleiru til
Sovétrikjanna, segir í fréttatilkynn-
ingu frá utanrikisráðuneytinu. Af
sovéskra hálfu er áréttaður vilji til
að selja Islendingum gasolíu,
svartolíu, bensín, timbur, bifreiðar,
vélar og tæki m.a til virkjana og
vegagerðar, og fleira. -gpm
Síða 7
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 14. ágúst 1991