Þjóðviljinn - 15.08.1991, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 15.08.1991, Qupperneq 13
SMÁFRÉTTIR | Umræöur um Steiner-skóla Undanfarna mánudaga hafa verið umræðufundir í kaffistofu Hlaðvarpans, sem hópur áhuga- fólks um uppeldisfræði Rudolf Steiner hefur staðið fyrir. Hrafn- kell Karlsson, kennari við Stein- er- skóla ( Svíþjóð, greindi frá reynslu sinni og áherslum f starfi. Steiner-skólar leitast við aö gefa barninu breiða lífsmynd og gera því kleift að setja sig í samhengi við náttúruna og um- hverfið. Lögð er áhersla á að skapa börnunum skilyrði til al- hliða þroska og eru tilfinningum, vilja og vitsmunum gert jafn hátt undir höföi. Til staðar eru for- eldrar sem vilja að til verði slíkur skóli hér á landi. Framhaldsum- ræður um Steiner-skóla verða nk. mánudag 19. ágúst kl. 20 í Kaffistofu Hlaðvarpans. Allir áhugasamir velkomnir. Skaftfellingur kominn út Tímaritið Skaftfellingur- þættir úr Austur-Skaftafellssýslu er komið út. Þetta er 7. árgangur ritsins og er það 180 síður. 20 höfundar eiga efni (ritinu. Meðal efnis eru greinar um Þórberg Þórðarson rithöfund eftir Einar Braga rithöfund og Zophonías Torfason skólameistara. Auk þess eru birtar minnisgreinar Þórbergs úr ferð austur ( Skafta- fellssýslu til að safna efni til sögu sýslunnar. Birt er ræða Sturlaugs Þorsteinssonar bæjar- stjóra er flutt var við vfgslu nýs vatnsgeymis á Höfn 9. febrúar sl. Eftir ritstjórann Sigurð Björns- son á Kvískerjum er ýtarleg grein um lagningu símans um Skaftafellssýslur 1929. Þá má nefna efni eftir Pál Þorsteinsson fv. alþingismann sem lést sl. sumar, Sigurjón Jónsson frá Þorgeirsstöðum, Guðrúnu Karls- dóttur á Hnappavöllum og Jón Jónsson jarðfræðing. Að venju birtir Skaftfellingur svo annála úr sveitarfélögum sýslunnar og greinar eftir presta um látna Austur-Skaftfellinga. Héraðs- skjalasafn Austur- Skaftafells- sýslu á Höfn hefur með af- greiðslu að gera fyrir ritið og kostar það 1.600 krónur. Jafnréttis- og fræðslufulltrúi á Akureyri Jafnréttis- og fræðslufulltrúi tók til starfa hjá Akureyrarbæ 1. ág- úst sl. Þetta er í fyrsta sinn sem sveitarfélag hér á landi ræður sérstakan starfsmann til að sinna jafnréttismálum. Það var Valgerður H. Bjarnadóttir sem var ráðin til starfans. Hún hefur undanfarin ár unnið að jafnrétt- is- og fræðslumálum, m.a. sem verkefnisfreyja samnorræna jafnréttisverkefnisins Brjótum múrana - BRYT á Akureyri. Hún mun veita upplýsingar og ráð- gjöf í jafnréttismálum til einstak- linga, stofnana og fyrirtækja sem þess óska. Skrifstofa henn- ar er á Bæjarskrifstofunni, Geislagötu 9. Sönglög eftir Brahms endurtekin Vegna mikillar aðsóknar á þriðjudagstónleikunum (Lista- safni Sigurjóns Ólafssonar verða tónleikarnir endurteknir ( kvöld kl. 20.30. Á tónleikunum flytja þær Jóhanna V. Þórhalls- dóttir altsöngkona, Bryndís Björgvinsdóttir sellóleikari og Dagný Björgvinsdóttir píanóleik- ari sönglög eftir Johannes Brahms. Dósla í Myndlista- skóla Akureyrar Dósla (Hjördís Bergsdóttir) opn- ar málverkasýningu í Myndlista- skólanum á Akureyri laugardag- inn 17. ágúst. Þetta er þriðja einkasýning Dóslu. Á sýning- unni eru olíumálverk unnin á síðstliðnum tveimur árum. Á laugardaginn kl. 15 leika nem- endur úr Hljómskólanum og Tónlistarskólanum á Akureyri. Á sunnudag kl. 15 verður Ijóöa- og sögudagskrá. Sýningin er opin daglega frá kl. 14 til 18 og lýkur henni sunnudaginn 25. ágúst. ÞRÁNDUR SK1RIFA1R Gróðinn af umsetningunni Nú er víst einu sinni enn búið að skrifa undir tímamótaplögg í ál- málinu. Toppamir í þeim erlendu hugsjónafélögum„sem hafa tjáð sig fúsa til að greiða Islendingum háli- virði fyrir raforkuna sem þeir ætla að nota til að búa til ál, vom hér á dögunum. Eins og gefur að skilja hélt iðnaðarráðherrann fúnd með blaðamönnum til að flytja sína venjulegu ræðu um að álver væri á næsta leiti. Með honum á fúndinum vom hinir erlendu hugsjónamenn. Ráðherrann og viðsemjendur hans vom hjartanlega sammála um að samningurinn sem þeir væm nú að ná væn viðunandi fyrir báða. Þó gat ráðherrann þess að hann hefði viljað hafa ýmislegt öðm vísi í samningnum, mikil ósköp, en samningar em samningar sem þýðir að annar aðilinn getur aldrei fengið allt það sem hann vill, báðir verða að slá af og svo framvegis. Var á ráðherranum að skilja að samning- ur væri því betri sem báðir samn- ingsaðilamir væm óánægðari, því þá hefði hvorugur haft neitt af hin- um. Samkvæmt þessu verður samn- ingur bestur þegar menn skrifa und- ir hann grátandi með skjálfandi hendi, en Þrándur hefúr aftur á móti tilhneigingu til að halda að álsamn- ingurinn hefði þá þvj aðeins verið fúllkomnaður fyrir Islendinga að viðræðumar hefðu endað með slagsmálum og hurðaskellum án nokkurrar undirritunar. Erlendu gestimir bám sig karl- mannlega og sögðu lítið annað en að raforkuverðið væri samkeppnis- fært og menn mættu ekki glevma því að pótt hafa mætti af því nokkra skemmtun og notalega dægradvöl að koma til Islands og spjalla við viðmótsþýtt fólk, þá létu lögmál viðskiptanna ekki að sér hæða. Annað fólk í öðrum löndum, sem væri að vísu ekki jafn sjcemmtilegt og gott viðskiptis og Islendingar, væn alveg tilbúið að selia þeim orku á lægra verðj. En þar sem þeim finndist bæði notalegt og ör- uggt að vera hér á landi þá hefðu þeir ákveðið að koma ser heldur fyrir hér. Eins og Þrándur hefúr maigoft tekið ffam em æðri vísindi ýmist á mörkum eða hanþan þess skiljan- lega fyrir hann. I þetta sinn telur hann sig þó skilja hvað gestimir vom að fara. Með prúðmannlegri hegðun sinni gáfú þeir samningn- um hina bestu einkunn fyrir sitt leyti, þeir vom beinlínis lukkulegir sem vonlegt var því hvaða starfi getur orðið hugnanlegri ,útlendum mönnum en að koma til Islands og kaup orku á verði sem er sam- keppnisfært við það sem fátækustu þjooir heimsins verða að bjóða? Það kom sem sagt í liós að verðið sem við eigum að fá fyrir orkuna er um það bil helmingi lægra en kostar að ffamleiða hana um þessar mundir. Þrándur er alveg viss um að þetta er vont fyrir þann sem selur en gott fyrir þann sem kaupir, Ráðherrann segir aftur á móti að svona megi alls ekki líta á málið, við munum græða á umsetn- ingunni þegar ffam i sækir, segir hann. Umsetningin er eitt allra flóknasta fyrirbæri viðskiptalífsins og hefúr margur kaupmaðurinn far- ið flatt á ,að skilja hana röngum skilningi. I gamla daga var manni kennt petta reikningsaæmi: Kaup- maður kaupir tíu epli á tvær krónur hvert og selur þau aftur á þijár krónur hvert. Hve mikið græddi hann? Við fengum hins vegar aldrei þetta dæmi til úrlausnar: Kaupmað- ur nokkur kaupir tíu epli a þijár krónur hvert og selur þau aftur á tvær krónur hvert. Hve mikið græddi hann á umsetningunni? Við nefðum ekki vorið í vandræðum með fyrra dæmió. Tíu krónur, hefð- um við sagt umsvifalaust. En í hinu síðara hefðum við lent í vandræð- um og alls ekki þorað að stynja því upp að hann græddi ekki neitt held- ur tapaði krónu á hveriu epli, ennþá síður að okkur hefði dottio í hug að neffia þann möguleika að eftir því sem hann keypti og seldi fleiri epli á þessum kjörum tapaði hann meiru og ætti að lokum ekki bót fyrir sinn rass. Svo langt vorum við þó komin að við hefðu áreiðanlega giskað á að eplin hefðu selst eins og heitar lummur svo lengi sem eitthvað var til. Skyldi iðnaðarráðherrann vera í hlutverki kaupmannsins sem keypti á þijár krónur en seldi á tvær? Spyr sá sem grunar en ekki veit. - Þrándur. VEÐRIÐ Hæg breytileg eða A-læg átt á landinu. Smáskúrir á SV-landi og sumstaðar Norðanlands í fyrstu, en í kvöld og í nótt snýst til NA áttar. Á morgun verður súld eða rigning víðast hvar á landinu. Hiti 8-15 stig. KROSSGATAN TS—“ '17 TB 21 Lárétt: 1 ill 4 borgari 6 eðja 7 jurt 9 spil 12 ber 14 stirðleika 15 þrengsli 16 hik 19 fött 20 flötur 21 snáða Lóðrétt: 2 dauði 3 óvættur 4 þijóska 5 mánuður7 hræðslu 8 yfiriið 10 korra 11 drýldna 13 óhreinindi 17 kúga 18 neðan Lausn á siðustu krossgátu Lárétt: 1 spík 4 smæð 6 ært 7 rist 9 óvit 12 villa 14 iða 15 nár 16 naggs 19 töng 20 læða 21 indæl Lóðrétt: 2 púi 3 kæti 4 stól 5 æði 7 reisti 8 svanni 10 vansæl 11 torfan 13 lög 17 agn 18 glæ APÖTEK Reykjavlk: Helgar- og kvöldvarsla lyfjabúða vlkuna 2. ágúst til 8.. ágúst er f Háaleitis Apoteki og Vesturbæjar Apoteki. Fyrrnefnda apótekið er opið um helgar og annast næturvörslu alla daga kl. 22 til 9 (til 10 á frídögum). Siðarnefnda apótekið er opið á kvöldin kl. 18 til 22 virka daga og á laugardögumkl. 9- 22 samhliða hinu fyrmefnda. LÖGGAN Reykjavik.....................® 1 11 66 Neyðarn.....................® 000 Kópavogur.....................® 4 12 00 Seltjamarnes.................* 1 84 55 Hafnarfjörður...............tr 5 11 66 Garðabær......................a 5 11 66 Akureyri.....................« 2 32 22 Slökkvilið og sjúkrabflar Reykjavík.......................» 1 11 00 Kópavogur.......................« 1 11 00 Seltjamarnes....................» 1 11 00 Hafnartjörður.................» 5 11 00 Garðabær........................» 5 11 00 Akureyri.........................« 2 22 22 LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn-ames og Kópavog er í Heilsuverndar-stöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 8, á laugardögum og helgidögum allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir, símaráðleggingar og tímapantanir i a 21230. Upplýsingar um lækna- og lyfjaþjónustu eru gefnar í simsvara 18888. Borgarspítalinn: Vakt virka daga frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni eða ná ekki til hans. Landspítalinn: Göngudeildin er opin frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarspit-alans er opin allan sólarhringinn, ® 696600. Neyðarvak Tannlæknafélags (slands er starfrækt um helgar og stórhátíðir. Símsvari 681041. Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæsl-an, » 53722. Næturvakt lækna, « 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt, a 656066, upplýsingar um vaktlækni »51100. Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á Læknamiðstöðinni, » 22311, hjá Akureyrar Apóteki, « 22445. Nætur- og helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985- 23221 (farsimi). Keflavík: Dagvakt, upplýsingar i » 14000. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna, » 11966. SJÚKRAHÚS Heimsóknartfmar: Landspftalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-spítalinn: Virka daga kl. 18:30 til 19:30, um helgar kl. 15 til 18 og eftir samkomulagi. Fæöingardeild Land-spítalans: Alla daga kl. 15 til 16, feöra-tími kl. 19:30 til 20:30. Fæðingar-heimili Reykjavikur v/Eiríksgötu: Al-mennur tími kl. 15-16 alla daga, feöra- og systkinatími kl. 20-21 alla daga. Öldrunarlækningadeild Landspítal-ans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild Borgarspítala: Virka daga kl. 16 til 19, um helgar kl. 14 til 19:30. Heilsu-verndarstöðin við Barónsstíg: Heimsóknartimi frjáls. Landakotsspltali: Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19. Barnadeild: Heim-sóknir annarra en foreldra kl. 16 til 17 alla daga. St. Jósefs-spitali Hafnar-firði: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Kleppsspítalinn: Alla daga kl 15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkrahús Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness: Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahúsið Húsavík: Alla daga kl. 15 til 16 og 19:30 til 20. ÝMISLEGT Rauða kross húsið: Neyöarathvarf fyrir unglinga, Tjarnargötu 35, » 91-622266, opið allan sólarhringinn. Samtökin 78: Svarað er í upplýsinga- og ráðgjafarsíma félags lesbfa og homma á mánudags- og fimmtudags-kvöldum kl. 21 til 23. Símsvari á öðrum tfmum. «91- 28539. Sálfræðistöðin: Ráðgjöf f sálfræði-legum efnum, ® 91-687075. Lögfræðiaðstoð Orators, félags laganema, er veitt i slma 91-11012 milli kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum. MS-félagið, Álandi 13: Opið virka daga frá kl. 8 til 17, «91-688620. „Opið hús' fyrir krabbameinssjúk-linga og aðstandendur þeirra f Skóg-arhlíð 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19. Samtök áhugafólks um alnæmis-vandann sem vilja styðja smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra f ® 91-22400 og þar er svarað alla virka daga. Upplýsingar um eyðni: » 91-622280, beint samband við lækni/hjúkrunar-fræðing á miðvikudögum kl. 18 til 19, annars símsvari. Samtök um kvennaathvarf: « 91-21205, húsaskjól og aðstoð við konur sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun. Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum, Vestur- götu 3: Opiö þriðjudaga kl. 20 til 22, fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl. 20 til 22, ® 91-21500, símsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa fyrir sifjaspellum: » 91-21500, sfmsvari. Vinnuhópur um sifjaspellsmál: ® 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17. Stígamót, miðstöð fyrir konur og böm sem orðiö hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi. Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar, Vesturgötu 3, » 91-626868 og 91-626878 allan sólarhringinn. Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: ® 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt i « 686230. Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt, » 652936. GENGIÐ 14.ágústl991 Kaup Sala Tollg Bandaríkjad.. .61,130 61,290 63,050 Sterl.pund... 103,252 103,522 102,516 Kanadadollar. .53,358 53,498 55,198 Dönsk króna.. ..9,093 9,117 9,026 Norsk króna.. ..8,994 9,017 8, 938 Sænsk króna.. . .9,676 9,701 9,651 Finnskt mark. . 14, o3 14,501 14,715 Fran. franki. .10,338 10,365 10,291 Belg. franki. . .1,707 1,711 1,693 Sviss.franki. .40,276 40,382 40,475 Holl. gyllini .31,197 31,279 30,956 Þýskt mark... .35,172 35,264 34,868 ítölsk líra.. . .0,047 0,047 0, 046 Austurr. sch. . .4,997 5,010 4,955 Portúg. escudo.0,409 0,410 0,399 Sp. peseti... ..0,561 0,563 0,556 Japanskt jen. ..0,447 0,448 0,456 írskt pund... .94,027 94,273 93,330 LÁNSKJARAVÍSITALA Júni 1979 = 100 1986 1987 1988 1989 1990 1991 jan 1364 1565 1913 2279 2771 2969 feb 1396 1594 1958 2317 2806 3003 mar 1428 1614 1968 2346 2844 3009 apr 1425 1643 1989 2394 2859 3035 mai 1432 1662 2020 2433 2873 3070 jún 1448 1687 2020 2475 2887 3093 júl 1463 1721 2051 2540 2905 3121 ágú 1472 1743 2217 2557 2925 3158 aep 1486 1778 2254 2584 2932 okt 1509 1797 2264 2640 2934 nóv 1517 1841 2272 2693 2938 des 1542 1886 2274 2722 2952 ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 15. ágúst 1991 Síða 13

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.