Þjóðviljinn - 15.08.1991, Blaðsíða 11
VIÐHOIF
I straumi
nýrra tíma
Avarp Einars Vals Ingimundarsonar í Kúagerði:
Góðir félagar! Nafn þessa
áningarstaðar okkar
hér er Straumur. Skýr-
ing seinni tíma manna á
nafni þessu gæti ef til vill orðið
sú að stór hluti rafstraumsins úr
íslenska orkunetinu fer til stór-
iðjunnar, sem hér er stunduð.
Ýmis verri dæmi náttúrunafna-
kenningarinnar þekkjast nú.
Nafngiflin kemur hins vegar til
af því að undir fótum okkar hér
streyma fram kynstur af sindrandi
hreinu vatni undir hrauninu og í
sjó fram. Þeirrar auðlindar kann að
vera saknað, er timar líða fram og
sú litla fyrirhyggja fordæmd að
mengandi stóriðja skuli staðsett
eimpitt á þessum stað.
Islendingar virðast eiga afskap-
lega erfitt að læra af mistökum er-
lendra þjóða og sifellt verðum við
að brenna okkur á sömu mistökun-
um sjálf til að trúa.
Margt hefur verið rætt og ritað
um þá iðju, sem hér er stunduð og
hefur sýnst sitt hveijum. Er það að
bera i bakkafuljan lækinn að bæta
ar miklu við. Ég kýs fremur þann
oslinn að vitna í ljóð Þorsteins
Valdimarssonar, hins ágæta skálds
okkar göngumanna, en þau segja
allt sem þarf.
BLYGÐUN
Það ákvað að erlendum sið,
hið íslenska viðreisnarlið,
að frelsi sé stál
og farsœld sé ál; -
aðeins flibbarnir roðnuðu við.
Víkjum þá aftur að nafnakenn-
ingunni:
Sumir gætu haldið því fram að
hingað hafi straumur folks sótt sér
atvinnu og straumur fjármuna
runnið héðan inn í íslenska hag-
kerfið. Eitthvað mun vera til í því.
Svo eru aðrir sem halda því
fram að peningamir hafi streymt
úr vasa landsmanna inn i fjárhtrsl-
ur Landsvirkjunar um árabil á
meðan greitt var okurverð fyrir
rafmagn til heimilisbrúks víða um
landið.
Á þessum tíma naut Alusuisse
sérstakra vildarkjara.
Það sama virðist ætla að endur-
taka sig nú í Atlantal-samningnum.
Sagan endurtekur sig.
Tilftnninganæmara fólk lýsir
því svo að í hvert sinn þegar farið
er framhjá þessum mengaða ker-
skála fari kaldur straumur á milli
skinns og hörunds þess og víst er
um það að þessi stóriðju-ímynd
landsins hugnast ekki öllum.
Mörg okkar sjá nefnilega fóst-
uijörðina fyrir sér sem griðarstað
óspilltrar náttúru og vitna ég enn
til Þorsteins Valdimarssonar úr
ljóðabókinni Villta vor! (1942):
- Eitt land, eitt unaðsland ég
veit.
Hin leyndu tár, sem féllu heit
á jarðar auðn og is
þar öll sem perlur Ijóma.
Fyrir sunnan sól hað ris
af sœvi bjartra híjóma.
Þar rœður frelsið rikjum eitt.
Þar rœtist allt, sem vonin þreytt
úr lífsins augum las
um langar vökunœtur.
Þar grœðir hið mjúka gras
hina göngusáru fætur.
Svo látið sé lokið leik með orð
þá vitnar nafnið nú í mínum huga
til þess fjölda göngumanna, sem
vonandi á enn eftir að vaxa, þegar
nálgast þéttbýlið. Hér er komtnn
straumur þeirra Islendinga sem
þora og viíja bera höfúðið hátt og
afneita öllu hemaðarbrölti í frjálsu
landi.
Islenska þjóðin hefur lifað af
hörmungar hungurs og drepsótta í
gegnum aldimar og samt haft þrek
til að létta af sér oki hemáms og
þrælkunar við upphaf þeirrar aldar,
sem áratugur lifír nú eftir af.
Þrátt fyrir það blasir nú sá
vemleiki vtð okkur, að ofan á setu-
liðshremmingamar, sem við mót-
mælum sérstaklega með þessari
göngu, bætast landráðatilburðir
Steffensen-stjómarinnar í Evrópu-
samninganauð sinni.
Landsmenn hafa víða orðið
varir við marglita púka nú undan-
farið, skríðandi um öræfin í leit að
ímynduðum óvinum. Finnast
mörgum þessir tilburðir skoplegir í
ljósi ástandsins í heiminum. En við
skulum gefa þessu gætur:
Em þessar heræfingar kannski
gerðar með sérstakri velþóknun
Brussel-valdsins; eins konar ffam-
Iag vamarbandalags NATO til lög-
reglusveitanna, sem vígvélafram-
leiðendur horfa nú til með sérstakri
eftirvæntingu sem stórviðskipta-
vina framtíðarinnar?
Utanríkisráðherrann okkar, Jón
Baldvin Hannibalsson, hefúr líka
haldið því firam að síðasta hálm-
stráið til að tryggja EES- samning-
inn verði það að hóta brotthvarfi
setuliðsins í Keflavík!
Friðvænlegra er nú í veröldinni
en verið hefur um árabil og banda-
rískum herstöðvum víða lokað. Á
sama tíma naga menn neglumar í
íslenska stjómarráðinu og senda
bænaskjöl vestur um haf.
„Þetta er atvinnuspursmál fyrir
Suðumesjamenn“ segja þeir. Það
er ekki spurt um þjóðlega reisn og
íslenska menningu..
Slíkri „væmni“ er líka ofaukið
í Evrópusamningum framtíðar. En
það er önnur saga.
„Keflavíkurganga er hallæris-
leg tímaskekkja“, segja margir.
Þessu vísum við göngumenn alger-
lega á bug. Versta tímaskekkjan ti-
far í hugum þeirra sem láta sig
málið engu varða og fljóta sofandi
áfram í samfélaginu.
Það hefur ofl verið sagt, að
velmegun slævi vitundina. Kyn-
slóð uppanna er jafnvel orðin svo
kæmlaus að hún nennir varla að
nota kosningaréttinn. Nýlega las
ég í erlendu blaði að eina ráðið til
að fá bandarískan ungdóm að kjör-
borðinu væri að borga sérstaklega
fyrir, það!
Á þetta fyrir okkur að liggja?
Er mannskepnan svo aum i mak-
ræði sínu að frelsið sé orðið falt og
til sölu hæstbjóðanda?
Gefum Þorsteini Valdimarssyni
aftur orðið:
Einar Valur Ingimundarson
Eg kom þar á veg
sem í kirkjugarði
úr blómstóði mœndi
einn minnisvarði.
Letrið hið efra
yar Ijósbláma vafið.
lslandi allt,
stóð þar á hann grafið.
Hið neðra logaði
letrið allt
sem lagandi dreyri:
ísland er falt.
Ef við andæfum ekki nú, munu
afkomendur okkar ekki andæfa
síðar!
Hefjum nú merki liðinna
göngumanna hátt og minnumst
þeirra um leið og við syngjum
sönginn okkar allra:
Þú veist í hjarta þér,
kvað vindurinn,
að vegur drottnarins
er ekki þinn, -
heldur þar sem gróandaþytur fer
og menn þerra svitann af enni sér
ogtár afkinn.
Það er kannski þægilegast að
lifa lífinu í eilífu afstöðuleysi og
fljóta fyrirhafnarlaust með
straumnum.
Sá hefur ekki verið háttur
þeirra manna, ,sem við minnumst
hvað helst úr íslandssögunni. Þeir
hafa oftar staðið fáliðaðir gegn
straumnum, sem leið hugsunar-
laust hjá.
í jafn áætum félagsskap og við
göngumenn höfum haft hér í dag
helúr hugurinn reikað til genginna
kappa, sem blésu okkur yngra
fófkinu hugsjónir í brjóst. Hvert
kennileiti hefur sína sögu og núna
berum við ábyrgð á þessari sögu.
Þú veist i hjarta þér,
kvað vindurinn,
að vamarblekkingin
er dauði þinn. -
Engin vopnaþjóð er að vísr frjáls,
og að vanda sker hún sigjyrr á
háls
en óvin sinn.
Þú veist í hjarta þér,
kvað vindurinn,
að vald og ríL'' "r ekki
manngrúinn. -
Hvað þarf stóra þjóð til að segj
satt,
til að sólarljóð hennar ómi glatt
í hiniininn?
Bréfið
Helgi Guðmundsson skrifar^
Sólveigu Kr. Einarsdóttur í Astralíu
Reykjavík 15. ágúst 1991.
Heil og sæl og takk fyrir siðasta bréf.
Nú er tilefni til að segja ýms-
ar fréttir en ekki rúm til að
fara mjög víða frekar en
fyrri daginn. Hér hefur staðið yfir
sæmilegasta rimma á milli ráð-
herra Alþýðuflokksins annars veg-
ar og stjórnarandstöðunnar og
margra annarra hins vegar. Deilu-
efnið er nýjar reglur urn þátttöku
sjúklinga í lyfjakostnaði og minnk-
andi þátttöku Tryggingastofnunar í
sama kostnaði. Éins og þú veist er
Sighvatur Björgvinsson heilbrigð-
is- og tryggingaráðherra. Því er
það hann sem öðrum fremur hefur
staðið i þessari eldlínu, samráð-
herramir leggja honum auðvitað
lið með því að flytja langar ræður
og leiðinlegar um nauðsyn þess að
spara. A bak við snyrlilegt orðalag
tieirra felst m.a. að verið er að
eggja á sjúklingaskatta, sem Sig-
hvatur þarf að verja. Trygginga-
kerfið sparar sér að sögn hundruð
milljóna á ári og þó að lyfjanotk-
unin kunni að hafa minnkað eitt-
hvað þá er alveg ljóst að þeir sem
nota þurfa lyf verða að greiða
spamaðinn. Gengur nú maður und-
ir manns hönd úr stjómarliðinu til
að sannfæra þjóðina urn að þessi
kostnaðarauki sjúklinga sé ekki
skattur heldur gjald. Þetta finnst
okkur sem höfum verið að láta í
okkur heyra um málið ekki merki-
leg röksemdafærsla, því við sjáum
ekki betur en að í stað hefðbund-
inna skatta sem allir taka þátt í og
notaðir em til að greiða niður
lyfjaverð, séu sjúklingamir sjálfir
látnir bera aukinn kostnað af veik-
indunum. Það er þess vegna scm
við köllum hækkunina sjúklinga-
skatt, því eitt er víst að ekki eru
hinir neilbrigðu látnir borga. Ég
æti sagt þér heilmargt um það
vaða rökum ,ráðherra Jafnaðar-
mannafiokks lslands beitir, að-
erðunum til stuðnings, en ég ætla
ara að nefna eitt því mér finnst
það nokkuð skrítin röksemdafærsla
af ráðherra Jafnaðannannafiokks-
ins. Hann segir efnislega að veik-
indum fylgi kostnaður fyrir hinn
sjúka og auðvitað verði viðkom-
andi,að borga þegar svo stendur á!
Ég er að nefna þetta vegna þess
að mig langar til að vita hvaða fyr-
ifkomulag gildir í þessum efnum í
Ástralíu. Hvemig vegnar lasburða
fólki, fotluðum og öðmm þeim
sem ekki geta afiað sér fullra tekna
með vinnu sinni? Hér hjá okkur
beita stjórnarherramir frjáls-
hyggjurökum sem aldrei fyrr. Fjár-
málaráðherrann sagði m.a. fyrir
stuttu að endurskoða yrði allt hlut-
verk ríkissjóðs í samfélaginu og
taka upp þjónustugjöld á mörgum
sviðum og hefur í því sambandi
meðal annars verði talað um skóla-
gjöld. Þess vegna langar mig til að
spyrja þig hvort frjálsljyggjan eigi
miklu fylgi að fagna í Átsralíu og á
ég þá bæði við stjómmálamenn og
almenning. Nóg um þetta i bili.
Þú varst að segja mér frá því
að Ástralir glímdu við þann vanda
að þurfa að eyða stórnáskalegum
eiturefnum, en enginn vildi hafa
brennsluofninn sem til þess þarf
nálægt sér. Þetta skil ég vel en það
vekur um leið athygli mína á nve
undarlega samsett mannfólkið er.
Eiturefnin eru afrakstur þess iðn-
aðar sem þjóðimar lifa á, afurð
eirrar neyslu sem sömu þjóðir
afa tamið sér. Nú em menn út um
allar trissur að sjá fram á afleiðing-
amar og enginn vill taka þeim en
iðnaðurinn breytist ekkert og
neyslan ekki heldur. Urn afleiðing-
ar þess skal ég nefna eitt dæmi.
Ríku þjóðimar hreyfa sig ekki
öðm vísi en í bíl og maður hugsar
til þess með skelfingu ef þjóðimar
sem nú em fátækar en mannmarg-
ar tækju upp sömu lifnaðarhætti.
Mér sýnist til dæmis að ef Kínveij-
ar og Indverjar ættu hlutfallslega
jafn marga bíla og Bandaríkja-
menn þá yrðu bílamir í þessum
löndum fleiri en allir íbúar Éyrópu,
Asíuhluta Sovétríkjanna og Ástral-
íu til samans. Eftir þeim upplýs-
ingum sem ég hef þá yrðu petta
líklega um 950 milljónir bíla, bara
í þessum tveimur löndum, en til
samanburðar get ég nefnt að í
Bandaríkjunum em ca. 120 milljón
bílar,
Ég ætla ekki að hafa þetta
lengra að sinni en segi bara það, að
ekki yrði lífsmynstur hinna auðugu
þjóða heppilegt fyrir lífríki jarðar-
tnnar ef það breiddist út um allan
heiminn.
Kveðja
hágé.
Síða 11
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 15. ágúst 1991