Þjóðviljinn - 01.10.1991, Síða 3

Þjóðviljinn - 01.10.1991, Síða 3
9 A Guðsteinn Þengilsson skrifar I lD.A.Cir 1. október er þriðjudagur. Remigíusmessa. 274. dagur ársins. Sólarupprás í Reykjavik kl. 7.40 - sólarlag kl. 18.59. Viðburðir Þjóðhátíðardagur Kína, Kýpur og Nígeríu. Latínuskólinn í Reykjavik vígður 1846. Stýri- mannaskólinn í Reykjavík tek- ur til starfa 1891. Þjóðviljinn fyrir 50 árum Sprengjum rignir yfir Berlín, Stettín og Hamborg. Harðar loftárásir á borgir í Þýzkalandi og herteknu löndunum. Rauði herinn hefur bætt aðstöðu sína við Leningrad. Churchill spáir stórkostlega auknum hernaðaraðgerðum með vor- inu. fyrir 25 árum Sjónvarpið fór vel af stað i gær. ( gærkvöld á slaginu klukkan 20 rann upp sú stund er (slenzka sjónvarpið tók til starfa. Fæstum blandast hug- ur um það eftir þessa send- ingu, að íslenzka sjónvarpiö hafi farið vel af stað. Sá spaki Ég kvefaðist í garðinum. Hlið- ið var opið. (James Joyce) á stöðu Sjónvarpsins Þorsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri Kvikmyndasj óos í samanburði við nágrannaþjóðimar hefur mér fundist dagskrá íslenska Sjónvarpsins síðustu árin furðu góð. Sem dæmi má nefna fréttir og frétta- tengt efni. Hins vegar hefur Stöð 2 ekki staðið sig verr á því sviði svo þar erum við kannski að tala um eitt- hvað sem liggur okkur nærri. Sjónvarpsstöð verður fyrst og fremst að fylla dagskrártímann. Valið stend- ur milli þess að kaupa tilbúið ódýrt erlent eftii eða ffamleiða og kaupa íslenskt efni á fúllu verði. Vegna áhuga okkar Islendinga á eigin menningu hefði maður búist við meiri áherslu á vandað innlent efni. Að ýmsu leyti hefúr skort metnað í innlendri ffamleiðslu, sérstaklega heimildamyndum og leiknu efni, og gæðin ekki í samræmi við magnið. Annað hvort hefúr valið á handritum verið í ólagi eða ekki boðist nógu góð handrit. Offast hefúr ekki skort á gæði handverks eða leikara. Af því efni, sem Sjónvarpið hefúr sjálft gert, er lítið um perlur í íslenskri kvikmyndalist. Eg hefði kosið að meiri áhersla hefði verið lögð á vandað íslenskt efni í samvinnu við kvikmyndagerðarmenn. Samvirman hefúr aukist á seinni árum en að mestu takmörkuð við ódýra viðtals- þætti og skýrslur. Hins vegar hefúr Sjónvarpið gert íslenskri kvik- myndagerð mikið gagn með því að þar hafa kvikmyndagerðarmenn hlotið starfsþjálfun í hinum ýmsu greinum. •mjiNN Orð til íhugunar Vegna þess að Þjóðviljinn á í fjárhagslegum erfiðleik- um um þessar mundir og því alger óvissa um framtíð hans, langar mig tii að vekja at- hygli á ýmsu um biaðið, hlutverk þess og gildi fyrir íslenskan al- menning. Mörg okkar sem teljum okkur stuðningsmenn blaðsins og viljum efla hag þess og velgengni á allan hátt, höfúm sjálfsagt verið ósátt við margt sem þar hefúr verið rit- að, en þó liklega fremur gramist að hafa ekki fundið á síðum þess það, sem við töldum að ætti að vera þar. Kannske fannst okkur stundum að vantaði hörkuna og eldmóðinn sem einkenndi hugsjónamennina á fyrstu árum blaðsins, mannanna sem stóðu jafnframt meðal félaga sinna í baráttunni fyrir lífskjörum til jafns við aðra. Kannske hafi stundum örlað á því að sumt í mál- flutningi væri sótt til borgarapress- unnar og sjálfur erkióvinurinn, auðvaldsdraugurinn, hafi verið lát- inn sleppa of auðveldlega. Gott ef asnaeyrum höfuðQandans hefur ekki skotið upp þar sem við áttum þeirra síst von. Samt heldur Þjóðviljinn áfram að vera blaðið okkar. Nú steðjar að okkur sérhagsmunapólitík yfir- gangsmanna sem aldrei fyrr, enda eiga þeir nú ötula málsvara í ríkis- stjóm. Þegar yfir okkur rignir slag- orðum á borð við „fijálshyggja“, „einstaklingshyggja", „frelsi ein- staklingsins" og fleira því líkt, orð sem virðast meinleysisleg í fljótu bragði, en er beint gegn félagsvit- und manna, samvinnuhugsjónum og tilfmningu fyrir því að við eig- um jafnan rétt til lífsins gæða, er Þjóðviljinn enn sem fyrr málgagn- ið sem reynir að andæfa. Guðsteinn Þengilsson. - Mynd: Kristinn Ovígar hersveitir auðmagns- tekið höndum saman við illvígustu hyggju og markaðsbúskapar hafa afturhaldsöfl álfunnar hvar sem þau finnast. Þessi öfl vilja gleypa okkur og soga inn í þá ríkjasam- steypu þar sem aldrei spyrðist til okkar ffamar, því við misstum allt sem gerir okkur að sjálfstæðri þjóð. Við töpuðum menningu okk- ar og tungu, þjóðemi og auðlind- um. Okkur liggur lífið á að efla þær raddir sem hrópa gegn þessu. Ríkisstjóm fjandsamleg alþýðu flær af okkur þau réttindi sem við höfúm áður haft. Hún þrengir kosti þeirra sem vilja mennta sig með litlum efnum og rýrir hag sjúkra og aldraðra. Allt stefnir í einkavæð- ingu á sviðum þar sem við höfúm notið þjónustu í anda velferðar ára- tugum saman. Þjónusta og undir- gefni við braskara, sérhyggjufólk og fjárglæframenn eykst hröðum skrefum og fénaði þessum leyft að eflast á kostnað almennings. Fjár- sterkum aðilum era seldar eignir þjóðarinnar og völdin færast jafn- framt í þeirra hendur smátt og smátt. Ef við viljum hamla gegn þeirri þróun sem hér er lýst hljótum við að reyna að styrkja þá rödd er helst hefur talað máli þeirra sem minnst mega sín og barist fyrir réttindum þeirra. Þess vegna má Þjóðviljann ekki vanta. Sameinumst um að verja hann svo að hann geti varið okkur. Geramst áskrifendur ef við eram það ekki þegar. Kaupum að öðram kosti aukaáskrift og sendum blaðið vinum, vandamönnum eða góðkunningjum. Við styrkjum tilvera okkar og þegnrétt í landinu með því að styrkja blaðið sem berst fyrir okk- ur. Kaupum Þjóðviljann og send- um hann vinum okkar. Höfúndur er læknir. ÞlRÁNDIM ^TKlRirFAR AywgT Viðkvæmt mál á hjarta „Dag nokkurn komu tveir af fréttamönnum sjónvarpsins til mín í ráðuneytið. Allir voru hinir nýju fréttamenn ágætum hæfi- leikum búnir og urðu fljótt mjög vinsælir. Eg fann strax, að þeim lá viðkvæmt mál á hjarta. Þeir sögðu, að þeim geðjaðist mjög vel að starfi sínu og hefðu ágætt samband við forystumenn í þjóðlíf- inu. Þeir hefðu einnig náin tengsl við ráðherrana, nema hvað þeir væru ekki ánægðir með samband sitt við forsætisráðherrann, Davíð Oddsson. Þeir kváðust bera mikla virðingu fyrir honum, en hefðu áhyggjur af, hversu tregur hann væri til að veita þeim viðtöl. Þeir lögðu áherzlu á, að þeir segðu þetta vegna þess, að þeir teldu þetta skaða hann, og að því vildu þeir með engu móti stuðla. Ég spurði þá, hvort ég mætti segja forsætisráðherra frá samtalinu. Þeir töldu það sjálfsagt. Síðar um daginn fór ég til Davíðs Oddssonar og sagði honum frá þessu. Svar hans var stutt og laggott: „Segðu þessum ungu mönn- um, að ég ætli sjálfur að ákveða, hvort ég sé ástæðu til þess að koma í sjónvarpið og hvenær, og þá sömuleiðis um hvað ég ta!a.“ Nokkru síðar kallaði ég á fréttamennina og sagði þeim frá svari forsætisráðherrans. Við ræddum málið um stund og skildum í mikilli vinsemd. Þegar ég sagði Davíð, að ég hefði skilað svari hans til fréttamannanna, sagði hann brosandi, að auðvitað gerði hann sér Ijóst mikilvægi sjónvarps og kynni vel að meta áhuga fréttamanna og velvild þeirra. En hann bætti við, eitthvað á þá lund, að þeir ættu ekki að móta þá mynd, sem þjóðin fengi af viðfangsefnum sínum.“ að er Gylfi Þ. Gislason, en hann hefur setið lengur í stóli menntamálaráðherra en nokkur annar, sem segir svo frá samskiptum við fréttamenn sjón- varpsins, í Morgunblaðinu á sunnudaginn var. Gylfi er hér að lýsa heimulegu samtali á íyrstu dögum íslensks sjónvarps, þegar hann var menntamálaráðherra. Það hefur verið gaman að vera forsæt- isráðherra á þeim áram sem frétta- mönnum sjónvarpsins lá það „við- kvæma mál á hjarta“ að forsætis- ráðherrann væri að skaða sjálfan sig með þvi að vilja ekki tala við þá. Til skilningsauka fyrir nútím- ann hefur Þrándur skipt um nafn í textanum og sett Davíð Oddsson i stað Bjama Benediktssonar. Þetta verða lesendur að virða Þrándi til betri vegar, en það er einfaldlega óbærileg freisting að víkja til orði af þessu tilefni og færa sig ögn til í timanum. Það er áreiðanlega lítið gaman að vera pólitíkus eins og fréttamennimir láta núna. Til dæm- is dettur engum fréttamanni i hug að verja forsætisráðherrann með öllum tiltækum ráðum fyrir skaða. Þaðan af síður að menn fari til 01- afs Garðars, sem nú situr í ráðu- neyti menntamála, og biðji hann í Bjarni Benediktsson allri náð að segja forsætisráðherr- anum að þeir hefðu af því áhyggjur að hann vildi ekki tala við þá. Þetta er auðvitað bara nútíma ósvífni sem veldur bæði leiðindum og óþarfa fyrirhöfn. Eins og allir geta séð væri gríðarlegt hagræði að því, ekki bara fyrir forsætisráðherrann heldur rikisstjómina alla, ef frétta- menn væra ekki stöðugt að „móta þá mynd sem þjóðin fær af við- fangsefnum sinum“. Verst af öllu er þó sú kaldranalega staðreynd að fréttamennimir era alltaf að segja frá þeirri mynd sem viðfangsefni forsætisráðherrans og ríkisstjómar- innar skapa þjóðinni. Afleiðingam- ar af þessu era hreint út sagt geig- vænlegar, sem best sést á því að Gylfi Þ. Gíslason sex af hveijum tíu kjósendum vilja ekkert með þessa ríkisstjóm hafa lengur. Meðal annarra orða: Vill ekki einhver til gamans velta fyrir sér hvemig fféttaflutningur fjölmiðl- anna væri ef afstaða ffétta- og blaðamanna væri sú sem sjálfsögð þótti við upphaf íslensks sjónvarps, þegar forsætisráðherrann „ákvað sjálfur hvort hann sæi ástæðu til þess að koma i sjónvarpið og hve- nær, og þá sömuleiðis um hvað hann talaði.“? Ut úr því gæti komið fróðleg mynd, en ekki að sama skapi upp- lýsandi. - Þrándur. Síða 3 ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 1. október 1991

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.