Þjóðviljinn - 15.08.1991, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 15.08.1991, Blaðsíða 15
Varúð: Fjölmiðlafíkill! Maður sem rætt var við fyrir stuttu á Stöð 2 um „skipu- lagða dreifingu fíkniefna í grunnskóla“ er að sögn lög- reglu þekktur af ósannindum og í fréttatilkynningu frá fíkni- efnadeildinni segir að þessi maður hafi margoft í gegnum árin gefið rangar og ósannar upplýsingar um fíkniefnamis- ferli og yfirleitt með þeim hætti að hann spili sjálfur aðalhlut- verkið. Fréttamanni Stöðvar 2 var kunnugt um þetta en sendi viðtalið samt sem áður út. Fréttamaðurinn hafði sam- bandi við fíknó og vildi ná myndum þegar „fíkniefnasal- inn“ stæði I viðskiptum. Skráargatið býður fréttamann- inn velkominn í hóp þeirra sem hafa látið blekkjast af fjöl- miðlafíklum og vonar að þetta verði víti til varnaðar. Þjóðvilj- inn átti fyrir um ári síðan viðtal við álíka fjölmiðlafíkil, þó ekki þann sama, og sagðist sá geta komið upp um stórfellda kókaínsölu. Leitað var til fíkni- efnadeildarinnar með efni er maðurinn hafði keypt en í Ijós kom að hann hafði verið blekktur. Auk þess var varað við að maðurinn væri í meira lagi ótraust heimild. Úr varð frásögn af samskiptum mannsins við meinta „dílera“ og af ofbeldi I fíkniefnaheimin- um. Skömmu síðar birtist við- tal I Pressunni við sama mann og sagðist hann nú hafa haft náin samskipti við eyðnismit- aða konu og úr varð mikið fár. Kverúlantar af þessu tagi hafa samband við fjölmiðla af og til og full ástæða er til að benda fréttamönnum á að þeirra er ábyrgðin ef heimildin er ótraust... Galtómur ráðherra Eiður Guðnason, umhverfis- ráðherra, reið ekki feitum hesti frá setningarathöfn Norrænu fjölmiðlafræðiráðstefnunnar sem haldin var hér á landi og lauk í gær. Eiður var fenginn ásamt Þor- geiri Þorgeirssyni, rithöfundi, til að flytja ávarp við setningu ráðstefnunnar á sunnudag. Líkt og Þorgeirs var von og vísa var ekki aldeilis komið að tómum kofunum hjá honum varðandi umræðuefni ráð- stefnunnar: Fjölmiðlar og vald - þankar og bakþankar I Evr- ópu nútímans. Létu ráðstefnu- gestir að því liggja að þar hefði tímabær tala verið flutt. Öðru máli gegndi með ávarp ráðherrand, sem virtist koma klæddurtil dyranna eins og keisarinn góðkunni úr sögunni „Nýju fötin keisarans". Eiður, sem erjú reyndarfyrr- um fréttamaður Sjónvarpsins, flutti tölu sem snérist vítt og breytt um umhverfismál. Að því fimbulfambi loknu klikkti ráðherran síðan út í lokin með því að fjölmiðlar hefðu vanda- sömu hlutverki að gegna varð- andi umfjöllun um þennan mikilvæga málaflokk. Nú vaknar sú spurning hvort ráðherrann hafi gripið með sér rangt ávarp eða hreinlega gleymt heimalærdómnum, nema hvorutveggja sé. Framlag heimamanna ekkert Það vakti athygli skráargats- ins þegar dagskrá fjölmiðla- ráðstefnunnar var skoðuð, að íslenskir flölmiðlafræðingar virðast ekki hafa neitt fram að færa á svona ráðstefnum. Fjöldi erinda var fluttur á ráð- stefnunni en ekkert þeirra var íslenskt. Madonna lætur ekki deigan síga M adonna er 32 ára, hefur þrisvar farið í heimsreisu með tónleika, á að baki 20 tónlistarmyndbönd fyrir sjónvarp, sjö kvikmyndir í fullri stærð og átta plötur. Hún hefur með eigin hendi, ef svo mætti segja, valdið sprengingu í sölu tónlistarmynd- banda og reyndar stórfurðulegt að ekki skuli hafa tekist að festa hana í einhvers konar sjónvarpsímynd sem menn geta orðið leiðir á. Madonna hefur mörg einkenni elstu systurinnar sem á að vera regluföst og ábyrg, en hún hefur líka einkenni mið- systurinnar sem oft er uppreisnargjöm. Hún líkis'. móður sinni og heitir eftir henni. Móðirin dó úr krabbameini og Madonna varð að kljást við tvo eldri bræður og ráðríka stjúpmóður. Hún varð að leggja hart að sér við uppeldi og pössun á fimm yngri hálfsystkinum. Hún ólst þannig upp við umtals- verðar kröfúr um ábyrgð en lítil völd eða eins og hún hefur sjálf sagt: _ „I bemsku leið mér eins og vinnukonu. Eg var elsta stelpan og heimilisverkin lentu alltaf á mér. Ég skipti svo oft á bleyjum að ég hét því að eignast aldrei böm sjálf. En ég tók því ekki þegjandi. Mér var stöðugt sagt að halda mér saman, það var sett límband yfir munninn á mér og hann var þveg- inn upp úr sápu.“ Madonna er ansi flókin, svo að gripið sé til sálfræðinnar. Upp á síð- kastið hafa dekkri hliðar sálarlífsins birst i verkum hennar. A myndband- inu: „Láttu það flakka“ (Express yo- urself) var hún bundin í keðjur og með svart hundahálsband úr leðri. I „Laumuspilinu" (Hanky panky) bað hún um að sér yrði refsað, vildi „rækilega flengingu". I stuttu máli má draga þetta þannig saman að þessi megindúkka myndbandanna er að daðra við ma- sókisma sem einhver snillingurinn þýddi á sínum tíma með: „sjálfs- pyntingarlosta". Sjálf segir Madonna að hún sé masókisti vegna þess að hún hafi verið ofsótt sem bam. Faðir minn hafði gríðarleg áhrif á mig, segir hún, ekki síst með heimspekilegum máitækjum sem hann beitti í tíma og ótíma. Eitt þeirra var: „Líði þér vel ertu að gera illt af þér, líði þér illa ertu að gera rétt.“ Ég reyndi að sam- ræma þetta, segir Madonna, og nú get ég ekki skilið það sundur. Annað uppáhaldsmáltæki föður Madonnu var samkvæmt hennar sögn: „Heim- urinn væri betri ef fleiri konur væru hreinar meyjar.“ -kj/Times ^aö er allíof snemmt að ara I rúmið núna. Það er varla orðið dímmt. Af;, iverju þarf„ég að fara að >öfa? Þetta'er fáranlégt/ Ég. er.7 ekki einu sinni þreyttur. Ég þarf ekkert að fara aft sofa.,Þetta er j hneyksli. ________7------- -------v - Þetta éf Það heimskuleg- asta serrv ég hef nokkum tímann heyrt. .Mamrha ,og pabbi. efu bara aft reyna losna,. við Jmig: Ég. get ékki. ’ sofnað. Getur þú sofið, Kobbi? Síða 15 ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 15. ágúst 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.