Þjóðviljinn - 14.09.1991, Page 6
KmWMYWm A Sif Gunnarsdóttir skrifar
—...................................„Kggpfe,.... ............=
Hin hliðin
á Madonnu
Laugarásbíó
Uppí hjá Madonnu (In bed with
Madonna)
Leistjóri: Alek Keshishian
Framleiðendur: Propaganda fllms
í upphafi átti leikstjórinn Kes-
hishian bara að mynda hljómleika-
túrinn Blond ambition, en síðan
ákváðu þau Madonna að gera heim-
ildarmynd um stjömuna sjálfa þar
sem engu væri leynt. Myndavélam-
ar myndu elta hana baksviðs, næst-
um því alla leið inná klósett, og
þannig gætu aðdáendur hennar kom-
ist að því hvemig hún er í „alvör-
unni“.
Afrakstur þessa samstarfs er dá-
lítið undarleg mynd. Það em klippt
saman hljómleikaatriði í lit, við
svart/hvítan raunveruleikann bak-
sviðs.
Hljómleikaatriðin era stórglæsi-
leg, og minna á viðamikla leiksýn-
ingu, því það eru margar sviðs-
myndir, fjölbreyttir búningar og
Madonna er umkringd litríkum
dönsuram í flestum lögunum. Eg
held ekki að nokkur Madonnu-aðdá-
andi verði svikinn af þeim atriðum.
Baksviðs kastar svo Madonna af
sér glitklæðum og farða og kemur
til dyranna eins og hún er klædd (í
slopp), fullkomlega eðiileg (eða
hvað?). Maður fylgist með henni að
rifast við tækniliðið, stríða dönsur-
unum sínum, ræða um og við fjöl-
skyldu sína, heimsækja gröf móður
sinnar, fara í partý, vera dónaleg við
gesti og gangandi, tala við Warren
Beatty og svo ffamvegis. Reyndar á
Beatty besta tilsvarið í myndinni,
þegar hann segir að Madonna hætti
að vera til þegar slökkt er á kvik-
myndatökuvélunum. Líf hennar sé
bundið við vélamar. Og kannski er
það satt, kannski er þetta hið full-
komna egóflipp, en það skiptir í
rauninni engu máli því það er bæði
furðulega skemmtilegt og vel gert.
Og hver sá sem heldur því fram að
Madonna geti ekki leikið ætti að
drífa sig á þessa mynd því að þar
leikur hún sjálfa sig með sóma við
ýmisskonar tækifæri. Geri aðrir bet-
ur.
VlÐHOKF ▲ Vilhelm G. Kristinsson skrifar
Um „ótímabæra minningargrein“
Idálkinum Klippt og skorið í Þjóðviljanum í dag, 11. september, fjallar
Sigurður Á. Friþjófsson ritstjórnarfulltrúi meðal annars um stutta
grein mína í Morgunblaðinu hinn 8. september sem ber fyrirsögnina
„Þjóðviljinn - In memoriam?“. í geininni eru erfiðleikar Þjóðviljans
gerðir að umræðuefni.
Sigurði fellur mjög þungt að for-
maður Siðanefndar Blaðamannafé-
lags Islands skuli setja fram skoðanir
sem séu Þjóðviljamönnum ekki að
skapi. Sigurður telur raunar að ég sé
ekki svara verður nema vegna þess
að ég sé formaður Siðanefndar
Blaðamannafélags Islands. Sam-
kvæmt þessu mega Siðanefndar-
menn ekki láta í ljós skoðanir eða
smekk sem Þjóðviljamönnum falla
ekki í geð.
Sigurður segir rangt að Þjóðvilj-
inn haft á liðnum áratugum varið
sovétið og sósíalismann, slíkt hafi
ekki verið gert síðustu 25 árin eða
svo. Nú vill svo til að Þjóðviljinn var
stofnaður 31. október 1936. Áreið-
anlega þurfum við Sigurður ekki
lengi að leita í árgöngum Þjóðviljans
til að finna sitthvað um ágæti sovéts-
ins. Fróðlegt væri til dæmis að rifja
upp hver orð féllu við lát Stalíns á
sínum tíma. Við tímamót er augum
gjaman rennt yfir farinn veg en ekki
látið svo sem lífið hafi fyrst byrjað
fyrir 25 áram.
Sigurði Á. Friðþjófssyni sámar
mjög að ég skuli segja að mér þyki
Þjóðviljinn leiðinlegt blað og telur
það ekki bera vott um drengskap í
garð starfsmanna blaðsins. Eg er
hins vegar þeirrar skoðunar að það
beri vott um drengskap að segja um-
búðalaust skoðun sina á blaðinu á
þeim krossgötum sem það stendur
nú. Ég tel mig raunar með nokkurri
vissu geta sagt að ég sé ekki einn um
að þykja Þjóðviljinn leiðinlegt blað.
Upplagstölur beri m.a. vitni um það.
„Þjóðviljinn hefúr aldrei fallist á
þá skoðun að eini tilgangur blaðaút-
gáfu sé að gefa út blað,“ segir Sig-
urður og þó að það sé ekki sagt fúll-
um fetum má skilja af orðum hans
að það sé einmitt Þjóðviljinn eins og
hann er nú, sem eigi að gefa út. Hins
vegar virðist mér sjaldan hvarfla að
Þjóðviljamönnum að ástæða þess
hve lesendur era fáir geti verið sú að
eitthvað sé bogið við blaðið. Þó ætti
minnkandi og ónóg sala að vera
nægilegt tilefni til að menn stöldraðu
við og spyrðu sjálfa sig: Getur verið
að blaðið sé ekki nógu gott? Mér
dettur ekki i hug að taka aftur þau
orð að mér þyki Þjóðviljinn þurrku-
og þunglyndislegur og get ekki séð
hvemig seta mín í Siðanefnd Blaða-
mannafélags Islands getur komið í
veg fyrir að ég hafi þá skoðun. Ég
hef einfaldlega annan smekk en Sig-
urður.
Um meintan fjandskap minn við
verkalýðshreyfinguna hirði ég ekki
og læt mér nægja að minna á hvemig
valdhafar í samneysluríkjunum hafa
nauðgað alþýðu manna í nafni
verkalýðshreyfingarinnar og hvemig
sósialísk þjóðfrelsisbarátta hefur ver-
ið háð. Um þessa sömu valdhafa hef-
ur veri fjallað með velþóknun í Þjóð-
viljanum. Og það skiptir ekki nokkra
máli þó að það hafi verið fyrir 25 ár-
um eða svo, - á meðan Þjóðviljinn
hefur ekki beðið lesendur sína afsök-
unar.
Grein mín í Morgunblaðinu ber
heitið „Þjóðviljinn - In memoriam?"
og er því ekíci, vegna spumingar-
merkisins, minningargrein í eigin-
legri merkingu. Hún gæti hins vegar
orðið það ef Þjóðviljinn hlýðir ekki
kalli tímans. Tvö þúsund nýir áskrif-
endur breyta engu nema Þjóðviljinn
breyti sjálfúm sér.
Mér komu á óvart heiftarleg við-
brögð Sigurðar. Ég ber enga upp-
safnaða reiði í bijósti til Þjóðviljans
eins og hann álítur. Hins vegar er ég
þeirrar skoðunar að Þjóðviljamönn-
um sé hollt að fá að heyra annað en
Iofsöngva á þeim umbrotatímum
sem nú ganga yfir. Vafalaust er Þjóð-
viljamönnum sama um skoðanir
mínar, alltént meðan ég segi þær
ekki opinberlega. Mér væri það hins
vegar gleðiefni, þótt ekki væri nema
vegna látinna ættmenna minna ná-
kominna sem eitt sinn unnu Þjóðvilj-
anum hugástum, að Þjóðviljamenn
stöldraðu við og leiddu hugann að
því hvort ástæða þess hve fáir vilja
kaupa blaðið gæti falist í ritstjómar-
stefnu þess. Fyrsta skrefið í umbóta-
átt gæti svo verið að gera rækilega
upp við fortíðina og reka „sósíalíska
þjóðfrelsisdrauginn" á dyr.
11.9.1991
Með bestu kveðju,
Vilhelm G. Kristinsson
MYNDVERKASÝNING
FÉLAGSMANNA V.R.
í LISTASAFNIALÞÝÐU, GRENSÁSVEGI 16A, 31. ÁGÚSTTIL 15. SEPTEMBER 1991
í tilefni 100 ára afmælis Verzlunarmannafélags Reykjavíkur sýna 30 félagar V.R.
verk sín, en þeir vinna allir áb myndlist í tómstundum sínum.
Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 14-22 og um helgar kl. 10-22
ALLIR VELKOMNIR - ÓKEYPIS AÐGANGUR
18 9 1-19 9 1
Vef2iunarmannafélag Reykjavíkur
^JÓÐVILJINN Laugardagur 14. september1991
SMÁFRÉTTIR
Kosningavaka í
Norræna húsinu
Kosningavaka verður í Nor-
ræna húsinu á morgun í tilefni
kosninganna í Svíþjóð. Kosið er til
þings, landsþings og bæjarstjóma.
Fylgst verður með talningu at-
kvæða símleiðis og með mynd-
sendi. Sænska sendiráðið leggur
ffarn tækjakost sinn svo unnt verði
að fylgjast með ffamvindu kosn-
inganna. Fyrstu tölur verða vænt-
anlega birtar fynr kl. 19 á sunnu-
dagskvöld og verður kafílstofa
Norræna hússins opin ffam eftir
kvöldi af þessu tilefni.
Félagsstarf aldraðra
Félagsstarf aldraðra í Gerðu-
bergi mánudaginn 16. september
verður sem hér segir: Fyrir hádegi
hárgreiðsla og fótsnyrting. Kl. 11
byrjar leikfimi hjá Maríu Gunnars-
dóttur leikfimikennara. Kl. 12 há-
degishressing. Eftir hádegi spila-
mennska og upplestur. Kl. 15 kaffi.
Kl. 15.30 hefjast dansæfingar hjá
Sigvalda danskennara. Nánari upp-
lýsingar í síma 79020.
Nafnalög
og nafngiftir
Hermann Pálsson prófessor
heldur opinberan fyrirlestur í boði
heimspekideildar Háskóla íslands
þriðjudaginn 17. september kl.
17.15 í stofú 201 í Ámagarði. Fyr-
irlesturinn nefnist „Nafnalög og
nafngiftir" og er öllum opinn. Her-
mann Pálsson er professor emeritus
við Edinborgarháskóla og hefúr lát-
ið ffá sér fjölda rita um íslensk
ffæði. Hann var kjörinn heiðurs-
doktor ffá heimspekideild 1987.
Jass á Hvammstanga
Fyrstu tónleikar Tónlistarfé-
lags Vestur Húnvetninga, sem
stofnað var í ágúst sl., verða á Hót-
el Vertshúsi á Hvammstanga nk.
miðvikudag, 18. september og
hefjast kl. 21. Á tónleikunum leik-
ur kvartett Sigurðar Flosasonar og
söngkonan Andrea Gylfadóttir
jasstónlist. Kvartettinn skipa auk
Sigurðar, Þórður Högnason kontra-
bassa, Matthías Hemlock trommur
og Kjartan Valdimarsson á píanó.
Ekkert aldurstakmark er á tónleik-
unum. Allir em velkomnir og lofað
er góðri sveiflu.
Rabbfundur um nátt-
úruhús undir berum
bimni
Náttúravemdarfélag Suðvest-
urlands stendur fyrir rabbfiindi um
„Náttúrahús undir berum himni" í
dag kl. 16. Fundurinn verður í
Hafnarhúsinu að vestanverðu, I.
hæð. Rifjuð verða upp ferðalög
sem félagið fór 1983 og nefndi
„Náttúragripasafn undir beram
himni“. Tilgangurinn með ferða-
röðinni var að vekja athygli á að ís-
lendingar hefðu ekki komið upp
ffambærilegu náttúrugripasafni. í
von um að fúllbúið náttúruhús rísi
innan skamms á nú að taka upp
þráðinn með nýju sniði. Hugmynd-
ir um það verða ræddar á fundinum
sem er opinn öllu áhugafólki.
Kolaportið líka á
sunnudögum
Kolaportið verður nú iíka opið
á sunnudögum frá og með þessari
helgi. Alls komast 250 seljendur
fyrir í Kolaportinu um hveija helgi
og er reiknað með um 20 þúsund
gestum að meðaltali. Sunnudagar
verða fjölskyldudagar í Kolaport-
inu og á morgun verður þar margt
til skemmtunar fyrir böm og fúll-
orðna. Simpson fjölskyldan verður
á staðnum kl. II til 13, fjöldi fyrir-
tækja verða með sérstakar kynn-
ingar og Kolaportsálfamir gefa
bömunum lukkupoka með ýmsu
góðgæti. Opið á laugardögum 10
til 16, á sunnudögum 11 til 17.
Flóamarkaður Félags
einstæðra foreldra
Flóamarkaður Félags einstæðra
foreldra verður í Skeljahelli,
Skeljanesi 6, í dag ffá kl. 14 til 17.
Leið 5 liggur að húsinu.
Síða 6